Dagur - 09.07.1999, Side 1
1,5 milljarðar fyrir
sölu ÚA-bréfauna
Allar líkur á ad 20%
hlutur Akureyrarbæj-
ar í Útgerðarfélagiuu
verði seldur á næst-
uuui. Tekist á uut söl-
una. Bæjarfulltrúi
miunihlutaus telur að
lántaka hefði verið
skynsamlegri til að
mæta fjárþörf.
Umdeilt skref var stigið í at-
vinnusögu Akureyrar í gær þegar
bæjarráð vísaði til bæjarstjórnar
tillögu um að öll bréf Akureyrar-
bæjar í Útgerðarfélagi Akureyrar
yrðu seld. Um er að ræða allt að
1500 milljóna króna sölu og á
Ásgeir Magnússon, formaður
bæjarráðs, von á að meirihlutinn
samþykki söluna. Ljóst er að
skoðanir eru mjög skiptar meðal
bæjarfulltrúa sem og bæjarbúa,
enda hefur Iengi verið tekist á
um eignaraðild bæjarins að UA.
Oddur Helgi Halldórsson, bæj-
arfulltrúi L-Iistans, lýsir sig al-
gjörlega andvígan sölunni.
Kristján Þór Júlíusson bæjar-
stjóri segir að um eðlilegt skref
sé að ræða frá því að fjárhagsá-
ætlun var lögð fram í desember.
Hvað ráðstöfun Ijárins varðar sé
af nógu að taka
en ekkert hafi
verið ákveðið.
„Eðlilega hefur
verið rætt að at-
vinnulífið fái vítt
og breitt að njóta
góðs af þessu.
Allt frá því að
hafa nægilegt
framboð af leik-
skólarýmum til
nýsköpunar í atvinnulífinu," seg-
ir bæjarstjórinn á Akureyri.
Þörf á peninguin
Ásgeir Magnússon bendir á að
Akureyrarbær standi í meiri
framkvæmdum en ráðstöfunarfé
leyfi og alltaf hafi verið rætt um
að taka málið til skoðunar. Stað-
an sé allt önnur nú gagnvart
eigninni en var þegar bærinn átti
meirihluta í ÚA. Sjálfsagt sé að
velta því fyrir sér hvort ekki sé
hægt að nýta peningana sem
Iiggja í ÚA-bréfunum með betri
hætti en ella. „Eg tel mjög líklegt
að bæjarstjórn samþykki söl-
una,“ segir Asgeir.
Um er að ræða 20% hlut og
hefur gengi bréfanna í ÚA farið
stighækkandi
allt árið. Skráð
gengi var um
6,3 í gær þannig
að söluverðið er
1200-1300
milljónir sam-
kvæmt því. Við
þá tölu má að
mati sérfræð-
inga bæta 10-
15% enda líkur
á að „slegist verði um bréfin" svo
vitnað sé í orð verðbréfasala. As-
geir segir engan veginn tímabært
að velta því fyrir sér hverjir muni
kaupa eða hvernig verði staðið
að sölunni. „Aðalatriðið er að fá
sem best verð fyrir bréfin.“
Oddur Helgi Halldórsson, full-
trúi L-listans á Akureyri, segist
mjög ósáttur, enda hafi L-listinn
haft á stefnuskrá sinni fyrir síð-
ustu kosningar að bréfin yrðu
ekki seld. „Þorri Akureyringa vill
að bærinn eigi áfram þennan
hlut og við bæjarfulltrúar eigum
að endurspegla vilja fólksins,"
segir Oddur. Hann bendir á mik-
ilvægi þess að tryggja stöðu fyrir-
tækisins innan bæjarins, enda sé
ÚA einn stærsti vinnustaður Ak-
ureyrar. „Ég sé enga ástæðu til
að selja þessi bréf og mun greiða
atkvæði gegn því.“
Frekar lán en eignasölu
Varðandi Ijárþörf bæjarins segist
Oddur frekar hafa kosið að auka
lántökur ef þess þurfi, enda njóti
bærinn mjög góðra vaxtakjara.
