Dagur - 19.06.1999, Side 14

Dagur - 19.06.1999, Side 14
LÍF OG HEILSA LAUGARDAGIJR 19. JÚNÍ 1999 Thyptr Þúsundir kvenna dusta rykiö af hlaupaskónum og draga fram léttar buxur og hlaupabol því að í dag fer fram Kvennahlaupið um allt land. Hér koma nokkur praktísk ráð fýrir kon- ur sem ekki eru vanar hreyfingu. „Mestu máli skiptir að borða hollan og staðgóðan morgun- verð og ekki að vera södd, en alls ekki að fasta þegar maður fer að hlaupa. Það er mjög gott að borða kornmat og ávexti í morgunmat en maður má ekki borða einum til tveimur tímum fyrir áreynslu. Það er gott að drekka með morgunmatnum en ekki að drekka rétt fyrir hlaupið því að þá fyllist maginn. Það er betra að drekka á Ieiðinni, eftir kannski fimm kílómetra ef lengri vegalengdirnar eru farnar. Það skiptir hins vegar mjög miklu máli að drekka vel Helga Guömundsdóttir leggur áherslu á að konur klæðist léttum íþróttafatnaði, hlaupa- skóm og passlegum sokkum þegar þær fara f Kvennahlaupið í dag, hlusta svo á lík- amann og ganga bara ef þær eru ekki í þjálfun. mynd: hilu ist. Ef veðrið er ekki gott er hægt að fara í bolinn utan yfir. Svo er gott að vera í íþróttagalla en það er afar misjafnt hvemig íþróttabuxum kon- umar vilja vera í, það er bara ekki mælt með gallabuxum. Það er fínt að vera í stuttbuxum ef veðrið er gott, en við getum ekki reiknað með því,“ svarar Helga. Ganga og hlaupa tilskiptis - Er ekki liægt að klæða sig ú r efmanni verður heitt? „Það er allt í lagi að vera í síðbuxum þó að það sé heitt. Ef konumar eru í jakka eða peysu geta þær farið úr ef þeim fer að hitna. En það er engin þörf að kapp- klæða sig þó að það sé ekkert of heitt í lofti ef þær virkilega ætla að hreyfa sig og taka á,“ segir Helga og bendir þeim á, sem eru að byija í Gangan er góð hreyfing! á eftir,“ segir Helga Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Iþrótta fyrir alla. Kvennahlaupið fer fram á 80 stöðum um allt land í dag (sjá nánari upplýsing- ar í Lífi og fjöri í fimmtudagsblaði Lífs- ins í landinu) og má búast við að kon- urnar streymi þúsundum saman út á göt- ur til að skokka eina dagstund. Dagur hefur fengið Helgu, sem er vön íþróttum og hreyfingu, til að gefa konum, sem ef til vill eru óvanar hreyfingu og jafnvel að taka þátt í hlaupinu í fyrsta sinn, nokkur góð ráð. Gott að vera í stífum brjóstahaldara - Hvemig eiga konumar að vera húnar? „Eg legg mesta áherslu á að konumar séu í góðum skóm og að sokkarnir passi. Það er vont að vera í stórum sokkum þannig að maður fái blöðrur af því að skómir nudda fótinn illa eða það er hnútur einhvers staðar. Það er líka mikilvægt að vera í bijóstahaldara sem styður vel við bijóstin; sérstaklega ef konur eru með stór bijóst. Eg legg líka áherslu á að bolimir sjá- skokkinu, að ætla sér ekki of mikið í fyrstu. „Þær sem eru að byrja mega ekki ætla sér að hlaupa 5 km vegalengd og hlaupa allan tímann, en þær geta gengið þessa vega- Iengd ef þær gera það skynsamlega. Númer eitt, tvö og þijú er að hlusta á Iíkamann og ætla sér ekki um of, byija rólega og ganga eða skokka til skiptis. Það er ágætt að ganga á milli staura og hlaupa svo á milli næstu staura,“ segir Helga og leggur áherslu á að markviss, rösk ganga sé ótrúlega góð þjálf- un og gefi skokkinu ekkert eftir. -GHS Klóna fóstur Washington Post greinir frá því að banda- rískir vísinda- menn eru nú að herða sig í kapp- hlaupinu um að klóna fósturvísi manns og segja þeir markmiðið að geta Iæknað erfiða sjúk- dóma. Tveir vís- indahópar, sem hafa einkafjár- magn á bak við sig, eru að gera tilraunir sem geta leitt til þess að fósturvísir manns hefur verið klónaður. Annar hópurinn, Geron Corp í Kaliforníu, er meðvitað að reyna að klóna fósturvási manns, hinn, Advanced Cell Therapeutics í Massachusetts, stefnir að því að klóna blöndu af fósturvísi kýr og manns. Það verður aldeilis saga til næsta bæjar ef seinni klónunin tekst. Fóstur manns. Ekki er vitað hvernig fósturvísir manns og kýr myndi líta út, eins og bandariskur hópur vísinda- manna reynir að klóna. Ráð til að íéttast I tilefni Kvenna- hlaupsins birt- ast hér nokkur ráð fyrir konur sem vilja léttast. Þar er matar- æðið að sjálf- sögðu í lykil- hlutverki. 1. Ekki borða Borða meira af kartöfíum og grænmeti. Það er lykill- inn í baráttunni við yfir- þyngdina. smjör eða rjóma. 2. Slepptu smjörlíki. 3. Notaðu fjörmjólk eða Iéttmjólk í matargerðina. 