Dagur - 19.06.1999, Side 4

Dagur - 19.06.1999, Side 4
Sýnt á Stóra sviði kl. 20.00 Maður í mislitum sokkum - Arnmundur Backman í kvöld lau. 19/6 • á morgun sun. 20/6 - örfá sæti laus • föd. 25/6 • Id. 26/6 - Síðustu sýningar Sýnt á Litla sviði kl. 20.00 Abel Snorko býr einn - Erik-Emmanuel Schmitt • í kvöld lau. 19/6 - uppselt Síðasta sýning A.t.h. ekki er hægt að hleypa gestum í salinn eftir að sýning hefst. Sýnt í Loftkastala kl. 20.30 Söngleikurinn Rent (Skuld) - Jonathan Larson í kvöld lau. 19/6 - UPPSELT • föd. 25/6 • lau. 26/6 Miðasalan er opin mán. þri. 13-18 mið-sud. 13- 20. Símapantanir frá kl.10 virka daga. Sími 551-1200. Stóra svið ki. 20.00 Litla hryllings- búðin e. Howard Ashman, tónl e. Alan Menken 8. sýn. í kvöld lau. 19/6 - uppselt 9. sýn. fim. 24/6 - örfá sæti laus 10. sýn fös. 25/6 - uppselt 11. sýn. lau. 26/6 - uppselt 12. sýn. fös. 2/7 - nokkur s. laus 13. sýn. lau. 3/7 - uppselt 14.oýn. oun. 4/7----------- Leikferð um iandið Sex í sveit - Samkomuhúsinu Akureyri Fös. 18/6 - uppselt Lau. 19/6 - uppselt Sun. 20/6 - uppselt Mán. 21/6 - örfá sæti laus Þri. 22/6 - örfá sæti laus Mið. 23/6 - örfá sæti laus - Félagsheimilinu Blönduósi Fim. 24/6 - Klifi, Ólafsvík...Fös. 26/6 - Félagsheimilinu, Hnifsdal Lau. 26/6 og sun. 27/6 - Dalabúð, Búðardal...Mán. 28/6 - Þingborg í Ölfusi...Mið. 30/6 - Sindrabæ, Höfn í Hornafirði Fim. 1/7 - Egilsbúð, Neskaupst....Fös. 2/7 - Herðubreið, Seyðisfirði...Lau.3/7 Forsaia á Akureyri í s: 462-1400 Forsala á aðrar sýn. s: 568-8000 Miðasalan er opin daglega frá kl. 12 -18 og fram að sýningu sýningadaga. Símapantanir virka daga frá kl. 10. Greiðslukortaþjónusta. Sími 568 8000 fax 568 0383 MENNINGARLÍFÐ . 20 - LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1999 Systur konungsins Fjöldi bóka hafa verið skrifað- ar um skrautlegt einkalíf Hin- riks 8. en hann giftist sex sinn- um og sendi tvær eiginkonur sínar á höggstokkinn eins og frægt er. Hinrik sá ekkert at- hugavert við umsvif sín í kvennamálum, að hans mati var svarti sauðurinn í fjöl- skyldunni eldri systir hans Margrét en hann sagði að ekki væri hægt að Iifa hneykslan- legra lífí en hún hafði Iifað. Hinrik VII og eiginkona hans Elízabeth eignuðust sjö böm. Dauðinn hreppti Qögur böm þeirra á unga aldri. Elsti sonurinn Arthur lést fimmtán ára gamall, Elizabeth þriggja ára gömul, Edmund eins árs og Katharína Iifði einungis í nokkrar vikur. Sonurinn Hinrik átti eftir að ríkja sem Hinrik 8., Margrét varð drottning Skota og María drottning Frakklands. Margrét og eiginmennirnir Nýlega kom út í Bretlandi bók um systur kon- ungs, þær Margréti og Maríu. Bóldn nefnist Sisters to the King og er skrifuð af Maríu Perry, sem áður hefur skrifað bók um líf Elízabethar I. I. bóldnni rekur Perry lífsferil systranna en einkalíf Hinriks 8. fær einnig veglegt rými í bókinni, kannski um of því saga hans skyggir stundum í sögu systranna og var þó lífshlaup þeirra hið merkilegasta. Margrét, eldri systirin, varð drottning Skota einungis 13 ára gömul. Skotakonungur James IV var tuttugu ámm eldri en hún. Hann féll í orrustu við Englendinga eftir að drottningu hafði