Dagur - 18.09.1999, Side 14

Dagur - 18.09.1999, Side 14
30 LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1999 Tk&ftr Heimagerð sápa hefur ekki verið aigeng í eld- húsum og baðherbergj- um landsmanna en nú kann að verða breyting þar á. Hrafnhildur Njáls- dóttir ætlar að kenna mönnum að búa til sápu. „Aðaluppistaðan í okkar sápum er ólívuolía. Við búum einnig til birkiolíu með því að moðsjóða birki þannig að krafturinn úr birkinu fari í olíuna. I sápunum er líka kókosolía og jurtaolía eða hert jurtafeiti sem bakarar nota. Eg ætla að reyna að semja við nokkra bakara um að selja jurtafeitina. Svo er sódi. Við erum Iíka með Iavander og hafra- mjöl, fjallagrös og hunang. Hrafnhildur Njálsdóttir: „Þegar maður byrjar að gera sápu með svona hreinu innihaldi, hreinum jurtaolíum og kjarnaolíum, þá kaupir maður ekki sápu úti í búð." mynd: hilmar sápurnar saman, hvort sem það er til eigin nota eða gjafa. Það er auðvitað allt öðruvísi tilfinning að gefa eitthvað sem maður hefur búið til sjálfur en það sem maður hefur keypt," segir Hrafnhildur. Nákvæmnisvinna Það tók hana tvö og hálft ár að læra að gera sápu og prófa uppskriftir úr amer- ískum sápugerðarbókum enda hefur sápugerð ekki beinlínis tilheyrt algengum íslenskum heimilisiðnaði til seinni ára. Hrafnhildur segir að hún hafi gert fyrstu sápurnar úr dýrafitu, fitu sem er í kringum hjart- að á nautinu, en það sé prinsipmál hjá fyrirtækinu að nota ekki dýrt hráefni í vörurnar. Fituna þurfti að vinna á ákveðinn hátt, til dæmis að bræða hana Haframjölið er rosalega mýkjandi og við púðrum það niður. Einnig er hægt að búa til kaffisápu úr nýmöluðu kaffi,“ segir Hrafnhildur Njálsdóttir. Kaffisápu á appelsínuhúð - Kaffi? „Hún er sérstaklega góð til að nota við eldhúsvaskinn. Hún hreinsar alla lykt af höndunum, til dæmis þegar maður hefur verið að skera fisk eða hvítlauk. Hún er góð fyrir fólk í grófri vinnu og stelpurnar hafa sagt mér að hún sé æðisleg á appel- sínuhúð á upphandleggjum, lærum og rassi. Hún gefur gott nudd og örvar blóð- rásina.“ Þá kaupirðu ekki sápu... Hrafnhildur hefur tekið að sér að kenna sápugerð hjá Tómstundaskólanum Mími í haust auk þess sem hún stefnir að því að fara norður í vetur og halda þar nám- skeið um sápugerðina. Þeir eru sjálfsagt frekar fáir sem tengja Hrafnhildi við sápugerð enda er hún betur þekkt fyrir þróun og framleiðslu á sjampói og hár- næringu á vegum Jurta-GuIIs í Keflavík. Fyrirtækið hefur þó Iíka verið í sápu- framleiðslu sem aukabúgrein og fram- leitt tvær gerðir af handsápu, sem eru seldar á nokkrum stöðum út um landið. Onnur þeirra er kaffisápan umtalaða. „Það er ofsalega gaman fyrir fólk að kunna að gera sápú. Þegar maður byrjar að gera sápu með svona hreinu inni- haldi, hreinum jurtaolíum og kjarnaolí- um, þá kaupir maður ekki sápu úti í búð. Svo er hægt að gera sápurnar á ótal marga vegu. Eg kem til með að gefa fólki hugmyndir um hvernig er hægt að setja mörgum sinnum. Markmiðið var að finna einfalda og umhverfisvæna uppskrift úr ódýru hráefni. Talsverð vinna er að búa til sápu og það tekur svolítinn tíma því að sápan þarf að þorna vek Olíunum er blandað saman í pott og bræddar saman, upplagt að gera þetta í eldhúsinu. Látið kólna. Þá er sóda og vatni blandað saman og látið kólna því að um leið og vatn fer saman við sóda kemur mikill hiti í hana. A ákvéðnum tímapunkti er öllu blandað saman. Þegar ákveðin þykkt er komin í blönduna er henni hellt í mót, pakkað í plast og svo í handklæði. Látið bíða og þorna. Daginn eftir hafa sápurnar harðnað og þá má skera þær niður. Þær þurfa að bíða í sex vikur áður en hægt er að nota þær. -GHS Fyrirbyggjandi mataræði Talið er að mataræði og líkamsæfingar geti haft fyrirbyggjandi áhrif þeg- ar krabbamein er annars vegar. Ef maður borðar rétt, hreyfir sig reglu- Iega, fylgist með líkams- þyngdinni og reykir ekki þá minnkar maður verulega líkumar á því að maður fái krabha- mein eða um heil 60 prósent. Talið er að þriðjung af dauðsföll- um vegna krabbameins í Bandaríkjunum megi tengja slæmu mataræði og því skiptir mataræðið miklu. Hér koma nokkur ráð: 1. Borðaðu grænmeti og ávexti. Því minna sem maður borðar af rauðu kjöti og kaloríum þeim mun betra er mataræðið. 2. Forðastu að þyngjast með aldrinum því að heilsan getur versnað eftir því sem þyngdin eykst. 3. Borðaðu korn og grófmeti af ýmsu tagi, rætur, baunir og þvíumlíkt en minnkaðu sykurinn. 