4. Skerðu neyslu á osti niður og keyptu bara léttasta ostinn. 5. Ekki borða hvítt brauð, bara dökkt og gróft. 6. Borðaðu meira af grænmeti og kart- öflum. 7. Gott er að elda í miklu magni og frysta. 8. Avextir eru góðir á milli mála. 9. Niðurskomar gulrætur í léttjógúrt með kryddi er gott á kvöldin, sömu- Ieiðis léttpopp. 10. Drekktu mikið vatn en minna af bjór og víni. Kynlíf eftir fæðingu Fæðing barns er mikil áreynsla fyrir vefi leg- ganga og leg- háls, höfuð með- albarns er um það bil 36 sentí- metrar að um- máli og af því þarf verulega að teygja á fæðing- arveginum til að barnið komist harða. Oft þolir vefurinn ekki þetta álag og rifnar, mismikið, alveg frá því að vera smá skeina og upp í að vera al- varlegur áverki allt að enda- þarmi. Stundum sjá ljósmæður fyrir að vefurinn muni ekki þola álagið og ákveða að framkvæma svokallaðan spangarskurð áður en hann rifnar. Þá nota þær (já allar íslenskar ljósmæður eru konur) veglegt sax til að klippa í spöngina, niður frá leggöngum á ská, hægra eða vinstra megin við endaþarm. Yfirleitt finnur hin fæðandi kona sáralítið fyrir spangarskurðinum, þrýstingur- inn á spöngina er orðinn það mikill á þessu stigi málsins og oft hefur konan einnig þegið deyf- ingu, en þeir sem heyra hljóðið þegar skærin beittu sníða spenntan vefinn verða aldrei samir (reyna má að líkja eftir hljóðinu með því að nota stór matarskæri við sundurhlutun kjúklings). En nóg um splatter að sinni. Þegar spöng fæðadi konu hefur rofnað þarf að sauma vef- inn saman og það verk er venju- Iega í höndum ljósmæðra sem sinna því af stakri snilld. Eftir svona þrýsting, tog, rifur og bróderingar er ofur eðlílegt að bjúgur og eymsli séu til staðar í spöng og fæðingarvegi og víst er að margri sængurkonunni hrýs hugur við samförum eða öðru því er kann að hrófla við viðkvæmu skautinu á einhvern hátt. Það er jafnvel þrekraun að hafa þvaglát þessa fyrstu daga. En örvæntið eigi, yfirleitt grær spöngin vel og vandlega á komandi vikum. Hvenær má byrja aftur? Áður fyrr var konum harðbannað Nútíma Ijósmæður mæla með að parið finni það hjá sjálfu sér hvenær það er tilbúið til samfara. af læknum og ljósmæðrum að svo mikið sem hugsa um kynlíf fyrstu 6 vikurnar eftir fæðingu barns. Ef gangur er allur eðlileg- ur er sem betur fer á miklu und- anhaldi að ráðleggingar séu þess- ar. Nútíma Ijósmæður mæla þess í stað með að parið finni það hjá sjálfu sér hvenær það er tilbúið til samfara, já athugið við erum að tala hér um samfarir, varúðar- ráðstafarnirnar gilda ekki um knús og kel og munnmök og allt hitt kynlífið sem hægt er að stun- da án þess að limur snerti nokkurn tíma leggöng. Og ég sagði parið (en ekki konan) því fæðingarreynslan getur líka haft djúpstæð kynhryllingsáhrif á við- kvæman föður og gert hann frá- hverfan samförum einhvern tíma á eftir. Sérstaklega ef hann slys- ast í hamingjukastinu yfir nýju afkvæmi, að líta í átt að skauti konu sinnar sem hefur rifnað illa og á eftir að sauma. Það þarf lík- lega kjötiðnaðarmann eða álfka blóðvanan mann til að þola slíkt með góðu móti. Skynsemi Frekar er mælt með því að ný- bakaðir foreldrar viðhafi al- menna skynsemi og hreinlæti þegar þeir fara aftur að stunda kynlíf. Pabbinn þarf að gera sér vel grein fyrir því að kynfæri og kviður mömmunnar eru við- kvæm og hann þarf að hlusta vel á óskir hennar og taka tillit til. Eftir fæðingu tekur nokkrar vik- ur (2-6) fyrir legið að hreinsast af blóði (þá er fylgjustaðurinn að gróa) og þann tíma hefur konan blæðingar frá leggöngum sem eðlilegt er að fari minnkandi með vikunum, þ.e. liturinn dökknar og lýsist svo þar til útferðin er orðin Iitlaus og eðlileg. Ef parið er vant að láta tíðablæðingar ekki trufla sitt kynlíf hefur þetta ekki áhrif en annars gæti því þótt við- eigandi að bíða. Pabbinn þarf að vera natinn við Iim sinn og lauga hann vandlega sér í lagi ef mamman er saumuð og þau ákveða að hafa samfarir innan fárra vikna. Það mikilvægasta er þó að parið sé vel vakandi fyrir merkjum um sýkingu og bregðist fljótt við þeim með því að leita læknishjálpar. Þessi merki eru: Verkur í spöng eða legi, illa lykt- andi útferð, fersk blæðing frá leggöngum þegar hreinsunin er orðin brúnleit eða ljós og síðast en ekki síst hiti. KYIMLIF Ragnheiður Eiríksdóttin skrifar yfir í heiminn

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.