Dagur - 31.12.1998, Qupperneq 25
X^nr.
FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 199B - 41
ÁRAMO TALÍFIÐ í LANDINU
Kristjánsson, Val og Brynja
Steinsen, Val bestu sóknar
mennirnir og Halldór Sig-
fússon, KA og Dagný Skúla-
dóttir, FH efnilegustu Ieik-
mennirnir.
Glíma
Ingibergur Sigurðsson, Vík-
verja varð Glímukóngur Is-
lands í 88. Islandsglímunni
sem fram fór í Reykjavík. Ingi-
bergur hlaut 7,5 vinninga og
tapaði engri glímu í keppninni.
Knattspyrna
Keflvíkingar urðu „Meistarar
meistaranna" eftir 3-1 sigur á Is-
landsmeisturum IBV í Keflavík.
Framarar urðu Reykjavíkur-
meistarar í knattspyrnu, er þeir
sigruðu Val 2-0 í úrslitaleik
mótsins.
Þórsarar urðu JMJ-meist-
arar Norðurlands, þegar þeir
sigruðu KA 3-1 í úrslitaleik
mótsins.
Breiðablik varð deildarbikar-
meistari í kvennaflokki, eftir 3-2
sigur á Val í úrslitaleik.
Sund
Keppnissveit Sundfélags Haín-
arfjarðar varð Norðurlanda-
meistari í garpasundi á Norð-
urlandamótinu sem haldið var í
Sundhöll Reykjavíkur.
Lyftingar
Jón Gunnarsson, kraftlyftinga-
maður, setti átta Islandsmet á
íslandsmótinu í kraftlyftingum
og sigraði með yfirburðum í 100
kg flokki.
Sigurvegarar í öðrum flokkum
voru: Jón B. Reynisson í +125
kg flokki, Vilhjálmur Hauksson
í 110 kg flokki, Alfreð Björns-
son í 90 kg flokki, Alex Cala í
80 kg flokki, Halldór Eyþórsson
í 75 kg flokki og Hugrún
Hilmarsdóttir í kvennaflokki.
Snóker
Kristján Helgason varð
Evrópumeistari í snóker, þegar
hann gjörsigraði Möltubúann
Alex Borg 7-2 í úrslitaleik
keppninnar. Arangurinn er sá
besti sem Islendingur hefur
náð í snóker tilk þessa.
Frjálsar íþróttir
Þórey Edda Elísdóttir, FH, setti
nýtt íslands- og Norðurlanda-
met í stangarstökki utanhúss er
hún stökk 4,18 m á stökkmóti í
Hafnarfirði. Hún bætti þar með
met Völu Flosadóttur frá 1996,
sem var 4,17 m.
Júní
Snóker
Jóhannes B. Jóhannesson varð
Islandsmeistari í snóker þegar
hann sigraði Evrópumeistarann
Kristján Helgason í úrslitaleik.
Sund
Keflvíkingar urðu stigahæstir á
Aldursflokkameistaramótinu í
sundi sem fram fór í Kópavogi. I
2. og 3. sæti urðu SH ogÆgir.
íslandsmeistaramótið í sundi
fór fram í Laugardal. Hjalti
Guðmundsson, SH náði besta
árangri allra keppenda og hlaut
þar með Pálsbikarinn eftirsótta
annað árið í röð.
Almenningsíþróttir
Árlegt kvennahlaup fór fram
sunnudaginn 21. júní á 82
stöðum á landinu. Mjög góð
þátttaka var í hlaupinu, en yfir
22 þúsund konur hlupu.
JÚlí
Golf
Sigurpáll Geir Sveinsson, GA,
varð sigurvegari í opnum flokki á
Arctic Open golfmótinu á Akureyri.
Meistaramót eldri kylfifnga fór
fram á Grafarholtsvelli og urðu
þau Sigríður Mathiesen, GR,
og Sigurður Albertsson, GS,
sigurvegarar án forgjafar.
Frjálsar íþróttir
íslenska karlalandsliðið í fjöl-
þraut náði þeim frábæra árangri
að verða í 1. sæti í Evrópu-
keppni 2. deildar, sem fram fór
í Laugardal. Auk Islendinga voru
Danir, Irar og Belgar með í
keppninni og náði Jón Arnar
Magnússon bestum árangri allra
keppenda. Athygli vakti góður
árangur Bjarna Þórs Trausta-
sonar sem náði 4. sæti i
keppninni. Islenska karlaliðið
færist þar með í 1. deild
Evrópukeppninnar.
