Dagur - 27.02.1999, Page 14

Dagur - 27.02.1999, Page 14
LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1999 Eru allar vítamín og bætiefnakrukkurnar upp í skáp hjá okkur fullkominn óþarfi? Þurfum við ekkert meira af vítamínum yfir vetrartímann? Ekki samkvæmt þeim nær- ingarfræðingum sem blaðið hafði samband við. Hin gull- væga regla um að borða holl- an og fjölbreyttan mat virðist í fullu gildi vetur jafnt sem sumar og engin sérstök þörf fyrir að fá sér litríkan lófa af alls kyn vítamínum og bæti- efnum þótt flensutíminn og kuldatíðin standi sem hæst. D-vítamín er eina vítamínið sem við höfum mögulega aukna þörf fyrir og það fáum við til dæmis úr lýsi. D-vítamín Það er vegna skammdegisins sem Iíkaminn getur þurft að- stoð til þess að fullnægja D- vítamínþörfinni yfir dimmas- Bryndís Birgisdóttir nænngarfræðingur segir að ef borðaðurer fjölbreyttur og hotiur matur sé D-vítamín í raun vera eina bætiefnið semvið gætum þurft aukalegan skammt afyfir vetrartímann - til að styrkjabeinin! Fjölbreytt og gott fæði getur því forðað okkur frá veikindum. mennt. Saijikvæmt síðustu mataræðiskönnun frá ár- inu 1990 kom í ljós að meðalneysla af G-vítamín- ríku fæði var lítil, t.d. sam- svaraði ávaxta og græn- metisneysla um hálfu epli og einum tómati á dag . Auk C-vítamíns eru í ávöxtum og grænmeti fjöl- di annarra mikilvægra efna og ættum við því að borða ávexti og grænmeti minnst fimm sinnum á dag. Þá er líklegt að við fáum að min- sta kosti 150mg af C- vítamíni á dag sem full- nægir þörfinni og vel það. Við þurfum samt að gæta þess að C-vítamín er mjög viðkvæmt efni og ef mat- væli hafa verið geymd mjög lengi getur mikið af upp- haflega C-vítamíninu hafa brotnað niður. Þannig eru kartöflur að vori mun snauðari af C-vftamíni en nýjar kartöflur að hausti. En ef við borðum ávexti og grænmeti fimm sinnum á dag þá fáum við samt feyk- inóg C-vítamín. Það er hægt að ofbjóða líkaman- Hollt að gráta Hver kannast ekki við að hafa verið á létt- um bömmer yfir því að vera rauður í framan svo að all- ir sjá þegar bíó- myndin er og ljósin eru kveikt? Það eru sjálfsagt margir. En þeir sem gráta fyrir fram- an sjónvarpið eða í bíó þurfa ekki að hafa neinar áhyggjur lengur. Það er nefnilega ekk- ert til að skammast sín fyrir. Nýjustu fræðin upp- lýsa að það er bara heilsusamlegt að gráta því að gráturinn hreinsar sálina og það þótt myndin sé hundléleg. Það má líka segja að grátur sé í rauninni ómissandi í bíói nútímans því að enginn fær útrás í samfélagi þar sem allt gengur út á skyn- semi, kraft og dugnað og allir keppast við að standa sig í stykkinu, sinna heimili, börnum og atvinnu. I þeim heimi er ekki hægt að skrúfa frá tilfinningunum nema í bíó. Plastpoki utan um símann? Þurfum við vetrarpillurnar? ta tíma vetrarins. Ekki síst þeir sem dreg- ið hafa úr neyslu á feitum afurðum svo sem mjólkurafurðum og smjörlíki og borða Iítið af feitum fiski eða lifur en þessar afurðir innihalda D-vítamín. „Við fáum D-vítamín á tvennan hátt, „segir Bryndís Birgisdóttir næringarfræðingur. „Annars vegar úr fæði og hins vegar myndast það í húð við áreiti frá sólar- ljósi.“ Þegar ekkert er sólarljósið myndast að sjálfsögðu ekki D-vítamín í húð. Og hvað gerir það til, gætir þú spurt. Jú, D- vítamínið hjálpar til við frásog á kalki úr meltingarveginum og stuðlar þannig að því að styrkja beinin. Það er því ekki nóg að innbyrða mjólkurvörur samviskusam- lega, við þurfum líka D-vítamín til að vinna úr kalkinu. Þurfum ekki meira C-vítamín Ymsir taka C-vítamín daglega yfir vetrar- tímann í góðri trú en að sögn Bryndísar ættum við ekki að þurfa meira af C- vítamíni á veturna þó að auðvitað séu skoðanir skiptar. Hins vegar séu margir sem borða ekki nóg af C-vítamíni al- um með töflum, en það er nánast ekki hægt að fá of mikið úr ávöxtum og grænmeti. Fjölmargir taka inn aukaskammta af vítamíni og bætiefnum yfir vetrartím- ann en að sögn Bryndísar er hætt við að of mikið magn af ákveðnum bætiefn- um geti raskað viðkvæmu efnajafnvægi Iíkamans. Miklu mikilvægara sé að borða fj'ölbreytta fæðu enda innihaldi hún ótal