Dagur - 27.02.1999, Síða 7

Dagur - 27.02.1999, Síða 7
 LAUGARDAGUR 27. FEBRUAR 1999 - 23 LIFIÐ I LANDINU hvatvísin stjórnaði hegðun hans. „Hann var alveg trylltur - hann höndlaði bara ekki að vera Eins og undin tuska Þriðja árið var langerfiðast, segir Klara, enda var Viktor þá enn of mikill óviti til að ráða nokkuð \ið hvatvísina og þau ekki búin að fá neina hjálp. Auk þess bætti ekki úr skák að Viktor var með barnaasma og þurfti því að taka asmapúst. Asmalyfið inniheldur örvandi efni sem jók enn á æs- inginn í drengnum. „Maður var eins og undin tuska eftir dag- inn,“ segir Klara en þar sem hún var farin að átta sig á að dreng- urinn hlyti að vera ofvirkur fór hún með hann til barnalæknis, Stefáns Hreiðarssonar, þegar Viktor var aðeins rétt rúmlega 2ja ára. Stefán taldi miklar líkur á að strákurinn væri ofvirkur en það var hins vegar lítið hægt að gera því svo margir bíða hjálpar og yfirleitt eru börn ekki greind fyrr en þau farin að nálgast skólaaldurinn. Stefán gat því lítið hjálpað henni og bað hana að koma að ári Iiðnu. Klara kom þó ekki aft- ur fyrr en einu og hálfu ári síðar. Segist hafa farið að afneita því að eitthvað alvarlegt væri að drengnum, viidi sjá til hver framvindan yrði og fór að ein- angra sig inni á heimilinu með soninn. „Það var mjög erfitt að fara með hann í heimsóknir. Eg fór aðallega með hann til for- eldra minna ef ég fór eitthvert í heimsókn. Ég fór sjaldan til vin- kvenna minna, ef ég fór þá var ég stutt því fólk bara meikaði hann ekki.“ I seinni heimsóknin til Stef- áns barnalæknis, í september 1997, fékk hún tilvísun á þung- lyndislyf fyrir Viktor. Þau Iyf hjálpuðu honum ekki. Auk þess sendi Stefán þá umsókn niður á Barna- og unglingageðdeildina (BUGL) á Dalbraut. F)TÍr ein- skæra „frekju“ eins og Klara orð- ar það þá komust þau mæðginin að á Dalbrautinni strax í febrúar 1998 en þá var Viktor orðinn rúmlega fjögurra ára. Vegna for- falla annarra foreldra var Klöru og Viktori boðið að hlaupa í skarðið með tveggja daga fyrir- vara en venjulega þurfa foreldrar að bíða í um 8-12 mánuði eftir tdðtali. Viktor var hins vegar með svo mikinn mótþróa, eða „mótstöðuþrjóskuröskun" eins og það mun heita á sérfræðimál- inu, að ekki tókst að ljúka grein- ingu. Hann hafði einfaldlega ekki næga einbeitingu til að geta leyst úr prófunum sem Iögð eru fyrir börn sem fara í greiningu niðri á BUGL. Enda var hann þá ekki byrjaður á Rítalíni, sem hefur gjörbreytt Iífi þeirra. Nú hefur hann verið á lyfinu í tæpt ár og gerð var önnur tilraun til að greina hann á þessu ári og var henni að ljúka nú í vikunni. Rítalínið nauðsynlegt Rítalín er amfetamínskylt lyf sem notað hefur verið til að hjálpa ofvirkum börnum. „Fyrsta taflan er erfiðust,“ segir Klara sem tók sér 2-3 vikur til að hugsa málið áður en Viktor fór fyrst á þunglyndislyfið sem Stef- án skrifaði upp á. „En þegar þau stungu upp á Rítalíni þá hringdu 50 viðvörunarbjöllur í kollinum á mér,“ segir hún og var mjög treg í fyrstu. Effir að hafa kynnt sér verkan lyfsins mjög vel ákvað hún að láta reyna á það hvernig Rítalín virkaði á Viktor. „Og ef fólk sem þekkir okkur sæi mun- inn á honum án lyfja og á lyfjum þá myndi engum detta í hug að gagnrýna þetta." Ymsir hafa orðið til að gagn- rýna lyfjagjöf fyrir ofvirk börn og Klara telur að slíkar gagnrýnis- raddir komi frá fólki sem ekki þekki nógu vel til. Oft er því slengt fram að nóg sé að venja börn af sykurátinu og breyta mataræði þeirra en Klara