Dagur - 20.02.1999, Page 6
6 - LAVGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1999
ÞJÓÐMÁL
Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson
Ritstjóri: elías snæland jónsson
Aðstoðarritstjóri: birgir guðmundsson
Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson
Skrifstofur: strandgötu 3i, akureyri,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
Simar: 460 6ioo og soo 7080
Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is
Áskriftargjald m. vsk.: i.soo kr. á mánuði
Lausasöiuverö: iso KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ
Grænt númer: 800 7080
Sfmbréf auglýsingadeildar: 460 6161
Símar auglýsingadeildar: (REYKJAVíK)563-1615 Ámundi Ámundason
(AKUREYRI)460-6191 G. Ómar Pétursson
OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir
Netfang auglýsingadeildar: omar@dagur.is
Símbréf ritstjórnar: 460 6171(akureyri) 551 6270 (reykjavík)
Heilbrigð skynsemi
f fyrsta lagi
Það þykir ekki lengur boðleg hagfræði að leysa Qárskort ríkisins
með því að prenta peninga. Slíkt Ieiðir til verðbólgu og gengis-
fellir raungildi peningaseðlanna. Peningarnir verða víst að vísa
til einhverra raunverulega verðmæta. Þessi sannindi flokkast
undir þau alþýðlegu fræði sem oft eru kölluð heilbrigð skyn-
semi. Heilbrigð skynsemi birtist okkur í fjölbreyttum myndum
ttd. í því orðtaki að það sé skammgóður vermir að pissa í skóinn
sinn, því að sá sem alltaf krítar liðugt geti ekki átt von á að vera
tekinn bókstaflega, og í því að trúverðugleiki manns er mældur
á grundvelli fyrri hegðunar hans.
í öðru lagi
Nýlega er búið að birta skýrslu um þróun í byggðamálum frá
1994-1997 og bera hana saman við stefnumótun Alþingis. I
stuttu máli hefur stefnumótun þingsins verið gjörsamlega
hunsuð. Gengisfelling þessa þingskjals er því alger og gengis-
felling Alþingis veruleg. Byggðaþróun er einfaldlega það mikil-
vægt mál að menn geta ekki leyft sér að samþykkja eitthvað út
í loftið, sem ekkert er síðan að marka. Þegar svo við bætist að
önnur dæmi eru um miklar ákvarðanir, sem ekkert er gert með
- nú síðast varðandi atvinnuuppbyggingu við Mývatn eftir Kísil-
iðju og í hvalamálinu - þá er heilbrigðri skynsemi nóg boðið.
í þriðja lagi
Augljóslega var stefnumörkunin í byggðamálum á sínum tíma
alls ekki nægjanlega undirbúin. Nú er komin fram ný þingsá-
lyktun um byggðamál, sem vissulega hefur verið unnin með
nokkuð öðrum hætti. I þessari nýju áætlun er á sumum sviðum
farið inn á miklar framfarabrautir, eins og t.d. að reyna að skil-
greina vandann með fræðilegum hætti áður en menn byrja að
reyna að leysa hann. Það flokkast undir heilbrigða skynsemi.
Engu að síður er það ögrun við heilbrigða skynsemi, að taka
mark á þessu plaggi, því reynslan segir okkur að engin trygging
virðist vera fyrir því að samþykktum Alþingis sé fylgt eftir. Það
er brýnt að Alþingi fari að prenta samþykktir, sem vísa til raun-
verulegra verðmæta - þannig að fólk með heilbrigða skynsemi
geti borið virðingu fyrir löggjafarþinginu.
Birgir Guðmundsson
Útgáfufélag: dagsprent
Spumiiigar í
yfirþimgavigt
Islendingum er illa við flókin
mál. Við erum á móti málum
sem hafa margar hliðar, málum
sem við þurfum að ígrunda,
hugleiða og skoða frá öllum
hliðum, málum sem hægt er að
réttlæta og rökstyðja frá ýms-
um sjónarhornum. Þannig
erum við fyrst og fremst á móti
kvótakerfinu vegna þess að það
er svo flókið að enginn getur
verið þess fullviss í deilum um
það að hann hafi 100 prósent
rétt fyrir sér. Og Islendingum
Iíður illa þegar þeir hafa ekki
100 prósent rétt fyrir sér eins
og þeir eru vanir.
Við viljum fá að rífast
um einföld og Iítil
skammdegismál sem
hægt er að afgreiða með:
„Svona er málið vaxið og
þarna liggur hundurinn
grafinn og haltu svo kjafti
hálfvitinn þinn,“ án frek-
ari rökstuðnings. Þess
vegna erum við svo
ánægð með að geta gusað úr
reiðiskálunum yfir Spurninga-
keppni framhaldsskólanna í
sjónvarpinu.
