Dagur - 18.09.1999, Side 7

Dagur - 18.09.1999, Side 7
Xfe^Mir op.ot ,ri «\v,\% 'iflf-i '\f\\ - <:'? LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1999 - 23 LÍF/Ð í LANDINU hlutunum sem Landssíminn hafði keypt og síðan mundi Is- lenska útvarpsfélagið hf., kaupa alla hlutina. Einn af þessum hlut- höfum, sem við vorum búnir að gera skriflegan samning við, kom til mín og sagði að það væri mikill órói í kringum þessi viðskipti, meðal annars hefði menntamála- ráðherra hringt í sig. Framhaldið var það að þessi aðili seldi Lands- síma Islands hf., sinn hlut, aðrir fylgdu svo í kjölfarið.“ - Þú sagðir i sömu grein að Dav- tð Odsson hafi reynt að koma í veg fyrir viðskiptin með FBA-hlutina „með viðtölum við sjálfstæðis- mennina í stjómum sparisjóðanna vítt og hreitt um landið". Flvað hefur þú fyrir þér í þessu? „Eg hef orð manna fyrir því.“ - Flvað finnst þér um þessi meintu afskipti forsætisráðherra og menntamálaráðherra ? „Afskipti ráðherra eða annarra stjómmálamanna af viðskiptum á ftjálsum markaði eru með öllu óþolandi. Þeirra hlutverk er að setja hinar almennu Ieikreglur en ekki hlutast til um einstök við- skipti, þó þeim geðjist ekki að þeim sem hlut eiga að máli. Ráð- herrar sem haga sér eins og for- sætisráðherra hefur ítrekað gert virðast hafa gleymt öllum megin- kenningum um hlutverk nkis- valdsins í þeirri stjórnskipan sem við búum við hér á Iandi.“ - Heldurðu að þessir menn hafi setið oflengi að völdum? „Eg held að Davíð Oddsson sé búinn að vera allt of lengi við völd, fyrst sem borgarstjóri og síð- an forsætisráðherra. Hann þyrfti að kynnast mótlæti." - Áttu von á að hann muni þurfa að lifa það? „Nú þegar verðbólgudraugur- inn virðist vera að vakna á ný kann vel að vera að Davíð Odds- son kynnist mótlæti, sem hann hefur ekki þckkt sem ráðherra, nema hann finni sér leið út úr stjómmálum áður en til þess kemur að hann lendi í miklum mótbyr. Hann er ekki manngerð sem þolir mikið mótlæti." - Ertu sammála þvt að í fari hans gæti einræðistilhurða, eins og andstæðingar hans haldafram? „Eg þekki Davíð Oddsson ekki persónulega en hef fylgst með störfum hans rétt eins og hver annar Islendingur. Mér finnst mjög sérkennilegt að Davíð Oddsson hefur hvað eftir annað tekið fram íyrir hendurnar á sam- ráðherrum sínum. Hann tók fram fyrir hendumar á Friðrik Sophus- syni, eins og frægt er varðandi skattlagningu tekna blaðbera. Hann „dómineraði" umræðu um viðskipti með hluti í Fjárfesting- arbanka atvinnulífsins en það málefni er ekki á hans könnu og bankinn ekki undir hans ráðu- neyti samkvæmt lögum, sem Al- þingi hefur sett. Hann blandar sér þessa dagana mjög í sam- keppnismál sem eru ekki á hans verksviði sem ráðherra. Nú er það smásöluverslunin sem á hug hans allan. Spyija má, af hveiju þessi ágæti ráðherra tjáði sig ekkert um smásöluverslunina og samþjöpp- un eignarhalds í fyrra, þegar Hag- kaupsljölskyldan var fyrir milli- gögnu FBA og Kaupþings að losa einhveija milljarða með því að koma Hagkaupi og Bónus í eina sæng. Ráðherra sem þekkir ekki valdamörk sín eða virðir þau í það minnsta ekki hefur kannski ein- hveija einræðiskennd." Talað við Styrmi - Hvemig horfa tslensk stjórn- mál samttmans við þér? „í dag snúast stjórnmál á Is- landi ekki um neitt. Það er engin skýr pólitísk stefna á nokkru sviði. Það var til dæmis ckki kosið um utanríkismál í síðustu Alþingis- kosningum. Það virðist enginn þora að tjá sig opinskátt um það hvort við eigum að ganga inn í Evrópusambandið eða ekki. Stjómmálaflokkamir virðast allir eins, sá eini sem sker sig úr er flokkur Steingríms J.Sigfússonar.