íslenska kvennaliðið lenti í 3.
sæti keppninnar, en þar kepptu
einnig lið Spánveija og Sviss-
lendinga og sigruðu Spánveijar.
Þórey Edda Elísdóttir varð
Norðurlandameistari ungmenna
í stangarstökki.
ÍR-ingar urðu sigursælastir á
meistaramóti Islands sem fram
fór í Laugardal og hlutu alls
224,5 stig. Næstir komu FH-
ingar með 187 stig og síðan
UMSS með 119 stig.
Bestum árangri allra keppenda
náði IR-ingurinn ungi, Karl
Hjartarson, sem stökk 2,17 m í
hástökki og setti þar með nýtt
íslandsmet.
íþróttir fatlaðra
Geir Sverrisson setti nýtt Islands-
met í 100 m hlaupi, flokki
T46, þegar hann hljóp á 11,13
sek. á opna þýska meistaramóti
hreyfihamlaðra. Hann varð í 2.
sæti 100 m hlaupsins, en
sigraði í 400 m hlaupi á 50,61
sek.
Siglingar
íslandsmótið í siglingum á
Optimist og Europe kænum fór
fram á Akureyri. Sigurvegari í
Optimistflokki varð Skúli
Þórarinsson, Brokey, en Snorri
Valdimarsson, Ymi, sigraði í
Europe-flokki.
Islandsmótið í flokki Secret-
báta fór fram í Hafnarfirði og
varð áhöfn á Sif frá Kópavogi
Islandsmeistari. Skipstjóri var
Ólafur Bjarnason.
Almenningsíþróttir
Akureyrarmaraþon fór fram
þann 18. júlí. Þau Martha
Ernstdóttir og Sigmar Gunn-
arsson urðu sigurvegarar í
hálfmaraþoni, en í 10 km hlaupi
þau Bryndís Brynjarsdóttir og
Rune Bolaas.
Borðtennis
Guðmundur E. Stephensen,
Islandsmeistari í borðtennis
varð í 2. sæti í tvíliðaleik á
Evrópumeistaramóti unglinga í
borðtennis. Guðmundur lék
með Dananum Michael Maze
en þeir leika sarnan hjá danska
félaginu Odense Boldklub.
Ágúst
Sund
Örn Arnarson, SH, setti sex
íslandsmet á Evrópumeistara-
móti unglinga sem fram fór í
Antwerpen í Belgíu. Hann náði
2. sæti í 200 m baksundi og
einnig 2. sæti í 200 m
skriðsundi.
Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir,
IA, stóð sig einnig vel á mótinu
og setti eitt Islandsmet, í 100 m
skriðsundi.
Golf
Þau Ragnhildur Sigurðardóttir,
GR, og Sigurpáll Geir Sveins-
son, GA, urðu Islandsmeistarar
í meistaraflokki á íslandsmótinu
í golfi, sem fram fór á Hólmsvelli
í Leiru.
I 1. flokki sigruðu þau Helga
Gunnarsdóttir, GK, og Rósant
Birgisson, NK, en í 2. flokki þau
Birgir Guðmundsson, GOB, og
Hjördís Ingvarsdóttir, GR.
Golfklúbbur Akureyrar sigraði
á Islandsmótinu í sveitakeppni 1.
deildar karla og Golfklúbbur-
inn Kjölur í 1. deild kvenna, á
sveitamótinu sem fór fram á
Jaðarsvelli á Akureyri.
Frjálsar íþróttir
Jón Arnar Magnússon lenti í 4.
sæti tugþrautarkeppninnar á
Evrópumeistaramótinu sem
fram fór í Budapest.
Islendingar eignuðust þijá Norð-
urlandameistara á Norðurlanda-
móti unglinga sem fram fór í
Danmörku. Jón Asgrímsson,
FH, sigraði í spjótkasti, Sveinn
Þórarinsson, FH, sigraði í 400
m grindahlaupi og Vala Flosa-
dóttir, IR, í stangarstökki.
