Dagur - 20.10.1999, Blaðsíða 3
MIDVIKUDAGUH 20. OKTÓBER 1999 - 3
„ SídðaMofningur44
hj á Skagfír ðmgum
Meirihlutiim í sveit-
arstjóm Skagafjaröar
er klofiuu í afstöðu
siuui til uppbyggiug-
ar og reksturs skíða-
svæðis við Tiudastól,
fjallið semuug-
mennafélagið sækir
nafn sitt til.
Sveitarstjórn Skagafjarðar sam-
þykkti með naumum atkvæða-
mun í gær samning við Ung-
mennafélagið Tindastól um upp-
byggingu og rekstur skíðasvæðis
í Lambárbotnum í Tindastóli. A
fundi byggðaráðs Skagafjarðar
sl. miðvikudag var lögð fram
kostnaðaráætlun upp á rúmar 66
milljónir króna og klofnaði
meirihlutinn um málið er þau
Gísli Gunnarsson, forseti sveit-
arstjórnar og efsti maður á lista
Sjálfstæðisflokks, og Ingibjörg
Hafstað, efsti maður á Skaga-
fjarðarlista, greiddu atkvæði
gegn samningum, en með hon-
um greiddu atkvæði Herdís Á.
Sæmundardóttir, formaður
byggðaráðs og efsti maður á lista
Framsóknarflokks, Elínborg
Hilmarsdóttir, Framsóknarflokki
Gísli Gunnarsson.
og Ásdís Guðmundsdóttir, Sjálf-
stæðisflokki. Meirihluti sveitar-
stjórnar er skipaður 9 fulltrúum
Framsóknarflokks og Sjálfstæð-
isflokks gegn 2 fulltrúum Skaga-
fjarðarlista. Af 5 fulltrúum sjálf-
stæðismanna greiddu Gísli
Gunnarsson, Helgi Sigurðsson
og Sigrún Alda Sighvatsdóttir at-
kvæði gegn samþykktinni en Ás-
dís Guðmundsdóttir og Árni Eg-
iisson með henni og tillagan því
naumlega samþykkt með 6 at-
kvæðum gegn 5, en allir fram-
sóknarmennirnir greiddu henni
atkvæði, en báðir fulltrúar
Skagafjarðarlistans lögðust gegn
henni.
Herdís Sæmundardóttir.
Bág staða sveitarsjóðs
Á byggðaráðsfundinum lét Ingi-
björg Hafstað bóka að hún teldi
ekki tímabært að fara út í samn-
ingsgerð við skíðadeild Tindastóls
vegna bágrar stöðu sveitarsjóðs
og ekki síður vegna þess að vinnu
við forgangsröðun verkefna við
íþróttamannvirki í sveitarfélaginu
væri ekki lokið. Einnig væri máls-
meðferð verulega ábótavant, þar
sem samningurinn hefði ekki
hlotið efnislega umfjöllun og af-
greiðslu í Menningar-, íþrótta- og
æskulýðsnefnd, en hann var þó á
dagskrá nefndarinnar 13. október
sl. Við samninginn mun heildar-
greiðsla sveitarfélagsins fara úr
5,3 milljónum króna í 8,7 millj-
ónir króna auk 2 milljóna króna í
rekstrarframlag þannig að
greiðsla sveitarfélagsins nemur
um 11 milljónum króna á ári.
Gert er ráð fyrir í samningnum
að sveitarfélagið greiði 80% af áð-
urnefndum 66 milljónum króna,
eða 53 milljónir króna, og Tinda-
stóll þá 13 milljónir króna.
Greiðslutíminn er 10 ár, fyrsta
greiðsla árið 2000 og eru bundn-
ar byggingavísitölu auk 6% vaxta.
Áætluð verklok eru árið 2003 en
í áætluninni er m.a. ekki gert ráð
fyrir bílastæðum.