órannsökuð efni sem nauðsynleg eru lík- amanum. LÓA Hafirðu ofnæmi fyrir farsíma eða raf- magni getur venjulegur plastpoki bjargað málinu. Sænskir sérfræðingar telja að of- næmi fyrir rafmagni komi fram vegna eitrunar út frá bakelít-efni (efni sem er í ýmsum rafmagnstækjum, svo sem tölv- um, farsímum, sjónvörpum og jafnvel byggingarefnum) og að venjulegur plast- poki geti bjargað heilmiklu. Þegar bakelít-efni komast í hita verður til gas sem við öndum að okkur. Ef plastpoki er vafinn utan um farsíma kemst þetta gas ekki út í and- rúmsloftið og not- andinn andar því ekki að sér. Búið er að prófa þessa kenn- ingu á nokkrum manneskjum og styð- ur hún kenninguna en eftir er að láta á þetta reyna í stærri rannsókn. rnagni? Vefja piast. poka utan um sím- ann! Ky n I ífsra n nsókn i r Kinsey var ekki fyrstur landa sinna til að velta fyrir sér kynlífi meðvísindin að leiðarljósi en hann var sá sem innleiddi meigindlegarfquantitativej rannsóknar- aðferðir á sviðið. Ellis Henry Havelock hafði verið innrætt sem ungum pilti að nætursáðlát gætu steypt hon- um í glötun og vítisvist (afar viktoríanskt enda var hann fæddur 1859). Þetta gat hann ekki sætt sig við og tók til að spá í kynhegðun manna þegar hann var sprottinn úr grasi. Hann gaf út 6 rit kring- um síðustu aldamót og var fyrst- ur manna til að koma eftirfarandi staðreyndum á prent (ekki litu þó samtímamenn hans á þær sem slíkar og víst er ennþá til fólk sem á erfitt með að kyngja þeim): 1. Sjálfsfróun er algeng hjá báðum kynjum. 2. Konur hafa Ianganir til kyn- lífs. 3. Fullnæging er svipuð hjá báðum kynjum og báðum jafn mikilvæg. Sigmund Snemma á öldinni setti Freud fram kenningar sínar um þroska, persónuleikann og sjúkleika sál- arinnar. Samkvæmt honum þurfti manneskjan að ganga í gegnum ákveðin stig í kynferðis- þroska, allt frá frumbernsku, til að verða að heilsteyptum ein- staklingi. Freud leit á kynlíf og kynlífsnautnir sem þungamiðju mannlegrar tilveru og að það væri fólki eðlilegt að leita að eins mikilli nautn og eins litlum sárs- auka og mögulegt væri. Nautn- irnar kæmu fyrst en þar á eftir þörfin til að tímgast og fylla jörð- ina. Alfred Árið 1938 var dýrafræðingur beðinn að taka að sér undirbún- ingskúrs fyrir verðandi hjón í Indiana háskóla í BNA (já hugsið ykkur að geta farið á námskeið áður en allt fer til fjandans). Honum fannst verkefnið spenn- andi og undirbjó sig vandlega fyr- ir námskeiðið. A námskránni var kynfræðsla meðal annarra efna og sér til undrunar komst hann að því að ekki voru til nein vís- indaleg gögn eða rannsóknir um kynlíf mannfólks. Þetta var kveikjan að því að Alfred Kinsey hætti að kryfja froska og sneri sér að rannsóknum á kynhegðun karla og kvenna. Kinsey var ekki fyrstur landa sinna til að velta fyrir sér kynlífi meðvísindin að leiðarljósi en hann var sá sem innleiddi meig- indlegar(quantitative) rannsókn- araðferðir á sviðið. Hann stofn- aðirannsóknarstofnun sem er starfandi enn í dag undir nafninu „The Kinsey institute for rese- arch in sex, gender and reprod- uction". Á starfstíma sínum safn- aði Kinsey ásamt samstarfsfólki sínu upplýsingum um kynlíf 18000 karla og kvenna og notaði til þess staðlaða spurningalista. Hann fór um víðan völl f viðtöl- unum og fjallaði um miklu fjöl- breyttari kynlífsathafnir en aðrir rannsakendur höfðu gert . Upp- lýsingarnar notaði kauði svo til að skrifa tvær bækur, aðra um kynhegðun karla og hina um kynhegðun kvenna.Bækurnar komu dálitlu róti á amerísku vel- ferðina sem var með glansandi sykurhúð þó að nokkuð öruggt sé að undir henni hafi alveg jafn mikill kynferðislegur fjölbreyti- leiki kraumað eins og á öðrum stöðum/tímum í veröldinni. Gögn Kinseys voru hlutlæg og áþreifanleg og af þeim var loks hægt að draga upplýstar ályktan- ir um hegðun og tilfinningar al- vöru fólks í kynlífi. Ekki eru allir á eitt sáttir um ágæti eða sannleiksgildi rann- sóknarniðurstaðna þessarra merku manna. Þó eru flestir sammála um að þeir voru miklir brautryðjendur og áhrifavaldar í kynlífsrannsóknum seinni tíma. KYIMLÍF

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.