Glaðir og gáfaðir
Þessi spumingakeppni er afar
hupplegt ágreiningsefni í yfir-
standandi illviðrakafla. Og hér
þurfum við engin rök gegn því
að Logi Bergmann sé leiðinleg-
ur og Illugi fífl. Dómarinn og
spurningasmiðurinn Illugi fær
hressilega á baukinn þessa dag-
ana fyrir þá ósvinnu að semja
svo þungar og flóknar spurn-
ingar að við sem heima sitjum
getum ekki svarað þeim. Hann
misskilur fullkomlega sitt hlut-
verk. Fram til þessa hafa
spurningahönnuðir sem sé átt-
að sig á tilgangi og markmiðum
þessa þáttar, sem er auðvitað
að efla sjálfstraust og belging
okkar sem heima sitjum. Með
því einmitt að semja svo léttar
spurningar að hálfmenntaðir
kverúlantar eru vísir til að svara
svona fjórðungi og allt að
helmingi spurninganna. Og
una svo glaðir og gáfaðir við
sitt, fullkomlega ánægðir með
þáttinn og eigin þekkingu.
Forsenda visk-
unnar
Illþýðið Illugi hefur sprengt
upp og eyðilagt þetta ferli og
semur spurningar í yfirþunga-
vigt sem aðeins sæmilega
greindum og upplýstum
Islendingum er unnt að
svara. Þess vegna erum
við sem heima sitjum upp
til hópa svona óánægð.
En samt ánægð í bland
því nú höfum við fengið
einfalt mál til að andskot-
ast út af í þjóðarsálum og
Iesendabréfum. Og ekki spillir
að geta andskotast í manni sem
hefur það hlutverk helst að
vera síknt og heilagt að úthúða
náunganum í ræðu og riti. Gott
á hann!
En Garri er að sjálfsögðu
ekki í þessum hópi. Garri við-
urkennir fúslega að hann gat
ekki svarað einni einustu
spurningu í spurningaþætti
framhaldsskólanna í sjónvarp-
inu. En ekki vegna þess að
spurningarnar væru svo þung-
ar, heldur vegna þess að Garri
sjálfur er bæði illa lesinn,
óminnugur og á vissan hátt vit-
grannur. Garri veit sem sé að
hann veit ekki nokkurn skapað-
an hlut. Og vitneskjan um það
er upphaf og forsenda viskunn-
ar GARRI.
Illugi
Jökulsson.
Hvenær drepur maður
Hvenær á að drepa hval og
hvenær á ekki að drepa hval? Það
er spurningin. Engum getum skal
að því leitt hvort að þeir Jón
Hreggviðsson eða Hamlet kynnu
að ráða fram úr vandamálunum
fremur en eigin tilvistarvanda
þegar þeir köstuðu fram sínum
fleygu setningum um hvenær er
drepið og hvenær er ekki drepið,
eða hvort maður er eða er eldd.
I tuttugu ár hafa þessar spurn-
ingar bögglast íyrir Alþingi Is-
lendinga í hvert sinn sem hval-
veiðar eða hvalafriðun ber á
góma, eða allt síðan samþykkt var
við Austurvöll að leggja bvalveiði-
skipum Kristjáns Loftssonar um
stundarsakir. Otal þingsályktun-
artillögur um málið hafa verið
svæfðar í nefndum þegar í Ijós
kemur að þingheimur getur í
hvorugan fótinn stigið þegar
hvalveiðar eru á dagskrá. Þrátt
fyrir eftirrekstur reynir aldrei á
hvort þingmeirihluti er fyrir að
hefja veiðar eða ekki.
Nú á enn einu sinni að knýja
fram úrslit í þrætumálinu um
hvalinn, en allt mun það renna út
í sandinn eins og fyrri daginn.
Fj áröflunarleiöir
Allt snýst þetta um hvernig á að
græða á hvalnum. Þeir sem vilja
drepa hval til að éta hann og selja
eru taldir blóðþyrstir
andstæðingar náttúru-
lögmálanna af um-
hverfisverndarsinnum.
Þeir aftur á móti leggja
fram rök fyrir því, að
hægt sé að græða miklu
meira á hvalnum með
því að selja aðgang að honum og
fellur sú fjáröflunarleið undir
ferðamannaþjónustu, sem er göf-
ug og náttúruvæn atvinnugrein.
