Dagur - 26.02.1999, Page 10

Dagur - 26.02.1999, Page 10
10-FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1999 AlMjur SMÁAUGLÝSINGAR Konur athugið Konur athugið, við þurfum að huga vel að sál og líkama. Vítamínin frá Karemor hafa reynst mér og fjölskyldu minni svo og öðrum mjög vel. Ef þú hefur áhuga endilega hafðu sam- band við mig í símum 462-2816 og 899- 3540, Sóley. Húsnæði óskast_______________ Eldri kona óskar eftir einstaklingsíbúð á Akureyri eða herbergi með aðgangi að eldhúsi og baði frá 1. mars. Reglusemi og skilvisum greiðslum heitið. Upplýsingar í síma 461 4025 eða 854 8063. Kirkjustarf Hallgrímskirkja Orgelandakt kl. 12.15-12.30. Orgelleikur, ritningarlestur og bæn. Langholtskirkja Opið hús kl. 11-13. Kyrrðar- og bænastund kl. 12.10. Eftir stundina er boðið upp á súpu og brauð. Laugarneskirkja Mömmumorgunn kl. 10-12. Fella- og Hólakirkja Opið hús fyrir unglinga á laugardögum kl. 21. Skattframtal Takið eftir Bókhalds- og framtalsaðstoð fyrir einstak- linga og fyrirtæki. Athugið að mögulegt er að senda nauðsyn- leg gögn i pósti. Saga viðskiptaþjónustan ehf. Kaldbaksgata 2, 600 Akureyri Símar 462-6721,899-1006 Heimasíða: est.is/-saga Veiðileyfi Sala veiðileyfa á silungasvæði Svartár er hafin. Hús fylgir. Uppl. í síma 452-7163. Einnig örfáir dagar í júní í Blöndu. Uppl. i síma 452-7119. Bílar Til sölu Subaru 1800, 4x4, árg. 91. Uppl. í síma 421-5915. Oskast keypt Óska eftir að kaupa notað píanó á Akureyri eða nærsveitum. Staðgreiðsla. Upplýsingar gefur Birgir í síma 460-6113, 461-3777, 898 -3300 Sjónarhæð Akureyri Unglingafundir á föstudagskvöldum kl. 8.30. Á mánudögum kl. 18 verða fundir fyrir drengi og stúlkur. Hjálpræðisherinn Akureyri Fatamarkaður alla föstudaga milli kl. 10 og 17 í húsi Hjálpræðishersins að Hvannavöll- um 10. Minningarkort Krabbameinsfélags Akur- eyrar og nágrennis eru seld á eftirtöldum stöðum: Blómabúðinni Akur, Blómabúð Ak- ureyrar, Blómaval, Bókabúð Jónasar, Bók- val, Möppudýrinu og íslandspósti. Minningarspjöld Sambands íslenskra kristniboðsfélaga fást hjá Pedromyndum, Skipagötu 16. Minningarspjöld Zontaklúbbs Akureyrar fást í Bókabúð Jónasar, Hafnarstræti og Blómabúðinni Akri, Kaupangi. Hornbrekka Ólafsfirði. Minningarkort Minningarsjóðs til styrktar elliheimilinu að Hornbrekku fæst i Bókvali og Valbergi, Ólafsfirði. Minningarspjöld Hríseyjarkirkju fást í Bókabúð Jónasar og Blómabúðinni Akri. ÍHotlahúsið Glæsir Skógarhlíð 43, 601 Akureyri fyrir ofan Byggingavörudeild KEA Tökum alhliða þvotf allt írá útsaumuðum dúkum og gardínum til vinnu- og skíðagalla 461-1735 og 461-1386 Opið frá 12 -18 virka daga Sækjum - sendum ÖKUKEHNSLH Kenni á Subaru Legacy. Tímar eftir samkomulagi. Útvega námsgögn. Hjálpa til við endurnýjunarpróf. ingvar Björnsson ökukennarí frá KHÍ Akurgerði 11 b, Akureyri Sími 899 9800 Heimasími 462 5692 Hin fullkomna næringarvara Viö erum nr. 1 og erum aö taJka heiminn meö trompi! Láttu þér líða vel á líkama og sál! Auðveld leið tál að grennast. Höfum einnig frábærar snyrtivörur og glænýja förðunarlínu. Allt 100% náttúruleg vara. Persónuleg ráðgjöf og þjónusta. Visa/Euro. Sendum í póstkröfu. S:8691643 og 8691514. E-mail stp@here.is FRETTIR Frá kynningu á niðurstöðum rannsókna á samræmdum grunnskólaprófum þar sem leitað var ástæðna fyrir mis- mun á meðaleinkunnum á milli skóla. Réttu foreldramir ímdirstaða árangurs Miumr á meðaleiuk- iiiiu in í samræmdiim prófum milli skóla skýrist að 2/3 af hlut- falli háskólamenut- aðra í skólahverfinu. „Eg hef aldrei séð svona sterka fylgni í félagsfræðilegum gögn- um,“ sagði Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, forstöðumaður þró- unarsviðs Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur, sem kynnti niður- stöður rannsókna á samræmdum grunnskólaprófum, þar sem leit- að var að hvaða þættir skýrðu mismunandi meðaleinkunnir milli skóla. í ljós kom að hlutfall háskólamenntaðra íbúa í skóla- hverfinu skýrði um 2/3 af munin- um á meðaleinkunnum í sam- ræmdu prófunum. Meðal- einkunn var 5,90 í