Dagur - 09.07.1999, Blaðsíða 12
ÍÞRÓTTIR
Simi 462 3500 • Hólabraut 12 • www.nBtt.is/borgarbio
Sýnd kl. 19 og 21
Sýnd kl. 17 og 23.40
DMX
I3BCLEY
Stefnir í spennandi
úrslitaleik á HM
Á laugardag inuim
BaudaríMu og Kína
leika til úrslita á
heimsmeistaramóti
kvenna í knattspymu
sem nú fer fram í
Bandaríkjunum.
Leikurinn fer fram á Rose Bowl
leikvanginum í Pasadena sem
tekur 90.000 manns í sæti og er
þegar uppselt á leikinn. Til við-
miðunar má geta þess að 80.000
manns sáu úrslitaleikinn á HM
karla í Frakklandi.
Clinton Bandaríkjaforseti og
frú munu mæta á völlinn og er
víst að mikið verður um dýrðir
að hætti Bandaríkjamanna. Mik-
ill áhugi hefur verið fyrir leikjum
bandaríska liðsins í keppninni og
hefur verið uppselt á alla leiki
þess.
Bæði liðin koma taplaus til
keppni í úrslitaleikinn, en
Bandaríkin unnu Nígeríu, N-
Kóreu og Danmörku í riðla-
keppninni og í 8-liða úrslitum
unnu þau Þýskaland 3-2 og síð-
an Brasilíu 2-0 í undanúrslitum.
Kínverska liðið vann Svíþjóð,
Astralíu og Ghana í riðlakeppn-
inni, Rússland 2-1 í 8-liða úrslit-
unum og síðan Noreg örugglega
5-0 í undanúrslitunum. Þær
koma því fullar sjálfstrausts í
leikinn og ætla sér örugglega sig-
ur og hefna þar með ófaranna
frá síðustu HM kvenna, sem
fram fór í Kína fyrir fjórum
árum. Þar sigruðu bandarísku
stúlkurnar og komu heim fær-
andi hendi, með HM-bikarinn.
Að mati sparksérfræðinga hef-
ur kínverska liðið verið mun
sterkara það sem af er og sýnt
mikið öryggi í leikjum sínum á
mótinu. Heimavöllurinn gæti þó
haft nokkuð að segja fyrir það
bandaríska og ekki ónýtt að hafa
allan áhorfendaskarann á sínu
bandi.
Úrslit leikja í 8-liða úrslitum:
Noregur - Svíþjóð 3-1
Kína - Rússland 2-1
Brasilía - Nígería 4-3
Bandaríkin - Þýskaland 3-2
Undanúrslit:
Kína - Noregur 5-0
Bandaríkin - Brasilía 2-0
Hér að neðan sjáum við loka-
stöðuna í riðlunum.
A-riðill
L U J T Mörk S
Bandaríkin 3 3 0 0 13-1 9
Nígería 3 2 0 1 5-8 6
N-Kórea 3 1 0 2 4-6 3
Danmörk 3 0 0 3 1-8 0
Bandaríkin og Nígería áfram í 8-Iiða úrslit
C-riðill
L U J T Mörk S
Noregur 3 3 0 0 13-2 9
Rússland 3 2 0 1 10-3 6
Japan 3 0 1 2 1-10 1
Kanada 3 0 1 2 3-12 1
Noregur og Rússland áfram í 8-Iiða úrslit
B-riðill
L U J T Mörk S
Brasilía 3 2 1 0 12-4 7
Þýskaland 3 1 2 0 10-4 5
Ítalía 3 1 1 1 3-3 4
Mexíkó 3 0 0 3 1-15 0
Brasilía og Þýskaland áfram í 8-liða úrslit
D-riðill
Kína L 3 U 3 J 0 T 0 Mörk 12-2
Svíþjóð 3 2 0 1 6-3
Astralía 3 0 1 2 3-7
Ghana 3 0 1 2 1-10
Kína og Svíþjóð
áfram í 8-liða úrslit
Eistiim Jaan Kirsipuu í gulu
treyjunni á Tour de France
Belginn Tom Steels vann 2.
áfanga hjólreiðakeppninnar
Tour de France, sem hjólreiða-
menn líta á sem óopinbera
heimsmeistarakeppni í íþrótt-
inni. í 3. áfanga sem hjólaður
var á þriðjudag, 195 km leið
milli Nantes og Laval, varð Belg-
inn einnig hlutskarpastur. I
fyrradag var hjóluð 194 km Ieið
milli Laval og Blois, í gær var
hjólað milli Blois og Amiens og í
dag verður hjólað til Meuseuge.
í heildarkeppninni er Eistinn
Jaan Kirsipuu í forystu en hann
náði henni af Bandaríkjamann-
inum Lance Armstrong, sem er
með krabbamein, en lætur það
ekkert hafa áhrif á sig. A öðrum
degi mótsins, milli Montaigu og
Nantes, lentu 10 hjólreiðamenn
í einni bendu í árekstri á mjórri
spildu, Passage du Gois, þ.m.t.
,?umir. af', fremjtu p).öpnunujT! .en,
aðrir sem voru í baráttunni um
efstu sætin, s.s. Alex Zulle,
Michael Boogerd og Ivan Gotti,
komust ekki fram hjá kraðakinu
og töpuðu dýrmætum mínútum.
Tveir hjólreiðamannanna voru
fluttir á sjúkrahús og eru úr leik.
A sunnudag byrja hjólreiða-
mennirnir að hjóla í fjöllunum
og segir Armstrong að þá byrji
hin eiginlega keppni enda hefur
keppnin þar oft verið mjög
spennandi.
Franski hjólreiðamaðurinn
Richard Virenque hefur verið
undir sérstöku eftirliti frönsku
eiturlyfjanefndarinnar en hann
varð uppvís að neyslu á Tour de
France 1998. Fleiri keppendur
mega eiga von á því að lenda í
fyrirvaralausri rannsókn. Sigur-
vegari ársins 1998 var Italinn
Marco Pantani, árið 1997 sigr-
aði Þjóðverjinn Jan Ullrich og
1996 Daninn Bjarpe Ffiis, en,
• m er ekki með nú vegna
meiðsla á hendi, sem hann hlaut
á móti í Sviss skömmu fyrir Tour
de France. Bjarne Riis, sem er
35 ára, hefur hjólað fyrir þýska
liðið Telekom sióan a ái. .u
1995, en talsmaður þess hefur
sagt að samingurinn við hann
verði ekki endurnýjaður. Tel-
ekom hefur einnig misst sigur-
vegarann 1997, Jan Ullrich,
vegna meiðsla. — GG
Úrslit
leikjaí
gærkvöld
Bikarkeppni KSI
Stjarnan - KR 1-3
Breiðablik - Valur 2-0
1. deild karla
KA-Dalvík. ^ 0-0