Dagur - 20.02.1999, Blaðsíða 10

Dagur - 20.02.1999, Blaðsíða 10
10- LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1999 Úrval með nýjan svip Tímaritið Úrval sem komið hef- ur út í 57 ár hefur nú fengið nýtt yfirbragð. Frá upphafi hefur Úrval fært lesendum sín- um valdar greinar, fléttað sög- um og viðtölum í takt við tím- ann hverju sinni og mun sú rit- stjórnarstefna ekki breytast. Úrval leitar víða fanga í efnis- öflun bæði innan lands og Kristinn Arnarson frá Útgáfuféiaginu utan, en burðarásinn er samn- Heimsljósi, Sigurður Hreiðar ritstjóri ingar við bandarísku tímaritin og Anita Oddsdóttir frá Blaðadreifingu Reader’s Digest og Discover. skoða Úrval eftir útlitsbreytingarnar. Um áramót fluttist útgáfan á Úrvali á hendur Útgáfufélaginu Heimsljósi sem auk þess rekur meðal annars Bókaklúbb atvinnub'fsins. Ritstjóri Úrvals verður sem fyrr Sigurður Hreiðar, sem ritstýrt hefur blaðinu frá 1997, en hann var áður ritstjóri Úrvals frá 1974 til 1991. I tilefni af breytingunum sem gerðar hafa verið á blaðinu er fyrsta tölublað boðið með 25% kynningarafslætti í lausasölu, eða á aðeins 485 kr. I áskrift kostar blaðið 545 kr. og þeir sem gerast áskrifendur á næstu vikum fá að gjöf vandaðan penna með fyrsta blaði. Leiðrétting Þau mistök urðu í myndatexta í opnu blaðsins sl. fimmtudag að sagt var að þessi mynd væri frá hjúkrunarheimilinu í Skógarbæ í Reykja- vík. Það er alrangt því myndin er úr kaffiteríu félagsmiðstöðvar aldr- aðra í Skógarbæ í Reykjavík. Beðist er velvirðingar á þessu mishermi. flNÉSunnuhlíð Hjúkninarheimili aldraðra í Kópavogi Starfsmenn óskast í eftirtaldar stöður: • Hjúkrunarfræðingar á kvöld- og næturvaktir. • Sjúkraliðar í vaktavinnu. Upplýsingar um kaup og kjör veitir Áslaug, sími 560 4163. Miðstjórnarfundi frestað Ákveðið hefur verið að fresta vegna veðurs miðstjórnarfundi og stjórnmálaskóla Sambands ungra framsóknarmanna sem fara átti fram á Akureyri í dag, laugardaginn 20. febrúar. Fundurinn verður þess í stað haldinn laugardaginn 27. febr- úar á áður boðuðum stað og tíma. Dagskrá fundarins verður með sama hætti og fram kemur í fundarboði. Frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Framsóknarflokks- ins í síma 562-4480 Framkvæmdastjórn SUF. Hjartans þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, KRISTJÁN JÓNSSONAR, forstjóra, Þingvallastræti 20, Akureyri. Fjölskyldan þakkar starfsfólki Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri fyrir alla þeirra alúð og umönnun. Guð blessi ykkur öll. Kristín Kristjánsdóttir, Símon Magnússon, Anna María Kristjánsdóttir, Ágúst Már Ármann, Jón Kristján Kristjánsson, Heiðrún Jónsdóttir, Helga Kristjánsdóttir, Helgi Magnús Stefánsson, barnabörn og barnabarnabörn. FRÉTTIR L Fulltrúar Shell, Norsk Hydro og íslenskra stjórnvalda skrifa undir samninga um stofnun íslenska vetnis- og efnarafalafélagsins. Tilraiinaland í notkun vetnis ísland á að verða fyrsta „vetnissamfé- lagið“ í heiminuTii. Shell vill taka þátt í því þegar hensín og olía víkja fyrir endur- nýjanlegum orkugjöf- um. Byrjað á tilraun- um með strætó. Samningur um stofnun hlutafé- lags um að kanna möguleika á að auka notkun vetnis á kostnað innflutts fljótandi jarðefnaelds- neytis - bensíns og olíu - var und- irritaður í vikunni. Stefnt er að því að Island verði fyrsta „vetnis- samfélag" heims og liggja þar að baki ýmsir kostir, svo sem smæð samfélagsins, hversu opið það er, reynslan af [)ví að skipta um orkugjafa og pólitfsk stefnumót- un. Samstarfsverkefni þetta er milli Vistorku hf., bílafyrirtækis- ins Daimler-Chrysler og orkufyr- irtækjanna Shell International og Norsk Hydro. Þessi félög hafa stofnað Islenska vetnis- og