Dagur - 19.06.1999, Side 5

Dagur - 19.06.1999, Side 5
MENNINGARLÍFÐ ________' " ' ' ,>U' ' ‘ ‘ ' ~ LÁUGÁRDAGUR 19. JÚNÍ 1999 -21 Lifandi safn Minjasafnið á Akureyri verður opnað að nýju við hátíðlega athöfn í dag eftir gagngerar breytingar. Nýjar sýn- ingar, margt áhugavert í boði í safninu og út um héraðið í sumar. Þegar komið er að Minjasafninu á Akureyri blasa við tré svo stór að maðurinn virðist næsta lítill í samanburði. Þama eru lerkitré, birkitré og silfurreynir, reyndar ekki sérlega falleg, en stór og voldug og mörg þeirra nálægt hundrað ára gömul - hafa verið þarna frá því að ræktun hófst í þessum garði í fyrstu tijáræktar- stöð landsins, sem mun hafa tek- ið til starfa árið 1901. Mörg tijánna hafa verið í garðinum frá upphafi en önnur eru afkomend- ur tijáa sem þarna hafa staðið. Safnið varðveitir ekki bara gamla hluti, myndir, verkfæri og lista- verk, heldur einnig lifandi tré. Minjasafnið hefur verið lokað í heilt ár vegna breytinga innan- húss og utan. Fyrir ffaman húsið hefur verið hellulagt svæði sem býður upp á fjölbreytilegar sýningar, svo sem dans, leiklist eða annað og mögulegt að koma þar fyrir borðum og stólum fyrir gesti. Hafi einhver haldið að Minjasafnið á Akureyri væri rykfallin fornmuna- geymsla þá er það áreið- anlega misskilningur. Fjölbreyttar sýningar og fagrir munir ættu að höfða til margra, jafnt heimamanna sem gesta, innlendra sem erlendra. Þar fyrir utan starfar Minjasafnið um allan Evjaíjörð við margs konar verkefni sem tengjast minjum, fornum og nýj- um. Guðrún Kristinsdóttir í sainum sem nú hýsir sýninguna „Eyjafjörður frá öndverðu". Þegar myndin var tekin var undirbúnings- vinna á fullu og raunar ótrúlegt að safnið skuli vera opnað í dag, aðeins tólfdögum frá því að þessi mynd var tekin. mynd: brink Gagngerar endurbætur hafa verið gerðar á svæðinu framan við safnið og þar með skapast tækifæri til að nýta svæðið undir „lifandi" sýningar, dans eða annað þess háttar. Garðurínn sjálfur er merkilegur fyrír það að elstu trén eru um hundrað ára og önnur afkomendur trjáa sem upp- haflega stóðu í garðinum. Engar nýjar trjátegundir hafa bæst í garðinn á síðari hluta þessarar aldar. mynd: brink Gersemar I samvinnu við Þjóðminjasafn ís- lands standa Minjasafnið og Kristnitökunefnd Eyjafjarðar að sýningu sem ber heitið Gersemar - fornir kirkjugripir úr Eyjafirði í vörslu Þjóðminjasafns Islands. Fjórtán gripir hafa verið fengnir að láni frá Þjóðminjasafni, elstu kirkjugripir úr Eyjafjarðarprófast- dæmi, þar á meðal þjóðargersem- ar sem ekki hafa verið sýndar heima í héraði áður. Meðal sýnisgripa má nefna róðukross frá Saurbæjarkirkju í Eyjafirði, sem talinn er íslensk smíð frá 15. öld og kaleikinn ffá Grund í Eyjafirði, sem ber ártalið 1489 og er langelstur allra þeirra mörgu gripa f Þjóðminjasafninu sem bera greinilegt smíðaártal. Sýningin er liður í Kristnihátíð og að henni standa Kristnihátíðar- nefnd, Þjóðminjasafnið og Minja- safnið á Akureyri. Eyjafjörður frá öndverðu Minjasafnið hefur sérstöðu með- al annarra byggðasafna að því leyti að þar er mjög litið til sögu svæðisins alveg frá landnámi. I aðalsal verður sýningin „Eyja- Qörður frá öndverðu11, þar sem rakin er saga Eyjafjarðar frá land- námi fram