Dagur - 28.09.1999, Qupperneq 4
4 - ÞRIÐJUDAGUR 2 8. SEPTEMBER 1999
FRÉTTIR
Frekari aðgerða er þörf hjá SÞ
I upphafi ræðu sinnar á 54. allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna lagði Halldór Ásgríms-
son utanríkisráðherra áherslu á mikilvægi SÞ
fyrir hið alþjóðlega samfélag. Hann benti á
að endurbætur á SÞ hefðu falið í sér endur-
mat á innra skipulagi, starfsmannamálum og
úrbætur á fjármálastjórn stofnunarinnar. En
frekari aðgerða væri þörf.
„Aðildarrfkin þurfa að hafa kjark til að líta
ekki aðeins stofnunina sjálfa gagnrýnum
augum heldur einnig samskipti aðildarríkj-
anna sjálfra. Meðan á þessum breytingum
Halldór Asgrímsson. stendur verður að gæta þess að þær hafi ekki
neikvæð áhrif á ímynd stofnunarinnar út á
við. Jafnframt þarf að koma í veg fyrir að þetta ferli veiki vinnuanda
alþjóðastarfsliðs stofnunarinnar sem oft á tíðum vinnur við erfið og
hættuleg skilyrði," sagði Halldór og minntist hann sérstaklega á
nauðsyn þess að styrkja SÞ og gera stofnunina betur í stakk búna til
að takast á við flóknar breytingar. í því sambandi nefndi Halldór
störf vinnuhóps um endurbætur á öryggisráðinu og gagnrýndi hann
seinagang sem þar hefur átt sér stað.
„Verði ekki sýnilegur árangur í framtíðinni mun það óhjákvæmi-
lega veikja stoínunina,“ sagði Halldór Ásgrímsson m.a. á allsheijar-
þingi Sameinuðu þjóðanna. — BJB
110 tölvur fyrir
heymarlausa
Heilbrigðisráðherra, Ingibjörg Pálmadóttir,
undirritaði um helgina viðbótarsamning við
Nýherja um leigu á 110 tölvum með texta-
símaforritið „Skjáma" fyrir heyrnarlausa. I
samningnum er kveðið á um að vélamar
verði settar upp fyrir heyrnarlausa, að nám-
skeið verði haldin fyrir þá og að þeir hafi að-
gang að tæknimönnum. Samningurinn er
orðinn til fyrir samstarf Félags heyrnar-
lausra, Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar og
heilbrigðisráðuneytisins. Þessi samningur
hefur mikla þýðingu fyrir fjarskipti og samskipti heyrnarlausra.
Ingibiörg Pálmadóttir.
íslendiugar veðja á sólarorku
Allied Efa hf., sem er í eigu Eignarhaldsfélagsins, Alþýðubankinn og
Allied Resource í Bandaríkjunum, hafa ásamt Alþjóðafjárfestinga-
samlagi Efa og Safeguard Intemational Fund, keypt 48% hlutafjár í
norska fyrirtækinu Renewable Energy Company. Það á nokkur fyrir-
tæki sem hafa sérhæft sig í framleiðslu á svokölluðum sólarsellum og
kerfum til þess að framleiða raforku úr sólarorku. Með þessari fjár-
festingu hafa fyrrnefndir aðilar öðlast aðgang að mjög þróaðri tækni
til að vinna hátækniafurðir úr kísilmálmi, en sólarsellur eru fram-
leiddar úr mjög hreinum kísilmálmi. — bjb
Aukið reíkisvæði í Bandaríhjuuuui
Frá 22. september sl. hafa viðskiptavinir Landssímans getað nýtt sér
GSM 1900-þjónustu farsímafyrirtækisins Voicestream Wireless í
Bandaríkjunum. Með þessu stækkar reikisvæði Símans GSM í
Bandaríkjunum til muna, þ.e. svæðið þar sem GSM-áskrifendur hjá
Landssímanum geta notað símakortin sín. Voicestream býður GSIVI-
þjónustu í þrettán ríkjum Bandaríkjanna; Arizona, Colorado, Hawaii,
Idaho, Iowa, Kansas, New Mexico, Oklahoma, Oregon, Texas, Utah,
Washington-ríki og Wyoming.
