Dagur - 13.02.1999, Blaðsíða 14

Dagur - 13.02.1999, Blaðsíða 14
30 - ÍAVÓARDAGVR 13. FEBRÚAR 1999 Ttwýtr Margttil ráða vlð svefntrufl unmn Bryndís Benediktsdóttir iæknir varar við of miklum æsingi þegar gengið er til náða. McLrgir kannast við það að eiga erfitt með svefn. Sumir sofa ofstutt aðrir oflengi. Bryndís Benediktsdóttir læknirá Svefnrannsóknar- deild Landspítalans segir að stuttur samfelldur svefn sé betri en langur sundurslit- inn. Líkaminn sér um að viðhalda sjálfum sér í svefni. Þá endurnýjar hann sig og í svefni fer líka fram geymsla minnis. Svefntrufl- anir eru taldar hrjá um 20% Vesturlanda- búa en þær ganga yfir á stuttum tíma án meðferðar hjá flestum. Mörg ráð eru við svefnleysi og svefntruflunum, önnur en svefnlyf. Nýlega kom út bæklingur með ráðum gegn svefnleysi, hann er hægt að fá í apótekum og heilsugæslustöðvum. Bryn- dís segir að fólk geti ráðið því hvenær það vaknar en það að sofna sé ekki háð viljan- um hins vegar sé hægt að hafa áhrif á það með ýmsum ráðum. Best er að hafa dimmt og þægilega svalt í svefnherberginu. Bryndís ráðleggur fólki að dempa ljósin á kvöldin, kveikja á kerti og hafa rólegt í kringum sig. Hún minnir á þau gömlu húsráð að drekka flóaða mjólk eða fara í heitt bað u.þ.b. klukku- tima íyrir svefn. „Varast ber koffínneyslu eftir kvöldmat og að hafa ber í huga að koffín er ekki bara f kaffi það er einnig að finna í kóki og tei.“ Bryndís segir að reglulegar líkamsæfing- ar séu mjög æskilegar og að besti tíminn til að hreyfa sig sé fyrripart dags. Hún var- ar við líkamsæfingum á kvöldin áður en gengið er til náða. Hún bendir fólki á að hafa það rólegt áður en gengið er til náða. „Fólk á helst ekki að gera neitt annað í svefnherbeginu en að sofa eða kannski njóta ásta,“ segir Bryndís. Svefnsjúkdómar eru fátíðir. Algengasti svefnsjúkdómurinn er svokallaður kæfisvefn en talið er að u.þ.b 3% manna fái hann. „Það er miskilningur að hann fái bara miðaldra karlmenn. Börn á forskóla- aldri og konur eftir tíðahvörf geta einnig haft þennan sjúkdóm sem einkennist af háværum hrotum, öndunarhléum og dagsyfju. Það er eðlilegt þegar að menn dotta yfir fréttunum í sjónvarpinu eða leiðinlegum bíómyndum eða íyrirlestrum en þegar þeir eru farnir að sofna í fyrir- lestrum sem þeir halda sjálfir þá er málið orðið alvarlegt." Bryndís segir að þegar fólk er að vakna á næturnar og leggja sig á daginn sé það að dreifa svefninum yfir langan tíma. Stuttur en góður svefn sé betri en langur og sund- urslitinn. „Ráðið er að styrkja eðlilega dægursveiflu. Besti tíminn til þess að sofa er á tímanum frá því skömmu fyrir mið- nætti til sjö á morgnana,“segir Bryndís. Hún bætir þvi við að vissulega sé það mis- munandi hvað fólk þurfi að sofa mikið en 7-8 tíma svefnþörf sé algengust hjá full- vaxta einstaklingi. Sýniþörf KYNLIF Ragnheiður Eíríksdóttir skrifar Mörgum þykir gott að fá athygli en ekki þykir öll- um samskonar athygli æskileg. „Exhibitionist- ar“ eru fólk sem hefur kynferðislegan unað af því að láta aðra horfa á kynfæri sín eða á sig í kynferðislegum athöfn- um. Innan hópsins eru flassararnir sem margir kannast við úr ellefu- fréttum sjónvarps. Elín Hirst segir byrst á svip: „Lögreglan í Reykjavik leitar nú að manni um fertugt sem sýndi tveimur menntaskólastúlkum kynfæri sín í Fossvogskirkjugarði um níuleytið í kvöld. Maðurinn er meðal- maður á hæð skolhærður og klæddur ryklitum burrberrísfrakka. Hann sást aka á brott í hvítum bíl af Lada gerð. Þeir sem kunna að hafa upplýsingar um manninn eru beðnir að