Dagur - 26.02.1999, Síða 5

Dagur - 26.02.1999, Síða 5
■igggjg FÖSTVDAGUR 26. FEBRÚAR 1999 - 5 FRÉTTIR HLutabréfamarkað- ur miunkaði í fvrra Velta á hlutabréía markaði drógst sam- an 1998, í fyrsta sinn frá því viðskipti hófust á Verðhréfa- þingi. „Eftir samfellt skeið mikillar veltuaukningar á árunum 1993- 97, drógst árleg velta hlutabréfa á Verðbréfaþingi íslands (VÞÍ) saman um rúmlega 4% á síðasta ári,“ segir í Hagtölum Seðla- bankans. Skýringarnar á sam- drættinum segir Seðlabankinn margar, m.a.: „Viðskiptahættir þingaðila voru ófullnægjandi að því leyti að virka viðskiptavakt skorti. Þetta breyttist upp úr miðju ári enda tók þá velta við sér. Skortur var á hlutabréfum frá nýjum aðilum lengst af árinu auk þess sem markaðsaðilar héldu að sér höndum og biðu einkavæðingar ríkisbankanna.“ Deyfð framanaf Seðlabankinn segir þróun veltu og verðs hlutabréfa um margt sérstaka á árinu og greina megi í henni tvenn kaflaskil. Deyfð ein- kenndi fyrstu fjóra mánuðina. Veltan minnkaði um helming m.v. sömu mánuði árið áður og verð lækkaði nokkuð. Með vorinu birti til og sumarið einkenndist af líflegri veltu og 17% hækkun úrvalsvísitöl- unnar á Qórum mán- uðum. Haustið ein- kenndist síðan af vax- andi veltu og árið end- aði með meiri desem- berveltu en nokkru sinni áður í einum mánuði, tæplega 2,5 milljörðum. Það dugði þó ekki til að vega upp deyfðina framan af ár- inu. Yfir árið í heild hækkaði úrvalsvísital- an um tæplega 10%. Ekki hættulega stór Þe/'r sem versla með hlutabréf komust að því í fyrra að skortur var á nýjum bréfum. ennþá -------------------------------------------------- Seðlabankinn segir miklar sveiflur í gengi hlutabréfa geta haft nokkur áhrif á þjóðar- búskapinn. „Hlutabréfaverð get- ur verið gagnlegur mælikvarði á stöðu og efnahagslega þróun, þar sem jafnan er horft til fram- tíðar við verðlagningu hluta- bréfa. I sumum tilfellum geta sveiflur í hlutabréfagengi ýtt undir hagsveiflur og er nýleg efnahagsþróun í Japan dæmi um það. Þessi hætta er þeim mun meiri sem heildarskuldir í hag- kerfinu eru hærri. Hérlendis hefur hlutabréfamarkaður til þessa ekki verið nægilega stór til þess að hafa umtalsverð áhrif á þjóðarbúskapinn, en hann hefur verið ört vaxandi undanfarin ár.“ Seðlabankinn segir þá breytingu hafa orðið á síðari árum að hlut- ur hlutabréfa í eignasafni ein- staklinga og stofnanafjárfesta hafi stóraukist jafnframt því sem einstaklingum sem fjárfest hafa í hlutabréfum hafi stórfjölgað. - HEI Bremsad á bjór- auglýsingamar Hæstiréttur er ósammála undirrétti varðandi heimildir manna til að aug- lýsa bjór. Frá afhendingu verðlaunanna. Meimingar- verðlaun DV í 21. sinn Menningarverðlaun DV voru af- hent í 21. sinn í gær og hlutu eftirtaldir verðlaun: Sigfús Bjartmarsson í bókmenntum, Sigurður Gústafsson í listhönn- un, Gísli Sæmundsson og Ragn- ar Olafsson í byggingarlist, Sin- fóníuhljómsveit Islands í tónlist, Sigurður Guðmundsson í mynd- list, Agúst Guðmundsson í kvik- myndagerð og Elva Osk Olafs- dóttir í Ieiklist. Verðlaunagripur- inn var „Svif“ eftir Gunnar Arnason myndhöggvara. Bankamir alryja Samband íslenskra viðskipta- banka telur að bankaleynd hafi í raun verið aflétt með dómi Hér- aðsdóms Reykjavíkur nýlega þar sem Landsbankanum var gert að veita Ríkisskattstjóra upplýsing- ar um innistæður, vexti og af- dregna staðgreiðslu fjár- magnstekjuskatts 1.347 við- skiptamanna bankans. Stjórn sambandsins ákvað í gær fyrir hönd banka og sparisjóða að áfrýja til Hæstaréttar dómi Hér- aðsdóms. Hæstiréttur hefur snúið við niðurstöðu undirréttar frá síð- asta ári, þar sem Jón Snorri Snorrason hjá Ölgerð Egils SkaUa- grímssonar var sýkn- aður fyrir hrot á lög- um gegn áfengisaug- lýsingum. Hæstiréttur dæmdi Jón Snorra sekan og er honum gert að greiða 1,5 milljóna króna sekt í ríkis- sjóð. Þar með hafa lögregluyfir- völd fengið „línuna", ótvirætt fordæmi um að bannað sé að auglýsa áfengi. Jón var ákærður fyrir að hafa birt bjórauglýsingar á flettiskilti, í dagblaði og í útvarpi. Hæstirétt- ur