Dagur - 18.09.1999, Síða 10

Dagur - 18.09.1999, Síða 10
Lit-m (uummui 26 - LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1999 í hestaferð á Kili sumarið '98 Guðrún við Vesturbæjarlaug 1974 með foreldrum sínum, Fannýju Jónmundsdóttur og Valdimari Jóhannessyni Mæðgurnar fléttaðar eins. Aldrei neinar predikanir hestum undanfarin sumur og mamma hefur komið með mér í nokkrar ferðir og hjálpað mér í fararstjórninni." Fanný: „Svo er það hundabúskapurinn. Við eigum báðar shefferhunda og förum með þá daglega í göngu- ferðir, hringjum hvor í aðra og mætumst á miðri leið.“ Fanný hefur fengist mikið við hönnun og saumaskap og segist hafa þann hæfileika frá móður sinni sem er 84 ára og hönnuður af Guðs náð. „Hún hannaði og sneið mokkaskinnskápu handa mér nýlega og svo fengum við vin minn sem er hús- gagnabólstrari til að sauma kápuna saman eftir hennar leið- sögn.“ Aðspurð segist Guðrún ekki hafa hæfileika á þessu sviði. Fanný: „Guðrún hefur held ég ekki saumað síðan hún var þriggja ára. Þá fylgdist hún einu sinni sem oftar með barnatíma sjónvarpsins. Hvarf svo dálitla stund inn í herbergi og kom fram með þessa fínu dúkku sem hún hafði búið til úr sleif, taui og ýmsu öðru, eftir leiðbeiningum úr sjónvarpinu. Hafði fundið sér nál og tvinna og saumað allt sjálf. Þetta var alveg ótrúlegt." Guðrún: „Noh, bara undrabarn!" Fanný: „Svona vinnur Gunna. Er út af fyrir sig og klárar hlutina. Hún skrifar mikið og ég bið hana oft að yfirfara greinar og annað sem ég þarf að skila. Eg leita meira til hennar eftir aðstoð en hún til mín. En nú get ég farið að hjálpa henni með barnapössun í staðinn og það finnst mér frábært." Þegar ég var svona 11-12 ára þáfórum við mamma og vin- kona hennar austur á Þingvöll, uppstrílaðar og allar með sólgler- augu. Æðislegar pæjur! í sérstöku eldi Fanný á þijú barnabörn sem öll eru fædd á þessu ári. „Eldri börnin mín þijú gáfu mér öll ömmustráka. Tómas Arnar hennar Guðrúnar er yngstur og sá eini sem er á landinu eins og er.“ Guðrún: „Já, við systkinin vorum í sérstöku eldi hér hjá mömmu í fyrra þegar við vorum að hjálpa henni að setja f stand hús og ílytja inn. Hún hlýtur að hafa bruggað okkur einhvern seið fyrst við fórum öll út í barneignir í kjölfarið.“ Þær mæðgur deila ekki bara frí- stundum heldur hafa þær líka starfað saman að ákveðnum hlutum. Guðrún er til dæmis einn leiðbeinenda á nám- skeiðum um hámarks árangur, sem Fanný stendur fyrir og einnig hafa þær séð um kannanir á þjónustu og við- móti innan fyrirtækja. Guðrún: „Mest af okkar samskiptum eru þó bara venjulegt samband móður og dóttur, hringingar, gönguferðir og spjall yfir kaffibollum." Fanný: „Mér eru þessi samskipti afar mikils virði. Stundum get ég nappað Guðrúnu og fjölskyldunni f mat og gefið þeim líkamlega næringu. Það nærir mig andlega" GUN. sem betur fer.“ Guðrún: „Það var aldrei neitt óþarfa vesen á mömmu, hún treysti okkur krökkunum og var dálítill töffari í sér. Eg man t.d. að þegar ég var svona 11-12 ára þá fórum við mamma og vinkona hennar austur á Þingvöll, uppstrílaðar og allar með sólgleraugu. Æðislegar pæjur!" Hestar, hundar og útivera Fanný: „Svo hafa áhugamál okkar Iegið dálítið saman. Til dæmis í sambandi við hestana, hundana og útiveruna. Eg var með hesta á árum áður og þegar Gunna sá hest í fyrsta skipti, 9 mánaða gömul, þá faðmaði hún hann fagnandi að sér eins og hún væri að taka utan um gamlan vin. Það er alveg ógleymanlegt. Síðan hefur hún verið forfallin hestamanneskja og á núna svaka gæðinga en ég á engan hest lengur. Við höfum farið í Iangar út- reiðar saman um hálendi landsins og það er frábært." Guðrún: „Eg hef verið fararstjóri hjá Is- Mamma töffari Fanný: „Það er lítill aldursmunur á tveimur eldri dætrum mínum og þær voru mikið saman þegar þær voru litl- ar. Eg vann úti en var oft með konu á heimilinu sem passaði börnin." Guðrún: „Já, við dúlluðum okkur mikið saman systurnar. Eg man að mér þótti stundum dálítið fúlt að þurfa að taka hana með ef ég var að fara eitthvað með vinkonum mínum en í seinni tíð finnst mér alveg yndis- legt að eiga minningar um okkur syst- ur saman. Og þótt hún sé komin yiir tvítugt finnst mér ég alltaf bera svolitla ábyrgð á henni." Fanný: „Já, þar komum við aftur að þessu með ábyrgðina sem lögð var á Gunnu. Ekki var hún minni eftir að við foreldrarnir skildum, en börnin hafa öll plumað sig ágætlega í lífinu, Fanný, Tómas Arnar og Guðrún ásamt tíkinni Heru. mynd: e.ól. Mæðgurnar Fanný Jónmunds- dóttir og Guðrún Valdimars- dóttir ferðast saman á hestum um hálendið, ganga úti með shefferana sína og veita hvor annarri uppörvun og aðstoð. Fanný: „Gunna er elsta dóttir mín og hef- ur alla tíð borið ábyrgð. Eg lagði oft mik- ið á hennar herðar þegar hún var yngri og geri enn. Hún hefur reynst mér vel og ég hef aldrei fundið fyrir þeirri spennu sem sagt er að stundum myndist milli móður og dóttur. Guðrún: „Nei, ég minnist þess ekld að mamma hafi nokkurn tíma farið í taug- arnar á mér. Eg hef alla tið verið stolt af henni. Það áttu sko ekki allar svona flotta mömmu eins og ég.“ Fanný: „En ég á 14 ára dóttur sem um þessar mundir veit fátt hallærislegra en mömmu sína. Undir því álagi leita ég oft styrks hjá Guðrúnu og hún byggir mig upp.“ Guðrún: „Eg hef ekkert undan mömmu að kvarta hvorki frá fyrri tíð né seinni. Við höfum alltaf getað talað saman eins og jafningjar og hún hefur aldrei verið með neinar predikanir."

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.