Dagur - 03.02.1999, Blaðsíða 1

Dagur - 03.02.1999, Blaðsíða 1
Fært frá láglaima- fólld til launahæstu Með breytmgum á sköttmn og bótum 1995-97 tóku stjóm- völd 10 þúsund kall á mánuði af láglauna- fólki og færðu hæst- launaða hópnum yiir 20 þúsund krónur. Munur hæstu og lægstu tekna hefur aukist á undanförnum árum, að hluta með vaxandi launabili, en langmest með til- færslum ríkisvaldsins frá lægst Iaunuðu hópunum til þeirra hæst launuðu. Þetta kemur fram í úr- vinnslu Þjóðhagsstofnunar úr skattframtölum landsmanna. Ráðstöfunartekjur lægst laun- aða fimmtungs hjóna (með undir 150.000 á mánuði) Iækkuðu um 10 þúsund krónur á mánuði frá 1995-97 með margföldun skatta og næstum helmings lækkun barnabóta og vaxtabóta. Það sem ríkið þannig sparaði, færði það þeim tíunda hluta hjónanna sem langhæst launin hafði (að meðal- tali 620.000 á mánuði), sem þannig fengu yfir 20 þúsund á mánuði gegnum skattalækkanir og hærri bætur. Frá fátækum til þeirra ríku Af þessu Ieiddi að lægst launaði hópurinn hélt aðeins eftir 6% hækkun af ráð- stöfunartekjum, þrátt fyrir 17% hækkun heildar- launa, því ríkið „tók“ 2/3 hækk- unarinnar. A hinn bóginn hélt hæsti tekju- hópurinn ekki bara 21% launa- hækkun sinni hlutfallslega óskertri, heldur hækkuðu ráðstöf- unartekjur þessa hóps, vegna „viðbótargjafanna“, um 26% - það er ríflega fjórfalt meira en hjá þeim lægst launuðu. Aukasneiðar voru Iíka klipnar af öllum launum fyrir neðan meðallag og bætt við hjá hæst launaða þriðjungi hjón- anna, en miklu minni upphæðum en hæst launaði hópurinn fékk. Meira en sexfaldur lairiia munur Til að skoða tekjudreifingu heim- ilanna skiptir Þjóðhagsstofnun meðal annars öllum hjónum í 10 jafn fjölmenna hópa, frá þeim tekjulægsta til hins tekjuhæsta, og reiknar síðan hversu stór hluti heildartekna alls hópsins kemur í hlut hvers tíunda hluta þeirra. Við algera launajöfnun fengi hver þeirra 10% heildartekn- anna. Árið 1997 fengu tekjuhæstu 10% hjónanna um 22% af heildartekjum alls hópsins (620.000 krónur á mán- uði að meðaltali) - eða 6,4 sinn- um stærri hlut en (3,4%) lægst launuðu 10% hjónanna (98.000 krónur á mánuði). Raunar var hlutur hæst launuðu 10% hjón- anna nánast jafn há upphæð og þau 40% hjónanna sem lægstu laununum þurftu að skipta með sér. Sparaði „toppimum“ 270.000 krónux Þá er komið að opinbera tekju- jöfnunarkerfinu. Árið 1995 greiddi lægst launaði hjónahópur- inn aðeins 6 þúsund krónur í skatta og fékk því vaxtabætur sín- ar og barnabætur (samtals 101 þúsund krónur að meðaltali) að mestu greiddar út. Árið 1997 höfðu bæturnar lækkað um meira en helming (í 38.000 krónur að meðaltali) og skattarnir 8-faldast, þannig að þeir átu upp allar bæt- urnar og meira til. Á sama tíma hækkuðu bætur þeirra hæstlaun- uðu (í 56.000 krónur) og skatt- prósenta þeirra lækkaði. Skatt- þyrði hæst Iaunaða hópsins lækk- aði því um 3% á sama tíma og hún hækkaði hjá öllum nema 3 launa- hæstu hópunum, og hlutfallslega mest hjá þeim tekjulægstu. Þetta sparaði tekjuhæsta hópnum um 270 þúsund krónur að meðaltali. - HEl Tekjuhæsti hópur hjóna hefur meira en sexfalt hærri laun en sá tekjuiægsti. Heilsugæslan í forgang „Við höfum sett heilsugæsluna í Reykjavík í