taldi að Jón bæri ábyrgð á birt- ingu auglýsinganna og að þær brytu í bága við ákvæði áfengis- laga um bann við áfengisauglýs- ingum. Hvorki var fallist á að bannið fæli í sér brot gegn stjórnarskránni né 10. gr. mann- réttindasáttmála Evrópu, enda væri „ljóst að tilgangur bannsins væri að vinna gegn misnotkun áfengis og þeim vandamálum sem af henni hljótast11. I auglýsingum ölgerðarinnar frá sumri 1997 til febrúar 1998 var auglýst að nú væri Egill sterk- ur. Hæstiréttur taldi vafalaust að auglýsingar njóti verndar ákvæða stjórnarskrár og mannréttinda- sáttmála. „Enda er hér um að ræða tjáningarform, sem hefur mikla þýðingu í nútímaþjóðfélagi við upplýsingamiðlun til almenn- ings. Þær skipta og máli fyrir fjárhag Qölmiðla og hafa þar með áhrif á það hvernig þeir sinna hlutverki sínu.“ Hins vegar segir Hæstiréttur að alkunna sé „að ofneyslu áfengis fýlgja vandamál af ýmsum toga, sem meðal ann- ars varða allsherjarreglu, siðgæði og heilsu. Hafa þau í för með sér mikla byrði fyrir þjóðfélagið í heild“. Taldi Hæstiréttur nægj- anlega ljóst að tilgangur lög- gjafans með banni á áfengisaug- lýsingum væri sá að vinna gegn misnotkun áfengis og þeim vandamálum, sem af henni hljót- ast. Fræðilegar athuganir bendi til þess að áfengisauglýsingar hafi áhrif til aukinnar drykkju, ekki síst meðal )Tigri aldurshópa. Jón Snorri var vegna auglýsing- anna á flettiskilti og í dagblöðum í nokkur skipti því dæmdur til að greiða 1,5 milljóna króna sekt í ríkissjóð og til að greiða máls- kostnað, yfir hálfa milljón króna. - FÞG Dánarbú fær tryggingarfé aflient Hæstiréttur hefur fellt þann dóm að fasteignakaupandi eigi að greiða 15,8 milljóna króna tryggingarfé inn í dánarbú vegna vanefnda á kaupsamningi. Hannes Gíslason seldi Krist- jáni Sverrissyni helming fast- eignar í nóvember 1996 og skyldi kaupverðið m.a. greiðast með tveimur íbúðum sem voru í smíðuin. Fasteignin var afhent \ib gerð samningsins, en íbúð- irnar skyldi afhenda í júlí 1997. 1 kaupsamningnum um fasteign- ina var ákvæði um skyldu Krist- jáns til að leggja fram tryggingar- fé, sem vera skyldi í vörslu lög- mannsins Sigurbjarnar, til trygg- ingar því að Kristján efndi skyld- ur sínar um greiðslu með íbúð- unum. Ibúðirnar voru ekki af- hentar og krafðist dánarbú Hannesar heitins þess að fá tryggingarféð afhent. Staðfest var niðurstaða héraðsdóms um að vegna vanefnda mannsins ætti dánarbúið rétt á að fá trygg- ingarféð greitt. Dánarbúið fær að auki 800 þúsund króna máls- kostnað. - FÞG Hæstaréttarhúsið. Bætur vegna ólög- mætrar uppsagnar Hæstiréttur hefur stað- fest með dómi að Svæðis- skrifstofa málefna fatlaðra á _______ Suðurlandi eigi að greiða Elsu Jónsdóttur 1,6 millj- ónir króna vegna ólögmætrar uppsagnar úr starfi forstöðu- manns vinnustofu fatlaðra á Sel- fossi. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að áminning sem Elsa fékk með vísan til samskiptaörð- ugleika hefði ekki verið sett fram með lögmætum hætti. Verulegur vafi var talinn leika á því, hvort henni hefði verið kynnt, að til stæði að áminna hana og hverjar ástæður gætu legið til áminning- ar. Þá var ekki fallist á að Elsa hefði f starfi brotið gegn hlýðni- skyldu sinni, með því að hún neitaði að framfylgja umdeildum starfsreglum. Með bréfi 18. apríl 1997 var Elsu sagt upp störfum með þriggja mánaða fyrirvara, en áminninguna fékk hún í febrúar. Þar var sagt að hún væri veitt vegna ámælisverðrar háttsemi gagnáfrýjanda í starfi forstöðu- manns, hún sögð vera gefin vegna skorts á vilja til samstarfs, sem kæmi meðal annars fram í því, að hún neitaði að hlýða lög- mætum fyrirmælum yfirboðara og sinna nauðsynlegu samstarfi við samstarfsaðila. Elsa var 55 ára er hún missti starf sitt, og hafði hún um nær- fellt 17 ára skeið unnið við um- önnun fatlaðra, þar af síðustu tíu árin sem forstöðumaður vinnu- stofunnar á Selfossi. Elsa krafðist 3,4 milljóna króna bóta, en fær 1,6 milljónir, auk 600 þúsund króna málskostnaðar. - FÞG

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.