Dagur - 31.12.1998, Síða 23
í>^ir
FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1998 - 39
ÁRAMÓTALÍFIÐ í LANDINU
1.
Nýtt andlit í stjórnmálum skip-
aði 9. sæti á lista Reykjavíkur-
listans fyrir borgarstjómarkosn-
ingar nú í vor. Hvaða andlit var
þetta?
a) Anna og útiitið.
b) Helgi Pétursson.
c) Anna Geirsdóttir.
2.
Afmæli ársins á Islandi var hald-
ið í Perlunni þann 17. janúar á
þessu ári, fimmtugsafmæli þar
sem á annað þúsund manns
mætti. Hvert var afmælisbarnið?
a) Halldór Ásgrímsson.
b) Davíð Oddsson.
c) Mummi í Mótorsmiðjunni.
3.
Hestamennska landands komst í
uppnám vegna sjúdóma og á
tímabili stefndi í að ekkert yrði
úr Landsmóti hestamanna. En
hver var þessi sjúkdómur?
a) Kreuzfeldt Jacob riðuveikin.
b) Hitasótt sem lagðist á hross.
c) Hitasótt og kvefpest sem
lagðist á hestamenn.
4.
I apríl sögðu þrír bankastjórar
Landsbanka íslands af sér vegna
vafasamra mála. Sérstaklega
þótti Sverrir Hermannsson á
gráu svæði. Vegna hvers?
a) Hélt veislur bankans heima
hjá sér svo þau hjón fengju
afgangana.
b) Veiddi á kostnað bankans í
Hrútafjarðará, sem hann Ieig-
ir sjálfur.
c) Notaði Z-una í pappírum til
Ríksendurskoðunar.
5.
Stórbruni varð í miðborg
Reykjavíkur í júlí. Þar brann hús
Nýja-bíós til kaldra kola. Það
hefur nú verið selt til verslunar-
fyrirtækis sem hyggst byggja nýtt
hús á sama stað fljótlega á nýju
ári. Hvaða fyrirtæki er þetta
a) Nóatún.
b) Bónus.
c) Silli og Valdi.
6.
Miklar umræður sköpuðust á ár-
inu um hlutverk og skyldur for-
seta Islands, einkum vegna
ræðu sem hann flutti á Hólum í
Hjaltadal síðla sumars. Hvað
ræddi hann um þar?
a) Fíkniefnavandann.
b) Erfðavísindi.
c) Niðurskurð til heilbrigðis-
mála.
7.
Nýtt sveitarfélag var myndað á
árinu með sameiningu Selfoss
við Eyrarbakka, Stokkseyri og
Sandvíkurhrepp. Hvað heitir
þetta sveitarfélag?
a) Árborg.
b) Árbyggð.
c) Flóabær.
8.
Rafiðnaðarsamband Islands og
Félag járniðnaðarmanna áttu í
haust í stríði við Landsvirkjun
og fleiri. Um hvað var deilt?
a) Rafiðnðararmenn og járn-
smiðir voru að gera við Ölf-
usárbrú og vildu ekki leyfa
Halldóri Jónatanssyni for-
stjóra Landsvirkjunar að aka
yfir.
b) Starfsmenn verktakafyrirtæk-
isins Technopromexport
fengu ekki greitt skv. íslensk-
um samningum, sem vera
bar.
c) Lengja átti framkvæmdatím-
ann án samráðs við starfs-
menn.
9.
Juri Resetov, sendiherra Rúss-
lands á Islandi, mótmælti harð-
Iega grein í íslensku dagblaði
sem kom snemma á árinu og bar
yfirskriftina „Róninn rís úr
rekkju". Islensk stjórnvöld tóku
undir orð sendiherrans. Um
hvað fjallaði greinin?
a) Bragðvondan rússneksan
vodka.
b) Drykkjuskap Borisar Jeltsín.
c) Slæman aðbúnað á meðferð-
arheimilum fyrir áfengissjúkl-
inga í Rússlandi.
10.
Nýr kaupfélagsstjóri kom til
starfa hjá KEA á fyrstu mánuð-
um árs. Hvað heitir hann og
hvaða starfi gegndi hann áður.
a) Eiríkur Sigurðsson, útibús-
stjóri Islandsbanka á Akur-
eyri.
b) Ingi Björnsson, forstjóri
Slippstöðvarinnar.
c) Eiríkur Jóhannsson, svæðis-
stjóri Landsbankans á Norð-
urlandi.
11.
Kosningabarátta í Hveragerði í
vor var óvægin og tók óvænta
stefnu með dreifibréfum með
sleggjudómum. Þar var fullyrt?
a) Að fjölskyldur ætluðu að
flytja brott vegna geðsjúkra
afbrotamanna sem ætti að
vista í bænum.
b) Að Framsóknarflokkurinn
væri á móti jarðskjálftamæl-
um sem ekki bætti úr skák í
þessum jarðskjálftabæ.
c) Áð flytja ætti hluta af starf-
semi SÁA í bæinn.
12.
Biðraðir aldarinnar mynduðust
suður í Kópavogi snemma á ár-
inu. Af hvaða tilefni var það?
a) Vegna opnunar Raftækja-
markaðar ELKO.
b) Rýmingarsölu í verslun
ÁTVR.
c) Ameríski sjónvarpspredikar-
inn blessaði íslenska alþýðu,
án endurgjalds.
13.
„Enginn Brimarhólmur fyrir af-
dankaða embættismenn." Af
hvaða tilefni féllu þessi ummæli
á árinu?
a) Fleyg setning í nýju leikriti
Ragnars Arnalds.
b) Vestfirðingar mótmæltu því
að gera ætti Sigurð Gizurar-
son sýslumann á Hólmavík úr
því hann stóð sig ekki í stykk-
inu á Akranesi.
c) Kristinn H. Gunnarsson um
veru sína í Alþýðubandalag-
inu.
