Dagur - 18.09.1999, Qupperneq 21
LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBRR 1999- Í7
RAÐAUGLYSINGAR
ÝMISLEGT STYRKIR
t
Ráðstefna Umhverfis-
fræðsluráðs í samvinnu við
Staðardagskrá 21
Fræðsla: Lykill að
sjálfbærri þróun
Hótel Örk, Hveragerði,
23. september 1999, kl. 10-16
DAGSKRÁ
9:15 Rúta leggur af stað frá Umferðarmið-
stöðinni
10:00 Ávarp Sivjar Friðleifsdóttur, umhverfis-
ráðherra
10:10 Umhverfismennt á íslandi Þorvaldur Örn
Árnason, Fjölbrautaskóla Suðurnesja
10:30 Umhverfisfræðsla í skólakerfinu. Stefán
Bergmann, Kennaraháskóla íslands
10:50 Möguleikar á umhverfisfræðslu í at-
vinnulífinu. Halldór Grönvold, ASÍ
11:10 Staðardagskrá 21 og fræðslumál.
Sigurbjörg Sæmundsdóttir, formaður
stjórnar Staðardagskrár 21
11:30 Umræður
12:00 Matur
13:10 Umhverfisfræðsla í skólum og atvinnulíf-
inu - reynsla Svía Per-Olov Ottosson,
Háll Sverige Rent
14:10 Fyrirspurnir og umræður
14:30 Kaffi og veggspjöld
15:00 Umhverfisfræðsla í Hveragerði. Kolbrún
Oddsdóttir, garðyrkjustjóri í Hveragerði
15:20 Að lesa landið. Jónatan Garðarsson,
formaður Umhverfis- og útivistarfélags
Hafnarfjarðar
15:40 Fyrirspurnir og umræður
16:00 Ráðstefnuslit
16:10 Rúta til Reykjavíkur
Ráðstefnugjald er kr. 1000 (hádegismatur
og ferðir innifalið). Vinsamlega skráið ykkur
fyrir 20. sept. hjá umhverfisráðuneytinu, s.
560 9600, fax: 562 4566, tölvupóstur:
hugi.olafsson@umh.stjr.is.
-
ýmTíTFgt
Hrossasmölun
í Öngulsstaðafjallskiladeild fer fram laugardaginn
18. september 1999.
Réttað verður í Þverárrétt sunnudaginn 19.
september kl. 10 f.h.
Eigendur utansveitarhrossa skulu greiða kr.
900,- í fjallskilasjóð Eyjafjarðarsveitar fyrir hvert
hross.
Fjallskilastjóri
wwwvisiris
FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR
f
UMSÓKN UM FRAMLÖG ÚR FRAM-
KVÆMDASJÓÐIALDRAÐRA 2000
Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra auglýsir eftir umsókn-
um um framlög úr sjóðnum árið 2000. Eldri umsóknir
koma aðeins til greina séu þær endurnýjaðar. Nota skal
sérstök umsóknareyðublöð sem fylla ber samviskusam-
lega út og liggja þau frammi í afgreiðslu heilbrigðis- og
tryggingaráðuneytisins. Einnig er ætlast til að umsækjend-
ur lýsi bréflega einingum húsnæðisins, byggingarkostn-
aði, verkstöðu, fjármögnun, rekstraráætlun, þjónustu- og
vistunarþörf ásamt mati þjónustuhóps aldraðra (mats-
hóps) og þar með hvaða þjónustuþætti ætlunin er að efla.
Umsókn skal fylgja ársreikningur 1998 endurskoðaður af
löggiltum endurskoðanda og kostnaðaryfirlit yfir fyrstu níu
mánuði ársins 1999.
Sé ofangreindum skilyrðum ekki fullnægt áskilur sjóð-
stjórnin sér rétt til að vísa umsókn frá. Umsóknir skulu
hafa borist stjóðstjórninni fyrir 1. desember 1999, heil-
brigðis- og tryggingaráðuneytinu, Laugavegi 116, 150
Reykjavík.
Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Styrkir til háskólanáms í
Pýskalandi
Þýska sendiráðið í Reykjavík hefur tilkynnt íslenskum
stjórnvöldum að boðnir séu fram eftirtaldir styrkir handa
(slendingum til náms og rannsóknarstarfa í Þýskalandi á
námsárinu 2000-2001:
a) Allt að fjórir styrkir til háskólanáms. Umsækjendur
skulu hafa lokið a.m.k. tveggja ára háskólanámi, vera
yngri en 32 ára og ekki hafa dvalið lengur en eitt ár í
Þýskalandi.
b) Allt að þrír styrkir til að sækja þýskunámskeið sumarið
2000. Umsækjendur skulu vera komnir nokkuð áleiðis í
háskólanámi, vera yngri en 32 ára og leggja stund á nám
í öðrum greinum en þýsku. Einnig þurfa þeir að hafa
góða undirstöðukunnáttu í þýskri tungu.
c) Nokkrir styrkir til vísindamanna til námsdvalar og
rannsóknarstarfa um allt að sex mánaða skeið.
Umsóknir, ásamt staðfestum afritum prófskírteina og
meðmælum, skulu sendar menntamálaráðuneytinu,
Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 22. október nk.
Sérstök umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást í
ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið, 17. september 1999.
www.mrn.stjr.is
Kísilgúrsjóður
Styrkir - Lán - Hlutafé
Tilgangur sjóðsins er að kosta undirbúning aðgerða til
þess að efla atvinnulíf í þeim sveitarfélögum sem nú
eiga verulegra hagsmuna að gæta vegna starfsemi
Kísiliðjunnar hf.
