Dagur - 09.07.1999, Page 3
FRÉTTIR
Koimr og lýðræði
í 40 niillj óna útboð
Bandaríkjastjóm borgar fyrir komu Hillary.
Ráðstefnan Konur og
lýðræði í haust gæti
kostað ríkissjóð 50-
60 milljónir króna.
B andaríkj amenn
horga fyrir frú
Hillary.
Nýlega fór fram útboð hjá Ríkis-
kaupum vegna ráðstefnunnar
* „Konur og lýðræði við árþús-
undamót", sem ríkisstjórn Is-
lands býður til í Borgarleikhús-
inu 8. til 10. október næstkom-
andi. Oskað var tilboða í flug,
gistingu, veitingar, ferðir til
landsins og innanlands ásamt til-
boðum í fundargögn. Kostnaðar-
áætlun Ríkiskaupa hljóðaði upp
á 40 milljónir króna en 10 millj-
ónir spöruðust með útboðinu.
Tekið var tilboði Samvinnuferða-
Landsýnar um að koma nálægt
400 gestum til landsins fyrir 9
milljónir króna og tilboð Ráð-
stefna og funda bf. upp á 21
milljón var lægst í veitingar, gist-
ingu og ferðir innanlands. Ut-
boði vegna fundargagna var
frestað til hausts, þar sem end-
anleg dagskrá ráðstefnunnar lá
ekki fyrir.
Samkvæmt upplýsingum frá
Ríkiskaupum er þetta í fyrsta
sinn sem útboð vegna ráðstefnu
fer fram hér á landi. Þar sem um
stóra alþjóðlega ráðstefnu er að
ræða var farið eftir útboðsregl-
um á EES-svæðinu en þar segir
m.a. að bjóða verði út öll verk,
sem kosta meira en 16 milljónir
króna.
Undirbúningur fyrir ráðstefn-
una stendur sem hæst. Sem
kunnugt er ætlar forsetafrú
Bandaríkjanna, HiIIary Rodham
Clinton, að heiðra ráðstefnu-
gesti með nærveru sinni og verð-
ur það án efa hápunkturinn.
Ríkisstjórnin býður til ráðstefn-
unnar eins og áður sagði en rík-
isstjórn Bandaríkjanna og Nor-
ræna ráðherranefndin standa
einnig að dagskránni. Þannig
greiða Bandarfkjamenn fyrir
komu Hillary hingað en Qöldi
fréttamanna mun fylgja henni.
Reiknað er með um 400 gestum
á ráðstefnuna frá Bandaríkjun-
um, Rússlandi, Eystrasaltsríkj-
unum, Islandi og öðrum Norður-
löndum.
Vonast eftii styrkjum
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir
stýrir undirbúningi fyrir ráð-
stefnuna og með henni starfa á
sérstakri skrifstofu tvær konur úr
forsætisráðuneytinu. Ekki náðist
í þær þar sem þær voru á undir-
búningsfundi í Kaupmannahöfn
en að sögn Skarphéðins Stein-
arssonar, skrifstofustjóra í for-
sætisráðuneytinu, var í upphafi
reiknað með heildarkostnaði upp
á 63 milljónir króna. Með útboð-
inu og styrkjum frá Norrænu
ráðherranefndinni, og jafnvel
einkaaðilum, mun sá kostnaður
væntanlega lækka, að sögn
Skarphéðins.
A ráðstefnunni á að kynna og
ræða áætlanir um hvernig
tryggja megi að konur geti notað
lýðréttindi sín til að taka fullan
þátt í mótun þjóðfélagsins.
Þessu markmiði verður fylgt eft-
ir með sérstökum verkefnum í
samvinnu stjórnvalda, frjálsra fé-
lagasamtaka og einkaaðila. - bjb
Guðni Ágústsson.