Ekki sótt nm Landsmót
UMFÍ
Samþykkt samingsins táknar
vafalaust að sveitarfélagið hyggst
ekki sækjast eftir því að halda
landsmót ungmennafélaganna
árið 2004, en í þá framkvæmd
þarf að leggja a.m.k. 1 50 milljón-
ir króna. Landsmót hestamanna
verður haldið á Vindheimamelum
í Skagafirði árið 2002, sem einnig
kostar verulegar fjárhæðir og
endurnýja þarf sundlaugina á
Sauðárkróki. Skagafjörður er
frcmur snjólétt svæði og þar ekki
ríkjandi mikil „skíðamenning“.
Því vilja margir sjá þessum pen-
ingum fremur varið til íþrótta-
greina sem Skagfirðingar eru
þekktari fyrir, eins og t.d. körfu-
bolta og knattspyrnu. — GG
Ingunn Guðmundsdóttir, forseti
bæjarstjórnar Árborgar.
Leikskóla-
kemnarar
snúa aftnr
Ellefu leikskólakennarar í Ár-
borg, sem sagt höfðu upp störf-
um, eru snúnir til starfa aftur eft-
ir að bæjarstjórn kynnti að ákveð-
ið hefði verið að leggja fé til
átaksverkefnis, sem miðar að því
að lylgja eftir nýrri aðalnámskrá
fyrir leikskóla. Verkefni þetta
hefst í þessum mánuði og stend-
ur til loka þessa árs. Fyrir þátt-
töku í verkefninu fá leikskóla-
kennarar greiddar 12 yfirvinnu-
stundir aukalega í hverjum mán-
uði og eru það allnokkrar kjara-
bætur. Enn er þó ekki ljóst hver
heildarkostnaður bæjarsjóðs
vegna þessa verkefnis er, að sögn
Ingunnar Guðmundóttur, forseta
bæjarstjórnar.
Það að leikskólakennarar hafa
snúið aftur til starfa, breytir þó
ekki þeirri staðreynd að áfram er
rekið fyrir Félagsdómi prófmál
það sem Árborg höfðaði til þess
að fá skorið úr með lögmæti upp-
sagna þeirra. Niðurstöðu Félags-
dóms er að vænta á næstu dög-
um. — SBS
Hefði verið rangt að
fara ekki til Úkraínu
Halldór Ásgrímsson
lauk opinberri heint-
sókn sinni til Úkra-
ínu í gær. Hann segist
vonast tU að ferðin
beri tUætlaðan árang-
ur og telur að það
hefði verið rangt að
fara hana ekki.
Opinberri heimsókn Halldórs
Ásgrímssonar til Ukraníu lauk í
gær. I samtali við Dag sagði hann
að heimsóknin hefði að sínu
mati gengið vel og það væri alveg
Ijóst að það hefði verið rangt að
fara ekki í ferðina en nokkur
gagnrýni hefur komið fram
vegna þessarar heimsóknar.
Halldór og fylgdarmenn hans
Halldór Ásgrímsson.
lögðu mikla áherslu á að mann-
réttindi yrðu virt og alveg sér-
staka áherslu á að dauðarefsing,
sem enn viðgengst í Ukraínu,
verði afnumin. Fyrir þessu feng-
ust vilyrði stjórnvalda í Ukraínu.
Tókst að ná athygli
„Okkur tókst að ná athygli ráða-
manna á því sem þarf að gerast í
landinu til þess að Ukraína upp-
fylli þau skilyrði sem þrýst er á
um að þeir geri. Við fengum vil-
yrði frá ráðherrum í ríkisstjórn
og forseta landsins og þinginu
um að þessum umbótum sem
kallað er eftir verði hraðað,"
sagði Halldór Ásgrímsson.
Hann sagðist vonast til að
þessi loforð ráðamanna verði
efnd en það muni að sjálfsögðu
tíminn einn leiða í Ijós.
„Það hefði verið mjög rangt að
fella þessa ferð niður og það
voru allir sem í hana fóru sam-
mála um nauðsyn hennar og
mikilvægi," segir Halldór Ás-
grímsson. — s.DÓR
Fiskaren á Akranesi
Norska sjávarútvegsblaðið
„Fiskaren, kystens næringsavis"
opnar ritstjórnarskrifstofu á Is-
landi þann 1. desember nk., og
verður hún staðsett á Akranesi.
