Dagur - 13.02.1999, Blaðsíða 5

Dagur - 13.02.1999, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1999 - 21 l^Uf- MENNINGARLÍFIÐ í LANDINU Fortíðin og skáldskapurinn sögunum á ensku. Robert Kellogg rítar innganginn að sögun- um. Hann erprófessor á eftirlaunum frá Virg- inia háskóla íBanda- ríkjunum en kennirnú við enskudeildHá- skóla íslands. höfundurinn sé kominn inná svið kvenna." Kristið fólk liafnaði ekki heiðninni Robert nefnir söguna af því þeg- ar Oðinn stal skáldskaparmiðin- um af Gunnlöðu, með „Ég fékk áhuga á íslenskum bókmenntum þegar ég var við doktorsnám í Harvard. Þá var mikil umræða um tengsl munn- legrar hefðar við skrifaða. Þegar ég var svo kallaður í herinn ákvað ég að rannsaka Eddu- kvæðin til þess að eyða ekki tíma mínum í hernum til einskis. Þá komst ég að því að þau voru byggð upp af samskon- ar formúlum og eru í kviðum Hómers," segir Robert. Robert kom fyrst hingað til lands árið 1956. Hann talar reiprennandi íslensku og hefur skrifað um íslenskar bækur í er- lend tímarit. Hann hefur þýtt Harðarsögu á ensku og er ekki sáttur við hvernig tiltillinn á sög- unum breytist í meðförum út- gefanda. „Harðarsaga verður til dæmis The Story of Hord. Nafnið Hörður er mjög algengt, það segir ekki nokkur maður Hord. A ensku myndi maður segja The story of Hörður. Ég skil ekki af hverju sagan má ekld heita Harðarsaga." Robert Kellogg hefur dvalið ásamt konunni sinni í litlu íbúð- inni þeirra í Þingholtunum á hvetju sumri undanfarin 12 ár. Hann segir að kona sín hafi ekki ennþá brotið þá reglu því hún sé úti í Virginu. „Ég veit ekki af hverju ég er svona hrifinn af þessu landi, ég gæti allt eins ver- ið í New York eða allt annars staðar, mér líður bara vel hérna," segir Robert. Kvenleg viðhorf í íslendinga- sðgunum Robert skrifaði bók fyrir nokkrum árum sem hann kallaði The Nature of Narrative, í henni var kafli um epískar bókmenntir sem komu úr munnlegri sagna- hefð. „Margir Islendingar lásu bókina og þeim líkaði það sem þar stóð um Islendingasögurnar. Þegar bókaútgáfan Leifur Ei- ríksson gaf út íslendingasögurn- ar á ensku held ég að Vésteinn Ólafsson hafi komið með þá lausn að fá einhvern utanað- komandi til þess að skrifa Inn- ganginn. Ég held að það hafi verið gert til þess að forðast átök hjá Islendingum." I inngangi sínum útskýrir Ro- bert þjóðfélagið á söguöld. Það vakti athygli hans að sögurnar Bókaforlagið Leifur Eiríksson undirrítaði fyrírskömmu samning við Penguin Press um útgáfu á íslendinga- eru skrifaðar eins og skáldsögur en skáldsagan kom ekki fram á sjónarsviðið fyrr en á 18. öld. „Sögurnar fá trúverðugleik þar sem vitnað er til heimilda. Þetta er nokkrum sinnum gert í Grett- issögu, m.a. undir lokin, þar sem að vitnað er til orða Snorra lög- manns sem að sagði að Grettir hafi verið sterkasti maður sem hann hafi séð. Það er til handrit af Gunnlaugssögu Ormstungu þar sem segir að sag- an sé skrifuð af Ara Þorgilssyni." Robert segir það hafa vakið at- hygli sína