Dagur - 20.02.1999, Page 4
FRÉTTIR
í . ipt i i, r i 'i m v . ,i t ii r. • '• r. 'í k ftl»
4-LAVGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1999
Upplýsingakerfi vegna Sdiengen
Dómsmálaráðuneytið hefur í sam-
starfi við hin Norðurlöndin 4 samið
\dð IBM um gerð hluta af upplýs-
ingakerfi sem koma þarf upp í lönd-
unum í tengslum við þátttöku
þeirra í Schengen samstarfinu. Ný-
heiji mun sjá um að setja upp kerf-
ið hér á landi og þjónustu við það
eftir að það er komið í notkun.
Samskonar kerfi verður sett upp á
hinum Norðurlöndunum í hverju
landi, að j)ví er fram kemur í frétta-
tilkynningu frá Nýherja.
Þessi kerfi munu öll tengjast höf-
uðupplýsingakerfi Schengen svæð-
isins í Strassborg í Frakklandi. „Akvörðun um sameiginlegt upplýs-
ingakerfi allra Schengen landanna tryggir mikið öryggi í samþættingu
gagna og gerir lögregluyfirvöldum kleift að skiptast á gögnum á skjót-
an og einfaldan hátt sem stuðlar að auknu öryggi borgaranna," segir í
tilkynningu Nýherja.
Björn Friðfinnsson, ráðuneytisstjóri
dómsmálaráðuneytisins, og Frosti Sig-
urjónsson, forstjóri Nýherja, skrifa
undir samninginn.
Stefhiuiiótun í atviimiunálum
ísafjarðar hafin
Hafin er vinna að stefnumótun í atvinnumálum í ísafjarðarbæ og hafa
verið mótaðar hugmyndir að vinnuferli í þ\4 sambandi. Skipað hefur
verið í vinnuhópa sem eiga að Ijúka sinni vinnu í maímánuði en til
verksins verður varið 60 milljónum króna.
Fullreynt þykir að ekki sé rekstrargrundvöllur fyrir djúpbátinn
Fagranes þrátt fyrir auðsjáanlegt hagræði af þjónustunni en nýting
skipsins er aðeins 25%. Hugmyndir eru uppi um að staðsetja Fagranes
á Þingeyri yfir vetrarmánuðina og halda uppi áætlunarferðum til
Bíldudals og tengja þannig norður- og suðurhluta Vestfjarða betur en
verið hefur en það hefur verið talin ein af forsendum aukinnar byggð-
ar á Vestíjörðum að samgöngur aukist um kjördæmið. Hrafnseyrar-
heiði er yfirleitt ófær á veturna vegna snjóa og ljóst að jarðgangagerð
á þeim stað er ekki forgangsverkefni. Til þess að nýta skipið á þessum
slóðum þarf að byggja ferjubryggju á Þingeyri og Bíldudal. - GG
Framsókn á Reykjanesi klár í slaginn
Framboðslisti Framsóknarnokksins á Reykjanesi hefur verio ákveðinn
og var frá honum gengið á fundi fulltrúaráðs ílokksins í vikunni. I
fyrsta sæti er Siv Friðleifsdóttir alþingismaður og Hjálmar Arnason al-
þingismaður er í 2. sæti en Framsókn á 2 af 12 þingmönnum kjör-
dæmisins.
I næstu sætum eru Páll Magnússon, Drífa Sigfúsdóttir, Björgvin
Njáll Ingólfsson, Hildur Helga Gísladóttir, Hallgrímur Bogason, Sig-
urbjörg Björgvinsdóttir, Steinunn Brynjólfsdóttir, Sigurgeir Sigmunds-
son, Bryndís Bjarnadóttir og í 12. sæti er Gunnlaugur Þór Hauksson.
Heiðurssætið það 24. skipar Steingrímur Hermannsson, fyrrverandi
forsætisráðherra.
Útfararstofa Ísíands - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík.
Sími 581 3300 - ailan sólarhringinn.
Markmið Útfararstofu íslands er að veita trausta og persónulega þjónustu.
Aðstandendur geta leitað útfararstjóra hvenær sólarhrings sem er.
Útfararstofa íslands er aðstandendum innan handar um alla þá þætti er hafa
ber I huga er dauðsfall ber að. Útfararstjórar Útfararstofu íslands búa yfir
mikilli reynslu og hafa starfað við útfararþjónustu um árabil.
Útfararstofa íslands sér um:
Útfararstjóri tekur að sér umsjón útfarar í samráði við
prest og aðstandendur.
Flytja hinn iátna af dánarstað I líkhús.
Aðstoða við val á kistu og likklæðum.
Undirbúa lík hins látna í kistu og snyrta ef
með þarf.
Útfararstofa íslands útvegar:
Prest.
Dánarvottorð.
Stað og stund fyrir kistulagningu og útför.
Legstaö í kirkjugarði.
Organista, sönghópa, einsöngvara, einleikara
og/eða annað listafólk.
Kistuskreyfingu og fána.
Blóm og kransa.
Sáimaskrá og aöstoðar víð val á sálmum.
Likbrennsluheimild.
Duftker ef líkbrennsta á sér stað.
Sal fyrir erfidrykkju.
Kross og skilti á leiðí.
Legstein.
Flutning á kistu út á land eða utan af landi. sverrir oisen
Flutning á kistu til landsios og frá landinu. útfararstjóri
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri
Síina skráimi drelft
á lilíðar Úlfarsfells
Fjórtán fyrirtæki,
Reykjavík meimingar-
borg 2000 og samtök-
in Gróður í landnámi
Ingólfs hafa samein-
ast um endurvinnslu
lifræns úrgangs sem
nýttur verður til að
græða örfoka land á
höfuðborgarsvæðinu.