yfir siðaskipti en lögð áhersla á landnám, heiðna greftr- unarsiði, miðaldaverslun og trú- arlíf í héraðinu. „Til að segja þessa sögu notum við þá fornleifauppgreftri sem hafa verið gerðir héma,“ segir Guðrún Kristinsdóttir safnstjóri. „Til dæmis var grafið upp land- námsbýli á Granastöðum hér frammi í Eyjafirði. Við ætlum að sýna allt sem kom úr uppgreftrin- um og segja mjög rækilega frá húsakosti, mataræði, skepnuhaldi og öðru, eins og það kemur fram í uppgreftrínum." Sjö metra Iangur bátur stendur á sérkennilegum stað í salnum en þar er um að ræða eftirlíkingu af kumli sem grafið var upp á Dalvík árið 1909. Talið er að báturinn hafi verið sexæringur úr eik. „Ofan í bátinn koma beinin úr manninum, hestinum og hundin- um og naglamir sem fundust úr bátnum og fleira,“ segir Guðrún. „Það var svolít- ið skrýtið að í svona gröf hefði mátt búast við að finna fullt af vopnum, en þar var bara maður, hestur og hundur. Engu að síður ætlum við að sýna með þessu alls kon- ar vopn og skartgripi sem hefur fundist í öðmm kumlum.“ Veggskreytingin í saln- um vekur líka athygli. „Þetta eru vesturfjöllin og svo höfum við austurfjöll- in út um gluggana," segir Guðrún. „Við vildum taka fjörðinn svolítið inn héma um leið og við opnum út líka. Það er hugmyndin að Iáta þetta flæða svolítið saman þannig að fólk fái tilfinningu fyrir landslag- inu.“ Inn af land- námsdeildinni tekur svo við verslunardeild þar sem sagt er frá verslunar- háttum al- mennt á mið- öldum og sýndur tilbúinn verslun- arvamingur ým- iss konar, svo sem vaðmál, tjara, vax, hun- ang, reykelsi, brennisteinn og fleira sem flutt var út og inn fyrr á tíð. „Síðan verðum við með sérstaka umfjöll- un um verslunarstaðinn á Gás- um,“ segir Guðrún. „Við ætlum að efna til fyrirlestrar um verslun- arstaðinn og efna til skoðunar- ferðar í tengslum við þessa sýn- ingu.“ Kirkju- og klaustradeild er síð- an yst i salnum en þar er sagt frá klaustri á Munka-þverá, siða- skiptum og fleiru. I öllum deild- unum er sagan sögð í gegnum staði í Eyjafirði. Á stöpli verður upphleypt Iíkan af Eyjafirði í mælikvarðanum 1:100.000. í líkaninu verða ljós og takkaborð fyrir framan. Þegar Kaleikurinn frá Grund I Eyjatiroi. nann e, » silfri með sterkri gyllingu nema á flotunum upp M stéttinni þeir eru ógylltir. Á stéttbrun er grafið ar- talið mcccclxxxix, það er 1489. Kale'^"™ *Þ/ langelstur allra þeirra mörgu 9[f'Þo^asafn sem bera greinilegt smíðaártal. Vid. 9 a.b. mu, ýtt er á takka merktan ákveðnum stað í Eyjafirði kviknar ljós á við- komandi stað á líkaninu og hægt er að lesa sér til um staðinn. Eldri sýningar „Hér stóð bær“ er nafn á sýningu sem stendur á neðri hæðinni og er þetta síðasta sýningarsumarið. Sýningin er tileinkuð gamla bændasamfélaginu og torfbæjar- lífi. ,Akureyri Ijósmyndum" er einnig á sínu síð- asta sýningar- sumri en þar er úrval ljósmynda frá 1880 til 1960. Auk þess eru sýnd leikföng barna frá fyrri tíð og sett upp barnahorn með nýjum leikföng- um frá George Hollanders. Ge- orge hefur smíð- að fyrir Minja- safnið tréleik- föng sem vafa- laust eiga eftir að gera mikla lukku miðað við þær viðtökur sem þau hafa þegar fengið. Leikföngin eru sveitabær með allri áhöfn, mönnum, skepnum og farartækjum. Auk