margoft dreymt íyrir láti hans. A fimmtándu og sextándu öld var það siður að aðalskonur giftust samkvæmt óskum fjöl- skyldu sinnar en seinni maka máttu þær sjálfar velja sér og gátu þá leyft sér að giftast vegna ást- María systir Hinríks 8. ásamt seinni eiginmanni sínum Charles Brandon, sem hún giftist án samráðs við bróður sinn. María var á sínum tíma talin vera fegursta prínsessa í Evrópu. ar en ekki af hagkvæmnisástæðum. Þetta gilti þó sjaldnast við um ekkjur konunga. Margrét fór þó eigin leiðir í einkalífi eftir Iát konungs en val hennar reyndist ekki gæfulegt. Hún giftist á laun metnaðargjömum aðalsmanni sem ásæld- ist krúnuna. Hjónabandið reyndist engin sæla, eiginmaðurinn hafði af henni fé og flutti inn til ástkonu sinnar. Hann náði eldri syni Margrét- ar, hinum unga James V. á sitt vald og neitaði að afhenda hann móður sinni en konunginum tókst að flýja úr prísundinni. Hinrik 8. átti varla orð til að lýsa hneyksl- an sinni þegar Margrét sagðist vilja skilja við eiginmann sinn. Hinrik gat ekki séð að maðurinn hefði gert nokkur skapaðan hlut af sér annað en að vera haldinn heilbrigð- um metnaði. Margrét losnaði þó við eigin- manninn, sem hrökklaðist úr landi, og gift- ist í þriðja sinn. Sá rændi hana einnig fé og hélt framhjá henni. Margrét lést 53 ára gömul og síðustu árunum eyddi hún í að mikla fyrir sér eiginmann númer tvö sem hafði þó reynst henni svo illa. Ást sem móðgaði konung Nítján ára gömul var María yngri systir Hinriks 8. gift Frakkakonungi Loðvíki XII, sem var gamall og veikur. María, sem var sögð vera fallegasta prinsessa í Evr- ópu, tók það loforð af Hinriki að ef eigin- maður hennar skyldi falla frá fengi hún að velja sér eiginmann. Eftir fjóra mánuði var Loðvík látinn og María orðinn ást- fanginn af enskum aðalsmanni Charles Brandon, sem hún giftist á laun án sam- ráðs við bróður sinn. Hinn skapbráði Hin- rik varð æfur vegna þess að hafa ekki ver- ið með í ráðum og mikið gekk á áður en hann róaðist. Ólíkt systur sinni reyndist það Maríu happ að hafa gifst af ást og hún var hamingjusamlega gift Brandon þar til hún lést tæplega fertug. Dóttirdótt- ir hjónanna, Jane Grey, varð síðar drottn- ing Englands í níu daga en var tekin af lífí sextán ára gömul. Hinrik VII hafði eitt sinn spáð því að ef synir hans létust án þess að skilja eftir sig karlerfingja myndu afkomendur Margrétar erfa krúnu Skotlands og Englands. Þessi spá- dómur rættist þegar sonur Maríu Stúart, James VI. varð konungur Englands og Skotlands, en móðir hans var sonardóttir Margrétar. BOKfl- HILLAN ★ ★ ★ 1 Háskólabfó- Þotuliðið (Celebrity) Leiksijóri: Woody Allen Aðalhlutverk: Kenneth Branagh, Judy Davis, Joe Man- tegna, Leon- ardo DiCaprio, Winona Ryder, Bebe Neuwirth, Famke Janssen, Melanie Griffith, Charlize Theron. Woody Allen er afkastamildll kvik- myndaleikstjóri og leikari, sem oftast hefur leikið aðahlutverkin í myndum sínum, oftast nær eru það hálf taugaveiklaðir en skondn- ir nöldurseggir sem hann Ieikur. í myndinni um fi'na og fræga fólkið, sem sýnd er þessa dagana í kvik- myndasölum Háskólabíós, felur hann Kenneth Branagh þetta hlutverk en kýs