Hraði
smgilsins
Nú er Guðni orðinn ráðherra
þessa sama ráðuneytis sem
hann gagnrýndi svo hart og því
Ieitaði Dagur til Guðna um
hvort ráðuneytið undir stjórn
hans ynni enn á hraða snigils-
ins. „Ég gagnrýndi ákveðinn
seinagang í þessu ráðuneyti sem
orð fór af og ég get viðurkennt
að þetta er ekki eina ríkisstofn-
unin sem þetta á við um. Ég tel
mér skylt að gera miklar kröfur
til sjálfs míns í þessu starfi og vil
sjá árangur fyrir þjóðina og
landbúnaðinn. I ráðuneytinu er
margt ágætt fólk og ég vil hafa
kerfi sem bæði virkar vel og
fljótt. Þetta hef ég rætt við ráðu-
neytisstjórann og erum við nú
að fara yfir það. Það eru gerðar
miklar kröfur til landbúnaðar-
ráðuneytisins og ég geri kröfur
til þess en ég hef engar áhyggjur
af því að við í ráðuneytinu náum
ekki saman um að hafa þetta
ráðuneyti í fremstu röð,“ segir
Guðni. - ÁA
Hafnar niðurstöðu
uni EngeyjarvöUiim
Júlíus Vífill Ingvarsson borgar-
fulltrúi og helsti talsmaður nýs
innanlandsflugvallar með land-
fyllingu um Engey, hafnar þeirri
niðurstöðu í skýrslu Borgarverk-
fræðings og Borgarskipulags að
hugmyndin hafi marga ókosti og
geti ekki talist raunhæf. „Ég tel,
miðað við hversu grunnt menn
fara í þessari könnun og hversu
henni er að mörgu leyti ábóta-
vant, að málið sé á engan veg
fyllilega kannað og niðurstöð-
urnar rangar," segir Júlíus Vífill.
Hann segist hafa lagt fram til-
lögu um að skoðaður yrði fýsi-
leiki þess að flytja flugvöllinn úr
Vatnsmýrinni og færa hann út f
Engey og segir þetta hafa marga
kosti framyfir hugmyndir um
flugvöll úti í Skerjafirði.
„Það sem fyrir mér vakir er
fyrst og fremst að í Vatnsmýrinni
fengist verðmætasta byggingar-
land sem fyrirfinnst á Suðvestur-
Júlíus Vífíll Ingvarsson borgarfulltrúi:
Hallast að því að könnun Borgar-
skipulags hafi ekki verið nægjanlega
hlutlaus.
horninu. Ég hef sjaldan heyrt
menn draga úr þeim möguleik-
um sem slíkt land myndi skapa
varðandi uppbyggingu miðbæjar-
ins. Það kemur því mjög á óvart
þegar ég les skýrsluna að Borgar-
skipulagið dregur úr þeim mögu-
Ieikum og kostum sem fylgja því
að byggja upp Vatnsmýrina og
telja öfugt við alla aðra að upp-
bygging þar geti haft neikvæð
áhrif á miðbæinn. Ég Iýsi furðu
minni á þessari niðurstöðu Borg-
arskipulags og tel hana alranga.
Ef eitthvað getur eflt miðbæinn
er það einmitt að vegleg byggð
rísi í Vatnsmýrinni. Það vekur
síðan athygli að þegar verið er að
ræða um uppbyggingu á landfýll-
ingum út í Akurey er ekkert
minnst á neikvæð áhrif á miðbæ-
inn. Þar með veltir maður því
fyrir sér hvort þarna endur-
speglist fyrirfram mótaðar hug-
myndir og hvort menn hafi ekki
gengið að gerð þessarar athugun-
ar með nægjanlega hlutlausum
hætti," segir Júlíus Vífill. - FÞG
Reykjavikurkvóti
minnkandi
Aflamark Reykvíkinga hefur
hlutfallslega minnkað um fjórð-
ung á síðustu þremur árum; úr
rúmlega 10,2% af úthlutuðum
kvóta fiskveiðiárið 1995/96 nið-
ur í 7,85% á yfirstandandi fisk-
veiðári, samkvæmt frétt í Ægi,
sem segir þennan mun samsvara
um 3.000 þorskígildistonnum.