FH-ingar urðu bikarmeistarar f
frjálsum íþróttum 5. árið í röð.
Þeir sigruðu ÍR-inga með 10
stiga mun eftir spennandi
keppni.
Almenningsíþróttir
Metþátttaka varð í Reykjavíkur-
maraþoni sem fór fram 23. ág-
úst. Sigurvegarar í heilu mara-
þomi urðu Bretinn Dan Rath-
bone í karlaflokki og Lorraine
Masouka frá Bandaríkjunum í
kvennaflokki. I hálfmaraþoni
sigraði Tansaníumaðurinn
Onesmo Ludago og Martha
Emstdóttir. í 10 km hlaupi
sigruðu Daníel Smári Guð-
mundsson og Helga Björns-
dóttir.
Knattspyrna
KR-ingar urðu deildabikar-
meistarar í knattspyrnu eftir 8-7
sigur á Valsmönnum eftir fram-
Iengingu og vítaspyrnukeppni í
úrslitaleik á Laugardalsvelli.
KR-ingar hófu leikinn án sjö
fastamanna og var staðan 1-1
eftir venjulegan leiktíma.
Eyjamenn urðu bikarmeistarar
í knattspyrnu eftir 2-0 sigur á
Leiftri í úrslitaleik bikarsins í
Laugardal. Bræðurnir Stein-
grímur og Hjalti Jóhannessynir
skoruðu mörkin.
September
Knattspyma
Islenska karlalandsliðið, undir
stjórn Guðjóns Þórðarsonar,
gerði 1-1 jafntefli við heims-
meistara Frakka, í riðlakeppni
Evrópumóts landsliða í Laugar-
dalnum þann 5. september.
Ríkharður Daðason kom Is-
lendingum yfir, þegar hann
skallaði í markið eftir auka-
spyrnu Rúnars Kristinssonar,
en Dugarry jafnaði fyrir heims-
meistarana úr einu af fáum fær-
um þeirra í leiknum.
KR varð Islandsmeistari í
kvennaflokki eftir hreinan úrslita-
leik gegn Val í síðustu umferð
Meistaradeildarinnar. KR fékk
39 stig, en Valur sem varð í 2.
sæti fékk 36 stig. I 3. sæti Ienti
Breiðablik með 29 stig.
Olga Færseth, KR, varð lang-
markahæst í deildinni með 23
mörk.
Breiðablik varð bikarmeistari
í kvennaflokki eftir 3-2 sigur á
KR í úrslitaleik á Laugardalsvelli.
Ejjamenn urðu Islandsmeist-
arar í karlaflokki, eftir 0-2 sigur
i hreinum úrslitaleik gegn KR-
ingum í síðustu umferð Lands-
símadeildarinnar. Þar með voru
báðir stóru titlarnir í höfn hjá
Eyjamönnum, sem fengu alls 38
stig, en KR-ingar sem urðu í 2.
sæti fengu 33 stig og
Skagamenn 30 í 3. sætinu.
Tómas Ingi Tómasson, Þrótti
hlaut flest stig í vali Dags á
„Manni leiksins" og hlaut þar
með Dagsbikarinn glæsilega.
Frjálsar íþróttir
Jón Arnar Magnússon varð
sigurvegari í tugþraut á sterku
stigamóti sem haldið var í Tal-
ance í Frakklandi. Þetta var
fyrsti sigur Jóns Arnars á
stórmóti erlendis.
Handknattleikur
KA-menn urðu „meistarar
meistaranna" í handknattleik,
þegar þeir lögðu Valsmenn að
velli á Akureyri, 29-26.
Október
Knattspyrna
Eyjamenn urðu „Meistarar
meistaranna" þegar þeir unnu
Leiftur 2-1 á Laugardalsvelli í
síðasta leik tímabilsins.
í lokahófi KSÍ voru þau
David Winnie, KR, og Olga
Færseth, KR, valin leikmenn
ársins, en þau Þóra B.
Helgadóttir, Breiðabliki, og
Ólafur Gunnarsson, ÍR, voru
valin efnilegust.
Islenska karlalandsliðið gerði
markalaust jafntefli gegn Arm-
enum í riðlakeppni Evrópumóts
landsliða í Armeníu.
