Dagur - 19.06.1999, Síða 20
I
1
v §6- "Í'A V IÍÁ RÍ) AGll Ú' i $ ! ftflíí i$$9
R A Ð A l 1 G L Ý S 1 N G A R
AT VIN N A
Grunnskólar ísafjarðarbæjar
Við bjóðum betur -
miklu betur!
Flutningsstyrkur, lág húsaleiga,
eingreiðslur og launauppbót!
ísafjaröarbær varö til við sameiningu sex sveitarfélaga á norðanverð-
um Vestfjörðum 1. júní 1996. Hér hefur myndast öflugt sveitarfélag
með 4500 ibúum þar sem lögð er áhersla á menntun og uppbygg-
ingu skóla. í bænum eru fjórir skólar og eru þeir allir einsetnir. (
bæjarfélaginu er margháttuð þjónusta og atvinnustarfsemi, auk
þess sem Vestfirðir eru þekktir fyrir sérstæða náttúru og fjölbreytt
tækifæri eru til útivistar og íþróttaiðkana. Skólarnir hafa afnot af
góðum íþróttahúsum og f nágrenni bæjarins er eitt besta skíðasvæði
landsins.
ísafjörður
í Grunnskólanum á ísafirði eru 550 nemendur í 1.-10.
bekk. Skólinn var einsettur haustið 1998. Menntamálaráðu-
neytið hefur veitt skólanum styrk úr Þróunarsjóði grunn-
skóla skólaárið 1999/00 til að vinna að þróunarverkefni á
yngsta stigi sem hlotið hefur heitið „Saman í takt - heimili
og skóli.“ Einnig er skólinn aðili að Comeniusar-verkefni á
vegum Evrópusambandsins sem m.a. tekur til gagnkvæmra
heimsókna kennara. Áhersla er lögð á endurskipulagningu
stærðfræðikennslu og tölvu- og upplýsingatækni.
Við óskum eftir að ráða hugmyndaríka og metnaðarfulla
kennara sem eru tilbúnir til að leggja tíma og orku í sam-
starf innan árganga. Kennara vantar í eftirtaldar greinar:
Tónmennt, handmennt (textíl) og almenn bekkjarkennslu á
miðstigi. Skólastjóri er Kristinn Breiðfj. Guðmundsson, vs.
456 3044, hs. 456 4305 netfang: krbg@isafjordur.is
Aðstoðarskólastjóri er Jónína Ó. Emilsdóttir, hs., 456 4132,
netfang: jonin@isafjordur.is
Önundarflörður
Nemendur skólans eru 62 í 1.-10. bekk. Tvo kennara
vantar til starfa næsta skólaár. Meðal kennslugreina eru:
Enska, mynd- og handmennt, danska, heimilisfræði, tón-
mennt og sérkennsla. Skólastjóri er Sigrún Sóley Jökuls-
dóttir, s. 456 7670 (skóli) og 456 7755 (heima), netfang:
sigrun@isafjordur.is Aðstoðarskólastjóri er Kristrún
Birgisdóttir s. 861 8971
Við bjóðum betur - hafðu samband við skólastjóra
sem fyrst!
Borga rfjarðasveit
Leikskólastjóra
- leikskólakennara
vantar til starfa
í Borgarfjarðarsveit eru starfandi tveir leikskólar,
Andabær á Hvanneyri og Hnoðraból í Reykholtsdal.
Til starfa í Andabæ vantar leikskólakennara í 75%
starf frá og með 1. september nk.
í leikskólanum verða 22 börn frá 1 -5 ára.
Til starfa að Hnoðrabóli vantar leikskólastjóra og tvo
leikskólakennara frá og með 10. ágúst nk. í leikskól-
anum verða um 15 börn frá 1 -5 ára. Við erum að
leita af fólki með leikskólakennarmenntun eða aðra
uppeldisfræðimenntun/reynslu.
Umsóknafrestur er til 5. júli nk.
Umsóknum ber að skila á skrifstofu Borgarfjarða-
sveitar, pósthólf 60, 320 Reykholt. Upplýsingar
veita: Þórunn Gestsdóttir, sveitarstjóri í síma 435-
1140, Valdís Magnúsdóttir leikskólastjóri Andarbæj-
ar, sími 437-0120, Steinunn Garðarsdóttir forstöðu-
maður Hnoðrabóls, sími 435-1191, Ingibjörg Kon-
ráðsdóttir formaður skóla- og fræðslunefndar, sími
435-1221.
Sveitarstjóri
Byggðastofnun
Vilt þú hafa áhrif á þróun
menningar á landsbyggðinni?
Þróunarsvið Byggðastofnunar
á Sauðárkróki auglýsir eftir
nýjum starfskrafti
Við erum lítill hópur, sem hefur fengið það spennandi
verkefni að samhæfa aðgerðir atvinnuþróunarfélaga, rann-
sóknar- og menntastofnana og ýmissa ríkisstofnana varð-
andi byggðaþróun. Þróunarsviðið flutti til Sauðárkróks 1.
júlí sl. með nýju starfsfólki og nýjum verkefnum. Við flutt-
um í glæsilegt húsnæði í fögru umhverfi Skagafjarðar. Þar
er góð þjónusta, fjölbreytt menningarlíf og góð aðstaða til
útivistar í ósnortinni náttúru. Með Byggðabrúnni, sem er
nýtt myndsímakerfi til fundarhalda og fjarkennslu, hefur
Sauðárkrókur orðið miðstöð slíkra fjarskipta á íslandi.
Á verksviði Þróunarsviðs Byggðastofnunar telst m.a.:
• Samstarf við atvinnuþróunarfélög og faglegur stuðning-
ur við þau.