Hlutur krókabáta hefur hins veg-
ar ekki breyst, er í kringum 6,4%
bæði árin.
Hjá Ægi segja menn þó rétt að
hafa í huga að skýringarnar á
þessari Iækkun aflamarks kunni
að Iiggja í niðurskurði aflaheim-
ilda í tegundum sem vegi þungt í
kvóta höfuðborgarinnar. Þannig
hafi rækjukvóti til að mynda
minnkað, sem komi greinilega
fram hjá stóru rækjuútgerðunum
( Reykjavík: Pétri Jónssyni RE og
Helgu RE. - HEl
Kio í Hæstarétti í næstu viku
Málflutningur í máli Kio Briggs mun hefjast í Hæstarétti næsta mið-
vikudag þrátt fyrir réttarhlé Hæstaréttar sem er í júlí og ágúst. Fyrir
rúmri viku sýknaði Héraðsdómur Reykjavíkur Kio Briggs fyrir stór-
felldan innflutning á e-pillum. Rikissaksóknari áfrýjaði málinu strax til
Hæstaréttar. Að sögn embættis ríkissaksóknara fara mál sem Hæsti-
réttur hefur vísað aftur til héraðs yfirleitt frekar fljótt aftur upp í
hæstarétt sé þeim áfrýjað eins og hér er tilfellið. Hæstiréttur hefur úr-
skurðað Kio Briggs í farbann þar til dómur fellur í Hæstarétti en þó
ekki lengur en til 1. október næstkomandi. Nú ætti því að styttast í
lokaniðurstöðu málsins. - ÁÁ
Uppbyggiug Hóluiatúushverfis í Bessa-
staðahreppi hafiu
Byggingafélögin Ármannsfell og Ulfarsfell, sem eru hluti af samsteypu
íslenskra aðalverktaka, munu á næstu misserum standa að uppbygg-
ingu íbúðasvæðis í landi Traðar, Deildar og Landakots í Bessastaða-
hreppi, alls 58 íbúðir, 23 einbýlishús, 9 raðbús, 8 keðjuhús og 18 par-
hús. Byggingasvæðið hefur verið nefnt Hólmatún.
Gerður hefur verið samningur við sveitarstjórn Bessastaðahrepps
um uppbygginguna og munu félögin sjá um alla þætti uppbyggingar-
innar, s.s. kaup á landi og fjármögnun; skipulagninu og hönnun;
gatnagerð, lagningu fráveitu og vatnsveitu; hönnun og byggingu húsa
og sölu íbúða, markaðssetningu og kjTiningu. Áætluð framkvæmdalok
eru í desembermánuði árið 2000. - GG
Tal í Borgarfjörðiim
Tal-GSM síma er nú hægt að nota í Borgarfirði. Stefán Kalmannsson,
nýráðinn bæjarstjóri Borgarbyggðar, tók fyrsta GSM-sendi Tals í notk-
un í gærmorgun en hann er staðsettur í miðju Borgarnesi. Þórólfur
Árnason, forstjóri Tals, var viðstaddur. Fyrsta samtalið var milli Stef-
áns bæjarstjóra og Þorbjörns Hlyns Arnasonar, sóknarprests að Borg,
en hann er bróðir Þórólfs, forstjóra Tals. Sendirinn í Borgarnesi á að
þjóna stærstum hluta Borgarbyggðar og vestur á Mýrar. Fleiri sendar
verða settir upp í Borgarfirði innan tíðar á vegum Tals. - GG
Islandshaúki keypti flest Baugshréfin
Utboði á nýju 40 milljóna króna hlutafé að nafnvirði í Baugi hf. er Iok-
ið. Islandsbanki sölutrj'ggði útboðið en hluthafarnir neyttu forkaups-
réttar að um fjórðungi hlutafjár eða 10,7 milljóna að nafnvirði. I fram-
haldi af því keypti Islandsbankinn eftirstöðvar hins nýja hlutafjár.
k nov :
uuiy/íc