EXPRESS
HAGLASKOHN
—HÆFA BETUR
• Sjörnubrotin plasthylki
• Plastbolla forhlöð
• 16-24mm sökkull
• VECTAN-hágæða púður
• 36, 42 og 46 gr. hleðsla
• 3% ANTIMONY-högl
9 Stæröir 1,3, 4, 5
• Hraði: 1375fet/sek.
• ClP-gæðastaðall
Mávahlíð 41, Rvík, sími 562 8383
OG SÖLUAÐILAR UM ALLT LAND
^RTVÖRU
GERÐIN HE
Lögreglan þarf að glíma við fjölbreytt mál. Um helgina kom hún að manni sofandi í sófa í íbúð í Breiðholtinu.
Hann hafði brotist inn ölvaður, bakað vöfflur í eldhúsinu og sofnað vært eftir það. Ekki fylgir sögunni hvort mað-
urinn hafi farið húsavillt.
Dralddim þjófur
í vöfflubakstri
Af nógu er aö taka í
dagbók lögregluuuar í
Reykjavík dagana 24.
til 27. september.
Lögreglan hafði sérstakt eftirlit
um helgina með því að útivistar-
reglum væri framfylgt. Það hefur
áður komið fram hjá lögreglu
hversu mikilvægt það er að for-
eldrar virði þessar reglur og hafi
i heiðri. Þar sem borið hefur á
því að foreldrar þekkja ekki regl-
urnar til hlítar, hefur lögreglan
ásamt Reykjavíkurborg og fleir-
um, látið framleiða sérstakar
segulmottur á til dæmis ísskápa
sem ætlað er að auðvelda for-
eldrum og börnum að muna eft-
ir þessum reglum. Á næstu dög-
um munu foreldrar barna í 7.
bekk fá þessar segulmottur með
útivistarreglum sendar heim til
sín.
Ölvaður og próflaus
Um helgina voru 44 umferðaró-
höpp tilkynnt til lögreglu og
urðu slys á fólki í nokkrum þeir-
ra. I mörgum tilvikum er orsaka
óhappanna því um að kenna að
grunnreglur umferðarlaga eru
brotnar. Það eru einkum reglur
um nægjanlegt bil milli ökutækja
og lögbundinn ökuhraða.
Lögreglu barst tilkynning að-
faranótt Iaugardags um að öku-
maður, sem hugsanlega væri ölv-
aður, hefði ekið á tvær bifreiðar
og brotið umferðarlög á margvís-
legan annan hátt. Bifreiðin var
stöðvuð skömmu síðar af Iög-
reglu og ökumaður handtekinn
eftir að hafa reynt að hlaupa
brott af vettvangi. Vegna aldurs
hans var barnaverndaryfirvöld-
um og foreldrum gert aðvart.
Bifreiðin sem notuð var til akst-
ursins hafði verið tekin ófrjálsri
hendi.
Vopnaður dópisti
Karlmaður var handtekinn í
Austurstræti á föstudag og fund-
ust á honum „ætluð“ fíkniefni,
eins og Iögreglan orðar það. Þá
var gerð leit á heimili hans og
fundust þar ólögleg vopn, sverð
og hnífur sem voru haldlögð.
Maðurinn var fluttur í fanga-
geymslu lögreglu.
Þá var karlmaður handtekinn
á föstudagskvöld og fundust á
honum „ætluð“ fíkniefni. Á sama
stað voru höfð afskipti af konu
sem framvísaði „ætluðum" fíkni-
efnum.