“ - Ertu fylgjandi inngöngu ís- lands i Evrópusamhandið? „Já, ég myndi greiða atkvæði með því. Það sem hefur komið frá því óbeint hingað til hefur bætt íslenskt samfélag. Með aðild getur Island, þó lítið sé, líka haft einhver áhrif á framvindu mála.“ - Heldurðu að máttleysi Sam- fylkingar styrki Sjálfstæðisflokk- inn? ,/dveg ömgg- lega. Samfylking- inn á ekki forystu- mann og hefur því miður enga fast- mótaða heildar- stefnu.“ - Ég hef heyrt sögur af þvi að inn- an Samfylkingar finnist menn sem vilji ólmir fá þig til forystu. „Það held ég að geti ekki verið rétt.“ - Myndirðu skorast undan ef til þín yrði leitað? „Ég held ég hafí enga foringja- hæfíleika." - Hvar staðsetur þú þig í pólittk? „Ég er hvergi flokksbundinn. Ef til er eitthvað sem heitir vinstri og hægri í pólítík og ef hægristefna endurspeglast í gerðum Sjálf- stæðisflokksins, þá má staðsetja mig vinstra megin.“ - Þú hlýiur að hafa skoðun á því hver sé heppilegur leiðtogi Sam- fylkingar? „Ég held að Ingibjörg Sólrún hljóti að vera heppilegur Ieiðtogi Samfylkingar.“ - En nú virðist vera viss tregða til að fá hana til starfsins, innan Samfylkingar virðast menn horfa fyrst og fremst á sjálfa sig sem framtíðarleiðtoga. „Vandamál Samfylkingar er að þar eru alltof margir að reyna að tryggja sér- stöðu. Fulltrúar gömlu flokk- anna, sem að Samfylkingunni standa, verða að átta sig á að þeirra tími er lið- inn hvað forystu nýs stjórnmála- afls varðar. Ég held að Ingibjörg Sólrún hafi sýnt og sannað sem leiðtogi R-listans í borginni að hún er frábær Ieið- togi. Leiðtogi sem getur tekið af skarið þegar því er að skipta og kann auk þess að sætta ólík sjón- armið, en slíku hlýtur ávallt að vera til að dreifa í stórum stjóm- málaflokkum. Það er mín skoðun að menn og konur innan Sam- fylkingarinnar eigi að víkja fyrir henni.“ - Á liðnum áratugum hefur hópur fjármálamanna innan Sjálfstæðisflokksins reynt að keppa við Kolkrahha-veldið en gengið illa - samanher Hafskip og Amar- flug. Núna híður Kolkrahhinn hins vegar hvem ósigurinn áfætur öðrum, svo sem t SH og FBA. Hvað skýrirþessa hreytingu? „Það hefur orðið mikil breyting á íslensku samféiagi og sérstak- lega Ijármálalífí á síðustu fímmt- án árum. Aðgengi að peningum til Ijárfestinga og nýsköpunar er allt annað og betra. Nú þarf ekki lengur að eltast við alls kyns leyfí, bein eða óbein frá ráðherrum, eða skýra ritstjórum Morgun- blaðsins frá fyrirhugðum Ijárfest- ingum eða viðskiptum til að tryggja stuðning þeirra. En þannig virtist mér það vera þegar ég fór að hafa afskipti af viðskipt- um hér í Reykjavík seint á síðasta áratug. Menn spurðu oft: er búið að ræða þetta við Styrmi? I opnu samfélagi þýðir ekki að vera með pólitíska stýringu á við- skiptum. Það er nauðsynlegt að þekkja þær reglur sem maður er að spila eftir á hverjum tíma og spila rétt eftir þeim án þess að leita eftir pólitískum stuðningi. Þannig hefur Jón Olafsson unnið og þannig trúi ég að Jóhannes í Bónus hafí unnið. Finni menn að verið sé að leggja stein í götu þeirra fara þeir bara eitthvert annað með Ijárfestingar sínar „ Mun ekki tilgreina heimildarmenn - Vtkjum aftur að grein þinni i „Ég held að Ingibjörg Sólrún hafi sýnt og sannað sem leiðtogi R-listans í borginni að hún er frábær leið- togi... Það er mín skoðun að menn og konur innan Samfylk- ingarinnar eigi að víkja fyrir henni.