blæs á það. Viktor fái mjög lítinn sykur, ekki einu sinni sykur út á Cheeriosið, fær afar sjaldan sæl- gæti, gosdrykki aðeins í afmæl- um og veislum og hafi alltaf borðað hollan og góðan mat. Það hefur ekki slegið á ofvirkni- einkennin. Stríðinu lauk „Það tók nokkra mánuði að finna rétta skammtinn af Ríta- líninu en þegar það tókst þá var þetta engin spurning. Þá fyrst Fyrir einskæra „frek]u“ tókst Klöru að komast í viðtal á BUGL eftir að- eins 6 mánuði. fór ég að geta átt eðlileg sam- skipti við barnið mitt - í fyrsta skipti á ævinni," segir Klara og vill taka það skýrt fram að Rfta- línið hefur ekki eingöngu þau meðferð til fyrir ofvirk börn. Þau sem verða verulega illa haldin eru stundum lögð inn á BUGL f 8 vikna mjög þétta meðferð en það er einnig hátt í árs bið fyrir slíka meðferð. Hins vegar bjóð- ast foreldrum námskeið með fræðslu um einkennin og \iðeig- andi uppeldisaðferðir. Klara seg- ir þessi námskeið bráðnauðsyn- leg. „Maður er með svo mikið á samviskunni eftir það sem er búið að ganga á í gegnum tíðina og margir foreldrar eru komnir með fullt af ranghugmyndum um sjálft sig.“ Sjálf segist hún, sem betur fer, aldrei hafa Ieyft slíkum ranghugmyndum að ná tökum á sér. Hún hafi alltaf ver- ið þess fullviss að hún væri að gera eins vel og mögulegt væri og hefði ekki farið að efast um sjálfa sig sem móður. Með því einu að fá nákvæmar og samræmdar upplýsingar um heildstæðar uppeldisaðferðir er hægt að bjarga miklu. Klara bendir á að ekki sé nóg að hreyta stikkorðaleiðbeiningum í foreldra inní 15 mínútna læknaviðtölum þar sem fólk er áminnt um að vera ákveðið og samkvæmt sjálfu sér. Slíkar sundurleitar ráðleggingar geri lítið gagn ef foreldrar hafa ekki næga þekkingu til þess að nýta sér þær. „Maður er svo brotinn, tættur, þreyttur áhrif að börnin róist. Lyfið örvar m.a. minnið en ofvirk börn hafa gjarnan mjög slæmt skammtíma- minni. Auk þess dragi lyfið úr einbeitingarskortinum sem áður hafði valdið því að Viktor gat aldrei sýnt hvað í honum bjó. „Og nú er Viktor Gylfi m.a.s. farinn að geta tjáð sig tilfinn- ingalega. Er jafnvel farinn að vilja ræða um og vinna úr ein- hverjum atvikum sem gerðust fyrir 2 árum. Aður hafði hann aldrei tíma né einbeitingu til að staldra við og hugsa um sínar til- finningar." Fyrir utan lyfið er engin bein og úr\fnda“ segir Klara og leggur áherslu á að foreldrum bjóðist slík námskeið eins fljótt og hægt er. Foreldrar í naflaskoðun Því foreldarnir þurfa sjálfir að fara í alls herjar yfirhalningu. A foreldranámskeiðinu hjá BUGL er foreldrunum kennt að þekkja sjálfa sig og eigin skapgerð. Námskeiðið tók 8 vikur og for- eldrum var m.a. kennt að hrósa börnunum og veita þeim já- kvæða athygli þegar börnin væru ekki að trufla. Þegar búið var að byggja upp samskiptin með ýms- V. \i \\ \ * \ -|1 •\7V»vVvy- " jb‘. ■ f- 1 ' ■ - ■ j Ljósmyndarinn, sem e/«Í/*/r __iJHiF ** - aóhafa heimsótt Ktöru og ViktorUmspT T’ ^ afar hverft við eftir að, hverfe- Viktor var þvií essLu °Tm á kvöldi" f* verkan lyfTs an fÓr fram Þar aó auki er hann yfir sThnhnntffT ^ mynda~ „Það er alveg fáránlegt að fólk skuli vera að bíða í allt að ár eftir viðtali á Dalbraut, “ segir Klara. Meðan beðið sé eftir greiningu fari uppeldið í biðstöðu og á meðan er allt í hers höndum. „ Þegar maður stendur í þessu þá er maður svo lítill í sér. Maður er svo brotinn, tættur, þreyttur og úrvinda." Klara hefur verið á biðlista eftir stuðn- ingsfjölskyldu síðan sumarið 1997. Það