Dagur - 20.10.1999, Page 2
r
u ■>
1
2 - MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1999
l FRÉTTIR
Mesta launahækkunin var 8,2% hjá sérhæfðu verkafólki en minnsta kauphækkun, 4,7%, fengu iðnaðarmenn. Konur hafa hækkað
meira i launum en karlar á landsbyggðinni, samkvæmt könnun Kjararannsóknarnefndar.
Kauphækkanir
mest hj á konum
Laim kvenna hækkuðu
meira en karla og laun á
landsbyggðinni heldur
meira en syðra og iðnað-
armenn fengu minnsta
hækkun.
Kjararannsóknarnefnd hefur komist
að þeirri niðurstöðu að dagvinnulaun
kvenna hafi hækkað um 6,2% en karla
aðeins 5,3% milli annars ársijórðungs
síðasta og þessa árs. Og sömuleiðis að
launin hafi hækkað ívið meira á lands-
byggðinni en á höfuðborgarsvæðinu.
Þessar launabreytingar eru mældar
einungis meðal þeirra einstaklinga
sem voru í úrtaki nefndarinnar báða
þessa ársþ'órðunga, þeir voru í pöruðu
úrtaki. Dagvinnulaun hafa að jafnaði
hækkað um 5,6% á þessu tímabili, eða
næstum 2% meira en hækkun sam-
kvæmt almennum kjarasamningum.
Mesta launahækkunin var 8,2% hjá
sérhæfðu verkafólki en minnsta kaup-
hækkun, 4,7%, fengu iðnaðarmenn.
Landshlutamimur í verslun og
þjúnustu
I ljósi umræðna um að þenslan og
launahækkanirnar séu bara lyrir sunn-
an vekur athygli að Kjararannsóknar-
nefnd finnur engan mun á dagvinnu-
launum verkafólks og iðnaðarmanna á
höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggð-
inni og einnig fremur lítinn launamun
milli sérhæfðs verkafólks, vélgæslu-
fólks og skrifstofufólks og skrif-
stofukarla.
A hinn bóginn voru meðallaun fyrir
þjónustu-, sölu- og afgreiðslustörf
miklu hærri á höfuðborgarsvæðinu,
bæði hjá körlum og konum. Karlar í
tæknistörfum eru lfka mun betur laun-
aðir syðra en konur í sömu störfum
talsvert betur Iaunaðar úti á Iandi. Sér-
fræðingar, það er karlar, voru lfka með
30 þús.kr. hærri laun syðra en á lands-
byggðinni.
Karlar tóku fyrr á flug
Edda Rós Karlsdóttir, hagfræðingur
ASI, var spurð um líklegar skýringar á
óvæntri kauphækkun kvenna umfram
karla.
„Góðir kaupaukasamningar í fiskin-
um, sem er nánast eingöngu úti á
landi, eru það fyrsta sem manni dett-
ur í hug,“ sagði hún. I öðru lagi hafi
launaskriðið kannski síðar komið til
hjá konunum, sem um leið gæti hugs-
anlega skýrt minnsta hækkun til iðn-
aðamanna, þ.e. að þeir hafi verið
komnir hátt á loft í launaskriðinu strax
í byrjun síðasta árs og jafnvel fyrr, sem
þýði þá hlutfallslega minni hækkun í
ár.
Karlakaup 10-50 þúsundum
hærra
Launamunur milli kynja er hins vegar
geysimikill þótt hann hafi kannski
minnkað um 1% síðan f fyrra, sem
áður segir. Hjá verkafólki er munurinn
10 þús.kr. körlum í hag, eða 93 og 103
þús.kr. Meðal fjölmennustu stéttanna
munar um nærri 30 þúsund í skrif-
stofustörfum og rúmlega 40 þúsund í
verslunar- og þjónustustörfum, en í
þessum greinum eru karlar á um 140
þús.kr. dagvinnulaunum á mánuði. I
tækni- og sérfræðistörfum fer launa-
munur kynjanna upp í 50 þúsund
krónur. -HEI
FRETTAVWTALIÐ
í pottinum voru menn að
ræða niðurstöður nýrrar
Gallup-könnunar fyrir Nátt-
úruvemdarsamtök íslands
um virkjunarmál og um-
hveríismat. Þar kom í ljós að
þrír af hverjum ljómm ís-
lendingum vilja að Fljóts-
dalsvirkjun fari í umhverfis-
mat. Pottverjum fannst það
heldur skrítið ef þingmenn
þjóðarinnar ætluðu virkilega að hundsa þenn-
an meirihlutavilja kjósenda sinna. Pottverjar
höfðu einnig hlerað að frá Náttúmvemdar-
samtökunum, sem Ami Finnsson stýrir af
myndarbrag, væm stórtíðindi væntanleg allra
næstu daga. Tíðindin gætu náð út íyrir land-
steinana, eftir því sem pottverjar komast næst,
og alla leiðina til Brussel...
1 pottinum kom til umræðu
hvað menn söknuðu Ólafs
Ólafssonar úr stóli landlækn-
is. Lítið væri um „krassandi"
yfirlýsingar núverandi land-
læknis, Sigurðar Guðmunds-
sonar, sem hefði yfir sér öllu
meiri emhættismannabrag en
forverhm og væri varkár í yf-
irlýsingum. Auðvitað eru
engir tveir menn eins, eins og
einn pottveiji minonti á, og
rifjaði upp af því tilefni sögu af Sigurði er
hann var „óbreyttur" læknir á Landspítalan-
um. Þá vom einir þrír læknar sem hétu Sigurð-
ur Guðmundsson nema að tveir höfðu milli-
staf. Núverandi landlæknir hefur ekkert miUi-
nafn og var þvl gjaman kallaður Sigurður
„staflausi" á göngum spítalans. Síðan hrá svo
við að Sigurður kom heim frá skíðaferð í Ölp-
unum með brákaðan fót og þá var hann kallað-
ur Sigurður staflausi með stafimi...
