Dagur - 03.02.1999, Blaðsíða 6

Dagur - 03.02.1999, Blaðsíða 6
6 -MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1999 ÞJÓÐMÁL JJ^tr__________________________________________, Útgáfufélag: dagsprent Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson Ritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Aðstoðarritstjóri: BIRGIR GUÐMUNDSSON Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson Skrifstofur: strandgötu si, akureyri, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK Símar: 460 6ioo og soo 7080 Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjatd m. vsk.: 1.800 kr. á mánuði Lausasöluverd: íso kr. OG 200 kr. helgarblað Grænt númer: 800 7080 Símbréf auglýsingadeildar: 460 6161 Símar auglýsingadeildar: (reykjavík)563-1615 Ámundi Ámundason (AKUREYRI)460-6191 G. Ómar Pétursson OG 460-6192 Gráta Björnsdóttir Netfang auglýsingade/ldar: omar@dagur.is Simbréf ritstjórnar: 460 617KAKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK) Bjöm bíöur átekta í fyrsta lagi Það var tvímælalaust skynsamleg ákvörðun hjá Birni Bjarna- syni, menntamálaráðherra, að draga sig út úr væntanlegum slag um varaformennsku Sjálfstæðisflokksins - en arftaki Frið- riks Sophussonar í það embætti verður kjörinn á landsfundi flokksins í næsta mánuði. Það var almennt álit þeirra, sem vel þekkja til innan Sjálfstæðisfiokksins, að hinn nýi fjármálaráð- herra, Geir H. Haarde, hefði mun meiri möguleika en Björn á að ná embættinu. Framboð Björns hefði aðeins leitt til mikilla átaka innan forystu flokksins en ekki skilað honum neinum ár- angri. Það lýsir því stjórnkænsku Björns að draga sig í hlé. í öðru lagi Ástæðulaust er hins vegar að draga þá ályktun af ákvörðun Björns að hann stefni ekki enn á æðstu forystu í Sjálfstæðis- flokknum þegar Davíð Oddsson lætur af formennsku. Björn er einn sterkasti og áhrifamesti forystumaður Sjálfstæðisflokks- ins og hefur örugglega metnað til að feta í fótspor föður síns, sem var einn öflugasti formaður flokksins. I því ljósi ber að skoða tillögur Björns um að leggja embætti varaformannsins niður. Með slíkri skipulagsbreytingu yrði komið í veg fyrir að næsti varaformaður Sjálfstæðisflokksins fái forskot í slag um formennskuna síðar meir. í þriðja lagi Tveir frambjóðendur eru þegar komnir fram: Geir H. Haarde og Sólveig Pétursdóttir. Sigríður Anna Þórðardóttir, formaður þingflokksins, er einnig að íhuga framboð. Af þessum þremur stendur fjármálaráðherrann vafalaust best að vígi, ekki síst ef frambjóðendur verða þrír. Fyrir þingkonurnar er reyndar fleira í húfi en varaformennskan. Þær eru einnig að hugsa um eigin stöðu innan flokksins ef hann verður áfram í ríkisstjórn eftir kosningar. Þá hljóta sjálfstæðiskonur að gera tilkall til ráð- herraembættis og sú þeirra sem fær besta útkomu í varafor- mannskosningunni mun þar standa best að vígi. Elías Snæland Jónsson Herformginn Þá er varaformannsslagurinn hafinn hjá Sjálfstæðisflokkn- um. Geir Haarde og Sólveig Pétursdóttir eru búin að melda sig í þetta stríð, og Sig- ríður Anna Þórðardóttir er enn að kynda undir stríðsæsingn- um hjá sjálfri sér, þó hún sé enn ekki alveg tilbúin. Garri efast þó ekki um að Sigríður á eftir að skella sér í stríðið áður en langt um líður. Það vekur hins vegar óskipta athygli að sjálfur yf- irherforingi Islands og Sjálfstæðisflokks- ins, Björn Bjarnason menntamálaráð- herra, sendi síðasta Morse-skeytið um helgina: „You-can- start-this-war-with- out-me.