hve mikill hlutur kvenna var í Islendingasögunum og þegar hann hafi skoðað Flat- eyjarbók hafi hann séð sex heim- ildir fyrir sögunni af Ólafi Tryggvasyni. „Það sem vakti at- hygli mína var að helmingurinn af þeim voru konur. Þannig að konurnar voru partur af þessari munnlegu hefð, þær voru heim- ildir þeirra sem skráðu sögurnar niður. Það held ég að sé mjög áhugavert. Það getur skýrt það hvers vegna konurnar í Islend- ingasögunum eru svona merki- legar, þær eru mjög nálægt því sem að konur eru í rauninni." Robert segist hafa haldið fyrir- lestur fyrir mörgum árum þar sem hann hafi talað um kven- höfund Laxdælu. „Það var brandari hjá mér. Það var gert til að draga fram að sagan sýnir vel kvenlegt viðhorf. Ef lýsingar á Ólafi Pá og Kjartani Ólafssyni eru skoðaðar kemur í ljós að þeir eru fallegir og íþrótta- mannslegir. Ólafur er með gull á hjálmi sínum og allt eftir því. Ég held ekki að þetta sé háð. Það er mikið talað um ástir í Laxdæla- sögu milli kvenna og karla. Milli Ólafs og móður hans Melkorku. Ást Guðrúnar og Kjartans er svo ástríðufull. Það er eins og að því að sofa hjá henni og svíkja hana síðan. Hann nefnir einnig að seyðkonur hafi þekkt rúnir og ráðið mönnum örlög. Róbert nefnir að þegar Þorlákur biskup hafi farið til náms hafi móðir hans farið með honum. Karlarn- ir kenndu honum vissa hluti en hún kenndi honum annað. „Þannig eru áhrif kvenna á sög- urnar. Það er ekki endilega að þær hafi skrifað þær. Því að bækurnar voru skrifaðar af mönnum í Idaustrum." Robert segist hafa áhuga á því hvaða not sögurnar höfðu fyrir þá sem að skrifuðu þær. Hann nefnir samband Islendinga við Noregskonunga. Hann segir að sögurnar gefi í skyn virðingu Is- lendinga meðal konunganna. Þeir hafi ekki viljað að kóngur- inn ríkti yfir þeim á hinn bógin hafi þeir viljað vera þar sem menningin var og því dvalist við hirðina. I einhverjum skilningi hefur þetta eitthvað að gera með kirkjuna og kristnun íslendinga. „Ólafur Tryggvason og Kjartan eru nánast ástfangnir, þeir bera svo mikla virðingu hvor fyrir öðrum. Ég er viss um að það eru tengsl á milli kristninnar og fundar Ameríku á sama tíma. Ég veit ekki hver þau eru en er al- veg sannfærður um að þau eru til staðar. Ólafur Tryggvason sendi Leif Eiríksson út til þess að snúa föður sínum til kristni. Hann er svo heppinn að bjarga fólki sínu á leiðinni, til Græn- lands. Einn af þeim sem hann bjargar er Guðríður. Það getur verið athyglisvert fyrir Kára Stef- ánsson vegna þess að hennar af- komendur voru biskupar." Robert Kellogg minnist á tengslin við kirkjuna og að gamla hetjuhefðin hafi lifað samhliða hugmyndum kristn- innar um guðsótta. Hann nefnir að kirkjan hafi haft áhrif í þeim klaustrum og skólum þar sem sögurnar hafi verið skrifaðar. „Islendingar eru öðruvísi en aðr- ajm LEIKFELAG HL @£REYKJAVÍKURjg BORGARLEIKHÚSIÐ Stóra svið Pétur Pan eftir Sir J.M. Barrie lau. 13/2, kl. 14:00 - uppselt sun. 14/2, kl. 14:00 - uppselt iau. 20/2, kl. 14:00 - uppselt