þess hef- ur George sér- smíðað fyrir Minjasafnið fjallahring kringum sveitabæinn og þar í, bæði tröllahelli og álfa- kirkju, að sjálfsögðu með tilheyr- andi trölla- og álfafjölskyldum. Meðal trölla og álfa leynast Iíka nafntogaðir draugar og þjóð- sagnapersónur úr Eyjafirði, eða hver hefur ekki heyrt talað um djáknann á Myrká og Hleiðar- garðsskottu? Leikföngin verða til afiiota íyrir yngstu safngestina og kosturinn við þau er ekki síst sá að með ímyndunaraflið að vopni má breyta álfakirkjunni í bensfn- stöð eða draugnum í engil ef svo ber undir, því leikföngin eru í ein- ingum sem setja má saman á Óþekkjaniegur konungur, skurð- mynd eða líkneski ættað úr Eyja- firði, sem er hluti afsýningunni ,Eyjafjörður frá öndverðu. Lfknesk- ið er ef til viH af Óiafi helga. Þjms 10950. MYND: BRINK marga vegu. Minjasafnskirkjan verður til sýnis á sömu tímum og safríið sjálft er opið. Kirkjan er timbur- kirkja frá Svalbarði við Eyjaljörð og var reist þar 1846 en flutt til Minjasafnsins og endurvígð 1970. Margvísleg starfsemi Miðað er að því að færa sýningar út um héraðið og meðal annars er nú unnið að þ\i að koma upp sýningum í Hrisey og Grenivík, þar sem verið er að gera við göm- ul hús í því skyni. Guðrún segir að slíkar sýningar geti vel orðið fleiri, enda sé það markmiðið að taka fyrir sögulegar minjar úti í héraðinu og gera þær sýnilegri og aðgengilegri. Hluri'erk safnsins er þó ekki aðeins að sýna muni, heldur og að safna og varðveita og er nú orðið nokkuð þröngt um muni sem eru í geymslu. „Það eru troð- fullar geymslur uppi á Naustum núna og við þurfum meira pláss,“ segir Guðrún. „Við erum að taka í gegn 300 fermetra geymslupláss í hlöðu á Naustum. Það er hlut- verk Minjasafnsins að varðveita sýnilega muni frá öllum tímum og ekki verður það auðveldara eftir því sem tíminn líður," segir Guðrún Kristinsdóttir minjavörð- Fyrirlestrar, göngur, sóngvökur... Auk nýrra og eldri sýninga sem nú eru í safninu er ýmis önnur starfsemi sem gestir geta nýtt sér til gagns og til gamans. Meðal þess sem á dagskrá er í sumar eru fyrirlestrar um miðaldaverslun- arstaðinn Gásir, starfsdagur í Laufási, fyrirlest- ur um kirkjulist í tengslum við sýn- inguna sem verð- ur f safríinu, kynn- ing á fornleifa- skráningu, en nú er unnið að þ\i að kortleggja fomleif- ar í Eyjafirði, og kynning á starfsemi safnsins. Þá verða sögugöngurnar á dagskrá sem fyrr og byrjað með Jóns- messugöngu þann 23. júní. Á þirðjudags- og fimmtudagskvöldum í júlí og ágúst verða haldnar Söngvökur í Minjasafnskirkjunni, þar sem flutt em sýnishom úr íslenskri tónlistarsögu, svo sem rímur, sálmar og eldri og yngri sönglög. Flyljendur em Hjörleifur Hjart- arson, Rósa Kristín Baldursdóttir, Kristjana Arn- grimsdóttir og Þórarinn Hjartar- son. Minjasafnið er opið alla daga klukkan 11-17 frá 19. júní til 15. september sem og á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum klukkan 20-23 í júlí og ágúst. Frá 16. september til 31. maí er safnið opið á sunnudögum klukkan 14- 16 en utan þess tíma eftir sam- komulagi. Skrifstofa safnsins er opin alla virka daga klukkan 8- 16. I safríbúð em seldir þjóðlegir minjagripir, póstkort og bækur- HI

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.