“ Tilkynning Björns breytir að sjálfsögðu miklu um vígstöðu allra hinna kandídatanna. Björn Bjarnason. Strategíu- sér- fræðingur Garri er nú orðinn svo gamall í hettunni að hann man eftir Birni sem helsta sérfræðingi Islands um herstjórnarfræði eða það sem á útlensku er kall- að „strategic studies“. Hann virtist annar af tveim Islend- ingum sem skildi hvað herfor- ingjarnir austan tjalds og vest- an voru að fara í ílóknum leik- fléttum með hermenn og kjarnavopn út og suður um Atlantshafið. Þess vegna veit Garri Iíka að þegar Björn send- ir svona Morse-skeyti, sem á yfirborðinu virðast saklaus skilaboð, þá býr annað og meira undir. Og af því að Garri er hinn íslendingurinn sem skildi taflmennsku generála Kalda stríðsins, þá sér hann hver Ieikflétta Björns er. Hún er í tveimur liðum: Fléttan I. Björn byrjar á að veikja ímynd varaformannsembættis- ins með yfirlýsingum um að það sé að verða hálfgerð tíma- skekkja og Ieggja beri það niður. Allir helstu forustumenn flokksins komu fram í Mogganum { gær og sögðu að trúlega væri þetta nú rétt hjá Birni, en hins vegar væri svo stuttur tími fram að landsfundi að vonlaust væri að breyta neinu núna. Semsé: næsti vara- formaður verður með dagsstimpli, sem rennur út íyrr en varir. 2. Rétt eins og gamli hjart- artarfurinn í náttúrulífsmynd- inni 1' sjónvarpinu bíður álengdar uppi í brekku á með- an ungu tarfarnir slást blóðug- um slagsmálum um hjörðina, þá bíður Björn líka álengdar. Rétt eins og gamli tarfurinn rennir sér niður á slituppgefna ungu tarfana á réttu augna- blild og sigrar í baráttunni um hjörðina, mun Björn renna sér til áhrifa í flokknum þegar aðr- ir eru búnir að slíta sér út við að slást um tímabundið, úrelt og einskisvert varaformanns- embætti. Björns tími mun koma. GARRl ODDUR ÓLAFSSON skrifar Fræg er sú staðhæfing Miltons Friedmans, að ókeypis hádegis- verður sé ekki til. Það er alltaf einhver sem borgar, þótt að sá sem étur hann fái hann frítt. Ein- föld og auðmelt hagfræði prófess- orsins aflaði honum heimsfrægð- ar og lærisveina. En misjafnlega meta þeir og túlka skoðanir hans og kenningar. Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga efnir til morgun- verðarfundar á morgun, fimmtu- dag, þar sem opinber fyrirtæki verða til umfjöllunar. Sá ákafi einkavæðingarsinni, Pétur H. Blöndal, flytur framsögu um efn- ið „fé án hirðis." Allt er það gott og blessað, en eitthvað bögglast auðskildar kenningar fijálshyggj- unnar fyrir brjóstinu á fundar- boðendum. Morgunverðurinn kostar nefni- lega 1.000 krónur íyrir félags- menn og 1.500 krónur fyrir gesti. Væri Friedman spurður hvort Niðurgreidd næring í hagfræðinga niðurgreiddur málsverður heyrði ekki undir sömu kenningu og frír málsverður er afskaplega Iíklegt að hann mundi svara játandi. Það er einhver sem greiðir niður í hagfræðingana, en ekki í gesti þeirra. En auglýst er að fundurinn sé öllum opinn og gestir séu velkomnir. En þeir eru ekki velkomnari en svo, að þeir verða að borga þriðjungi meira fyrir það sem þeir éta en þeir sem hafa við- skiptamenntun. Auglýst mismuiiun Ekki skiptir öllu máli hverjir greiða niður málsverðinn í hag- fræðingana. Kannski eru það gestirnir sem borga þriðjungi meira, eða þeir félagar sem ekki mæta á fundinn og njóta því ekki niðurgreiðslunnar, en þá er gert ráð fyrir að félagið sem heldur fundinn annist kostakjörin fyrir sitt fólk. En gera verður ráð fyrir að þeir þármunir sem varið