Höfð voru afskipti af ung-
mennum í bifreið á laugardags-
kvöld. Einn farþegi bifreiðarinn-
ar hafði hent út „ætluðum" fíkni-
efnum er lögreglan stöðvaði bif-
reiðina. Við leit í bifreiðinni
fannst einnig „ætlað“ þýfi. Þrjú
ungmenni voru flutt á Iögreglu-
stöð vegna málsins.
Ölvaður karlmaður var hand-
tekinn eftir að hafa ógnað starfs-
mönnum veitingahúss með
hnífí. Atburðurinn átti sér stað
eftir miðnætti á laugardag. Hinn
ölvaði var fluttur á lögreglustöð.
Þjófur í ryskinjfum
Tvær stúlkur, 15 og 16 ára, voru
handteknar í vikunni eftir að
talsvert magn af þýfi fannst á
heimili annarrar þeirra. Á sama
stað var einnig lagt hald á tæki til
neyslu fíkniefna.
Karlmaður á fertugsaldri var
handtekinn í verslun á föstudag-
inn vegna þjófnaðar. Við Ieit á
manninum fannst talsvert magn
af hlutum sem hann gat ekki gef-
ið viðunandi skýringar á. Þar á
meðal voru málverk, skór og fjar-
stýring. Maðurinn var fluttur til
skýrslutöku á lögreglustöð.
Starfsmaður í verslun veitti því
athygli að einn viðskiptavinur yf-
irgaf verslunina án þess að
greiða fyrir varning sem hann
hafði meðferðis. Starfsmaðurinn
veitti manninum eftirför og náði
að stöðva hann skömmu síðar og
hafa af honum tal. Brást við-
skiptavinurinn illa við þessum
afskiptum og lagði á starfsmann-
inn hendur og hljóp síðan á
brott. Lögreglan kom á staðinn
skömmu síðar og handtók við-
skiptavininn og var illa fengnum
vörum komið aftur til verslunar-
innar. Hinn handtekni var flutt-
ur á Iögreglustöðina en þangað
hefur hann oft áður komið af
sama tilefni, að sögn lögreglu.
Sofnaði í iimbroti
Tvítugur karlmaður var handtek-
inn eftir að hafa brotist inn í
heimahús í Breiðholti aðfaranótt
laugardags. Maðurinn hafði
komist inn um glugga íbúðarinn-
ar og eftir að inn kom virðist
hann hafa verið mjög svangur og
lá leið hans þá i eldhúsið. Að
sögn Iögreglu bar óreiða í eld-
húsi þess merki að maðurinn
hafi verið mjög ölvaður við
vöfflubakstur sem hann tók sig
til við. Eftir eldhústilraunir sínar
lagðist maðurinn síðan til hvílu í
stofunni þar sem hann svaf er
lögreglan kom á vettvang! — bjb
Kaupmáttarrýmim 2%
„Það sem af er þessu ári hefur
kaupmáttur lækkað um 1,9% sé
miðað við launavísitölu“, segir í
Hagvísum Þjóðhagsstofnunar,
þar sem fjallar er um þau áhrif
sem hinar verðlagshækkanir
undanfarna mánuði hafa haft á
kaupmátt almennings, eins og
Dagur raunar vakti athygli á fyr-
ir nokkru. Fara verður 6 ár aftur
í tímann til að finna annað dæmi
um 4,9% hækkun neylsuverðs-
vísitölu á aðeins 12 mánaða
tímabili, eins og orðið hefur síð-
ustu 12 mánuðina. Þannig
hækkaði kaupmáttur aðeins
kringum 2% síðustu borið saman
við hátt í 10% næstu tólf mánuð-
ina þar á undan.
Og þrátt fyrir bensínverðið er
nýja verðbólgubylgjan að stærst-
um hluta heimatilbúin. Síðustu
tólf mánuði hefur húnsæðisliður
neysluverðsvísitölunnar hækkað
um næstum 13% og verð inn-
lendra neysluvara um 4,3%. Á
sama tíma hefur verð innfluttra
neysluvara hækkað 3,1% að
meðaltali. - hei