sun. 21/2, kl. 14:00 - uppselt lau. 27/2, kl. 14:00 - uppselt sun. 28/2, kl.14;00 - nokkur sæti laus Stóra svið kl. 20.00 Horft f rá brúnni eftir Arthur Miller 3. sýn. lau, 13/2 - rauð kort 4. sýn. fös, 19/2 - blá kort - örfá sæti laus 5. sýn. fim, 25/2 - gul kort Stóra svið kl. 20.00 Mávahlátur eftir Kristínu Marju Baldursdóttur í leikgerð Jóns J. Hjartarsonar Sun. 14/2, fim. 18/2 SÍÐUSTU SÝNINGAR Stóra svið kl. 20.00 Sex í sveit eftir Marc Camoletti fös. 12/2 - uppselt lau. 20/2 - uppselt fös. 26/2 - uppselt sun. 28/2 lau. 6/3 - nokkur sæti laus Stóra svið kl. 20.00 íslenski dansflokkurinn Diving eftir Rui Horta Flat Space Moving eftir Rui Horta Kæra Lóló eftir Hlíf Svavarsdóttur 3. sýning sun. 21/2, rauð kort 4. sýning lau. 27/2, blá kort Litla svið kl. 20.00 Búa saga eftir Þór Rögnvaldsson (kvöld, lau. 13/2, fös. 19/2 SÍÐUSTU SÝNINGAR Miöasalan er opin daglega frá kl. 12 -18 og fram að sýningu sýningadaga. Símapantanir virka daga frá kl. 10. Greiðslukortaþjónusta. Sími 568 8000 fax 568 0383 ir Skandxnavar. Trúað fólk hafn- aði ekki heiðninni. Það sýna Eddurnar tvær með sögunum af goðunum. Svo virðist sem Snorri hafi viljað halda hefðinni við í menntun þjóðarinnar. Vegna þess að hann hefur talið að ekki væri hægt að skilja for- tíðina án þess að skilja skáld- skapinn, ljóðin, og að kvæðin væru ekki skilin án þess að þekkja sögurnar bak við þau.“ -PJESTA ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Sýnt á Stóra sviði kl. 20.00 Tveir tvöfaldir Ray Cooney í kvöld Id. - uppselt föd. 19/2 - uppselt Id. 20/2 - örfá sæti laus fid. 25/2 - örfá sæti laus Sólveig - Ragnar Arnalds aukasýning - sud. 14/2 ALLRA SlÐASTA SÝNING Brúðuheimili - Henrik Ibsen fid. 18/2 - nokkur sæti laus sud. 21/2 - nokkur sæti laus föd. 26/2 - Id. 27/2 Bróðir minn Ijónshjarta - Astrid Lindgren sud. 14/2, kl. 14:00 - laus sæti v/forfalla sud. 21/2 kl.14:00 - nokkur sæti laus sud. 28/2 kl. 14:00 - nokkur sæti laus Sýnt á Litla sviði kl. 20.00 Abel Snorko býr einn Erik-Emmanuel Schmitt í kvöld Id. - uppselt á morgun sud. - nokkur sæti laus föd. 19/2 - örfá sæti laus Id. 20/2 - fid. 25/2 - Id. 27/2 A.t.h. ekki er hægt að hleypa gestum inn í salinn eftir að sýning hefst. Sýnt á Smíðaverkstæði kl. 20.30 Maður í mislitum sokkum - Arnmundur Backman í kvöld Id. - uppselt á morgun sud., 50. sýning - uppselt fid. 18/2 - uppselt föd. 19/2 - upppselt Id. 20/2 - uppselt sud. 21/2 - uppselt föd. 26/2 - uppselt Id. 27/2 - uppselt sud. 28/2 - uppselt fid. 4/3 - föd. 5/3 - Id. 6/3, 60. sýning sud. 7/3 kl. 15:00. A.t.h. ekki er hægt að hleypa gestum inn í salinn eftir að sýning hefst. Listaklúbbur Leikhúskjallarans Mád. 15/2 Disney dásemd og Doris Day., Konur fyrr og nú - kvenímynd liðinna daga. Umsjón: Guðrún Guðmundsd. Dagskráin hefst 20:30 - húsið opnað 19:30 - Miðasalan er opin mánud. - þriðjud. 13-18, miðvikud. - sunnud. 13-20. Símapantanir frá kl.10 virka daga. Sími 551-1200.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.