Dagur - 13.02.1999, Blaðsíða 20
36- LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1999
RAÐAUGLÝSINGAR
S T Y R K I R
í
t
Menntamálaráðuneytið
Rannsóknastyrkir í tilefni 50 ára
afmælis Atlantshafsbandalagsins.
í ár eru liðin fimmtíu ár frá stofnun Norður-Atlantshafs-
bandalagsins, NATO, en ísland er eitt stofnaðildar-
rfkja þess.
í tilefni af þessum tímamótum hefur ríkisstjórn íslands
ákveðið að verja 2 milljónum króna til styrktar rann-
sóknum á sviði öryggis- og varnarmála með sérstöku
tilliti til íslands og Atlantshafsbandalagsins.
Tilgangur styrkjanna er að efla rannsóknir á íslenskum
utanríkismálum með sérstöku tilliti til þáttar íslands í
vestrænu varnarsamstarfi og sögu og framtíð Atlants-
hafsbandalagsins.
Styrkir verða einkum veittir á grundvelli mats á gildi
rannsóknarefna og reynslu umsækjanda af fræða-
störfum. Miðað er við að ritað sé á íslensku eða verk-
ið þýtt á íslensku sé það ritað á öðru tungumáli.
Menntamálaráðherra skipar dómnefnd þriggja ein-
staklinga, frá forsætisráðuneyti, utanríkisráðuneyti og
menntamálaráðuneyti, sem gerir tillögu til ríkisstjórn-
arinnar um úthlutun styrkja.
Umsóknir, auk ítarlegrar greinargerðar um rannsókn-
arverkefni og æviágrips, skulu berast menntamála-
ráðuneytinu eigi síðar en 8. mars næstkomandi.
Menntamálaráðuneytið,
rannsóknastyrkir (NATO),
Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.
Menntamálaráðuneytið, 09. febrúar 1999.
www.mrn.stjr.is
AT V I IV N A
Samband íslenzkra sveitarfélaga
<%>
Deildarstjóri
Samband íslenskra sveitarfélaga óskar eftir að ráða
deildarstjóra hagdeildar.
Helstu verkefni deildarstjóra:
• Yfirumsjón með verkefnum hagdeildar.
• Öflun og úrvinnsla upplýsinga um fjármál sveitarfé-
laga, svo sem tekjustofna þeirra, verkefni, fjármála-
leg samskipti ríkis og sveitarfélaga og og starfsemi
Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
• Tillögugerð og fagleg ráðgjöf um framangreind mál
fyrir stjórn og nefndir sambandsins og
sveitarfélögin.
• Útgátu Árbókar sveitarfélaga og annarra tölfræði-
legra upplýsinga um starfsemi sveitarfélaganna.
Hæfniskröfur
• Góð þekking á rekstri, fjármálum og starfsemi hins
opinbera.
• Reynsla af tölvukerfum og tölvunotkun og framsetn-
ingu tölfræðilegra upplýsinga.
• Tungumálakunnátta.
Deildarstjóri hagdeildar er sérfræðingur sambandsins í
fjármálum sveitarfélaga og þarf að hafa til að bera frum-
kvæði, skipulagshæfileika og lipurð í mannlegum sam-
skiptum.
Æskileg er þekking á lögum og reglugerðum um starf-
semi sveitarfélaga, svo og menntun á sviði viðskipta-eða
hagfræði og/eða reynsla á sviði sveitarstjórnarmála og
öðrum þeim verkefnum, sem deildarstjóra er ætlað að
sinna.
Laun eru umsamin í ráðriingarsamningi og starfskjör fara
eftir ákvæðum í kjarasamningum Launanefndar sveitarfé-
laga við samflot bæjarstarfsmannafélaga.
Skriflegar umsóknir, með upplýsingum um menntun og
fyrri störf, berist til skrifstofu Sambands íslenskra sveitar-
félaga, Háaleitisbraut 11, 108 Reykjavík, merktar: Um-
sókn um starf deildarstjóra hagdeildar.
Umsóknum skal skilað í síðasta lagi mánudaginn 22.
febrúar nk.
Nánari upplýsingar veitir Þórður Skúlasson,
framkvæmdastjóri, í síma 581-3711.
Skrifstofustarf
Starf skrifstofumanns við embætti sýslumannsins á
Patreksfirði er laust til umsóknar. Starfið felst m.a. í
allri almennri afgreiðslu, símasvörun, umsjón með
úgáfu ökuskírteina og ýmiss konar atvinnuskírteina og
leyfa, útgáfu þinglýsingarvottorða og aflýsingu skjala,
umsjón með lögskráningu sjómanna o.fl.
Daglegur vinnutími er frá kl. 8.00 til 16.30. Launa-
kjör eru samkvæmt kjarasamningum opinberra starfs-
manna. Konur, jafnt og karlar, eru hvattir til að sækja
um starfið. Umsækjjandi þarf að geta hafið störf í
mars.
Umsóknum er greina aldur, menntun og fyrri störf,
skal skila til undirritaðs fyrir 20.feb.nk.
Sýslumaðurinn á Patreksfirði,
Þórólfur Halldórsson.