4. Forðastu alkóhól. Hóflegt magn af alkóhóli getur verndað gegn hjarta- sjúkdómum en ef maður drekkur mik- ið alkóhól reglulega þá getur það haft slæm áhrif á líkamann eins og al- kunna er. Eitt glas á dag fyrir konur og tvö fyrir menn. Það telja sumir að sé kjömeyslan. 5. Takmarkaðu salt. Magakrabbamein er algengara meðal fólks sem borðar mikið salt. 6. Borðaðu bara mat sem hefur verið geymdur við góðar aðstæður. Matur skemmist auðveldlega. Því er ísskápur nauðsynlegur inn á öll heimili. 7. Drekktu te. Grænt og svart te inni- halda efni sem geta komið í veg fyrir þróun krabbameins. 8. Soja-fæði er frábært. Kauptu soja- mjólk og tofu næst þegar þú ferð í búðina. 9. Hrár laukur og hvítlaukur virðist öfl- ugur í mótspymu gegn krabbameini þó að það hafi ekki verið rannsakað út í ystu æsar. 10. Sterk krydd á borð við Chili pipar eru góð gegn magakrabbameini. Einnig geta þau komið í veg fyrir krabbamein í lungum. 11. Hættu að reykja og japla á tóbaki. Al- kunna er að tóhak er aðalástæða lungnakrabbameins. Gott mataræði er alltaf plús en engin trygging, sér- staklega ekki ef þú reykir. Mynd afkarli og konu - tekin innarlega. Mál er nú að efna loforð mitt um að segja ykkur lítillega frá litningum og frávikum í uppröðun þeirra. En vegna þess hve gríðarstórt sviðið er og þess að dálkurinn er um KYNlíf, mun ég takmarka mál mitt við galla þá sem snúa að kynlitningunum tveimur X og Y (nú dett- ur mér skyndilega í hug hversu miklu dýpri merk- ingu Gagn og gaman hefði haft ef hjónin hefðu heitið X og Y en ekki X og Z). Samruni En fyrst aðeins um Iitninga og gen yfir- leitt. Við getnað hleypir eggið inn í sig einni (langoftast bara einni) sáðfrumu sem því Iíst vel á og þegar í stað hefjast frumuskiptingar sem geta, ef allt gengur vel, endað með fullsköpuðum einstaklingi. Hvort um sig, eggið og sáðfruman, inni- halda 23 litninga, þar af sinn kynlitning- inn hvert. Kynlitningur eggsins er alltaf X (kven) en kynlitningur sáðfrumunnar get- ur annað hvort verið X eða Y (kven eða karl). Kyn nýja einstaklingsins ræðst svo af því hvort hin heppna sáðfruma sem eggið velur til inngöngu geymir X eða Y kynlitning. Við samruna frumanna verður svo til það litningasafn sem allar frumur nýja einstakfingsins munu geyma, 46 litningar þar af 2 kynlitningar (nema kynfrumurnar sem innihalda helming safnsins). Y Iitningurinn er agnarsmár Iitningur og virðast genin sem hann inniheld- ur aðallega hafa það hlutverk að framkalla karlmannleg einkenni. Aftur á móti er X litningurinn með þeim stærri og inniheldur hundruð gena sem hafa ekkert með kyn að gera. Heilkenni Þegar frávik verða í litningasafni einstakfings getur það framkallað klasa einkenna sem kölluð eru heilkenni eða „syndróm." Þekktast er efleust „Downs“ heilkenni sem stafar af því að til staðar er aukalitningur nr. 2 f. Lítum nú á þau heilkenni sem frávik á fjölda kynlitn- inga getur framkallað. Turners heilkenni Hjá konum með þetta heilkenni vantar annan X litninginn eða hluta af honum. Konur með Turners heilkenni eru lágvaxn- ar, hafa stuttan og breiðan háls, ná ekki fullum kynþroska og eru ekki frjóar. Greind er yfirleitt eðlileg eða lítillega skert á sumum sviðum. Algengi er f/3000 af lif- andi fæddum stúlkubörnum. Þrefalt X Þessu ástandi fylgir venjulega væg greind- arskerðing en útlit er eðlilegt. Oft fylgir ófrjósemi en þó hafa konur með þrjá X Iitninga fætt heilbrigð börn með hefð- bundinn litningafjölda. Fundist hafa kon- ur með fjóra og upp í fimm X litninga en það ástand er mjög sjaldgæft. Algengi þre- falds X er um 1/1000. Klinefelters heilkenni Karlmenn með þetta heilkenni hafa auka X Iitning (XXY). Þeir hafa langa fætur, stækkun á btjóstum, Iítil eistu og eru ófrjóir. Kynþroski verður á venjulegum tfma. Oft uppgötvast heilkennið ekki fyrr en þeir leita sér aðstoðar vegna gruns um ófijósemi. Greind er eðlileg. Heilkennið er frek- ar algengt eða 1/700 lifandi fæddra sveinbarna. AukaY 1961 sást í fyrsta sinn auka Y litning- ur hjá karlmanni. Þetta var eðlilega útlítandi en ægilega ofbeldisfullur bófi og þegar vísindamennirnir fóru að skoða litninga hjá fleiri glæpamönnum fundu þeir þessa samsetningu hjá fleiri bófum og ályktuðu sem svo að auka Y litn- ingur framkallaði árásarhneigð og glæpa- eðli. Svo var farið að skoða menn úr „stabílu" fyrirmyndarumhverfi og viti menn þar var auka Y alveg jafn algengt ástand. Ragnheiður Eiríksdóttir er hjúkrunar- fræðingur

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.