Dagur - 19.06.1999, Qupperneq 18

Dagur - 19.06.1999, Qupperneq 18
Þrátt fyrir að gamlingjarnir í Roll- ing Stones komi ekki til landsins, ætiar svo sannarlega ekki að verða skortur á heimsóknum góðra og þekktra rokktónlistar- manna til landsins. Hér á síðunni hefur nokkuð rækilega verið ti- undað framtak Kidda f Hljóma- lind, með Fugazi, Jon Spencer blues explotion og fleiri. Shelac og Pavement eiga enn eftir að koma og svo er meira að bresta á í komu erlendra sveita hingað til lands. Næstkomandi þriðjudag, frá því um hádegi til kvölds, verð- ur nefnilega blásið til mikillar tónleikaveislu í Reykjavík, sem jafnframt verður að teljast nokk- uð sérstæð. Auk tímasetningar- innar, á þriðjudegi um hádegi, er það tónleikastaðurinn sjálfur sem vekur athygli. Er þar um að ræða þakið á Faxaskálanum í Reykjavík þar sem sérstöku sviði með veggj- um allan hringinn verður komið upp. Og eins og sumir a.m.k. hafa orðið varir við, eru það eng- ar smásveitir sem fram munu koma. Tvær vinsælar breskar poppsveitir, Republica og East 17 koma þarna fram og eru verðugir fulltrúar breska unglingapopps- ins. Tvær amerískar sveitir verða einnig á ferðinni og er þar í öðru tilfellinu ekki um neina smásveit að ræða. Að hinum sveitunum ólöstuðum er Garbage þekktasta og vinsælasta sveitin sem þama kemur fram og er þá átt við á heimsvisu. Þar fer fremst í fokki söngkonan Shirley Manson, en auk hennar trommar í sveitinni sá frægi maður Butch Vig, sem heimsfrægur hefur orðið fyrir upptökustjórn sína, m.a. á ein- hverri merkustu rokkskífu tíunda áratugarins, Nevermind með Nir- vana. Síðast en ekki sfst verður svo hin framsækna og margræða rokksveit frá New York, Mercury Rev þarna á ferðinni. Hefur sú sveit verið á sveimi í um áratug, gefið út einar fjórar plötur og notið stigvaxandi vinsælda og virðingar. Til að gera þetta sann- kallaða Faxaskálafjör enn meira aðlaðandi verða svo fjórar af líf- Iegustu skemmtisveitum þjóðar- innar einnig með, Skítamórall, Land og synir, Sóldögg og SSSóI. Unglýður landsins ætti því ekki að láta sig vanta og hefur vænt- anlega stór hópur nú þegar tryggt sér miða í forsölu, sem m.a. hef- ur farið fram í Japis. Er þessi við- burður haldinn að frumkvæði út- varpsstöðvarinnar FM. Þrír ungir strákar, Jón, Georg og Kjartan, búsettir í Mosfellsbæn- um, eru þessa dagana að vekja meira umtal og athygli í íslenska tónlistarheiminum en flestir aðrir. I þau tvö ár sem nafn hljómsveitar þeirra, Sigur Rós, hefur verið kunnugt, hefur stemmningin reyndar lengst af verið fyrir hendi, eða frá því að fyrsta verkið þeirra í plastformi, smáplatan Von, kom út fyrir jól- in 1997. Var platan þar í góðum flokki á vegum Smekkleysu, sem bar samheitið Skært lúðrar hljóma. Endurvinnslu og endur- hljóðblöndunarútgáfan af Von, sem kallaðist Von brigði og kom út síðasta sumar, minnkaði ekki þessa stemmningu, þótt þar væri á ferðinni nánast byltingarkennd útfærsla á Von. Það hefur þvi myndast mikil eftirvænting eftir fyrstu stóru plötunni frá strák- unum þremur, Ágætis byrjun, sem formlega kom út á laugar- daginn var og fylgt var úr hlaði með útgáfutónleikum, mjög svo eftirminnilegum, í Islensku óp- erunni/Gamla bíó. Uppselt var á tónleikana og þeim útvarpað á Rás tvö. Er hvorutveggja víst nokkuð sjaldgæft núorðið, a.m.k. er íslensk hljómsveit á í hlut, en ekki að ástæðulausu ef að Iíkum lætur. Þessi plata, sem margir eru nú þegar farnir að telja eina þá merkustu í langan tíma og tónleikarnir mögnuðu, gætu nefnilega verið upphafið, byrjunin á einhverju meira og þá í stærra samhengi en nær til Is- lands. Verður tíminn að Ieiða í ljós hvort svo verður, en hér heima virðist jarðvegurinn nú þegar vel undirbúinn. Erlendis er svo reyndar einnig fyrsta skrefið í nánd, útgáfa á 12 tommu í Bretlandi. Poppfregnir *Fjóreykið, Adam Clayton, Larry Mulline, The Edge og Bono, betur þekktir sem ein allra vinsælasta hljómsveit heims, U2, er nú komin vel á veg með upptökur á sinni nýjustu plötu, þeirri níundu í röðinni af hljóðversgerð. Herma fregnir að hún verði að einhverju leyti afturhvarf til upphafsins hjá sveitinni og hefur Bono reyndar gefið það sjálfur sterklega í skyn. Við upptökuborðið eru kunn- ugleg nöfn, þeir Daniel Lanois og Brian Eno. ¥Ef ekkert hefur farið úr- skeiðis, verða í kvöld fínir og kraftmiklir rokktónleikar á Renniverkstæðinu á Akur- eyri. Kemur hin framsækna Bisund að sunnan til að spila og með henni verður allavega ein heimasveit, sú ofurkröft- uga Toy machine, er áður hét Gimp. *Sumarið hefur oft verið tíminn fyrir endurútgáfur ýmiskonar og er svo einnig nú. Hin merka plata Spil- verks Þjóðanna, Island, er nú einmitt að koma út í geislaformi. Önnur endurút- gáfa er svo Upp og niður með mönnum sem náskyldir voru Spilverkinu, Jooi og Kóla, eða Valgeir Guðjónsson og Sigurður Bjóla. *Eins og þeir sem fylgjast vel með í listaheim- inum vita, þá var söng- leikurinn Litla hryll- ingsbúð- in frum- sýnd nú fyrir skömmu vel Bubbi er „Auður °nnur“ f Litlu hryll- ingsbúðinni mjog og hefur gengið það sem af er. Geislaplata með lögunum úr söngleiknum er nú komin út með söng Stefáns Karls Stef- ánssonar, Þórunnar Lárus- dóttur, Bubba Morthens og fleiri sem taka þátt í sýning-

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.