“ Degi. Kjartan Gunnarsson segir hana róg og lygar t sinn garð. „Ég fer ekld með lygar. Ég er að segja það sem við mig var sagt þegar ég var í forsvari fyrir Is- Ienska útvarpsfélagið 1994 og hefur verið endurtekið við mig síðar við önnur tækifæri." - En er ekki vafasamt að vitna t menn sem hugsanlega eru ekki reiðuhúnir að staðfesta orð stn frammifyrir dómstólum? „Ég mun ekki tilgreina heimild- armenn mína fremur en Agnes Bragadóttir blaðamaður sem á sínum tíma neitaði að tilgreina hveijir sögðu henni allt um mál- efni SÍS innan Landsbankans. I þessu máli verða menn að horfa á heildarmyndina. Kjartan Gunn- arsson er kosinn pólitískri kosn- ingu af Alþingi til setu í bankaráði Landsbanka Islands og þar gætir hann pólitískra hagsmuna Sjálf- stæðisflokksins. Málsókn á hend- ur mér út af orðum sem eru sönn verða einungis til að viðhalda um- ræðunni um hið gamla spillta pólitíska bankakerfi, sem hefur verið við lýði alltof lengi hér á landi. Sé eitthvert mark takandi á skýrslu Ríkisendurskoðunar um Landsbanka Islands, sem var mikið til umræðu í fyrra, verður ekki séð að bankaráð bankans hafi starfað með sérstökum myndarbrag að rekstri bankans undir forsæti Kjartans. Ég hef aldrei haldið því fram að Kjartan hafi tekið einstök mál um lánveitingar upp í bankaráðinu. Ég hlýt hins vegar að spyija Kjart- an að því þegar út í málaferlin er komið hvers vegna hann var að gera sér ferð úr höfðuðstöðvum Landsbankans nú í sumar í eitt af útibúum bankans til að fá aðgang að samningum um Amarnesland- ið. Var hann þar á vegum banka- ráðsins?" - Af hverju skrifaðirðu þessa grein í Dag? Hefði ekki verið hetra að láta það vera svona með tilliti til eftirmála? „Ugglaust hefði verið langbest að þegja og hlýða en sennilega hef ég aldrei kunnað að þegja og hlýða. Þegar svona endalaust bull á sér stað, eins og öll umræða for- sætisráðherra og félaga hans um FBA-málið var orðin fannst mér ég verða að láta í mér heyra og benda á hvað hún væri í raun fá- ránleg og í hreinni andstöðu við allt sem þessir ágætu menn hafa sagst standa fyrir. I þetta sinn stóð ég líka álengdar, var ekki í hringiðu viðskipta Jóns og hafði tíma til að velta þessum málum vel fyrir mér.“ - En þetta geta orðið dýr skrif. „Þau geta kostað mig peninga en það verður þá bara að hafa það. Ég hlýt að geta önglað sam- an fyrir þeim kostnaði sem kann að falla á mig fari svo ólíklega að ég verði dæmdur." - Hvaða afstöðu hefur þú sem lögmaður til meiðyrðamála? ,/Era manna verður að njóta refsi- og bótaverndar. Ég er hins vegar þeirrar skoðunar að þeir sem gefí sig að pólitísku starfi og eru hagsmunagæslumenn póli- tískra afla, eins og reyndin er með Kjartan Gunnarsson, verði að þola að um þá og störf þeirra sé rætt þó sú umræða kunni á stundum að vera óþægileg fyrir þá mynd sem þeir vilja að samfé- lagið hafi af þeim. Myndin þarf nefnilega ekki alltaf að vera rétt. Meiðyrðamál að hálfu slíkra aðila eru nánast hlægileg." - Þú munt áfrýja málittu ef þú tapar? „Ég veit það ekki. Ég hef ekki tekið neina ákvörðun um það.“ - Hvemig finnst þér að vera í sviðsljósinu vegna þessa tttáls setn vakið hefursvo mikla athygli? „Þetta niál og sú umljöllun sem orðið hefur um það truflar mig einfaldlega ekki nokkurn skapað- an hlut.“

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.