Skil 21 er heitið á endurvinnslu-
og uppgræðsluverkefni sem 14
fyrirtæki, Reykjavik menningar-
borg 2000 og samtökin Gróður í
landnámi Ingólfs standa að og
kynnt var í gær.
Ellefu fyrirtæki í höfðuborg-
inni hafa skuldbundið sig til að
flokka úrgang sem til felllur hjá
þeim og skila lífrænum hluta
hans til Gámaþjónustunnar. Þar
verður honum breytt í svokallaða
moltu sem er ákaflega frjósamur
jarðvegur. Moltan verður nýtt til
að græða upp land og verður
byrjað í suðurhlíðum Ulfarsfells
en þar er gróður mjög á undan-
haldi. Sorpa mun einnig leggja
verkefninu til moltu.
„Reykjavík hefur metnað til að
ganga fram fyrir skjöldu og stíga
ný skref í umhverfismálum,“
sagði Ingibjörg Sólrún Gísladótt-
ir borgarstjóri þegar Skil 21 var
kynnt, en það er fyrsta verkefnið
sem kynnt er opinberlega á veg-
um menningarborgarársins.
„Reykjavík - menningarborg Evr-
ópu árið 2000 er kjörinn vett-
vangur til að festa Reykjavík í
sessi sem hina vistvænu höfuð-
borg í norðri," sagði borgarstjóri.
Samkvæmt athugunum sem
gerðar hafa verið falla til um 200
þúsund tonn af lífrænum úr-
gangi á höfuðborgarsvæðinu á ári
og aðeins lítið magn er nýtt.
Björn Guðbrandur Jónsson, um-
hverfisverkfræðingur hjá Línu-
hönnun, sem hefur haft veg og
vanda af mótun verkefnisins Skil
21, segir að hægt sé að minnka
það sorp sem þarf að urða um
um 50-60% með því að jarðgera
það. Einnig sé hægt að draga
verulega úr gróðurhúsaáhrifum
af manna völdum með þessari
aðferð eða um 5-8%. Síðast en
ekki síst sé lífrænn úrgangur
kjörinn áburður þegar búið sé að
vinna hann með ákveðnum að-
ferðum. Þetta er líka það sem
koma skal, sagði Björn Guð-
brandur og benti á að fljótlega
tæki gildi á evrópska efnahags-
svæðinu tilskipun um flokkun líf-
ræns úrgangs og spilliefna frá
öðrum úrgangi á urðunarstöðum.
Fyrirtækin sem gerst hafa
stofnaðilar að þessu verkefni eru
Landsvirkjun, Kexverksmiðjan
Frón, Nýkaup, Hótel Saga, Gæða
Grís, ísal, Fjölskyldu- og hús-
dýragarðurinn, Prentsmiðjan
Gutenberg, Skeljungur, Eimskip
og Landssíminn. Kostnaður fyrir-
tækjanna er fyrst og fremst fólg-
inn f flokkuninni, en mörg eru
þegar farin að flokka úrgang. Þau
greiða einnig árgjald til að standa
straum af kostnaði við verkefnið
en það er ekki hátt.
Það er til marks um hversu
mjög viðhorfin í umhverfismál-
um hafa breyst að fyrirtækin sjá
sér hag í því að tengjast endur-
vinnslu- og uppgræðsluverkefni
eins og Skil 21 þótt það kunni að
kosta þau peninga. .Á'ánningur-
in er fyrst og fremst sá að fá að
vera með í því að gera góða
hluti," segir Guðmundur Björns-
son, forstjóri Landssímans. Hjá
Landssímanum fellur til mikið af
pappír, bara í símaskránni eru
500 tonn af pappír og Guðmund-
ur segir það hið besta mál ef
hægt sé að nýta hana með öðru í
að græða upp land. - VJ
Ar íyrir þjófinað
og likamsárás
Hæstiréttur hefur staðfest eins
árs fangelsisdóm undirréttar yfir
síbrotamanni um tvítugt sem
ákærður var fyrir þjófnað og lík-
amsárás.
Með brotunum rauf maðurinn
skilorð og voru þau framin áður
en fyrri dómur gekk. Var Helga
ákvarðaður hegningarauki, en
við refsiákvörðun var einnig tek-
ið tillit til að Helgi hafði ítrekað
gerst sekur um þjófnað og að lík-
amsárásin var án nokkurs tilefn-
is af hendi þess sem fyrir henni
varð. Akærði hafði fjórum sinn-
um hlotið skilorðsbundna dóma
á rúmlega þremur árum, en rauf
ávallt skilorð. Kom því ekki til
álita að skilorðsbinda frestun á
hluta refsingarinnar.
Hæstiréttur hefur staðfest dóm undir-
réttaryfir tvítugum síbrotamanni sem
ákærður var fyrirþjófnað og iíkams-
árás.
í öðrum líkamsárásardómi í
Hæstarétti var maður hins vegar
sýknaður af ákæru um að hafa
veist að öðrum manni á dansleik
í Félagsheimili Húsavíkur að-
faranótt 2. nóvember 1997 og
sparkað í hann með þeim afleið-
ingum að þolandinn fótbrotnaði.
Akærði neitaði sök og verulegs
ósamræmis gætti í framburði
vitna um atburðarás. Talið var að
ekki hefði tekist að sanna sök og
var maðurinn því sýknaður.
Hæstiréttur snéri við dómi und-
irréttar þar sem hinn ákærði var
dæmdur í tveggja mánaða skil-
orðsbundið fangelsi og til að
greiða 200 þúsund króna skaða-
bætur. - FÞG