Dagur - 12.03.1999, Page 3
FÖSTUDAGUR 12. MARS 1999 - 19
LÍFIÐ í LANDINU
í'Jr fimleikum
ífrjálsar
Þórey Edda ásamt foreldrum sínum Sigríði Albertsdóttur og Elís E. Stefánssyni þegar hún var valin íþróttamaður FH
áríð 1998.
Þórey Edda bikarmeistarí í fimleikum með Björkunum. Þórey er þríðja f.h.
Stangarstökk kvenna
ersú íþróttagrein sem
erá hvað mestri upp-
leið ífrjálsíþrótta-
heiminum í dag. Þórey
Edda Elísdóttir, 22
áraFH-ingur, hefurá
skömmum tíma náð
ótrúlega góðum ár-
angri ígreininni, en
hún lenti í 9.-10. sæt-
inu á HM í Japan.
Þórey Edda Elísdóttir, stangar-
stökkvarinn efnilegi úr Hafnar-
firði, hefur heldur betur verið að
slá í gegn á stórmótum erlendis
að undanförnu. Hún náði sínum
besta árangri til þessa á alþjóð-
legu stórmóti í Sindelfingen í
Þýskalandi fyrir skemmtstu og
stökk þá 4,36 m. Hún náði þar
með lágmarkinu inn á Evrópu-
meistaramótið utanhúss sem
fram fer í Sevilla á Spáni í sum-
ar.
Hápunkturinn á ferli Þóreyjar
Eddu hingað til var þegar hún,
ásamt Völu Flosadóttur og Jóni
Arnari Magnússyni, tók þátt í
heimsmeistaramótinu í Japan
um síðustu helgi. Þórey stóð sig
nokkuð vel á mótinu, þó hún
næði ekki sínu besta. Hún stökk
4,20 m og lenti í 9.-10. sæti.
Að sögn Þóreyjar sagðist hún
lítið hafa fundið fyrir tauga-
spennu á mótinu þrátt fyrir mik-
ilvægi þess. „Eg átti frekar von á
því að verða stressuð, en líklega
hef ég aldrei verið jafn afslöpp-
uð á nokkru móti. Helstu
áhyggjurnar voru, hvort ég næði
byrjunarhæðinni, sem var 3,80
m, en þegar það hafðist var allt
stress úr sögunni. Eg hafði sett
mér að ná einu af tíu efstu sæt-
unum og hafði gert mér vonir
um að stökkva 4,35 m. Samt var
ég nokkuð sátt við 4,20 m.“
Byrjaði 9 ára í íiinlcikum
Þórey Edda byijaði íþróttaferil-
inn 9 ára gömul þegar hún fór
að æfa fimleika með Fimleikafé-
laginu Björk í Hafnarfirði. Hún
náði fljótt góðum tökum á fim-
leikunum, enda mjög áhugasöm
við æfingarnar.
Að sögn Elfsar E. Stefánsson-
ar, föður Þóreyjar, var hún strax
mjög samviskusöm við æfingam-
ar. „Hún hefur mikinn metnað
og reynir alltaf að gera sitt
besta."
Þórey stundaði sfðan fimleika
til ársins 1996, þegar hún ákvað
að hætta eftir farsælan feril.
Hún varð á fimleikaferlinum
sexfaldur bikarmeistari með
Björkunum og keppti einnig
með íslenska fimleikalandslið-
inu. Hennar helsta grein var
tvísláin og þar varð hún íslands-
meistari í tvígang. Hún varð sig-
urvegari í samanlögðu á Eyja-
leikunum 1993 og var meðal
þátttakenda á Evrópumeistara-
mótinu árið 1996. „Eg var
ákveðin í að hætta í fimleikun-
um eftir Evrópumótið 1996, en
gat þó ekki hugsað mér að hætta
alveg í íþróttum og fór þess
vegna að fíkta við stangarstökk-
ið,“ sagði Þórey.
Ótrúlega hraður stígandi
Ferill hennar í stangarstökkinu
er því mjög stuttur og með ólík-
indum hvað hún hefur náð góð-
um tökum á stönginni á skömm-
um tíma. Að hennar sögn hófst
þetta ævintýri hennar strax
áriðl996. „Ragnheiður Ólafs-
dóttir, frjálsíþróttaþjáifari hjá
FH hafði samband við vinkonu
mína, Nínu Björk Magnúsdótt-
ur, fimleikakonu og vildi fá hana
til að mæta á frjálsíþróttaæfing-
ar. Við Nína höfðum æft saman
fimleika hjá Björkunum og hún
hafði samband við mig og bað
mig að kfkja með sér á æfingu
hjá FH. Við fórum svo saman á
eina eða tvær æfíngar, svona rétt
til að prófa, en það varð þó ekk-
ert meira úr því í það skiptið.