er 1' niðurgreiðslur málsverðar sé ekki „fé án hirðis“ og að allt sé þetta með ráðum gert. Það mega fundar- boðendur eiga, að þeir eru ekki að fela þá grófu mismunun sem niðurgreiðslurnar eru til vitnis um. Hún er vel auglýst og Fried- man læriföður er gefið langt nef og ullað á hann í þokkabót. Hitt er svo annað mál og flóknara; hvað er sann- virði morgunverðarins með ræð- um og pallborðsumræðum sem ábæti? Markaðurinn hlýtur að kunna svar við spurningunni þótt það liggi ekki í augum uppi. Suniir og hinir Kaup embættismanna og þing- manna er miklu betur falið en niðurgreiðslur FVH. Þegar starfs- manni Iaunþegasamtaka datt seint og um síðir að fara að at- huga hvernig það lið allt sækir sér hnefa í sjóði ríkis og banka kem- ur í Ijós hvílíkar viðbótartekjur þetta fólk tekur sér og lýgur svo til um lágu launin og fátækt sína. Við þetta hefur frjálshyggjan ekkert að athuga, enda segir ótamin markaðshyggja, að hver og einn eigi að skara eld að eigin köku og taka til sín öll þau verð- mæti sem hægt er að komast yfir með öllum ráðum og klækjum. Grófleg risna og margföld Iíf- eyrisréttindi kjaraaðalsins eru greidd af skattborgurum, sem aldrei hafa vit á að fylgjast með hvernig þeir eru hlunnfarnir. Og gestir í morgunverði hagfræðing- anna munu heldur aldrei velta fyrir sér af hverju þeir eru ójafn- ari en sumir. Ertu sammála Bimi Bjarnasyni um að skyn- samlegt sé að leggja ni)- ur varaformannsemb- ættið í Sjálfstæðis- flokknum? Ellen Ingvadóttir fotrmaðurJjmdss. sjáljstæðiskveitm. „Nei, ég er ekki sammála menntamálaráð- herra um að leggja beri vara- formannsemb- ættið niður. Hins vegar bendi ég á að skipulagsreglur Sjálfstæðisflokksins eru og eiga alltaf að vera í endurskoðun, hvort heldur á Iandsfundum eða milli þeirra. Ég tel til dæmis með hliðsjón af breyttri kjördæma- skipan að nauðsynlegt kunni að vera að skoða skipulagsreglur flokksins með tilliti til verðandi breytinga.“ Guðlaugur Þór Þórðarson borgarjiilltníi Sjáljstxðisjiokksins. „Til staðar er nú þegar fimm manna fram- kvæmdastjórn í flokknum, en það mætti líka hugsa sér að kjósa hana beint á landsfundi. Mér þykir þessi hugmynd Björns Bjarnasonar vera athyglisverð og sérstaklega í því samhengi sem hún er sett fram; þ.e. að nú eru að verða miklar breytingar á kjördæma- skipan og Sjálfstæðisflokkurinn verður að heþa skipulagða vinnu sem fyrst til að breyta hlutum í samræmi við nýja skipan þeirra mála. Þess vegna gæti verið ágæt hugmynd að kjósa í fleiri emb- ætti beint á landsfundi, en ég held hinsvegar að ekki sé góð hugmynd að leggja niður varafor- mannsembættið.“ Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri á Akureyri. „Það finnst mér alveg koma til greina. Hinsveg- ar geri ég mér jafnframt fulla grein fyrir því að þetta er hug- mynd sem þarf töluvert mikla umræðu og tæpast sé ég að menn muni gera þetta á komandi landsfundi, tíminn er varla nægur. Rökin með því að ræða þessa hugmynd tel ég með- al annars vera þær breytingar sem framundan eru á kjördæma- skipan, jafnhliða þeim eiga menn jafnframt að huga að skipulagi flokksins.“ Iljálmar Jónssoii j> ingmaður Sjáljstæðisflokltsins. „Nei, því er ég ekki sammála. Varaformanns- embættið er g°tt og gagn- merkt embætti, skipulagsbreyt- ingar þurfa miklu lengri tíma heldur en nú er fram að Iandsfundi. En þessa hugmynd Björns Bjarnasonar er sjálfsagt að ræða, einsog margar aðrar.“

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.