efna- rafalafélagið hf. með einnar milljónar dollara stofnhlutafé og mun félagið beita sér fyrir til- raunum og rannsóknum á ýms- um notkunarmöguleikum vetnis, efnarafala og vetnisbera. Byrjað á strætó Eitt fyrsta verkefnið gæti verið tilraunarekstur á vetnisstrætis- vagni í Reykjavík og ýmis frekari verkefni eru fyrirhuguð á árunum 2000-02. Stefnir nýja félagið að því að vetni verði notað í stað jarðefnaeldsneytis í öllum sam- göngum á sjó og landi, sem og á fiskiskipaflotanum. Sú hugmynd sem nú er í mótun, að geyma vetni bundið í metanóli í einka- bílum, virðist aðgengilegust og ekkert sýnist mæla gegn því að knýja fiskiskip með vetni sem geymt er um borð í skipum bund- ið í metanóli. Slík þróun er at- hyglisverð með markmið Kyoto- áætlunarinnar í huga, en meðal annars er vonast til þess að nýtt eldsneyti geti leyst af hólmi 64% af innfluttu bensíni og dregið úr núverandi útblæstri gróðurhúsa- lofttegunda um 10%. í þessu sambandi vekur athygli að olíufyrirtækið Shell skuli vera í fararbroddi. Fulltrúi Shell við undirritunina, Jan Smeele, kom inn á þetta og sagði að það væri beinlínis hugsjón hjá fyrirtækinu að fara út í endurnýjanlega og „hreina" orkugjafa. Þótt jarðefna- eldsneyti verði enn um sinn með yfirburðastöðu í heiminum muni endurnýjanlegir orkugjafar kerf- isbundið taka við og Shell vilji gegna hlutverki í þeirri þróun. Við undirritunina var kynnt skýrsla nefndar iðnaðarráðherra um möguleika á nýtingu inn- lendra orkugjafa. Finnur Ingólfs- son iðnaðarráðherra vakti athygli á því að vinna væri komin vel áleiðis við að hrinda í fram- kvæmd öllum þeim sex megin- markmiðum sem nefndin hefði lagt áherslu á. — FÞG Drjugir í látttokam íslendingar eiga drjúgan hlut í útlán- íun Norræna fjárfest- ingarbankans og meira en aðrir ef mið- að er við höfðatöluna margfrægu. I Iántökum hjá Norræna þ'árfest- ingarbankanum eru Islendingar, sem vænta mátti, margra manna makar, með 7% heildarútlána bankans á Norðurlöndum, þó aðeins séu þeir 1,1% íbúanna. Sænskir viðskiptavinir áttu stærstan hlut í útlánunum, 38%, en skipt niður á íbúa skuldar meðal-lslendingurinn um 6-falt hærri upphæð en hver Svíi. I fyrra Iánaði NIB m.a. milljarð til Hitaveitu Suðurnesja og einnig til Islenska járnblendisins, Reykjavíkurborg fékk 800 millj- óna króna lán til framkvæmda á Nesjavöllum, Flugleiðir fengu 500 milljóna króna lán og Jón Sigurðsson, aðstoðarforstjóri Norræna fjárfestingarbankans. Byggðastofnun 400 milljónir króna. Með ríflega 9 milljarða kr. láta stjórar NIB vel af árinu þrátt fyr- ir verulegan samdrátt í lánveit- ingum bankans miðað við árið áður. Ný lán til norrænna lántak- enda lækkuðu um fjórðung (úr 114 milljörðum í 84 milljarða). Miima fjármagnsflædi Með nýjum stofnsamningi um bankann hafa verið „tekin af öll tvímæli um það að bankinn er í eðli sínu fjölþjóðleg fjármála- stofnun og þar með rennt styrk- um stoðum undir alþjóðlega starfsemi hans“, segir í frétt frá bankanum. Aðstoðarbankastjór- inn, Jón Sigurðsson, segir „langt síðan fjölþjóðlegar fjármálastofn- anir hafa haft eins mikilvægu hlutverki að gegna og nú til þess að hindra að uppsprettur hag- vaxtar þorni vegna þeirrar fjár- mögnunarkreppu sem nú ríkir víða um heim“. Því sé spáð að um allan heim muni áfram draga verulega úr fjármagnsflæði til nýju markaðshagkerfanna. 7 milljarðar á mann Útistandandi lán NIB samsvör- uðu rösklega 600 milljörðum króna í árslok. Niðurstaða efna- hagsreiknings var næstum 890 milljarðar króna eða ámóta upp- hæð og allt íslenska lánakerfið að frádregnum erlendum skuldum. NIB nægja 123 starfsmenn til að sýsla um þetta allt saman. - HEI

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.