Dagur - 15.06.1999, Blaðsíða 1
Verð í lausasölu 150 kr.
82. og 83. árgangur- 110. tölublað
Baldur Jónsson, prófessor og formaður íslenskrar málstöðvar, hlaut í gær viðurkenningu Málræktarsjóðs og 400
þúsund króna verðlaunafé. Þetta er í þriðja skipti sem viðurkenningin er veitt og kom fram í máli Kára Kaaber,
framkvæmdastjóra Málræktarsjóðs, að Baldur hafi átt mestan þátt í stofnun íslenskrar málstöðvar. - mynd: hilmar
Firðimir eru yfír-
fíillir af horfíski
Einar Oddiir Kristjáns-
son segir fLóa og firði
fulla af homðiun fiski
og Hafró fyrirmunað að
gera sér grein íyrir
stöðunni. Jóhann Sig-
urjónsson, forstjóri
Hafró, vísar gagnrýn-
inni á bug, en viður-
kennir þó að fiskurinn
sé rýrari en oft áður.
Einar Oddur Kristjánsson tók
fískifræðinga Hafrannsóknastofn-
unar á beinið í utandagskrárum-
ræðum um vanda vestfírskra
byggðarlaga og fískveiðistjómunar-
kerfið á Alþingi í gær. Hann gagn-
rýndi fiskveiðiráðgjöfina sjálfa og
þá líffræði sem þar liggur til
grundvallar.
„Firðir og flóar, þar sem ég þekki
best til, allt frá Húnaflóa til
Breiðafjarðar, eru yfírfullir af fiski.
Þessi fískur er mjög holdgrannur
og holdafar hans fer versnandi.
Nýting aflans versnar. Samt er það
svo að Hafrannsóknastofnun, sem
er okkar ráðgjafí í þessu, er alger-
Iega fyrirmunað að gera sér grein
fyrir því í hvaða stöðu þetta er.
Þessu verður að
linna því við
verðum að veiða
meiri fisk, miklu
meiri fisk, og við
verðum að snúa
okkur að því
strax að leiðrétta
þessa villu því
hún er himin-
hrópandi," sagði
Einar Oddur í
umræðunum.
Grisjimarkeniimgiii
Jón Kristjánsson fiskifræðingur
hefur lengi haldið þessu sama
fram og það hefur verið kölluð
grisjunarkenning, sem Hafró hafn-
ar. Of mikill fískur sé að beijast
um of lítið æti og hann þurfi að
veiða. Einar Oddur var spurður að
þvi eftir umræðurnar hvort hann
hefði tekið upp grisjunarkenningu
Jóns Kristjánssonar?
„Ég hef haldið því fram í ein sex
eða sjö ár að Hafrannsóknastofn-
un hlyti að vera á villigötum í ráð-
gjöf sinni. Reynsluheimur allra
þeirra sjómanna sem ég þekki, seg-
ir bara allt annað. En hvort ég hafi
tekið upp grisj-
unarkenning-
una? Allar veiðar
eru í sjálfu sér
grisjun. Ég tel að
það sé pottur
brotinn í þessu
og er sannfærður
um að við höfum
verið á villigöt-
um. Og fyrir
þessa skoðun
mína hef ég
margsinnis verið fordæmdur opin-
berlega, en það breytir minni skoð-
un ekki nokkum skapaðan hlut,“
sagði Einar Oddur Kristjánsson.
Rýrari fiskiir en oft áður
Ummæli Einars Odds um fiski-
fræðinga Hafrannsóknastofnunar
vom borin undir Jóhann Sigur-
jónsson, forstjóra stofnunarinnar.
Jóhann sagði það rétt hjá Einari að
fiskurinn væri rýrari en oft áður,
eða allt aftur til ársins 1994, en
alls ekki langtum rýrari. Hins veg-
ar sé ekki um neitt hættuástand að
ræða. Stofnunin muni vitaskuld
fylgjast með þróuninni á næstu
ámm.
„Við sjáum það alveg í okkar
mælingum að fiskurinn er heldur
rýrari en í meðalári undanfarin ár.
Fyrst og fremst skýrum við þetta
með því að loðnan, einhverra hluta
vegna, hefur ekki verið aðgengileg
fiskinum héma fyrir vestan landið
i fyrra og á þessu ári. Stærð loðnu-
stofnsins er þar ekki um að kenna,
sem er með ágætum. Til þess að
finna viðhlýtandi skýringar núna
þurfum við að rýna betur í gögnin.
