Dagur - 18.09.1999, Síða 20

Dagur - 18.09.1999, Síða 20
36- LAUGARDAGCR 18. SEPTEMBER 1999 Ð^fir RABAUGLÝSINGAR A T V I N N A Framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélag Pingeyinga hf. óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra. Markmið félagsins er að efla atvinnustarfsemi í Þingeyj- arsýslum með því m.a. að afla upplýsinga, veita rekstr- artæknilega ráðgjöf, taka frumkvæði í atvinnusköpun og stuðla að nýsköpun. Leitað er að starfsmanni sem hefur góða rekstrar- og/eða tækniþekkingu, getur sýnt frumkvæði og á auð- velt með mannleg samskipti. Æskilegt er að fram- kvæmdastjóri geti hafið störf fjótlega. Laun eru sam- komulagsatriði. Umsóknir skal senda til Atvinnuþróunarfélags Þingey- inga, Garðarsbraut 5, 640 Húsavík, fyrir 4. október nk. Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Reykjanesi Sviðsstjóri Óskað er eftir að ráða til starfa sviðsstjóra á sviði þjónustu við fólk með fötlun 16 ára og eldra á vegum Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Reykjanesi. Verkefni sviðsstjóra eru m.a. eftirfarandi: • Umsjón með þjónustu Svæðisskrifstofunnar í atvinnu- og búsetumálum. • Ráðgjöf og stuðningur við fólk með fötlun og aðstandendur þeirra. • Ráðgjöf og stuðningur við forstöðumenn og starfsfólk Svæðisskrifstofu sem veita þjón- ustu á sviðinu. • Samstarf við tengslastofnanir á svæðinu svo sem á sviði félags-, heilbrigðis- og mennta- mála. • Ýmis skipulags- og þróunarverkefni innan stofnunarinnar er varða málefni fólks með fötlun. Sviðsstjóri tekur þátt í víðtæku samstarfi fagteymis Svæðisskrifstofunnar. Óskað er eftir einstaklingi með góða samstarfs- og stjórnunar- hæfileika. Menntun á sviði uppeldis- og félags- vísinda og reynsla af vinnu með fötluðum nauð- synleg. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamn- ingum viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 564 1822 á skrifstofutíma. Umsóknareyðublöð fást á Svæð- isskrifstofunni, Digranesvegi 5, Kópavogi og á heimasíðunni http://www.smfr.is. Umsóknarfrestur er til 1. október nk. am ÍlWfcWiV.l'lES Starfsfólk óskast Kjötiðnaðarstöð KEA óskar að ráða starfsfólk í kjötvinnslu félagsins. Um er að ræða störf í kjötskurði, mötuneyti og almenn verksmiðjustörf. Óskað er eftir duglegu, jákvæðu og reglusömu fólki til framtíðarstarfa. Upplýsingar gefur verksmiðjustjóri eða framkvæmdastjóri í síma 460 3360 eða á staðnum. Kjötiðnaðarstöð KEA hefur verið í miklum vexti undanfarið og er ein af stærstu kjötvinnslum landsins með um 75 starfsmenn. Kjötvinnslan er þekkt fyrir gæðavörur sem eru markaðssettar um land allt. Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar Laus störf í grunnskólum Vegna forfalla eru eftirtalin störf laus til umsóknar: Lækjarskóli Almenn kennsla á miðstigi (50%) Stuðningsfulltrúi (50%) Gangavarsla (50%) Allar upplýsingar varðandi störfin veitir skólastjóri, Reynir Guðnason í síma 555 0585. Engidalsskóli Vinna með börnum í lengdri viðveru e.h. (50%) Allar upplýsingar veitir skólastjóri, Hjördís Guðbjörns- dóttir í síma 555 4433. Skólafulltrúinn í Hafnarfirði Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Selfossi Laus er til umsóknar staða framkvæmdastjóra Heilbrigðisstofnunarinnar Selfossi. Framkvæmdastjóri verður skipaður af heilbrigðisráðherra til fimm ára. Óskað er eftir að framkvæmdastjóri hefji störf sem fyrst. Æskilegt er að umsækjendur hafi háskólamenntun ásamt reynslu í rekstri og stjórnun. Launakjör eru samkvæmt ákvörðun kjaranefndar. Nánari upplýsingar um starfið veita Davíð Á. Gunnarsson ráðuneytisstjóri (s. 560 9700) og Sigurður Sigurjónsson, formaður stjórnar Heilbrigðisstofnunarinnar Selfossi (s. 482 2988). Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, Laugavegi 116, 150 Reykjavík, fyrir föstudaginn 8. október 1999. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun hefur verið tekin. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, Reykjavík, 14. september 1999 REYKIALUNDUR Hjúkrunarforstjóri Laust er til umsóknar starf hjúkrunarforstjóra á Reykjalundi. Á Reykjalundi fer fram alhliða endurhæfing á eftrirtöldum meðferðarsviðum: Gigtarsviði, hæfingarsviði, lungnasviði, hjartasviði, verkjasviði, geðsviði, miðtaugakerfissviði og næringarsviði. Á sjúkrahúsinu eru 166 sjúklingar og starfsmenn eru rúmlega 200 í u.þ.b. 160 stöðugildum. ( starf hjúkrunarforstjóra er óskað eftir hjúkrunarfræðingi með reynslu af stjórnunarstörfum. Umsóknir sendist til yfirlæknis, Hjördísar Jónsdóttur, sem veitir nánari upplýsingar, ásamt hjúkrunarforstjóra, Grétu Aðalsteinsdóttur, í síma 566 6200. Umsóknarfrestur er til 1. október n.k. og stað- an veitist frá1. janúar 2000, eða eftir samkomulagi. H j ú kru na rfræðingar Okkur bráðvantar hjúkrunarfræðinga til starfa á eftirtöldum sviðum: Gigtar- og hæfingarsviði og á miðtaugakerfissviði. Unnið er að nýju skipulagi, sem gerir ráð fyrir að hjúkrunarfræðingar þurfi einungis að vinna 10-12 hverja helgi. Upplýsingar hjá hjúkrunarforstjóra í síma 566 6200. Ý M I S L E G T Tilkynning frá utanríkisráðuneytinu Utanríkisráðuneytið býður fyrirtækjum, samtökum, stofnunum og einstaklingum viðtalstíma við sendiherra (slands þegar þeir eru staddir hérlendis, til þess að ræða hagsmunamál sín erlendis, viðskiptamöguleika og önnur málefni þar sem utanríkisþjónustan getur orðið að liði Hörður H. Bjarnason, sendiherra íslands í Svíþjóð, verður til viðtals í utanríkisráðuneytinu miðvikudaginn 22. september nk. frá kl. 9 til 12 eða eftir nánara samkomulagi. Umdæmi sendiráðsins nær einnig til Albaníu, Bangladess, Kýpur, Pakistan og Slóveníu. Nánari upplýsingar og tímapantanir eru veittar í síma 560 9900 Aukin ökuréttindi Ný námskeið byrja vikulega í Reykjavík. Ökuðkóll Mande Förum með námskeið út á land. Gerið verðsamanburð. Innritun og allar nánari upplýsingar hjá Ökuskóla íslands í síma: 568 3841. Hafnarfjarðarbær Skipulags- og umhverfisdeild Breyting á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar Bæjarstjórn Hafnarfjarðar auglýsir hér með tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 1995-2015, Mávahraun samkvæmt 2. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Breytingin felst í að hluti stofnanalóðar, áður slökkvistöð og Áhaldahúss Hafnarfjarðar, breytist í íbúðarhúsalóð. Breytingartillagan verður til sýnis á skipulags- og umhverfisdeild, Strandgötu 6, 3. hæð, frá og með 16. septembertil 7. október 1999. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna. Frestur til þess að skila inn athugasemdum er til 7. október 1999. Skila skal skal athugasemdum á Bæjarskrifstofur Hafnarfjarðar, Strandgötu 6. Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við breytingartillöguna fyrir tilskilinn frest, telst samþykkur henni. Bæjarstjórinn í Hafnarfirði. ÍBÚD ÚSKAST íbúð óskast Útgerðafélag Akureyringa hf. óskar eftir 2 herbergja íbúð til leigu fyrir starfsmann sinn fram í desember. Upplýsingar sendist til starfsmannastjóra á fax nr. 460 4101 eða símleiðis í síma 460 4137 á milli kl. 08.00 og 16.00 virka daga.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.