Dagur - 03.02.1999, Blaðsíða 12

Dagur - 03.02.1999, Blaðsíða 12
■ ■ ■ ■ ■ iLLU.J.J■ mixiuljULimumiimmi■■ ■■ ■ ■ umjjjinmininrrni■ mn■ n■ nnn■■ ■ 11 ■■■■■■ ■■ mixj 12 - MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1999 .——1 ....... -—. _ r W OXpXED ■ BcreArtMC 13 : S 462 3500 DINZEL WASHiNBTBN ANNETTi BiNINB THC SIEBE >«.BRUCE WIIIIS Takmark þeirra var að uppræta óvininn. Aðferðir þeirra voru mjög ólíkar. Frelsi fólksins hangir ó blóþræði. Denzel Washington, Annette Bening og Bruce Willis. THE SIEGE. B.i. 16 óra. |-D-— Miðvikud. kl. 21 og 23.10. D I G I T A L B Fróbær tryllihryllir fró sömu aðiium og gerðu I know what you did last summer. Hver er þessi dularfulli axarmorðingi, er hann hugarburður einn, þjóðsaga!!! eða er hann raunverulegur. Fróbær spennumynd sem færhórin til að rísa. □□|dqlby | Miðvikud. kl. 21 og 23. Brown. George Clooney & Jennifer Lopez í FRÁBÆRRI mynd. Föstud. kl. 21. □□[ÖÖLBÝ] D I G I T A L THE SIEGE BRUCE WILLIS • DENZEL WASHINGTON • ANNETTE BENING Steve McManaman hefur löngum verið í miklu uppáhaidi hjá stuðnings- mönnum Liverpool. Stóri drauniur McManamans ÍÞRÓTTIR Fyrst rot- högg síð- an iotbrot Ofbeldi á íþróttavellinum ríður ekki við einteyming þessa dag- ana. I blaðinu í gær sögðum við frá rothöggi í knattspyrnuleik milli KA og Tindastóls í Norð- urlandsriðli 2. flokks karla á Is- landsmótsinu í innanhússknatt- spyrnu. Þar rotaði leikmaður dómarann, en nú var það fót- brot sem átti sér stað í riðla- keppni sama móts, en í öðrum riðli. Atburðurinn átti sér stað í Digranesi í Kópavogi í leik HK gegn IBV og aftur var það mark- vörður sem átti hlut að máli. Markvörður Eyjamanna braut illa á sóknarmanni HK, sem hafði skorað grimmt hjá honum í leiknum, og hlaust af fótbrot. Samkvæmt heimildum Dags var brotið fólskulegt og ekki um að ræða baráttu um boltann. Mál- ið var því þegar kært til lög- reglu, þar sem það er til rann- sóknar. Beinbrotið mun hafa verið slæmt og þolandinn er nú í gifsi upp í klof. Það hefur því verið ærin um- ræða um þessi tvö ofbeldismál hjá aganefnd KSI sem kom saman í hádeginu í dag, en þar mun málunum hafa verið frestað til næsta fundar sem verður fljótlega. Hoddle rekúm Glenn Hoddle var í gær sagt upp störfum sem þjálfara enska knatt- spyrnulands- liðsins, eftir Ianga og stranga fundi ensku knatt- spyrnuforyst- unnar í allan gærdag. Niðurstaðan var tilkynnt á blaðamannafundi um klukkan sjö í gærkvöld og þar kom fram að samkomulag hefði náðst milli Hoddle og stjórnarinnar um að hann hætti störfum. Mikill hiti var í mönnum þeg- ar David Davies, framkvæmda- stjóri enska knattspyrnusam- bandsins, tilkynnti loksins um uppsögn Hoddles og urðu tafir á fundinum þegar æstur Liver- poolaðdáandi lét Hoddle fá það óþvegið að hætti enskra. David Davies sagðist harma þessi málalok. „Eftir meira en 24 tíma fundi urðu allir aðilar sammála um að þetta væri það eina rétta í málinu. Hoddle við- urkenndi að hann hefði gert mistök og hefur beðist afsökun- ar á því,“ sagði Davies. Akveðið hefur verið að Howard Wilkinson, tæknilegur ráðgjafi enska sambandsins, taki við Iiðinu til bráðabirgða og stýri því í leiknum gegn Frökkum í næstu viku. Handbolti í kvöld Nissandeildin Kl. 20.30 Stjarnan - KA Kl. 20.30 FH - ÍBV KI. 20.30 Selfoss - ÍR Kl. 20.30 Grótta KR - HK Kl. 20.30 Valur - Fram Kl. 20.30 UMFA - Haukar 1. deild kvenna KI. 18.30 Fram - ÍR Kl. 18.30 FH - Valur KI. 20.00 KA - Víkingur Kl. 18.30 Grótta KR - Haukar Vinsælasti leikmaður- inn á Anfield yfirgefiir Liverpool og fær að launum sjö og hálfa milljón á viku. Pen- ingamir ekki númer eitt. Langar til að hafa