Hitafar getur ráðið þar einhveiju,
sér í lagi um útbreiðslu Ioðnunn-
ar,“ sagði Jóhann.
Um þau orð þingmannsins að
pottur væri brotinn hjá Hafrann-
sóknastofnun, og fiskifræðingum
væri fyrirmunað að gera sér grein
fyrir stöðunni, sagðist Jóhann lítið
geta sagt. Þetta væru órökstuddar
fullyrðingar og ekki ástæða til að
svara þeim að svo stöddu.
- s.dór/bjb
Einar Oddur
Kristjánsson.
Jóhann
Sigurjónsson.
Ibúðir
hækkað
uni 12,5
prósent
Markaðsverð á húsnæði hækkaði
um 3,4% á aðeins einum mán-
uði, samkvæmt útreikningi Hag-
stofunnar á vfsitölu neysluverðs
núna í byrjun júní. Ibúðaverð
hafði þar með hækkað um 12,5%
á einu ári - eða um 10% umfram
hækkun vísitölu neysluverðs,
sem var 2,6% á þessu tímabili.
Og meira en þriðjunginn af
þeirri hækkun má einmitt rekja
til hækkaðs íbúðaverðs.
Markaðsverð húsnæðis hefur
nú hækkað um ríflega 20% síðan
í mars 1997, þegar vísitala
neysluverðs var síðast stillt á 100.
I heild hefur vísitalan hækkað
um 5,8% á þessu tímabili og að-
eins 4,3% ef húsnæðisliður henn-
ar er undanskilinn. — HEI
Maöur
mánaðarins
Jón Baldvin Hannibalsson,
sendiherra Islands í Washington,
var kjörinn maður mánaðarins í
maí af blaðinu „The Washington
Times". Samkvæmt upplýsingum
frá James Morrisson, einum rit-
stjóra blaðsins, hefur Jón Bald-
vin vakið athygli á landi sínu og
þjóð með virkri þátttöku og mál-
flutningi á ráðstefnum og mál-
þingum og sendiherrafrúin,
Bryndís Schram, hefði sem gest-
gjafi vakið áhuga menningarlega
sinnaðs fólks á Islandi með tón-
leikhaldi, myndlistarsýningum
og fyrirlestrum fyrir félaga í holl-
vinafélagi Smithsonian safnsins
o.fl.
ffin liliðin
Washington Times birtir í blaði
sínu ákveðna mynd af manni
mánaðarins þar sem hann er
spurður um hitt og þetta varð-
andi hann sjálfan - og á að svara
í einni stuttri setningu.
Meðal þess sem Jón er beðinn
að gera er að lýsa sjálfum sér. Jón
segist vera langhlaupari og mag-
ur og svangur á að líta. I þessa
blöndu megi svo bæta hressileg-
um skammti af húmor fyrir sjálf-
um sér.
Sinn villtasta draum segir Jón
vera að yrkja ódauðlegt ljóð, en
spurður um hans versta ávana
nefndi hann tilhneigingu til að
sofna á leiðinlegum fundum.
Mesta gæfusporið segir Jón hafa
verið að giftast Bryndísi 19 ára
gamall og sem áhugamál nefnir
hann skriftir. Sendiherrann er
spurður hvern hann vildi helst
hitta og nefnir hann þá Leif
heppna, „sem kom til Ameríku
1000 árum á undan mér“. Uppá-
halds sumarleyfisstaðurinn er
Hornstrandir á Íslandi og uppá-
halds drykkurinn er ískaldur
snaps með hákarli. Skilgreining
Jóns á Iúxus er „ást, hvað annað?“
Uppáhaldsbækur Jóns Bald-
vins eru tvær: 1) Biblían og 2)
Sjálfstætt fólk. Lokaorð sendi-
herra Islands í Washington
Times eru: „Adios amigos!"
“SSÍft'- ►•'Sw1 Nútíma innheimtuaðferðir! ★4-
intrum r|j justhia $6i-6ioz /*V OUIXSMHMR KN Íi SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI ■ SÍMI 462 3824 |
mJDMLmm
mrnowm $xmm
EITT NÚMER AÐ MUNA
A'iSm 5351100