Akureyrarbær
Heilsugæslustöð -
framkvæmdastjóri
Laus er til um-sóknar staða framkvæmdastjóra við
Heilsugæslustöðina á Akureyri, sem ber ábyrgð á fjár-
málum, daglegum rekstri og starfsmannamálum stöðvar-
innar. Háskólamenntun og/eða reynsla af stjórnun heil-
brigðisstofnunar er áskilin, auk þess að eiga auðvelt
með stjórnun og mannleg samskipti. Staðan er veitt til
2ja ára og umsækjandi þarf að hefja störf sem fyrst.
Upplýsingar um starfið veita félagsmálastjóri í síma 460-
1400 og framkvæmdastjóri í síma 460-4600. Upplýsing-
ar um kaup og kjör veitir starfsmannadeild í síma 462-
1000.
Umsóknum skal skila til starfsmannadeildar Akureyrar-
bæjar, Geislagötu 9, á eyðublöðum sem þar fást.
Umsóknarfrestur er til 26. febrúar 1999
Starfsmannastjóri
Laus störf
Framtíðarvinna.
Laust starf er í ræstingum alla virka dag og aðra hverja
helgi ca 60 % vinna. Vinnutími 07:30-11:00. Viðkom-
andi þarf að geta unnið sjálfstætt og vera eldri en 25
ára. Laust strEix.
Tímabundið ca 1 ár.
Skrifstofumaður við tölvuskráningu,uppgjör og önnur
almenn skrifstofustöf, ca 60-70% vinna. Vinnutími frá
13:00. Unnið er með Navision Financials bókhaldsfor-
riti. Almenn tölvukunnátta er skilyrði en þó ekki skilyrði
að viðkomandi hafi unnið við Navision Financials. Við-
komandi þarf að geta hafið störf þann 15 apríl.
Umsóknir verða teknar niður mánudaginn 15 feb milli kl
10-12 á skrifstofu Greifans Glerárgötu 20 suður endi.
Umsóknir ekki teknar niður í síma.
Laust í ræstingum
Framtíðarvinna.
Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt og vera eldri
en 25 ára. Laust strax.
Umsóknir verða teknar niður mánudaginn 15 feb milli kl
10-12 á Kaffiteríu Hafnarstræti. Umsóknir ekki teknar
niður í síma.
Greifinn,Kaffiterían og Rósagarður eru reyklausir vinnu-
staðir.
NÁTTÚRUVERND RÍKISINS
Landvarsla 1999
Náttúruvernd ríkisins auglýsir eftir landvörðum til
starfa á eftirtöldum stöðum sumarið 1999: Þjóð-
garðinum í Skaftafelli, þjóðgarðinum í Jökulsár-
gljúfrum, Mývatnssveit, Herðubreiðarfriðlandi og
Öskju, Hvannalindum, Lónsöræfum, friðlandi að
Fjallabaki, Ströndinni við Stapa og Hellna, Búða-
hrauni, Vatnsfirði og Hornströndum. Landvarsla
verður á tímabilinu 1. júní til 31. ágúst.
Þeir sem hafa lokið námskeiði í landvörslu ganga
fyrir um vinnu.
Umsóknarfrestur er til 5. mars. Frekari upplýsingar
ásamt umsóknareyðublöðum fást á skrifstofu
Náttúruverndar ríkisins í síma 562 7855.
Slökkvilið Reykjavíkur
ELDVARNAEFTIRLIT
Verkefnisstjóri
Hjá Slökkviliði Reykjavíkur, eldvarnaeftirliti er ný
staða verkefnisstjóra laus til umsóknar.
STARFÐ:
• Mótun og uppbygging forvarnastarfs í samráði við
forstöðumenn stofnana og fyrirtækja Reykjavíkur-
borgar.
• Áhættugreining á starfsemi og byggingum.
• Þátttaka í stefnumótunarvinnu og uppbyggingu á
nýjum gagnagrunni eldvarnaeftirlitsins.
• Ýmis fagleg störf innan eldvarnaeftirlits.
• Möguleikar á endurmenntun og þróun í
starfi.Þátttaka í stærri útköllum Slökkviliðs Reykja-
víkur.
• Heyrir undir umsjónarmann eldvarna.
• Miklir starfsmótunarmöguleikar fyrir rétta mann-
eskju.
• Áhugavert starf í líflegu og spennandi umhverfi.
HÆFNISKRÖFUR:
• Tæknimenntun eða reynsla af tryggingar-/for-
varnamálum.
• Mjög góð íslensku- og tölvukunnátta.
• Gott vald á einu Norðurlandamáli og ensku.
• Frumkvæði og skipulagshæfni.
• Hæfni í mannlegum samskiptum.
• Áhugi á bruna- og forvarnamálum.
Ráðning er hugsuð frá 15. maí nk. eða eftir sam-
komulagi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkur-
borgar við stéttarfélag viðkomandi aðila. Um er að
ræða 100% starf.
Einungis karlar starfa í Eldvarnaeftirliti Reykjavíkur
og hvetjum við því konur sérstaklega að sækja um.
Upplýsingar gefur starfsmannastjóri eða umsjónar-
maður eldvarna í síma 570-2040 en umsóknareyðu-
blöð er að finna á skrifstofu Slökkviliðs Reykjavíkur,
Skógarhlíð 14, 101 Reykjavík.
Umsóknum ásamt yfirliti af starfs- og námsferli skal
skila til starfsmannastjóra Slökkviliðs Reykjavíkur í
seinasta lagi 26. febrúar nk. Öllum umsóknum
verður svarað.
Slökkviliðsstjórinn í Reykjavík.