Þeir sem vilja friða hval sýna
fram á, að hefjist hvaladráp að
nýju verði fótum kippt undan öllu
efnahagslífi þjóðarinnar, þar sem
viðskiptabann verði sett á landið
og ferðamannastraumurinn Ieita
hval...?
annað. Hvalveiðisinnar eru eins
vissir í sinni sök, að heimurinn
muni kæra sig kollóttan um hvort
hér eru drepnir einhverjir hvalir
eða ekki og að góðir markaðir
standi galopnir fyrir afurðir Hvals
hf.
Hér stendur staðhæfing gegn
staðhæfingu, en um eitt eru þó
allir sammála, sem er
að hvalurinn við ísland
sé auðlind sem ber að
nýta og græða á. Eng-
um dettur í hug að
hvalurinn hafi rétt til
að synda sinn sjó í friði
fyrir skotglöðum veiði-
mönnum eða ágengum áhorfend-
um sem gera sig heimakomna á
hvalaslóð.
Sem betur fer þarf Alþingi ekki
að taka tillit til hræsnisfullu
gróðapunganna sem standa
fangavaktina í Klettsvík.
Sjálfbær skepna
Ágreiningurinn er um með hvaða
hætti er ábatavænst að nýta hval-
inn. Svipað er uppi á teningnum
þegar kemur að orkuöflun. Hart
er deilt um hvort vatnasvæði gef-
ur betur af sér með því að nýta
það til orkuframleiðslu eða sem
augnayndi fyrir túrista. Ferða-
mannabransinn vill fá að aka
ferðamönnum um Iandslag, sýna
þeim náttúruna og selja mat og
gistingu auk fróðleiks sem leið-
sögumenn eru svo fleytifullir af.
Svo er því haldið fram að ferða-
fólkið geti allt eins glápt á uppi-
stöðulón, og að málmbræðslur
gefi miklu betur af sér en óbeisl-
uð náttúran.
Langt mun í það, að hvalur
verði veiddur, hvað sem loðnum
ályktunum Alþingis líður, þar sem
miklir viðskiptahagsmunir eru í
húfi. En hvort sem hvalur verður
drepinn eða ekki drepinn, eru all-
ir sammála um, að hvalurinn er í
sjónum til þess eins að við getum
grætt á honum. Hann er sjálfbær
hvernig sem á hann er litið.
svaurað
Hvort ereðlilegra; að í
Norðlingaholti sé íbúða-
byggð eða shógræht?
Ólafux F. Magnússon
borgarftdltníi Sjálfstæðisflohks.
„Við sjálf-
stæðismenn
í borgar-
stjórn teljum
að þetta sé
kjörið bygg-
ingasvæði,
sem liggi
afar vel við
samgöngum
með tilliti til Suðurlandsvegar og
Breiðholtsbrautar. Þetta svæði er
ekki á hinu umrædda sprungu-
svæði við Rauðavatn, en þar
hugðist borgarstjórnarmeirihluti
vinstrimanna hefja bygginga-
framkvæmdir fyrir um tuttugu
árum. I staðinn veittu borgarbú-
ar sjálfstæðismönnum brautar-
gengi þá, einsog íbúðabyggðin í
Grafarvogi vitnar um, og von-
andi einnig í Geldinganesi í nán-
ustu framtíð."
Helgi Hjörvar
oddviti Reykjavíkurlista.
„Það er eins
með fjöl-
skyldu mína
og Kjartans
Gunnarsson-
ar að við eig-
um land í
Norðlinga-
holti. Af áð-
urnefndri
ástæðu þekki ég þetta svæði
mjög vel. Afi og amma bjuggu
þarna á sumrin þegar ég var
strákur, og þetta er óskaplega
skemmtilegt svæði að búa á.
Þarna eru náin tengsl við náttúr-
una og ég held að það séu eftir-
sóknarverð gæði að byggja þarna
íbúðasvæði."
Snorri Hjaltason
varafulltníi Sjálfstæðisflokks í sltipu-
lagsnefud.
„Ég myndi
vilja sjá hvort
tveggja.
Þetta er jað-
arbyggð á
borgarsvæð-
inu þar sem
er góð að-
staða til úti-
vistar og
hvað fer betur saman, en útivist,
gróðurrækt og hlýleg heimili."
Helgi Pétuxsson
borgarfulltníi Reykjavíkurlista.
„Ég held að
töluverður
tími líði þar
til menn taki
Norðlinga-
holtið undir
íbúðabyggð,
enda eru
margar afar
athyglisverð-
ar hugmyndir um þéttingu
byggðar í borginni nú á sveimi.
Ég vona að Kjartan Gunnarsson
geti stundað skógrækt sína í
Norðlingaholti sem lengst og
hann má gjarnan hringja í mig á
fögrum vordegi, ef hann vantar
hjálp."