sjálfur að halda sig bak við myndavélina. Shakespe- are-leikarinn Branagh hefur áður leikið menn í tilvistarkreppu og gerir það alveg hreint ágætlega. Hann Ieikur ffáskilinn blaða- mann, Lee Simon, sem hefur það hlutverk á blaðinu að skrifa um fi'na og fræga fólkið. Hann sér um að taka viðtöl við kvikmynda- stjörnur og skrifa um tískusýning- ar. Auk þess á hann sér draum um að verða rithöfundur. Hann hefur skrifað kvikmyndahandrit sem hann reynir að selja stjörnunum. Þannig hittir hann Brandon Dar- rovv (Leonardo DiCaprio), of- stopafullan kvikmyndaleikara sem er í fríi á milli mynda. Hlutverkið hentar kvennagullinu DiCaprio nokkuð vel, þarna fær hann útrás við að brjóta húsgögn og kasta teningum. Þegar blaðamaðurinn er með stjörnunni talar hann Besti kafli myndar- innar eru þær 15 mínútur sem Leon- ardo DiCaprío leik- ur í. tíðinni fara að heija á hann og hann fer að tala við þá og sjálfan sig. Það eru vissir hlutir sem eru í hverri bíómynd eftir Woody Allen. Það er fastur liður að þar sé sál- fræðingur. Meðal gömlu bekkjar- félaganna leynist sálgreinandi. Þegar Lee fer að tala við sjálfan sig þá dettur uppúr sálgreinandan- um, „ég er ekki í vinnunni." Woody Allen íjallar Iíka mikið um kynlíf í myndum sínum og er Þotuliðið þar engin undantekning. Einhverstaðar sá ég að í mynd- inni kæmu fram um 200 auka- leikarar og má það vel vera. Leik- aralistinn er stjörnum prýddur og þar fyrir utan eru nokkur Qöl- menn atriði með nafntoguðu fólki. Meðal annars Ieikur bandaríski auðkýfingurinn Don- ald Trump sjálfan sig, þegar hann kemur fram sem persóna í sjónvarpsmynd. Bíómyndin Þotuliðið er öðrum þræði bíómynd um bíómyndir. Með fína og fræga fólkinu stanslaust um kvikmyndahandrit- ið og fær meðal annars lánaða 6.000 dali út á höfundartekjur hjá leikaranum til þess að borga spila- skuld. Síðar þegar þeir kveðjast eftir daginn, þá er það með þeim orðum að skuldin verði greidd með afborgunum, en handritið gleymist. Bi'ómyndin Þotuliðið snýst um líf þeirra Simons hjónanna eftir skilnaðinn. Fyrrverandi kona blaðamannsins Robin Simon (Judy Davis) hittir hinn fullkomna mann þegar hún fer til' lýtalæknis og henni eru slegnir gullhamrar án þess að læknirinn hafi gert neitt. Þetta er sjónvarpsfram 1 eiö- andinn Tony (Joe Mantegna). Myndin er með hálfgerðri Mósaík-uppbyggingu, þar sem stutt atriði eru einhverskonar svip- myndir úr lífi persónanna. Það sem fékk blaðamanninn til þess að hugsa um líf sitt og skilja við kon- una voru endurfundir hans við fólkið sem var með honum í men- ntó á 20 ára útskriftarafmælinu. Atriðið minnir dálítið á veisluna í Macbeth, þegar draugarnir úr for- Hún hefst á því að verið er að taka upp bíómynd og fína og fræga fólkið fer á forsýnigu á bíó- mynd gríska leikstjórans, Papa- dakis. Hann er sagður einn þeirra listrænu kvikmyndaleikstjóra sem taka allar sínar myndir í svart-hvítu, en sjálfur hefur Allen gert all nokkrar myndir i svart- hvítu og sjálft þotuliðið er svart hvít mynd. Myndin er ágætis heilafóður, vitræn gamanmynd sem er meðal þess besta sem Woody Allen hefur gert.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.