Dagur - 26.02.1999, Side 2
2 - FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1999
rD^tr
FRÉTTIR
Þótt landsmenn verðu öllum sínum vökutíma - 16 stundum á sólarhring - fyrir framan útvarps- eða sjónvarpstækið kæmist því
enginn yfir að hlusta eða horfa á nema rúmlega 4% af öllu dagskrárefni sem stöðvarnar senda út okkur til fróðleiks og/eða
skemmtunar.
Medal-Jóniim nær
1-2% útsends efhis
Sjö sjónvarps- og 22 út-
varpsstöðvar sendu dag-
lega út rúmlega 355
stimdir af efni árið 1997
- nær tífalt meira áratug
áður.
Árið 1997 þurftu Islendingar sem
vildu hlusta á útvarp eða horfa á sjón-
varp orðið að velja á milli 29 stöðva,
eða nær 10 sinnum fleiri en 1984,
þegar valið stóð á milli aðeins 3ja stöð-
va; tveggja útvarpsstöðva og einnar
sjónvarpsstöðvar, sem sendi út rúma
fjóra tíma á dag, samkvæmt skýrslum
Hagstofunnar. Fyrstu einkastöðvarnar
komu 1986 en 1997 áttu landsmenn
orðið 7 sjónvarpsstöðvar og 22 út-
varpsstöðvar til að velja á milli. Þessar
stöðvar sendu þá samtals út 130.000
stundir, eða að jafnaði kringum 356
stundir að meðaltali hvern einasta sól-
arhring ársins.
Meðaljón nær
aöeins 1-2% útsendinga
Þótt landsmenn verðu öllum sínum
vökutíma - 16 stundum á sólarhring -
fyrir framan útvarps- eða sjónvarps-
tækið kæmist enginn yfir að hlusta eða
horfa á nema rúmlega 4% af öllu dag-
skrárefni sem stöðvarnar senda út okk-
ur til fróðleiks og/eða skemmtunar. Og
þeir sem aðeins hlusta/horfa 3-4
stundir á dag (þ.e. á annað en vídeóið)
ná einungis að njóta um 1% alls þess
útvarps/sjónvarpsefnis sem þessir
miðlar bjóða okkur.
Menningin vikið
fyrir samfélagsmálæði
Utsendingartími beggja rása Ríkisút-
varpsins hefur verið óbreyttur í áratug,
ríflega 18 stundir á dag á Rás 1 og 24
stundir á Rás 2. En þó nokkrar til-
færslur hafa orðið milli dagskrárliða.
Efni fyrir börn og unglinga hefur t.d.
styst um helming á áratugnum. Um-
fjöllun um bókmenntir og listir hefur
dregist saman um 1/3 (í tæpa 2 tíma á
dag) frá því hún náði hámarki árið
1994. Útvarpsleikrit fá líka um fjórð-
ungi minni tíma en framan af áratugn-
um og trúmálin skroppið saman um
1/6 á sama tíma. I staðinn fáum við nú
þriðjungi meira af efni um samfélags-
mál og af fræðslu- og heimildaefni (á
Rás 1). Tónlistarskammturinn á Rás 1
er aftur á móti óbreyttur síðasta ára-
tuginn, kringum 7 klukkustundir á
dag.
Helsta breytingin á Rás 2 er sú að
„afþreyingar- og skemmtiefni" hefur
komið í staðinn fyrir endurflutning á
efni Rásar 1 í næturútvarpi og hlutur
íþrótta hefur aukist umtalsvert. En
óbreytt er að 3/4 allra útsendinga Rás-
ar 2 flokkast sem „tónlist og samfé-
lagsmál“.
fflutur RÚV tæp 15%
Það var áríð 1986 sem við eignuðumst
fyrstu einkareknu útvarps- og sjón-
varpsstöðvarnar samkvæmt skrám
Hagstofunnar. Önnur einkasjónvarps-
stöðin bættist við 1992, þrem árum
síðar urðu þær fimm og árið 1997 átt-
um við orðið 6 einkasjónvarpsstöðvar,
eða alls 7 sjónvarpsstöðvar. Útsend-
ingartími Ríkissjónvarpsins hefur
rúmlega tvöfaldast á þessu tímabili, í
um 9 stundir að jafnaði á dag, sem að-
eins eru um 20% sjónvarpsútsendinga
á landinu. Af samanlögðum tíma út-
varps- og sjónvarpssendinga var hlutur
Ríkisútvarpsins kominn niður fyrir
15% árið 1997. hei
FR É T TA VIÐTALIÐ
í pottinum heyrist af því að
sjómenn og aðrir séu miMð að
vclta fyrir scr að íylgja for-
dæmi Vestfirðinga og róa einn
daglvor- í byrjun maí - tll að
mótmæla göllum í kvótakerf-
inu. Þorsteinn Pálssson hefur
sem kunugt er fagnað þessu og
sagt það liið bcsta mál cf memi
minnl á þann rétt allra íslend-
inga að mega veiða sér f soðið. Er fullyrt f pottinum
að þessi orð sjávarútvcgsráðherra hafi hleypt nokkru
kappi í memi sem virðist ætla að sldla sér f þvf að mót-
mælin breiðist út um allt land....
En það cr ckki víst að Þorsteiim Pálsson veröi eins
ánægður með málið ef almemi þátttaka verður í þess-
um vciðum. Ekki er óeðlUegt að áætla yfir Icngri tíma
að allt að 30 kUó af fiski sé eðlilegur skammtur fyrir
manninn „að vciða sér í soðið“ - miðað við að incnn
frysti megnið af þcssu tU bctri tfma. Ef þátttakan yrði
almemi í þcssu og veiðamar yrðu sem nemur 30 kíló-
um á mann er magnið fljótt að hlaðast upp. Ef
100.000 landsmeim tækju þátt væri verið að tala um
3 þúsmid toim og ef þorri þjóðaimiar tæki þátt gætu
þetta orðið um 6 þúsund tomi!!!!..
