Dagur - 26.01.1999, Blaðsíða 12
Trrm ■ ■ ■ ■ mm m m ■ n mi ■ ■■■■■■■■ ■ n rrn ■ ■ ■ iiniiiiTmiii i n n 111 mn 11 n n l n 111 M 111II1111II M 111 nq
ri ó n \ «V k ft i- r v a « q n m * < «íú «i
12 - ÞRIDJUDAGUR 26. JANÚAR 1999
EcreArbíé
S 462 3500
BRAD
PITT
ANTHONY
HOPKINS
t, v
■ / \
/ f f
M EET TOE BLACK
MA ÉG KYNNA JOE BlACK
BRAD PITT OG ANTHONY HOPKINS. □□ 1 °°LBYJ
D I G I T A L
Þriðjud. kl. 19 og 21.170 min.
Hinir siungu sprellikarlar, Jack Lemmon og Walter Matthau fara ó kostum í
léttri og sprenghlægilegri gamanmynd um pó félaga Felix og Oscar sem hafa
ekki hist í 30 ór en nú þurfa þeir að ferðast saman í brúðkaup barna sinna.
Sumar deilur standast timans tönn.
Þriðjud. kl. 19.
□□ 1 DOLBV |
D I G I T A L
CHRIS TUCKER
Jhe fflstest honds
hi the East
VC'fSUS
the híggest mouth
tn the West.
\7rn~ rushhouR
ru
MMm
wkmwm'm
mm
ÆMwammm
utoj mtmm
Einn stærsti smellur órsins. Þeir Jackie Chan & Chris Tucker eru fróbærir i
þessari grínspennu sem fór beint ó topp bandaríska listans.
nn I DOLBY |
Þriðjud. kl. 23.
D I G I T A L
MEET JOE BLACK
ANTHONY HOPKINS & BRAD PITT
ÍÞRÓTTIR
-DMyr
Rússneski varnarmúrinn var erfiður íslensku sókninni.
Rússneskar oiurbirmir
íslenska kvennalands-
liðið í handknattleik
mátti þola tap í háðum
leikjum sínum við það
rússneska í und-
ankeppni HM.
Báðir leikirnir fóru fram hér á
landi og átti íslenska Iiðið aldrei
möguleika gegn stórum og sterk-
um Rússunum. Fyrri leikurinn
fór fram í Víkinni og þegar rússn-
esku birnurnar birtust á vellinum,
supu áhorfendur hveljur, þegar
þeir sáu stærðarmuninn á liðun-
um. Og þrátt íyrir að sagan segði
Davíð hafa einhvern tíma unnið
Golíat þá átti það ekki við í þess-
um Ieikjum. Til þess var styrk-
leika- og kílóamunurinn allt of
mikill.
Fyrri leikinn, sem taldist
heimaleikur Rússa, unnu þær
rússnesku með þrettán marka
mun 32-19 og var staðan 13-7 í
hálfleik, eftir að þær rússnesku
höfðu í upphafi skorað fjögur
fyrstu mörk leiksins, án þess að
íslenska liðinu tækist að svara fyr-
ir sig. Þrátt fyrir stærðina spilaði
rússneska liðið nokkuð hraðan
bolta og nýtti vel hraðaupphlaup-
in, sem það fékk á silfurfati eftir
klaufagang í íslensku sókninni.
Best í rússneska liðinu var
Smirinova sem skoraði 10 mörk,
en þær Hrafnhildur Skúladóttir
og Ragnheiður Stephensen voru
markahæstar íslenska liðsins með
5 mörk hvor.
Seinui leikurinii betri
Seinni leikurinn sem fór fram í
Hafnarfirði, var nokkru betri hjá
íslenska Iiðinu og þá sérstaklega
bytjunin. Liðið varð þó fyrir þvf
áfalli strax á fyrstu mínútunni, að
Herdfs Sigurbergsdóttir fór útaf
með slitna hásin, en stelpurnar
létu það ekki slá sig út af laginu
og náðu í upphafi eins marks for-
ystu 3-2. Þá hrukku rússnesku
birnurnar í gang og höfðu náð
Ijögurra marka forskoti í hálfleik,
8-12. Þær héldu síðan upptekn-
um hætti í seinni hálfleik og juku
stöðugt við forskotið og endaði
leikurinn með átta marka rússn-
eskum sigri 18-26.
Þær Hrafnhildur Skúladóttir,
Brynja Steinsen og Inga Fríða
Tryggvadóttir voru nú marka-
hæstar íslenska liðsins með 4
mörk hver.
Um þessa leiki og Iiðin er lítið
annað hægt að segja en það, að
rússneskur kvennabolti virðist á
nokkuð hærra plani en sá íslenski
og uppbygging leikmanna í allt
annarri vídd.