Það var ekki fyrr en eftir að Vala
Flosadóttir varð Evrópumeistari
sama ár, að áhuginn kviknaði
fyrst fyrir alvöru og um haustið
mætti ég á mína fyrstu æfingu.
Kristján fyrsti þjálfarinn
Það má segja að tilviljun hafi
ráðið að gömlu stangarstökks-
kempurnar Sigurður T. Sigurðs-
son og Kristján Gissurarson,
sem verið hafa í fremstu röð
stangarstökkvara hér á landi til
margra ára, sáu til Þóreyjar
reyna sig við stöngina á þessari
fyrstu æfingu hennar.
Að sögn Kristjáns Gissurar-
sonar, sem síðan varð fyrsti
tækniþjálfari Þóreyjar Eddu, sáu
þeir félagar strax að mikið bjó í
þessari ungu stelpu. „Hún virk-
aði strax á mig sem mjög efni-
legur stangarstökkvari. Segja má
að hún hafí allt það til að bera
sem þarf til að ná langt í grein-
inni. Hún hefur góðan grunn og
góða Iíkamsbyggingu og stígand-
inn hefur verið ótrúlega hraður
hjá henni,“ sagði Kristján.
Þórey æfði síðan undir hand-
leiðslu Kristjáns fram að ára-
mótunum, en þá hélt hún út til
Bandaríkjanna og dvaldi þar í
nokkra mánuði, en æfði þó að-
eins lítillega. „Eg kom síðan
heim sumarið 1997 og þá hóf ég
fyrst æfingar fyrir alvöru. Krist-
ján Gissurarson sá um tækni-
þjálfunina og þau Eggert Boga-
son og Ragnheiður Ölafsdóttir
um þrekæfíngarnar. Eg stundaði
þó mest stökkið og Kristján var
ómetanlegur vað að segja mér til
og kenndi mér mikið,“ sagði
Þórey.
Stukk 2,80 m
á fyrsta mótinu
„Eg tók þátt í mínu fyrsta móti
strax haustið 1996 og stökk þá
2,80 m. Það var ekki um annað
að ræða því ekki var hægt að
stilla stökkhæðina neðar nema
með mikilli fyrirhöfn. Fljótlega á
eftir tók ég svo þátt í öðru móti
og stökk þá yfír 3,00 m. Síðan
tók ég ekki þátt í móti fyrr en ég
kom aftur heim frá Bandaríkj-
unum og var þá að reyna við lág-
markið inn á Evrópumeistara-
mót ungmenna 20 - 22 ára, sem
fram fór í Finnlandi í júlí. Lág-
markið var 3,60 og ég þurfti að
ná því fýrir 30. júní. Þess vegna
voru sett upp fyrir mig ein fimm
mót og mér tókst að ná lágmark-
inu.
Þetta Evrópumót ungmenna
var mitt fyrsta alvörumót og þar
stökk ég 3,70 m, en eftir það tók
ég síðan þátt í Meistaramóti Is-
lands og stökk þá 3,80 m.
Þá var komið að Norður-
landameistaramótinu sem fram
fór í Svíþjóð í ágúst og þar lenti
ég í 2. sæti á eftir finnskri stelpu
og stökk 3,52 m.
Eftir það tóku við æfíngar all-
an veturinn þar sem Kristján
þjálfari lagði áherslu á að laga
og æfa tæknina, auk þess sem
ég var í þreki hjá Eggert og
Ragnheiði. Eg tók svo þátt í
Stórmóti IR eftir áramótin og
stökk þá 3,80 m og síðan 3,90
m á meistaramótinu innanhúss.
Eg stefndi allan veturinn á að
komast yfir fjögurra metra múr-
inn og lagði mikið á mig til að
ná settu takmarki. Það hafðist
svo ekki fyrr en um vorið, þegar
ég fór að stökkva úti á nýja vell-
inum í Kaplakrika, en þá stökk
ég 4,18 m strax á fyrsta útimót-
inu, sem var nýtt Islandsmet, en
gamla metið sem var 4,17 m átti
Vala Flosadóttir,“ sagði Þórey.
Eftir keppnistímabilið í fyrra
hélt Þórey Edda til Svíþjóðar og
æfír nú með Völu Flosadóttur
hjá félaginu MAI í Malmö undir
stjórn pólsks þjálfara. Hún er
stöðugt að bæta árangurinn og
nafnið Þórey Edda Elísdóttir er
þegar orðið þekkt í frjálsíþrótta-
heiminum.
Árangur síðustu stórmóta:
Malmö 4,14 m
Gautaborg 4,21 m
Aþena 4,30 m
Stokkhólmur 4,31 m
Sindelfingen 4,36 m
HMíJapan 4,20 m