Til að ná fram markmiðum sjóðsins er stjórn hans
heimilt að veita áhættulán, styrki og að kaupa hluti í nýj-
um og starfandi félögum. Um stuðning geta sótt, fyrir-
tæki, félagasamtök og einstaklingar.
Styrkir:
Kostnaðarliðir sem notið geta stuðnings:
• Undirbúningskostnaður verkefna
• Vöruþróun
• Átak til markaðsöflunar
• Nám eða starfsnámskeið, samkvæmt sérstakri
ákvörðun stjórnar
Lánakjör og hlutafjárkaup:
• Kjör á lánum sjóðsins taka mið af kjörum hliðstæðra
lána hjá fjárfestingalánasjóðum.
• Sjóðurinn tilnefnir að jafnaði ekki í stjórn þeirra hluta-
félaga sem hann á hlutdeild í nema hlutur sjóðsins
sé umtalsverður (þriðjungur eða meira) og að stjórn-
araðild sé talin æskileg til að efla stjórnun hlutafé-
lagsins.
Sjóðurinn veitir ekki rekstrarstyrki svo sem til að niður-
greiða framleiðslukostnað. Styrkur verður aldrei hærri
en sem nemur helmingi af styrkhæfum kostnaði.
Umsóknarfrestur vegna haustúthlutunar
1999 er 4. október.
Umsóknareyðublöð, úthlutunarreglur og frekari
upplýsingar fást hjá Atvinnuþróunarfélagi Þing-
eyinga, sími 464 2070, fax 464 2151.
MENNTAMALARAÐUNEYTIÐ
Styrkir vegna upplýsingatækni í
almenningsbókasöfnum
Samkvæmt ákvæði til bráðabirgða í lögum nr. 36/1997,
um almenningsbókasöfn, leggur ríkissjóður um fimm ára
skeið fram fé til að stuðla að því að almenningsbókasöfn
verði fær um að bjóða þjónustu sem styðst við
nútímaupplýsingatækni og til að greiða fyrir tengingu
bókasafna landsins í stafrænt upplýsinganet.
Menntamálaráðherra tekur ákvörðun um úthlutun
framlaga að fengnum tillögum ráðgjafarnefndar um
málefni almenningsbókasafna.
Samkvæmt reglum um styrkveitingar samkvæmt þessu
lagaákvæði (reglur nr. 765, 29. desember 1997), má
veita styrki m.a. til kaupa á tölvubúnaði, endurmenntunar
bókavarða, samningar og útgáfu fræðsluefnis fyrir
almenning um nýtingu nýrrar upplýsingatækni og til
verkefna sem lúta að tölvutengingu bókasafna. Styrki má
einnig veita til annarra þróunarverkefna í þágu
almenningsbókasafna, einkum á sviði rannsókna og
fræðslu.
Heimilt er að binda styrk skilyrði um að mótframlag fáist
úr hlutaðeigandi sveitarsjóði eða sveitarsjóðum. Að öðru
jöfnu ganga þau bókasöfn fyrir um styrk til tölvu- og
hugbúnaðarkaupa sem þegar hafa tryggt sér slíkt
mótframlag.
Hér með er auglýst eftir umsóknum um styrki á árinu
2000. Forstöðumenn almenningsbókasafna,
bókasafnsstjórnir, bókaverðir og samtök bókavarða geta
sótt um styrk. í umsókn skal gera ýtarlega grein fyrir
verkefninu og áætla tímamörk og kostnað við framkvæmd
þess. Jafnframt skal koma fram hvaða aðilar muni vinna
að verkefninu, ef við á, og hvaða bókasafn/bókasöfn
standi að því, svo og áætlun um fjármögnun.
Umsóknarfrestur er til 1. nóvember 1999. Umsóknir
skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4,
150 Reykjavík.
Menntamálaráðuneytið, 16. september 1999.
www.mrn.stjr.is
T ' I
Þ I N G
Landsþing
Landssambands
framsóknarkvenna
Af óviðráðanlegum orsökum verður 9. landsþing
LFK ekki haldið í Vík í Mýrdal eins og fyrirhugað var.
Þingið verður þess í stað haldið í Hraunholti,
Dalshrauni 15 í Hafnarfirði.
Dagskrá:
Laugardagur 25. september
09.30 - Þingsetning
Kosning fundarstjóra og fundarritara.
09.40 - Skýrsla stjórnar og reikningar
Mál lögð fyrir þingið.
Umræður.
10.10 - Ávörp gesta
10.30 - Aukinn hlutur kvenna í stjórnmálum
Hildur Helga Gísladóttir, formaður nefndar um
aukinn hlut kvenna í stjómmálum.
11.00 - Innri mál LFK - Markmið - framtíðarsýn
12.15 - Léttur hádegisverður
13.15 - Frumkvöðlahugsun á 21. öldinni
Árelía Eydís Guðmundsdóttir, lektor í stjómun
við VHR
14.00 - Samantekt frá jafnréttisnefnd - Jafnrétti í
framsókn
Sigfus Sigfússon, fulltrúi SUF í jafnréttisnefnd
Framsóknarflokksins
14.30 - Umræður
15.00 - Kaffihlé
15.30 - Stjórnarkjör
Afgreiðsla mála
Önnur mál
17.00 - Þingslit
20.00 - Sameiginlegur kvöldverður með glens og gamni.
Áætlaður kostnaður kr. 3.200.-
Vinsamlega tilkynnið þátttöku fyrir 22. september á
skrifstofu Framsóknarflokksins í síma 5624480 eða í
gegnum netfangið: framsokn@framsokn.is.
Landssamband
framsóknarkvenna