eitthvað að sýna við komuna til Spánar. Steve McManaman ræddi fé- lagaskipti sín, frá Liverpool til Real Madrid, í íyrsta sinn við blaðamenn á mánudaginn. Þar sagði hann að peningarnir hefðu ekki skipt öllu máli fyrir sig þeg- ar hann ákvað að fara frá Liver- pool. „Eg er Liverpool-maður yst og innst og því fær ekkert breytt. Margir minna bestu vina eru í Liverpool og það er númer eitt, tvö og þrjú hjá mér núna að vinna aftur fast sæti í liðinu og hjálpa því til að komast í meist- arakeppnina á næsta tímabili. Stuðningsmenn liðsins þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að ég reyni ekki að standa mig sem best meðan ég leik með Liver- pool. Það síðasta sem ég hugsa um nú eru peningarnir sem ég fæ hjá Madrid.“ Hjá Liverpool í níu ár Steve McManaman hefur löng- um verið í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum Liverpool. Það skemmir ekki fyrir að hann var sem barn dyggur stuðnings- maður Everton en tók sinna- skiptum. En nú eru blikur á lofti. „Eg hef verið hjá Liverpool í níu ár og þykir mjög vænt um fé- lagið. Fólk verður samt að skilja Þær Þórey Edda Elísdóttir, FH, og Vala Flosadóttir, IR, tóku um helgina þátt í innanhúsmóti í Svíþjóð, þar sem þær stukku báðar yfir 4,14 m í stangarstökki. Vala notaði færri tilraunir og hlaut I. sætið, en Þórey Edda annað sætið. Þetta var þriðja mótið sem þær stöllur taka þátt í á árinu, en á fyrsta mótinu stukku þær báðar 4,02 m, en á Stórmóti ÍR stökk Vala 4,10 m, en Þórey Edda 4 m slétta. Þessi árangur Þóreyjar um helgina er besti árangur hennar innanhúss, en utanhúss hefur að þegar knattspyrnumaður á besta aldri fær slíkt tækifæri til að breyta til og ganga til liðs við Evrópumeistarana í Real Madrid er það of gott til að hafna því. Ég hef aldrei leynt löngun minni til að fá að leika með einhverju af toppliðunum á meginlandinu og nú get ég uppfyllt þessa heitustu ósk mína.“ Real Madrid enginn smá- klúbbur Þrátt fyrir að McManaman segi að peningar hafi ekkert með fé- lagaskiptin að gera eru margir á því að þær sjö og hálf milljón sem leikmaðurinn fær í vikulaun hjá Real hafi alla vega ekki skemmt fyrir félagaskiptunum. Fyrsta júlí verður McManaman launahæsti leikmaðurinn í enskri knattspyrnusögu. „Eg hugsaði mikið um þetta tækifæri áður en ég sagði endan- Iega já við Madridinga og taldi að nær útilokað væri að fá jafn gott tilboð frá jafn góðu liði aftur á næstunni. Real Madrid er eng- inn smáklúbbur. Félagið á glæsi- legri sögu en öll önnur lið í Evr- ópu og það er því ekki Iítill heið- ur að fá að leika fyrir það. Hlut- irnir hafa bara gerst svo hratt síðustu dagana að ég er hálf ruglaður. Ég hef til dæmis ekki enn haft tækifæri til að ræða fé- lagaskiptin við Gerard Houllier, knattspyrnustjórann okkar. Eg vil taka það skýrt fram að ég er og verð Liverpool-leikmað- ur þar til samningur minn renn- ur út. Þangað til á ég ekki heitari ósk en að gleðja stuðningsmenn liðsins og reyna í Ieiðinni að hafa eitthvað til að sýna þegar ég yfir- gef Anfield sem leikmaður og fer til Spánar. Það er aðalmarkmið mitt núna og næstu mánuðina,“ sagði Steve McManaman. hún stokkið 4,21 m. Um næstu helgi taka þær Þórey og Vala þátt í móti í Gautaborg og þann 10. febrúar verða þær meðal þátttakenda á stóru alþjóðlegu móti í Malmö. Guðrún sterk Guðrún Arnardóttir náði mjög góðum árangri í 400 m grinda- hlaupi innanhúss á sínu fyrsta móti í Bandaríkjunum á dögun- um. Hún hljóp á 53,22 sek. sem er hennar besta byrjun innan- húss til þessa, en Islandsmet hennar er 53,08 sek. G/enn Hoddie. Þórey bætir sig

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.