„Eg tel að ávöxtun útgerðarfé-
lagsins sé meiri en sem nemur
vöxtum af samsvarandi láni.“
Vildu selja strax
Oddur segir að fyrir bæjarráðs-
fundinum í gær hafi uppruna-
lega legið fyrir tillaga um að bæj-
arráð samþykkti söluna og bæj-
arstjóra yrði falið að leita tilboða.
Hann ásamt fulltrúa Framsókn-
arflokks hafi lagst gegn þessu og
lendingin hafi orðið sú að vfsa
málinu til bæjarstjómar. Bæjar-
stjórn mun afgreiða málið 20.
júlí nk. - Bl>
Feiknadýr
prófkjör
Sighvatur Björgvinsson sér fyrir
gríðarlega kostnaðaraukningu í
sambandi við prófkjör flokka í
nýju kjördæmaskipaninni þar
sem Iandsbyggðarkjördæmin
stækka. Sighvatur segir: „Vegna
þessa óttast ég að þingmenn eigi
eftir að sjá prófkjör sem eigi eng-
an samjöfnuð kostnaðarlega séð.
Dýrar auglýsingar verða eini
möguleikinn fyrir frambjóðendur
til að koma sér á framfæri í þess-
um stóru kjördæmum í prófkjöri.
Það getur enginn heimsótt hvert
byggðarlag á öllu svæðinu í próf-
kjörsbaráttu. Menn munu heim-
sækja fjölmennustu byggða-
kjarnana en síðan nota auglýs-
ingar.“ Þetta kemur m.a. fram í
fréttaskýringu í blaðinu í dag um
áhrif nýju kjördæmaskipunar-
innar á stjórnmál dagsins í dag.
Sjá bls. 8 og 9.
Þessir ungu ferðamenn voru að grilla í um 20 stiga hita á Akureyri í gær. Nú er ferðamannastraumurinn að kom-
ast í hámark og með biaðinu í dag fylgir 16 síðna sérblað um ferðir innanlands. mynd billi
Lausi stóll-
inn óræddur
„Þetta mál hefur ekkert komið
til kasta okkar í bankaráðinu og
hefur ekki verið á dagskrá allar
götur frá því að stóllinn losnaði
þegar Steingrímur Hermanns-
son hætti í júní á síðasta ári. Eg
hlýt að gera ráð fyrir því að stað-
an verði auglýst og að bankaráð-
ið afgreiði síðan tillögu til við-
skiptaráðherra," segir Þröstur
Olafsson, varaformaður banka-
ráðs Seðlabankans, í samtali við
Dag.
Fréttastofa Stöðvar 2 greindi
frá því í fréttum sl. þriðjudags-
kvöld að það væri frágengið mál
að Halldór Guðbjarnason, fyrr-
um Landsbankastjóri, myndi
setjast í þann bankastjórastól í
Seðlabankanum sem losnaði
þegar Steingrímur Hermanns-
son hætti fyrir rúmu ári. Degi
hefur ekki tekist að ná tali af
Finni Ingólfssyni, bankamála-
ráðherra, né Olafi G. Einars-
syni, formanni bankaráðs Seðla-
bankans. Hins vegar segja heim-
ildarmenn Dags að lengi hafi
staðið til að fá Halldór í stólinn
og var beðið eftir niðurstöðun-
um í rannsókn Lindarmálsins.
Nú er það mál frá og styttist
óðum í að Seðlabankinn færist
undir forsætisráðuneytið.
Æra óstöðugan
„Það er hins vegar mín skoðun
að menn ættu að nota tækifærið
til að fækka Seðlabankastjórum.
Til þess þarf lagabreytingu og
fram að því ætti að vera hægt að
búa við lögleysu eins og gert
hefur verið síðastliðið ár, en Iög-
in segja sem kunnugt er að
bankastjórarnir skuli vera þrír,“
segir Þröstur Olafsson.
Halldór Guðbjarnason vildi
ekkert tjá sig um málið í samtali
við Dag og sagði það „æra
óstöðugan að tjá sig um frétta-
flutning Stöðvar 2 af málinu."
- FÞG
Venjulegir og
demantsskomir
trúlofunarhringar
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI ■ SÍMI 462 3524
WORUJWIX EXPRCSS
EITT NÚMER AÐ MUNA
5351100