Dagur - 19.06.1999, Síða 17
LÍFIÐ í LANDINU
LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1999 - 33
Hvað værir þú...
... ef þú værir karlmaður?
Hvað ef ég væri af því kyni sem ég er ekki? Þetta er spurning sem fólk veltir ekki fyrir sér dag frá degi og fæstir spyrja sjálfan sig þess-
arar spurningar yfirleitt. Dagur fékk til liðs við sig þrettán konur til að svara spurningunni: Hvað værir þú ef þú værir karlmaður?
Veikara kynið
„Ætli ég væri ekki bara á ná-
kvæmlega sama stað og ég er
núna, bara karlkyns, sem sagt að
útskrifast úr MA,“ segir Hadda
Hreiðarsdóttir, nýstúdent á Ak-
ureyri. „Eg væri bara karlmaður,
ég væri veikara kynið í staðinn
fyrir það sterkara."
Auðmjúkur
„Ég væri sennilega að reyna bara
að vera auðmjúkur einhvers
staðar," segir Magga Stína, en
getur ekki rökstutt það frekar.
„Mér bara datt það svona í hug.
Ég hugsa að ég væri skrúðgarða-
meistari. Það er eitthvað svona
iðið og göfugt við það.“
Lögfræðingur
„Ég hefði sennilega fengið að
ganga í skóla,“ segir Auður Har-
alds rithöfundur og blaðamaður,
„sem ég fékk ekki af því að ég
var telpa. Mig langaði til að læra
Iögfræði þannig að ég væri sví-
virðilegur, siðlaus lögfræðingur í
dag.“
Tolvuhakkari
„Ég væri tölvuhakkari," segir
Andrea Ævarsdóttir, ljóðskáld
með meiru. „Mér finnst tölvur
mjög skemmtilegar og það virð-
ast miklu fleiri karlmenn komast
að í svoleiðis störfum heldur en
konur. Ég væri örugglega töhai-
hakkari.“
Með hærri laun
„Ég væri örugglega með hærri
laun og snillingur á grillinu. Að
öðru leyti væri ég að gera sömu
hluti og ég er að gera núna,“
segir Aslaug Dóra Eyjólfsdóttir,
formaður Kvenréttindafélags Is-
lands með meiru. „Ég væri
sennilega formaður Kvenrétt-
indafélagsins Iíka, ég held að
það sé engin fyrirstaða," bætir
hún við en mótmælir ekki að
hugsanlega væri hún formaður
Karlréttindafélags íslands.
„Mögulega. Þeir þurfa líka að
berjast fyrir sínum réttindum."
Atvinnumaður
í knattspyrnu
„Ég væri atvinnumaður í knatt-
spyrnu hjá Engladsmeisturum
Manchester United, engin
spurning," segir Vanda Sigur-
Birna Þórðardóttir: Ekki lögreglumaður
að handtaka herstöðvaandstæðinga.
geirsdóttir, knattspyrnuþjálfari
hjá KR. Vanda spilaði um tfma í
Svíþjóð en segir það hafa verið
áhugamennsku. Spurð um hvort
í svarinu felist það að leiðin í at-
vinnumennskuna hafi verið
greiðari fyrir karla en konur seg-
ir hún: „Hún var greiðari fyrir
karlmenn og er ennþá. Það er
annað hvort þetta eða þá að ég
væri þjálfari í úrvalsdeild karla.“
Myndarlegur
„Ég væri náttúrlega alveg gasa-
lega myndarlegur karlmaður,“
segir Birna Þórðardóttir, ritstjóri
Læknablaðsins. „Ég væri alla-
vega ekki lögreglumaður að
handtaka herstöðvaandstæð-
inga. Ég væri bara myndarlegur
herstöðvaandstæðingur, karl-
kyns.“
Lögreglumaður
„Ég væri örugglega mjög hátt
sett innan lögreglunnar,“ segir
Dóra Hlín Ingólfsdóttir, rann-
sóknarlögreglukona. „Maður er
alltaf á sama stiginu og ég tel
mig myndi hafa stokkið svolítið
hraðar upp metorðastigann ef ég
hefði verið karlmaður."
Eins og Steinn Ármann
„Ég væri bara á sama stað og ég
er,“ segir Helga Braga Jónsdótt-
ir, leikkona. „Ég væri leikari.
Það væri ekkert öðruvísi. Það er
að vísu skemmtilegra að vera
kona. Kannski væri ég eins og
Steinn Armann félagi minn. Það
er vika á milli okkar og við erum
svona male/female hliðin á
sömu manneskjunni. Já, ég væri
eins og Steinn Ármann."
Andrea Ævarsdóttir:
Tolvuhakkari.
Dóra Hlín Ingólfsdóttir:
Hraðari stökk upp metorðastigann.
Hljómsveitarstjóri
„Þetta er sú kostulegasta spurn-
ing sem fyrir mig hefur verið
lögð,“ voru fyrstu viðbrögð Mar-
grétar Bóasdóttur söngkonu.
„Þetta er óneitanlega skemmti-
legt umhugsunarefni. Ég hugsa
að ég væri hljómsveitarstjóri,“
segir Margrét og spurð um hvort
sú braut hefði verið auðveldari
ef hún hefði verið karlmaður
segir hún: „Ég er það ekki sem
kona og það segir kannski sína
sögu.“
Veðurfræðingur
„Ég valdi mér starf þar sem ég
stend jafnfætis karlmanni,“ segir
Unnur Ólafsdóttir, veðurfræð-
ingur og verkefnisstjóri flugveð-
urþjónustu. „Karlmenn hafa ver-
ið í meirihluta í þessu starfi og
eru það enn. Ég held að ég
standi þar sem ég myndi standa
ef ég væri karlmaður og hefði
sömu áhugamál, sem ég reikna
með að ég hefði. Það getur vel
Hadda Hreiðarsdóttir:
Veikara kynið.
Helga Braga Jónsdóttir:
Eins og Steinn Ármann.
verið að maður hefði reynt að
klifra hærra sem karlmaður, ég
veit það ekki. Mér finnst bara
gaman að vinna í veðrinu og vil
vera í því. Ég hef komist alveg
eins langt og ég hef kosið.“
Lögfræðingur í Ameríku
„Ég gæti alveg hugsað mér að
vera lögfræðingur í Ameríku,"
segir Halldóra Bjarnadóttir,
hjúkrunarfræðingur. „Ég held
ég myndi vilja vera í einhverju
svoleiðis. Ég get alveg hugsað
mér að verða rík, geta haft það
eins og mig langar til en ekki
fræg þannig að allir viti hver ég
er og ónáði mig daginn út og
inn.“
Bóndi
„Ég væri bóndi,“ segir Lára
Stefánsdóttir, deildarstjóri
tölvudeildar Menntaskólans á
Akureyri. „Alveg klárlega. Það
er það sem mig dreymdi um og
mér finnst alveg skelfilegt að
Margrét Kristín Blöndal:
Skrúðgarðameistari.
Vanda Sigurgeirsdóttir: Atvinnumaður
hjá Engiandsmeisturunum.
Margrét Bóasdóttir:
Hljómsveitarstjóri.
hafa ekki getað orðið bóndi. Ég
náði mér engan veginn í mann
sem átti land eða gat búið í
sveit eða neitt.“ En hefði það
verið auðveldara ef hún hefði
verið karlmaður1? „Kannski
hefði maður drifið í þessu ef ég
hefði verið strákur,“ segir Lára.
Lára Stefánsdóttir:
Bóndi.
Halldóra Bjarnadóttir:
Rík en ekki fræg.
Unnur Úlafsdóttir:
í sömu stöðu.