hverfum þar sem yfir 30% íbúanna eru há- skólamenntaðir en 4,69 í hverf- um þar sem háskólamenntaðir eru undir 15% íbúanna. Mikil fylgni fannst einnig með skrópi nemenda og lægri meðalein- kunn. En hvort boðið var upp á mikla eða litla námsaðstoð og námshraða, hvort kennarar eru karlar eða konur, ungir eða gaml- ir og svo framvegis skipti litlu. Gríðarleg stéttaskiptmg Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri sagðist með þessari rannsókn hafa fengið staðfest- ingu á tvennu sem hana raunar grunaði. I fyrsta Iagi að börn komi „misnestuð“ í skóla, hvað varðar félagslega aðstöðu, sem reyna þurfi að vinna gegn. Og í annan stað „hvað hverfi borgar- innar eru orðin stéttaskipt". Veki það spurningu um það hvernig staðið hafi verið að skipulagsmál- um. Rannsóknin, sem er BA-verk- efni Elsu Reimarsdóttur og Hild- ar Svavarsdóttur, leiddi í ljós gríðarlegan mun á menntunar- stigi einstakra skólahverfa, sér- staklega í hlutfalli háskóla- menntaðra, sem voru allt frá 41% allra uppkominna íbúa í hverfi Hlíðaskóla niður í aðeins 4% í Fellaskólahverfi. Háskólaborgarar halda sig saman I Voga-, Háteigs-, Hvassaleitis-, Haga- og Hlíðaskólahverfi eru meira en 30% íbúanna háskóla- menntaðir og meðaleinkunn nemenda á samræmdum prófum 10. bekkjar var 5,90 á sl. vori. í Austurbæjar-, Alftamýrar-, Laugalækjar-, Réttarholts-, Húsa- og Árbæjarskólahverfi eru 26-30% íbúanna með háskóla- próf og meðaleinkunnin var 5,44. I Hólabrekku-, Selja-, Folda-, Öldusels- og Langholts- skólahverfi hafa 16-25% íbúanna lokið háskólaprófi og meðaleink- unn var 5,30. I Fella-, Breið- holts-, Hamra- og Rimahverfi eru minna en 15% íbúanna há- skólamenntaðir og meðaleink- unn í samræmdu prófunum var þar 4,69 á sl. vori. Vonar að nýtt lánakerfi lagi nokkuð Síðast töldu hverfin einkennast af Fjölda félagslegra eignaríbúða. Borgarstjóri telur þá stéttaskipt- ingu sem framangreindar tölur lýsa mjög óæskilega. Betra sé að íbúarnir blandist betur, Iíkt og raunar eigi sér stað í miðju- hverfum borgarinnar. Sagðist Ingibjörg m.a. binda vonir við að breytt kerfi félagslegrar aðstoðar til íbúðakaupa geri að verkum að sá hópur sem hennar nýtur dreif- ist betur um borgarhverfin í stað þess að vera safnað saman í sér- stök hverfi. -HEI Ingólfur fékk 100.000 króna afslátt Hæstiréttur hefur staðfest sak- fellingu undirréttar gegn Ingólfi Margeirssyni rithöfundi vegna þáttar hans í Esra-málinu svo- kallaða. Hæstiréttur lækkar þó sektargreiðslu Ingólfs úr 450 í 350 þúsund krónur og verður sekt Ingólfs þá hin sama og hjá Esra Péturssyni lækni, sem ekki áfrýjaði sínum dómi. Hæstarétti þótti að sakfelling- in væri samrýmanleg ákvæðum stjórnarskrár og alþjóðlegra mannréttindasáttmála um tján- ingarfrelsi. „I málinu eru ekki í húfi neinir slíkir hagsmunir, sem réttlætt geti að gengið sé svo harkalega á friðhelgi einkalífs eins og hér var gert með því að birta ummæli þau, sem ákært er fyrir,“ segir í niðurstöðu Hæsta- réttar. I undirrétti voru Esra og Ingólfur Margeirsson: Sök hans í Esra-máiinu var staöfest en sekt \ hans iækkuð. % Ingólfur dæmdir til fésekta, en þeir voru fundnir sekir um að hafa brotið gegn friðhelgi einka- lífs og Esra fyrir brot gegn þagn- arskyldu lækna. Brotið fólst aðal- lega í bókarköflum um Áslaugu Jónsdóttur, fyrrum konu Esra. Vegna þessara brota við útgáfu bókarinnar „Sálumessu syndara" fékk Ingólfur 450 þúsund króna sekt, sem nú hefur verið lækkuð, en Esra 350 þúsund króna sekt. Undirréttur mat það til þyng- ingar hjá Ingólfi „að hann gerði sér grein fyrir því að brot hans gæti raskað tilfinningum barna Áslaugar Jónsdóttur". Dómar- arnir þar töldu að brot ákærðu gegn persónufriði og einkalífi Ás- laugar heitinnar Jónsdóttur væri „stórfellt og siðferðislega mjög ámælisvert. Þá er á það að líta að brotið er framið í tengslum við útgáfu bókar sem ætla verður að varðveitist lengi". Hæstiréttur taldi ekki ástæðu til að mismuna sakborningunum og jafnaði út sektinni. -FÞG ■ i ■■ s .

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.