Dagur - 26.02.1999, Page 1
Samfylkmg fær 13
viðbótamullj ónir
Brotthvarf þingmaima
úr Kvennalista og Al-
þýöuhandalagi skeröir
ekki hliil llokkaiuia
af 136 milljóna króna
útgáfustyrk.
Guðný Guðbjörnsdóttir tekur
hlut Kvennalistans af útgáfu-
styrkjum til stjórnmálaflokkanna
með sér yfir í Samfylkinguna eða
um 6,7 milljónir króna. Hlutur
Alþýðubandalagsins rýrnaði ekki
við brotthvarf fjögurra þing-
manna flokksins. AIls „græðir"
Samfylkingin um 13 milljónir
króna á hinum breyttu reglum
vegna tilfærslu 6 þingmanna. Jó-
hanna Sigurðardóttir tekur að
auki með sér allan hlut Þjóðvaka
inn í Samfylkinguna eða um 9,8
milljónir, en þangað eru þing-
menn Þjóðvaka allir komnir
hvort eð er.
Uthlutun útgáfustyrkja fer
fram einu sinni á ári, í byrjun árs,
og voru 136 milljónir króna til
úthlutunar fyrir skömmu. Sam-
kvæmt nýjum viðmiðunarregl-
um, sem samþykktar voru að
nóttu til fyrir -------
■ . ,v iwwy
þingslit um sið- •
ustu jól, er mið-
að við kjörfylgi
hvers stjórn-
málaflokks í síð-
ustu alþingis-
kosningum og
taka reglurnar
því ekkert tillit til
þeirra miklu
breytinga sem
orðið hafa á
skipan þing"
flokka á kjör-
tímabilinu.
Breytingarnar
voru gerðar að
tillögu nefndar
sem annast úthlutun útgáfu-
styrkjanna og Kjartan Gunnars-
son, framkvæmdastjóri Sjálf-
stæðisflokksins, er formaður yfir.
Þegar þær voru samþykktar síð-
asta daginn fyrir þingslit í desem-
ber urðu miklar deilur um málið,
þar sem ljóst þótti t.d. að þing-
Guöný Guðbjörnsdóttir: 6,7 millj-
óna króna útgáfustyrkur Kvenna-
listans fylgir henni.
flokkur óháðra fengi ekki krónu.
1 honum eru þrír fyrrum þing-
menn Alþýðubandalagsins og
óháðra og nú
tvær þingkonur
Kvennalistans og
hefði flokkur
með slfkan þing-
styrk væntanlega
fengið um 11
milljónir.
Hlutfallslegur
hlutur þeirra átti
að vera um 10,8
milljónir, en að
samkomulagi
varð að þing-
flokkur óháðra
fengi helming-
inn eða 5,4 millj-
ónir. Það skerðir
ekki hlut hinna,
því „sárabótin" kemur af sérstakri
fjárlagaheirnild íjármálaráðherra.
Aðrir stjórnmálaflokkar skiptu
með sér 136 milljónum króna
samkvæmt kjörfylgi frá 1995.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk 37,1%
eða 50,5 milljónir. Framsóknar-
flokkurinn fékk 23,3% eða 31,7
milljónir. Alþýðuflokkurinn fékk
11,4% eða 15,5 milljónir. AI-
þýðubandalagið fékk 14,3% eða
19,4 milljónir. Þjóðvaki (Jó-
hanna) fékk 7,2% eða 9,8 millj-
ónir og Kvennalistinn (Guðný)
fékk 4,9% eða 6,7 milljónir
króna. Þess ber að geta að breyt-
ingar á skipan flokka hafa lítil
áhrif á svokallaðar greiðslur fyrir
sérfræðiaðstoð, þar sem 46,7
milljónir komu til skiptanna yfir
árið.
Þingmenn óháðra vildu láta
fresta breytingunum þar til eftir
nýjar kosningar til Alþingis, en
bæði nefnd Kjartans og ekki síst
þingmenn Alþýðubandalagsins
og Samfylkingarinnar almennt
þrýstu á um framkvæmd hinna
nýju reglna. Þær þýddu enda að
styrkur Alþýðubandalagsins rýrn-
aði ekkert þótt Steingrímur J.