algjöran forgang,11 seg- ir Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigð- is- og tryggingaráðherra. Hún bendir á að mjög líklegt sé að ný heilsugæslustöð verði opnuð í Efstaleiti í sumar í stað næsta árs eins og upphaflega var gert ráð fyrir. I ár verði gerð veruleg brag- arbót í heilsugæslumálum Grafar- vogsbúa og sömuleiðis sé farið að huga að heilsugæslustöð fyrir Voga-, Heima- og Sundahverfi. „Eg hef ekki orðið vör við annað hingað til en að borgaryfirvöld væru sátt við þessa forgangsröð f uppbyggingu heilsugæslunnar í Reykjavík," segir Ingibjörg. Borgarráð hefur beint þeim til- mælum til heilbrigðis- og ijár- málaráðherra að tryggt verði nægi- legt fé á fjárlögum á næstu árum til að hægt sé að koma heilsugæsl- unni í borginni í viðunandi horf. Sérstök áhersla verði lögð á hverfi þar sem flest börn og aldraðir búa. - GRH Magnús L. Sveinsson, formaður Verslunarmannafélags Reykjavíkur, tók sæti á Alþingi í gær sem varamaður Davíðs Oddssonar forsætisráðherra. Magnús hefur ekki áður setið á þingi og þurfti því að undirrita drengskapar- heit að stjórnarskránni og skrifstofustjóri Alþingis, Friðrik Ólafsson, fylgist með. - mynd: hilmar 1 1 t I 1 íbúðin þar sem uppsafnað sorp fyllti um sjötíu stóra ruslapoka var hreinsuð á sunnudag og er nú vart meira en fokheld. íbúar munu funda með félagsmálayfirvöldum og Öryrkjabandalaginu. - mynd: brink íbúar slegnir og ráoþrota Húsvörður Ijölbýlishússins á Ak- ureyri, þar sem þriggja ára gam- alt sorp safnaðist upp í einni íbúðinni, en hefur nú verið hreinsað út, segir að íbúarnir standi ráðþrota yfir því hvernig þetta gat gerst. Skjólstæðingur félagsmálayfirvalda, kona um fertugt í Oryrkjabandalagsíbúð, henti ekki heimilissorpinu held- ur safnaðist það fyrir í íbúðinni, eins og Dagur skýrði frá í gær. Húsvörðurinn segir að allir íbúar Ijölbýlishússins hafi hist einu sinni vegna málsins og muni bráðlega funda með bæði félagsmálastjórn og Öryrkja- bandalaginu um framhaldið. „Við höfum fengið mjög góðar undirtektir við öllum kröfum okkar hingað til og viljum engan úlfaþyt gera vegna málsins. Ég varð hins vegar afar ósátt þegar ég sá það haft eftir aðilum Ör- yrkjabandalagsins í Degi, að menn könnuðust ekki við að hringt hefði verið og kvartað. Það er ekki rétt. Eg hafði sam- band strax og okkur grunaði hvað væri að gerast og þessu var samstundis vísað til umsjónarað- ila hér á Akureyri, sem er félags- málastjórn," segir húsvörðurinn. Af tillitsemi við hlutaðeigandi og málavöxtu alla, kýs hann að koma ekki fram undir nafni. Alhliða sótthremsun Stefnt er að alhliða sótthreinsun í fjölbýlishúsinu og en þar er ennþá megn fnykur í stigagangi. Konan hleypti engum inn til sín í íbúðina og er sú skýringin á að enginn vissi af ástandinu innan dyra. Sorp flæddi um allt í íbúð- J inni en talið er að svefnherberg- ið hafi verið eina vistarvera íbúð- arinnar sem ekki var notuð und- ir rusl. — BÞ WOfílOW/œ EXPfíESS EITT NÚMER AÐ MUNA 5351100 Afgreiddir samdægurs flkfk Venjulegir og JgW demantsskomir trúlofunarhringar s&wm&z 6ullsm»,r C /tHI') Vi/l SIGTRYGGUR & PETUR AKUREYRI ■ SÍMI 462 3524 FIMMFALDUR 1. VINNINGUR

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.