• Efling búsetuþátta, svo sem samgangna, umhverfis,
þjónustu, menntunar og menningar.
• Upplýsingasöfnun, rannsóknir á búsetuþáttum og stað-
bundnum möguleikum.
• Gerð og öflun innlendra og erlendra samstarfsverkefna.
• Gerð byggðaáætlunar fyrir landið allt og svæðisbund-
inna byggðaáætlana.
• Samskipti við ráðuneyti, ríkisstofnanir, sveitarfélög, há-
skóla og rannsóknarstofnanir.
Stjórn Byggðastofnunar hefur samþykkt að gera sérstakt
átak í eflingu menningarstarfsemi á landsbyggðinni í sam-
ráði við menntamálaráðuneytið, atvinnuþróunarfélög og
aðra aðila á landsbyggðinni. Við leitum að duglegum og
hugmyndaríkum starfskrafti til að annast það samstarf.
Krafist er háskólamenntunar á sviði menningar, lista eða
skyldra greina. Starfsreynsla á þessu sviði er æskileg.
Samstarfs- og samskiptahæfni eru mikilvægir eiginleikar.
Upplýsingar um starfið gefur dr. Bjarki Jóhannesson for-
stöðumaður Þróunarsviðsins, sími 453 6220.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsreynslu
skulu sendar fyrir 28. júní 1999 til Byggðastofnunar,
Engjateigi 3, Þósthólf 5410, 125 Reykjavík.
AKUREYRARBÆR
Rafveita Akureyrar
Rafmagnstæknifræðingur - verkfræðingur
Rafveita Akureyrar óskar eftir að ráða rafmagnstæknifræðing
eða verkfræðing til starfa sem fyrst.
Starfssvið: Tækni- og verkfræðistörf.
Umsjón og skráning gagna varðandi raforkukerfi Rafveit-
unnar. Meðal tölvukerfa Rafveitunnar eru stjórnkerfi, álags-
stýrikerfi, landupplýsingakerfi, gæðakerfi og pc-netkerfi
tengt IBM AS 400.
Hæfniskröfur: Reynsla af tölvukerfum s.s. stjórnkerfum
(scada system), Oracle gagnagrunni, og Microstation
teikniforriti.
1 boði er áhugavert starf í góðu vinnuumhverfi þar sem frum-
kvæði fær að njóta sín.
Laun samkvæmt kjarasamningi Kjarafélags Tæknifræðinga-
félags (slands og Stéttarfélagi verkfræðinga við Launanefnd
sveitarfélaga.
Upplýsingar um starfið gefur rafveitustjóri í síma 461-1300.
Umsóknareyðublöð fást í starfsmannadeild Akureyrarbæjar,
Geislagötu 9, Akureyri.
Umsóknarfrestur er til 2. júlí nk.
Starfsmannastjóri
/N FJÖLBRAUTASKÓU
nn VESTURLANDS Á AKRANESI
auglýsir:
Kennsla í
framhaldsskóla
Kennarastöður I eftirtöldum greinum eru nú lausar til
umsóknar:
• Danska, heil staða.
• Náttúrufræðigreinar, heil staða.
• Stærðfræði, heil staða.
• Kennsla á starfsbraut fyrir fatlaða, u.þ.b hálf
staða. (Getur hentað þroskaþjálfa, sérkennara
eða almennum kennara).
Umsóknarfrestur er til 24. júni.
Öllum umsóknum verður svarað.
Umsóknir skulu sendar Fjölbrautarskóla Vesturlands á
Akranesi, Vogabraut 5, 300 Akranesi.
Ekki þarf að nota sérstök umsóknareyðublöð.
Upplýsingar veita skólameistari og aðstoðarskólameist-
ari I síma 431-2544.
Skólameistari.
Leikskólakennarar
óskast í Hafnarflörð
í Hafnarfirði eru starfandi tólf leikskólar. Þar er unn-
ið faglegt og metnaðarfullt starf, en mismunandi
áherslur og leiðir eru I leikskólastarfinu.
Okkur vantar sem fyrst leikskólakennara í eftirtalda
leikskóla:
Arnarberg
Garðavelli
Hlíðarberg
Hlíðarenda
Hvamm
Hörðuvelli
Norðurberg
Vesturkot
Víðivelli
Upplýsingar gefur Oddfríður Jóns-
dóttir leikskólastjóri í s. 555-3493
Upplýsingar gefur Þórelfur Jónsdóttir
leikskólastjóri í s. 565-3060
Upplýsingar gefur Sigurborg Krist-
jánsdóttir leikskólastjóri í s. 565-
0556
Upplýsingar gefur Oddfríður Stein-
dórsdóttir leikskólastjóri í s. 555-
1440
Upplýsingar gefur Ásta María Björns-
dóttir leikskólastjóri I s. 565-0499
Upplýsingar gefur María Kristjáns-
dóttir leikskólastjóri I s. 555-0721
Upplýsingar gefur Anna Borg Harð-
ardóttir leikskólastjóri I s. 555-3484
Upplýsingar gefur Inga Líndal leik-
skólastjóri í s. 560-220
Upplýsingar gefur Svava Guðmunds-
dóttir leikskólastjóri í s. 555-2004
Ennfremur veitir Bryndís Garðarsdóttir leikskólaráð-
gjafi upplýsingar I síma 555-2340
Vakin er athygli á því að ef ekki fást leikskólakennar-
ar I ofangreindar stöður kemur til greina að ráða
starfsmenn með aðra uppeldismenntun eða leið-
beinendur.
Skólafulltrúinn í Hafnarfirði
wwwvisiris
F7RSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR