Dagur - 27.02.1999, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1999 - 21
Erum að ávaxta
okkarpund
að um geti verið að ræða sýn-
ingu á góðum stað í Washington
snemma á árinu 2001“, segir
Einar, „en ég er algjörlega sam-
mála Olafi Kvaran forstöðu-
manni Listasafns Islands að
mikilvægara sé að vera með mál-
verkasýningarnar á réttum stað
þó það sé ekki endilega á óska-
tíma heldur en að vera á röng-
um stað á réttum tíma.“
Fjölmörg önnur verkefni eru í
skoðun og má þar nefna gerð
margmiðlunarefnis sem hafi að
geyma sögufróðleik og yrði sam-
vinnuverkefni OZ við erlenda
aðila . Þá er rætt um ættfræði-
legan gagnagrunn Islendinga og
Vestur-íslendinga, samvinnu við
„Við íslendingar erum með þess-
um áætlunum að ávaxta okkar
pund sem sjálfstæð þjóð,“ segir
Einar. „í heimi nútímans þurf-
um við að vera sýnileg sem þjóð
og verðum að geta beint athygli
umheimsins að okkur til að vera
gjaldgeng í samfélagi þjóðanna.
Með dagskránni er markmið að
sýna Bandaríkjamönnum hvað
íslenskt þjóðfélag hefur raun-
verulega upp á að bjóða. Auk
þess að fagna 1000 ára afmæli
landafunda Leifs Eiríkssonar í
Vesturheimi er markmiðið að
styrkja tengsl Islands og Norður-
Ameríku, styrkja ímynd íslands
til framtíðar og efla útflutning
okkar á vöru og þjónustu."
Nú er unnið af krafti að tíma-
og staðsetningu þeirra viðburða
sem í boði verða og dagskráin
er óhemju fjölbreytt. Ríkis-
stjórnin ákvað að gerð kvik-
mynda- og sjónvarpsefnis sem
tengdist Iandafundunum hefði
forgang. Reynt hefur verið að
hraða vinnslu eftir megni
Landafundasýning verður í
Safnahúsinu við Hverfisgötu og í
Library of Congress í Was-
hington verður haldið málþing í
maí eða júnímánuði á næsta ári
og þar munu íslenskir og banda-
rískir fræðimenn skiptast á skoð-
unum. í september sama ár verð-
ur hér á landi ráðstefna um ör-
yggis og vamarmál í Atlantshafi.
Víkingasýning verður haldin í
Smithsonian og er samvinnu-
verkefni Norðurlandanna fimm,
Bandaríkjanna og Kanada. Til
stendur að gefa út sérstaka sam-
eiginlega minnispeninga í
Bandaríkjunum og á fslandi og
Einar segir að á fundum í Hvíta
húsinu hafi komið fram að
menn reki ekki minni til að hafa
áður tekið þátt í slíku samstarfs-
verkefni. Þá verða einnig gefin
út fyrstadagsumslög.
Verið er að huga að sýningum
á íslenskri myndlist í Bandaríkj-
unum en meinið er að áhuga-
verðustu söfnin eru bókuð Iangt
fram í tímann. „Eg reikna frekar
með í sambandi \dð myndlistina,
bandarísku geimferðastofn-
unina NASA um að minnast
landafunda Leifs í sambandi við
geimskot á næsta ári. Þá höfum
við einnig reynt að fá körfu-
boltaleik á vegum NBA á ís-
Iandi.
Einar leggur áherslu á að
þetta stórmenningarlega og
viðamikla átak einskorðist ekki
við árið 2000 heldur sé gert til
þess að skapa fastari ímynd á
landi og þjóð fyrir átak komandi
ára. „Það er einnig þýðingarmik-
ið að Reykjavík skuli vera ein af
menningarborgum Evrópu árið
2000,“ segir Einar. „Það gefur
okkur líka tilefni til að efna til
margskonar viðburða hér í
Reykjavík sem vekja athygli. Við
verðum með svo fjölmargt hér
heima og erlendis sem gefur
öðrum þjóðum tilefni til að vilja
hafa samskipti við okkur og til
þess er Ieikurinn gerður. I því
sambandi er þess að geta síðast
en alls ekki síst að á árinu 2000
fögnum við 1000 ára afmæli
kristni á íslandi með afar veg-
legri dagskrá.“
þannig að efnið komi að notum
árið 2000.