14.
Tókbaksvarnanefnd sendi
snemma á árinu erindi til sveit-
arfélaganna í landinu með
hvatningarorðum. Hver voru
þau?
a) Að kosta kapps að ráða til
sumarvinnu unglinga sem
reykja vegna bágra félagslegra
aðstæðna þeirra.
b) Að refsa unglingum sem
reykja með því að ráða þá
ekki til sumarstarfa.
c) Að banna notkun fínkorna
neftóbaks.
15.
Miklar deilur spruttu upp innan
Sambands ungra framsóknar-
manna á árinu vegna formanns-
kjörs. Hver voru ágreiningsefnin
a) Meint brögð í tafli við kjörið
þar sem sitjandi formaður
sigraði með einu atkvæði.
b) Hvort SUF ætti að styðja
Finn eða Siv í varaformanns-
kjöri í flokknum.
c) Fjöldi fulltrúa SUF í árlega
sumar-grillveislu Halldórs As-
grímssonar.
16.
Dæmt var á árinu í máli nokk-
urra þjóðþekktra manna sem
efndu til hnefaleikasýningar,
sem eru óheimilar skv. lögum.
Hvaða menn voru þetta?
a) Dr. Gunni og Jón Arnar
Magnússon.
b) Stefán Hilmarsson og Björn
Leifsson í World Class.
c) Bubbi Morthens og Fjölnir
Þorgeirsson.
17.
Snemma í vor var komið með
mikla flotkví til Hafnarfjarðar og
ekki gekk þrautalaust að koma
henni hingað til lands. Hverjar
voru þrautir þessar?
a) Kvíin fékkst ekki tollafgreidd
frá yfirvöldum f Skotlandi.
b) Kvíin slitnaði aftan úr drátt-
arbát sem dró hana til lands-
ins og þurfti aðstoð tveggja
varðskipa til að bjarga mál-
um.
c) Mikils ryðs af völdum seltu
hefur orðið vart í kvínni eftir
ferðalagið yfir hafið.
Myndaspumingar:
Myndir þessari líkar birtust oft-
sinnis í blöðum á árinu. Það var
inni á hálendinu sem Guð-
mundur Páll Ólafsson flaggaði
íslenska fánanum en af hvaða
tilefni gerði hann það?
a) Hann komst ekki til byggða í
hátíðarhöldin á 17. júní.
b) Hann var að mótmæla gerð
uppistöðulóna Hágöngumiðl-
unar.
c) Hann var að mótmæla Sultar-
tangavirkjun?
19.
Kristján Jóhannsson kom norður
á Akureyri í október og söng á
fjölsóttum tónleikum. Af hvaða
tilefni voru þeir haldnir?
a) I minningu föður hans sem
orðið hefði áttræður f fyrra.
b) Til styrktar handboltadeild
KA.
c) Vegna byggingar tónlistarhúss
á Akureyri.
20.
Á fyrstu dögum ársins voru
greidd atkvæði um boðun verk-
falls sjómanna sem var sam-
þykkt. Varð verkfallið langvinnt.
Hver voru helstu deiluefni í
verkfallinu?
a) Of Iöng úthöld í Smugusigl-
ingum.
b) Lögleiðing sjálfvirks sleppi-
búnaðar um borð í skip.
c) Þátttaka sjómanna í kvóta-
kaupum, sem ekki er skv.
samningum.
21.
Afhjúpaður var í sumar minnis-
varði um Fjalla-Eyvind og Höllu
og hetjulega baráttu þeirra á ör-
æfum Islands á síðustu öld. Eru
á myndinni listamaðurinn sem
gerði verkið og einn af afkom-
endum Eyvindar. Hvar er varð-
inn staðsettur
a) I Landmannalaugum.
b) Við Litlu-Kaffistofuna í
Svínahrauni.
c) Á Hveravöllum.
22.
Enginn gat verið maður með
mönnum í fyrravetur nema sjá
myndina Titanic sem gekk fyrir
fullu húsi í bíóum svo mánuð-
um skipti. Hvað sáu margir Is-
lendingar alls þessa mynd?
a) 50 þúsund.
b) 80 þúsund.
c) Vel yfir 100 þúsund.
23.
Sleðamenn. Björgunarsveitir á
Norðurlandi komu að umfangs-
mikilli Ieit í íyrravetur að sleða-
mönnum sem týndust. Tveir
þeirra gengu til byggða og sjást
þeir á þessari mynd en hinum
var bjargað um síðir af Nýjabæj-
arljalli. Hvaðan voru þessir
sleðamenn?
a) Frá Dalvík.
b) Ólafsfirði.
c) Grenivík.
24.
I apríl síðastliðnum lét Friðrik
Sophusson af embætti Ijármála-
ráðherra og nú um áramótin
lætur hann af þingmennsku.
Hvaða ráðherraembætti öðru
hefur Friðrik gegnt á stjórn-
málaferli sínum.
a) Viðskiptaráðherra.
b) Iðnaðarráðherra.
c) Dómsmálaráðherra.
25.
Sjálfstæðismenn á Akureyri voru
sigurvegarar kosninganna á Ak-
ureyri í vor og náðu fimm full-
trúum í bæjarstjórn. Fimmti
fulltrúinn er lengst til hægri á
þessari mynd. Hver er hún?
a) Vilborg Guðmundsdóttir
b) Vilborg Gunnarsdóttir
c) Vilborg Halldórsdóttir.
Könnun þessi er einungis sett
frant til gamans og engin verð-
laun eru í boði. Rétt svör verða
birt tfyrsta blaði eftir áramót.