hefur ekki gengið enn. leiðum máttu foreldrar fara að taka upp umbunarkerfi sem hafa gefið góða raun í að styrkja börn til að aga sjálf sig. Klara og Viktor eru með þrautskipulagt umbunarkerfi á heimilinu. Víðs vegar um íbúð- ina eru litlir miðar með teikn- ingum sem sýna hvað Viktor eigi að gera og hvað hann fær marga punkta fyrir. Frammí forstofu er t.d. miði með mynd af skóm og einum punkti. Þegar Viktor kemur inn á kvöldin og man eft- ir því að ganga frá skónum sín- um fær hann eitt kringlótt spjald í umbunarkassann sinn sem er skreyttur teikningu af brosandi stráki. Við hliðina á dótahorninu er svo mynd af dóti og 5 punkt- um. Auk þess fær hann m.a. punkta fyrir að hátta sig sjálfur °8 l*gg)a kjurr upp í rúmi. Þannig safnar hann saman punktum, mest 12 á dag, og fær að „kaupa“ sér eitthvað í stað- inn. Borgar t.d. 3 punkta fyrir snakk í poka en getur einnig fengið að nota áunna punkta til að fara í súpermanbúninginn, hlusta á geisladisk, vaska upp (sem hann hefur gaman af) og mánaðarlega fær hann að velja sér eitthvað stærra, fara t.d. strætóferð eða sund. „Börnum í dag finnst allt svo sjálfsagt, að fá allt án þess að gera neitt og þetta er mjög gott fyrir öll börn,“ segir Klara en tekur strax fram að maður megi ALDREI láta undan. Brjóti barnið reglur missir það punkta ella verði punktakerfið marklaust. Skólinn framundan Fyrsti skóladagurinn rennur upp hjá Viktori í haust og kernur þá í ljós hvort tekist hefur að byggja hann nægilega vel upp til að skólavistin gangi áfallalítið. Auk lyfjagjafanna og foreldrafræðsl- unnar þá er Viktor undir reglu- legu eftirliti hjá lækni, í iðju- þjálfun hjá Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra til að örva fín- hreyfingar og hefur fengið sér- stakan stuðning á leikskólanum til að þjálfa hann undir skóla- gönguna. Þá segir Klara það einnig vera heilmikinn stuðning að mega hringja hvenær sem er í starfsfólkið á Dalbraut til að fá ráðgjöf. „Það er allt gert núna til þess að undirbúa hann sem best undir skólagönguna.“ Ef ekki væri fyrir lyfið, og all- an annan stuðning sem hefur fengist eftir að þau komust inn á BUGL, hefði Viktor sennilega rekist mjög illa í skólakerfinu. Hefði hann fæðst fyrir nokkrum áratugum er eins víst að hann hefði yfirhöfuð átt mjög erfitt með að fóta sig í lífinu. Um leið og verkan lyfsins rennur af hon- um um 6-7 leytið á kvöldin koma oft upp í honum gamlir taktar, segir Klara og það er því enginn efi í hennar huga um réttmæti lyfsins. Klara segir drenginn sinn vera mjög skemmtilegan, ljörugan og hugmyndaríkan enda sé hann eins og mörg ofvirk börn mjög opinskár. Eðlislæg lífsgleði hans hefði þó ekki fengið að njóta sín ef ekkert hefði verið að gert. Núorðið hefur hins vegar tekist að byggja hann svo vel upp að í stað þess að harðna og fara að einangrast, eins og gjarnan er með börn sem fá milda nei- kvæða athygli, að þegar hann dettur í gamla farið þá fær það mjög á hann. „Hann hefur gott hjarta, kvikindishátturinn sem var í honum er alveg farinn. Þeim líður verst sjálfum, börn- unum. Þeim líður ömurlega. Þau fá svo mikið samviskubit á eftir. Hann er orðinn 5 ára núna og er farinn að átta sig meira á sjálfum sér. Honum þykir óskap- lega leiðinlegt þegar hann slepp- ir sér og gerir eitthvað sem hann vill ekki gera. Fer oft að gráta og spyr: Mamma, af hverju geri ég þetta, ég vil ekki gera svona, ég er alltaf að gleyma mér...“

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.