snúa sér til lög- regluvarðstjóra." Svona flassarar eru yf- irleitt pasturslitlir og ólíklegir til stór- ræða en hafa þann akkílesarhæl að örvast ekki nema við að sjokkera granda- lausa vegfarendur með því að sýna á sér kynfærin. Líklega keyra þeir svo heim í lostafenghu uppnámi og ná útlausn með handafli annað hvort á leiðinni eða heima í forstofu. Reynslan er eflaust óhugguleg fyrir fórnarlömbin en flassar- ar eru venjulega ekki hneigðir til ofbeld- is. Það eru ofbeldismenn sem nauðga. Menning Um daginn var ég á hótelherbergi í Dana- veldi og reyndi í einsemd minni að drepa tímann með því að horfa á amerískan spjallþátt af öfgakennd- ustu gerð. Gestir í þættinum áttu það all- ir sammerkt að njóta þess ósegj- anlega að hafa sam- farir utan v e g g j a h e i m i 1 a sinna og helst á fjöl- f ö r n u m s t ö ð u m . Mér þótti þetta athygl- isvert, og sérstaklega hversu áfjáð fólkið var í að deila reynslu sinni þar sem það sat um það bil klofvega hvert á öðru í rífandi forleik. Það er kannski hámark exhibitionismans að komast í amerískt milljónasjónvarps og tjá sig í orðum og gjörðum. HEILSUMOLAR Memitim bætir kynlífið Nýleg bandarísk kynlífskönnun hefur leitt í ljós að þriðjungur bandarískra karl- manna og tæpur helmingur kvenna stríð- ir við kynlífsvandamál. Þrátt fyrir að ný lyf er getuleysi og of brátt sáðlát aðaláhyggju- efni karla. Vandamál kvenna eru frekar tengd lítilli kynlöngun. I könnuninni kom fram að menntun skipti miklu máli. Konur sem ekki voru með stúdentspróf voru helmingi líklegri til að eiga við vandamál að stríða heldur en konur með stúdentspróf. Gift fólk á í minni erfíðleikum en ógift. Fólk sem var undir álagi hafði mestar áhyggjur af frammistöðu sinni í kynlífinu. Flugferðir hættulegar Samband breskra hjartasjúklinga ráðlegg- ur þeim sem þurfa að fljúga lengur en tvo tíma að standa upp reglulega, drekka mik- ið vatn og forðast að drekka of mikið áfen- gi. Læknar á Middlesex sjúkrahúsinu í London eru að rannsaka hugsanleg tengsl milli blóðatappa og flugferða. Þeir rann- saka plássið milli sætanna, þrýstings í far- þegarými og súrefnismettun. Læknarnir giska á að rúmlega 30 þúsund Bretar þjá- ist vegna langflugs á hverju ári. Leikhús (kyn)líf Góð vinkona mín fór síðustu helgi á há- dramatíska Ieiksýningu í leikhúsi okkar borgarbúa. Hún kom seint og var vísað til sætis stakri meðal ókunnugra. Vinkonu minni á hægri hönd sat glæsikona í svört- um síðkjól flegnum mjög og við hlið hennar hátíðarbúinn huggulegur maður. Ljósin slökkt og parið dró upp öllara og dreypti á. Svo hófst Ieikurinn, ekki ein- ungis á sviðinu þar sem flestir bjuggust við honum, heldur líka hjá parinu prúð- búna. Daman skellti annarri löpp sinni yfir herrann þveran og tóku þau að eiga hvort við annað af mikilli áfergju. Hugs- ast getur að hún hafi lætt fimum rauð- naglalökkuðum fingrum sínum inn fyrir klaufír og fundiðþar fyrir stinnu holdi förunautar síns og að hann hafi rennt sterkri hönd (utanáliggjandi bláæðar á handarbaki) upp undir kjólinn síða og inn fyrir satínfortjaldið að mosanum mjúka með lautinni votu. Samkvæmt orðum vinkonu minnar má ætla að leik- húsferðin hafi verið vel heppnuð fyrir parið, að minnsta kosti gáfu stunur og Prygðarhljóð það til kynna. Hins vegar voru aðrir Ieikhúsgestir ekki eins ánægð- ir því drjúgur hluti þeirra sem höfðu út- sýni yfir báðar sýningarnar sem voru í gangi, gekk út í hléi. Þeim sem eru á leið í leikhús í kvöld vil ég óska góðrar skemmtunar.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.