Eftir þann leik var komið að
heimaleiknum gegn Rússum
sem margir höfðu beðið spenntir
eftir. Þar gerðist það ótrúlega,
íslenska liðið sigraði 1-0, eftir
sjálfsmark Rússa.
íþróttir fatlaðra
Þrír íslenskir keppendur, þau
Pálmar Guðmundsson, Bára
B. Erlingsdóttir og Kristín Rós
Hákonardóttir tóku þátt í
heimsmeistaramóti fatlaðra í
sundi sem fram fór á Nýja-
Sjálandi. Þau stóðu sig öll vel á
mótinu og settu þau Pálmar og
Kristín Rós bæði ný heimsmet.
Pálmar í 200 og 100 m skrið-
sundi og Islandsmet í 50 m
skriðsundi. Kristín setti heims-
met í 50 m skriðsundi og ís-
landsmet í 100 m skriðsundi.
Snóker
Þeir Jóhannes B. Jóhannesson
og Sumarliði D. Gústafsson
tóku þátt í heimsmeistaramóti
áhugamanna í snóker sem fram
fór í Kína. Jóhannes komst
áfram í 32 manna úrslit, en féll
síðan úr keppni í 1. umferð
úrslitakeppninnar.
Nóvember
Körfuknattleikur
Keflvíkingar urðu Eggjabikar-
meistarar, eftir 88-81 sigur á
Grindvíkingum í Laugardals-
höllinni. Grindavík vann Njarð-
vík 82-77 í undanúrslitum og
Keflavík vann KR 98-84.
Sund
Sundfélag Hafharfjarðar varð
bikarmeistari í sundi 4. árið í
röð og setti nýtt stigamet, 30422
stig.
Keflavík varð í 2. sæti og
Ægir í 3. sæti.
Örn Arnarson, SH, setti
fjögur ný íslandsmet á mótinu
og boðsundsveitir SH settu
einnig Ijögur ný Islandsmet.
Skíði
Kristinn Bjömsson skíðakappi
náði 11. sæti í svigi á
heimsbikarmótinu sem fram fór í
Park City og er þar með kominn í
14. sæti á stigalistanum.
Handknattleikur
íslenska handknattleikslandslið-
inu tókst ekki að komast í
úrslitakeppni HM, sem fram fer
í Egyptalandi á næsta ári. Aðeins
vantaði eitt stig til að tryggja far-
seðilinn á HM, en Ungverjar
komust áfram á hagstæðara
markahlutfalli, eftir sigur á ís-
lenska liðinu í Ungverjalandi.
Segja má að tapleikur íslenska
liðsins í Sviss hafa gert útslagið,
þar sem íslenska liðið tapaði 23-
25. í öðrum leikjum vann ís-
lenska liðið sannfærandi sigra,
gegn Finnum heima og heiman
og heimaleikina gegn Sviss og
Ungverjalandi.
Körfuknattleikur
Körfuknattleikslandsliðið tók
þátt í Evrópukeppni landsliða
og lék í riðli með Króötum,
Eistum, Hollendingum, Lit-
háum og Bosníumönnum.
Þegar 8 umferðir hafa verið
Ieiknar í keppninni eru íslend-
ingar í neðsta sætinu með ekkert
stig og eiga eftir heimaleiki gegn
Bosníumönnum og Litháum.
Desember
Júdó
Vernharð Þorleifsson, KA, sigr-
aði í opnum flokki á Islands-
mótinu í júdó sem fram fór í
Laugardalshöll.
Sund
Þau Örn Arnarson, SH, Elín
Sigurðardóttir, SH, Hjalti
Guðmundsson, SH, og
Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, ÍA,
tóku þátt í Evrópumeistara-
mótinu í sundi sem fram fór í
Sheffield á Englandi.
Örn Arnarson vann það frá-
bæra afrek á mótinu að verða
Evrópumeistari í 200 m
baksundi og var hann í mótslok
valinn efnilegásti sundmaður
Evrópu. Kolbrún Ýr setti á
mótinu Islandsmet í 50 m
baksundi og Hjalti Guðmunds-
son í 50 m bringusundi.
íþróttir fatlaðra
Kristín Rós Hákonardóttir og
Pálmar Guðmundsson voru
valin íþróttamenn ársins úr röð-
um fatlaðra íþróttamanna.
Eyjamenn urðu „Meistarar meistaranna".