Einn eftirtektaverðasti við-
burðurinn er sigling víkingaskips
frá íslandi til Grænlands, Ný-
fundnalands, Kanada og Banda-
ríkjanna. Ætlunin er að það
ljúki siglingu sinni í New York á
Leifs Eiríkssonar daginn, 9
október árið 2000. Sama kvöld
verða haldnir í Carnegie Hall
tónleikar Sinfóníuhljómsveitar
íslands. I helstu borgum Banda-
ríkjanna verða íslenskar kvik-
myndavikur og Kvikmyndasjóður
mun aðstoða við þá skipulagn-
ingu. Kvikmyndahátíðin hefst
fyrir næstu áramót en aðrir við-
burðir verða settir á dagskrá sem
hefst eftir áramótin 2000.
Landafunda Islendinga í
Vesturheimi verður
minnst með vegiegum
hætti á íslandi og í
Bandaríkjunum á næsta
ári.
Einar Benediktsson er fram-
kvæmdastjóri Landafundanefnd-
ar sem vinnur að undirbúningi
hátíðarhalda árið 2000, í tilefni
landafunda Leifs Eiríkssonar.
Einnig er um að ræða þátttöku í
samvinnunefnd íslands og
Bandaríkjanna, það er starfslið
Hvíta hússins og íslenskra full-
trúa en Einar er íslenski formað-
urinn í þeirri nefnd.
Stóra svið kl.14:00
Pétur Pan
eftir Sir J.M. Barrie
sun. 28/2 - uppselt
iau. 6/3 - uppselt
sun. 7/3 - uppselt
lau. 13/3 - uppselt
sun. 14/3 - uppselt
lau. 20/3 - nokkur sæti laus
21/3 - nokkur sæti laus
Stóra svið kl. 20.00
Horft frá
brúnni
eftir Arthur Miller
6. sýn. fös, 5/3, græn kort
7. sýn. lau, 13/3, hvít kort
fim. 18/3
Stóra svið kl. 20.00
Sex í sveit
eftir Marc Camoletti
sun. 28/2 - nokkur sæti laus
lau. 6/3 - uppselt
fös. 12/3 - uppselt
fös. 12/3 - uppselt
fös. 19/3
Stóra svið kl. 20.00
íslenski
dansflokkurinn
Diving eftir Rui Horta
Flat Space Moving eftir Rui Horta
Kæra Lóló eftir Hlíf
Svavarsdóttur
4. sýning lau. 27/2, blá kort
5. sýning sun. 7/3, gul kort
Miðasalan er opin daglega
frá kl. 12 -18 og fram að
sýningu sýningadaga.
Símapantanir virka daga frá kl. 10.
Greiðslukortaþjónusta.
Sími 568 8000 fax 568 0383
)j
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sýnt á Stóra sviði kl. 20.00
Brúðuheimili
- Henrik Ibsen
í kvðld Id. - nokkur sæti laus
- sud. 7/3
Tveir tvöfaldir
Ray Cooney
föd. 5/3 - nokkur sæti laus
Id. 6/3 - nokkur sæti laus
Bróðir minn
Ijónshjarta
- Astrid Lindgren
á morgun sud. kl. 14:00
- nokkur sæti laus
sud. 7/3
Sýnt á Litla sviði kl. 20.00
Abel Snorko
býr einn
Erik-Emmanuel Schmitt
í kvöld Id. - uppselt
fid. 5/3 - Id. 6/3
A.t.h. ekki er hægt að hleypa
gestum inn í salinn ettir að sýning
hefst.
Sýnt á Smíðaverkstæði kl. 20.30
Maður í mislitum
sokkum
- Arnmundur Backman
í kvöld Id. - uppselt
á morgun sud. - uppselt
fid. 4/3 - uppselt
föd. 5/3 - uppselt
Id. 6/3, 60. sýning - uppselt
sud. 7/3 kl. 15:00. - uppselt
fid. 11/3 - uppselt
föd. 12/3 - uppselt
Id. 13/3 - uppselt
sud. 14/3 - uppselt
A.t.h. ekki er hægt að hleypa
gestum inn í salinn eftir að sýning
hefst.
Listaklúbbur
Leikhúskjallarans
Mád. 1/3,
Saga harmonikunnar í eina öld.
Tónlist, dans og saga. Húsið opnar
kl.19:30 - dagskrá hefst kl. 20:30 -
miðasala við inngang.
Miðasalan er opin mánud. -
þriðjud. 13-18, miðvikud. -
sunnud. 13-20. Símapant-
anir frá kl.10 virka daga.
Sími 551-1200.