Sigfússon, Hjörieifur Guttorms-
son og Ogmundur Jónasson yfir-
gæfu flokkinn og sömuleiðis
þýddi þetta „yfirráð" Jóhönnu
Sigurðardóttur yfir útgáfustyrk
Þjóðvaka og Guðnýjar yfir út-
gáfustyrk Kvennalistans. — FÞG
íslands-
mót í
„strippi“
Efnt verður til fyrsta Islandsmóts
sögunnar í erótískum dansi í
kvöld á Þórscafé. Fimm stúlkur
af höfuðborgarsvæðinu munu
þar sýna nekt sína, en þetta árið
gáfu engir karlmenn sig fram.
Keppendur þurfa að vera með
íslenskan ríkisborgararétt og
vinningshafinn fer á Evrópumót-
iði í erótískum dansi í Danmörku.
„Eg held ég geti lofað stórkost-
legri keppni. Stelpurnar leggja
sig allar rosalega fram,“ segir
yfirþjónninn á Þórscafé. Stúlk-
urnar eru á aldrinum 19-25 ára,
en auk þess koma fjórir erlendir
dansarar fram.
Framkvæmdastjóri Þórscafés,
segir að dæmt verði eftir stíl,
förðun, hreyfingum, tónlistar-
vali, súludansi og fleira. „Þetta
verður mjög listrænt. Þær fara
ekki úr nærbuxunum." Kynnir
verður Rósa Ingólfsdóttir. — BÞ
Frá aðalæfingu dansara sem keppa um íslandsmeistaratitilinn I erótískum dansi á Þórscafé í kvöld. - mynd hilmar
Úli H. Þórðarson segir að farsíma-
bann I bílum bíði betri tíma.
Farsíma-
bann í bið
Stjómarfrumvarp til laga um
bann við notkun handfarsíma í
akstri verður ekki lagt fram á Al-
þingi að þessu sinni. Nefnd sem
var dómsmálaráðuneyti til að-
stoðar við gerð frumvarpsins
hafði skilað því af sér og m.a.
hafði ráðherra kynnt það í ríkis-
stjórn.
Það sem koma skal
Oli H. Þórðarson, framkvæmda-
stjóri Umferðarráðs, segir að
þetta frumvarp muni væntanlega
bíða betri tíma. Hann telur
næsta víst að stjórnarliðar hafi
þurft að skoða málið betur.
Hann er þó á því að jörð og him-
inn muni ekki farast þótt einhver
bið verði á því að frumvarpið
verði afgreitt sem Iög frá Alþingi.
Hins vegar sé þetta áformaða
bann við notkun handfarsíma
það sem koma skal. I því sam-
bandi minnir hann á að ná-
grannalöndin séu að taka þetta
upp hvert á fætur öðru og því að-
eins tímaspursmál hvenær það
verður gert hér á landi.
Óviðunandi
Framkvæmdastjóri Umferðar-
ráðs segir að ástandið í þessum
málum sé með öllu óviðunandi.
Menn séu að tala í farsíma í tíma
og ótíma í umferðinni, með aðra
hönd á stýri. Það skapar óþarfa
hættu í umferðinni, bæði vegna
þess að ökumenn tapa einbeit-
ingu auk þess sem stjórn öku-
tæksins sé ekki sem skyldi. Hann
segir að samkvæmt frumvarpinu
væri ekki gert ráð fyrir neinum
refsiákvæðum vegna brota á
ákvæðum laganna fyrsta árið
sem þau væru í gildi. Hugsunin á
bak við það sé að gefa ökumönn-
um góðan aðlögunartíma til að
venjast þessari breytingu á hegð-
an sinni f umferðinni. — GRH
Afgreiddir samdægurs
Venjulegir og
demantsskomir
trúlofunarhringar
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI - SÍMI 462 3524
wemm&œ exmess
EITT NÚMER AÐ MUNA
5351100