Það vakti talsverða athygli í
pottinum að Guömundur
Bjamason umhverfisráðherra
cr veöurtepptur í Austurríki,
þar sem hann hugðist fara á
sklði. Pottverjar voru sam-
mála um að það hafi koinið
sér ágætlega fyrir Guðmund
að vera þama úti á meðan
Kyoto fannfergið gengi yfir
hér heima. Það cr haft fyrir
satt að Guðinundur sé veralega upp á kant við félaga
sína í rfldsstjómiiini í þessu máli eins og fyrri yfirlýs-
ingar lians hafi gcflð til kynna og þvf cins gott fyrir
haim að vera í burtu, þar scm fyrir lægi að hami var 1
eins manns mimiihluta....
Þorsteinn Pálsson.
GunnarS.
Bjömsson
stjómatformaðuríbúðalánasjóðs
Fasteigtiasölum ogfrétta-
mönnum hefur orðið tíðrætt um
vandræði tbúðalánasjóðs við af-
greiðslugreiðslumats og lána
þaðsemaferári.
Aldrei borist annar
eins fjöldi umsókna
- Ætlar þetta engan enda að taka?
„Það hefur tekið enda, því við höfum nú
komist í gegnum þetta allt saman, síðast
120 umsóknir núna um helgina. Frá ára-
mótum hafa verið skráðar hérna 580 um-
sóknir. Af þeim hafa 350 verið endanlega
afgreiddar. Oafgreiddar eru 70 umsóknir
vegna nýbygginga, sem taka aðeins lengri
tíma, og síðan 160 umsóknir vegna vönt-
unar á ýmsum fylgiskjölum. Og bankarnir
hafa núna tekið við greiðslumatinu. Hjá
þeim er hins vegar talsverður bunki, sem ég
held að þeir vinni sig út úr núna í vikunni.
Og allt sem síðan kemur tilbúið frá þeim
með greiðslumati, það afgreiðum við á 1-2
dögum.“
- Átti ekki líku allt að vera komið í lag
fyrir tveim vikum?
„Greiðslumatskerfið okkar strandaði þá
einu sinni enn og komst eiginlega ekki í
gagnið fyrr en um miðja síðustu viku. Bilan-
irnar voru vegna þess að tölvukerfið okkar
var svo fullt fyrir að þegar farið var að bæta
við það vinnslu frá öllum bönkunum og láta
þá vinna inni í því með greiðslumatsforritið
þá læstist það bara og lokaði sér. Nú er búið
að kaupa nýja vél fyrir greiðslumatsforrit-
ið.“
- Hafa umsóknir verið fleiri en áætlað
var?
„Miklu fleiri. Á fundi með bönkunum
núna í vikunni fengum við fyrst vitneskju
um hvað raunverulega er mikið af umsókn-
um í gangi í bönkunum, sem enn hefur ekki
komið til okkar. Líklega hefur því aldrei frá
upphafi húsbréfakerfisins komið annar eins
fjöídi umsókna á jafn skömmum tíma og
núna í janúar og febrúar, jafnvel hátt í 900
á hálfum öðrum mánuði. Fasteignasalarnir
virðast því hafa verið duglegir að dæla
þessu út í kerfið."
- Þeir kvarta líka hástöfum um seina-
gang?
„Þeir ættu ekki að þurfa þess öllu lengur.
Raunar virðist mér að þeir hafi nú verið
nokkuð fljótir að gleyma. Fyrir ekkert löngu
síðan var allt upp í 6 vikna bið í þessu kerfi.
En það er bara svo, þegar tekið er upp nýtt
kerfi og reynt að gera það betur úr garði fyr-
ir viðskiptavinina, þá tekur eðlilega alltaf
nokkurn tfma að þjálfa fólk og koma slíku í
fullan gang.“
- Illar tungur segja að ykkur gangi h'tið
netna lielst um helgar?
„Málið er að þessar helgar sem við höfum
tekið til að grynnka á umsóknunum hafa
allir getað einbeitt sér að þessu. Og þegar
ekkert annað tefur, enginn sími eða fyrir-
spurnir, þannig að fólk hefur frið til að
vinna og getur einbeitt sér að einu verki þá
afkastar það allt að þrefalt til fjórfalt meira
en það kemst yfir á virkum dögum þegar
það þarf að vinna allt annað samtímis."
- Eru viðbótarlánin líka kotnin tfullan
gang?
„Nei þau eru ekki komið nógu vel af stað.
Að vísu mismunandi eftir húsnæðisnefnd-
unum. Þetta gengur mjög vel í Kópavogi.
En hérna í Reykjavfk virðist ennþá einhver
tregða. Mér sýnist húsnæðisnefndin hér
ennþá dálítið föst í gamla kerfinu. Annars
er þetta held ég í Iagi.“
- Líst ykkur vel á nýju láninfrá Lands-
bankanum?
„Okkur lýst út af fyrir sig ágætlega á þau.
Á hinn bóginn á ég eftir að sjá að þetta
gangi allt saman upp. Að það verði t.d. hægt
að spila á vaxtabótakerfið eins og þeir eru
þarna að gera, því það var tæpast hugsað á
þann hátt sem Landsbankinn er að útfæra
það. Kannski fínnst manni verst í því efni,
ef verið er að Ieiða fólk inn í eitthvert kerfi
sem síðan stenst ekki. Þá er verið að koma
aftan að fólki - og það gengur ekki.“ HEÍ