Islenskur kvennahandknatt-
Ieikur styrkist ekki meðan hann
fær ekki meiri athygli heimafyrir
og á meðan svo er stelpur: „Verið
duglegar að æfa og borða hafra-
grautinn ykkar. Þetta er enginn
heimsendir."
KRogfSi urslil
bikarkeppni kvenna
KR burstaði ÍR í und-
aiiiírslituiiiiin og ÍS
vann óvæntan sigur á
biicarmeistunun Kefl-
vtkinga.
Um helgina fóru fram undanúr-
slitaleikirnir í Renault-bikar
kvenna í körfuknattleik. KR-ing-
ar fengu IR í heimsókn í Haga-
skóla og fór þar fram leikur katt-
arins að músinni, þar sem KR
sigraði með 45 stiga mun 103-
58. Eins og úrslitin gefa til
kynna, hafði KR-Iiðið algjöra
yfirburði í leiknum á öllum svið-
um körfuboltans og var staðan í
hálfleik 53-21.
Bestan leik KR-inga átti
Hanna Kjartansdóttir, en hún
skoraði alls 33 stig. Næstar
henni í stigaskorun komu þær
Linda Stefánsdóttir með 19 stig
og Kristín B. Jónsdóttir með 12.
Hjá ÍR var Gréta M. Grétars-
dóttir stigahæst með 16 stig og
Guðrún A. Sigurðardóttir með
11.
Langri sigurgöngu
KcflvíMnga lokið
í Keflavík fór síðan fram leikur
bikarmeistara Keflavíkinga og
ÍS, sem lauk með sigri Stúdína
61-64. Sigur ÍS var mjög óvænt-
ur, en Keflavíkurliðið hefur unn-
ið bikarinn síðustu sex árin og
alltaf verið í úrslitum síðan
1987, að undanskildu árinu
1991, þegar ÍR og ÍS léku til úr-
slita. Þar með hefur IS stöðvað
þessa löngu sigurgöngu Kefla-
víkur í bikarnum og leikur til úr-
slita gegn KR þann 6. febrúar
nk.
Undanúrslitaleikurinn í Kefla-
vík var mjög spennandi og var
staðan í hálfleik 37-32 fyrir
heimaliðið. Keflvíkingar héldu
síðan forystunni fram í miðjan
seinni hálfleikinn, en þá þurfti
Anna María Sveinsdóttir að yfir-
gefa völlinn með fimm villur. Við
það veiktist leikur þeirra og
Stúdínum tókst að jafna leikinn
í 60-60, þegar nokkrar mínútur
voru til leiksloka. Á lokakaflan-
um höfðu Stúdínur svo betur og
náðu að skora með þriggja stiga
körfu, án þess að Keflavíkingum
tækist að svara fyrir sig. Liðin
bættu svo við sitt hvoru stiginu
úr vítaköstum á lokasekúndun-
um og lokastaðan því 64-61.
Stigahæstar hjá Keflavík voru
Kristín Blöndal með 17 stig og
Tonia Sampson 12, en hjá IS
skoraði Lilja Sushko 19 stig og
Signý Hermannsdóttir 16.
Úrslit iim helgina
Körfubolti
DHL-deildin:
Þór, A-Njarðvík 77-106
Renault-bikar karla
undanúrslit:
Keflavík-Tindastóll 112-98
/ gærkvöld:
Njarðvík-Haukar 91-84
Keflavíkingar og Njarðvíkingar
eru þar með komnir í úrslitaleik
Renault-bikarsins. Nánar um
leikina á morgun.
Renault-bikar kvenna
Undanúrslit:
Keflavík-ÍS 61-64
KR-ÍR 103-58
Blak
I. deild karla:
KA-Stjarnan 3-1
KA-Stjarnan 2-3
Þróttur, R-ÍS 3-1
Bikarkeppni kvenna:
Víkingur-KA b a-1
KA-Þróttur N 3-1
Leiðrétting
Sú leiðinlega villa varð í fimmtu-
dagsblaðinu 21. þ.m. í dálknum
„SKOÐUN", að Guðna Þ.
Ölverssyni, blaðamanni, var þar
eignuð skoðun sem hann átti alls
ekki og langt því frá. Um er að
ræða „SKOÐUN" undir fyrir-
sögninni „Liðunum refsað", sem
skrifuð var af Gunnari Sverris-
syni, blaðamanni á Akureyri.
Hlutaðeigandi eru beðnir vel-
virðingar á þessum leiðu mistök-
um, enda ekki viðeigandi að gera
mönnum upp skoðanir, sem þeir
hafa ekki.
Þetta leiðréttist hér með.