F - y
, -
Sigurður „staf-
lausi" Guð-
mundsson.
ÁstrááurB.
Hreiðsirsson
yfirlæknir á göngudeild sykur-
sjúkra á Landspítalanum
Fundist hejur erfðavísir
sem veldur sykursýki hjá
litlum hluta þeirra sem eru
með tegund 2 sykursýki. Sú
tegund hrjáir 3-5 prósent
Vesturlandabúa ogersam-
spil afeijða- og umhveifis-
þáttum.
Auðveldar leið til lækninga
- Útfrá sjónarhóli sjúklinganna, ekki skil-
ar þessi uppgötvun sér til þeirra í dag eða
á tnorgun?
„Nei, hvorki í dag né á morgun. í fyrsta
lagi er þetta bara mjög lítill hluti sykursjúkra
sem er með þessa tegund sykursýki, það er
bara brotabrot. I langflestum tilfellum vitum
við ekki orsökina en þarna er komið dæmi
um að það sé hægt að finna orsök. Þetta er í
fyrsta skipti á Islandi sem að finnst svona
erfðafræðileg breyting sem veldur sykursýki.
Svipaðar breytingar hafa fundist hjá sjúkling-
um erlendis. Þó má segja að hvað sjúklinginn
sjálfan snertir þá líður fólki alltaf betur ef
það veit eitthvað um orsök sjúkdómsins sem
það er með. I öðru lagi hlýtur það að komast
nær orsökinni að opna meiri möguleika á
meðferð í framtíðinni. Það er hugsanlegt að
einhverjar svipaðar breytingar séu hjá fleir-
um en það er bara ekki búið að finna þær.“
- Sjúklingar geta gengið með tegund 2
sykursýki alllengi án þess að vita það.
„Það er rétt, því einkennin eru oft ekki
mjög mikil. En hinsvegar er það alveg jafn
slæmur sjúkdómur og tegund 1 sykursýki.
Þónokkur hluti þeirra sem eru með tegund 2
sykursýki eru komnir með fylgikvilla,
skemmdir í líffærum útaf sykrinum þegar
sjúkdómurinn greinist, til dæmis augn-
skemmdir og fleira."
- Með þessari vitneskju niína, getur
greining þá orðið fyrr þannig að skemmdir
verði minni?
„Það er hugsanlegt hjá þröngum hópi
fólks. Til dæmis að það sé hægt að greina
þetta áður en sjúkdómurinn breiðist út hjá
fjölskyldunni. Það er ávinningur."
- Sú uppgötvun að ofneysla eða offita sé
ekki í raun nauðsynlegir þættir í þróun
þessa sjúkdóms, tegutid 2 af sykursýki, er
það ný vitneskja?
„Það á bara við vissan hluta af þeim sem
eru með tegund 2 sykursýki. Það fer nokkuð
eftir Iöndum en sennilega eru upp undir 80
prósent sem eru með tegund 2 sykursýki of
feitir. Það er hægt að láta sjúkdóminn
minnka eða jafnvel ganga til baka ef fólk
grennir sig. En þarna spila erfðir mjög sterkt
inní. Það virðist sem þessi breyting sem hef-
ur fundist hjá þessu fólki hafi fyrst og Iremst
áhrif á insúlínframleiðsluna. Aftur er það
sem er algengast við tegund 2 sykursýki er að
það sé viðnám í frumum líkamans gegn
insúlíni. Það eykst sérstaklega ef fólk fitnar,
þá verður svokallað insúlínviðnám, þannig
að þó fólk sé að framleiða mikið insúlín þá
virkar það ekki og sykurinn kemst ekld inn í
frumurnar."
- Hve langt þurfum við að horfa fram í
tímann til að sjá hf eða aðferð setn lagað
gæti eða læknað sykúrsýki í þessum hópi
sem um ræðir?
„Ég þori ekki að segja það. Það er mjög
margt í gangi í þessum genarannsóknum og
hugsanlegum genalækningum. Karl Tryggva-
son, prófessor í Stokkhólmi og hans félagar,
fengu fyrr á árinu mjög stóran styrk til rann-
sókna meðal annars á meingenum sem valda
því að sumir með sykursýki fá nýrnaskemmd-
ir. Sumir virðast ekld fá nýrnaskemmdir og
það sem hann er að vona er að finna eitt-
hvert meingen sem gerir sykursjúka útsetta
fyrir nýrnaskemmdum. Þetta fólk sem hefur
þá tegund sykursýki sem var verið að finna
orsökina fyrir núna er fólk sem hefur verið á
göngudeild sykursjúkra hér hjá okkur. Á
sama hátt komum við til með að vera í sam-
starfi við Karl Tryggvason varðandi rannsókn
á því hvort það séu einhver gen sem útsetja
fólk varðandi nýrnasjúkdóma. Þessi
uppgötvun sem nú hefur verið gerð nýtist
líka til að þróa og búa til lyf til að lagfæra
þennan kvilla.“ — Hl