Forstöðumaður er Magnús Þór
Hafsteinsson, blaðamaður, sem
m.a. hefur starfað hjá Fiskaren f
Noregi. Meginverkni hans verð-
ur að fylgjast með sjávarútvegs-
málum á Bretlandseyjum, Ir-
landi, Færeyjum, Islandi og báð-
um heimsálfum Ameríku að
Grænlandi meðtöldu. Fiskaren
kemur út þrisvar í viku og hefur
lagt aukna áherslu á að flytja
fréttir úr sjávarútvegi á öllum
Norðurlöndum en markmiðið er
að gera blaðið að vettvangi um-
fjöllunar um norrænan sjávarút-
veg, en það var stofnað árið 1925
og er elsta og stærsta sjávarút-
vegsblað Norðurlanda með höf-
uðstöðvar í Bergen.
Fiskaren tók þátt í Islensku
sjávarútvegssýningunni í Kópa-
vogi í byrjun septembermánaðar
og gaf þá m.a. út blað á íslensku
til þess að vekja athygli á blað-
inu. Þar var á forsíðu því slegið
upp að Norðmenn væru slegnir
út af laginu í lúðueldi og að
nótastríð væri hafið á íslenska
markaðnum og mynd birt af Sig-
urði VE með nót frá Asíu á síð-
unni í stað norskrar nótar, enda
helmingi ódýrari að sögn blaðs-
ins. — GG
Veritas á íslandi 20 ára
Det norske Veritas á Islandi (DNV), sem einkum er frægt fyrir skipa-
skoðanir og -tryggingar, er 20 ára um þessar mundir og heldur upp á
tímamótin í dag með móttöku og fyrirlestrum á Hótel Sögu. DNV
stofnaði fasta skrifstofu í Reykjavík sem útibú frá aðalskrifstofunni í
Noregi hinn 1. október 1979 og hefur Agnar Erlingsson verkfræðing-
ur veitt henni forstöðu f’rá upphafi. Starfsmenn eru nú fjórir. DNV
var stofnaði í Noregi 1864 sem skipaflokkunarfélag. Upphaflega fólst
starfsemin í að vinna að öryggismálum skipa en þetta hefur breyst í
tíma og rúmi. Nú tengist starfsemin einnig mannvirkjagerð á hafi,
s.s. olíuhreinsunarstöðvum, og iðnaðarfyrirtækjum á landi, bæði með
ráðgjöf og útgáfu vottana. DNV er með 300 fastar skrifstofur í yfir
100 löndum um allan heim. Starfsmenn eru um 4.700 af 75 þjóð-
ernum. Nú eru 10 Islendingar starfandi hjá DNV víðs vegar í Evr-
ópu. Þannig er yfirmaður starfssvæðis í Þýskalandi og Mið-Evrópu
Islendingur, Guðmundur Sigþórsson verkfræðingur.
Fimdað um íslendingafélög
Vináttufélag Islands og Kanada stenaur fyrir fundi í kvöld í Lögbergi
í Háskóla Islands. Þar ætlar Jón Ásgeirsson, fýrrum fréttamaður, rit-
stjóri Lögbergs-Heimskringlu og formaður Þjóðræknifélags íslend-
inga, að greina frá starfsemi Islendingafélaganna í Ameríku sem og í
Evrópu. Fundurinn hefst kl. 20 og er öllum opinn.
Auðar Auðuns minust á ALþingi
Auður Auðuns, fyrrverandi borgar-
stjóri, alþingismaður og ráðherra,
lést aðfaranótt 19. október, 88 ára
að aldri. Hennar var minnst á Al-
þingi í gær. Auður Auðuns var
fædd á ísafirði 18. febrúar 1911.
Hún lauk lögfræðiprófi frá HÍ
1935. Hún sat í borgarstjórn og á
Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn og
var borgarstjóri með Geir Hall-
grímssyni 1959-1960 og dóms- og
kirkjumálaráðherra 1970-1971.
Hún sat í borgarstjórn 1946-1970
og var alþingismaður frá 1959 til . „ . .
. am . 1 & Auður Auðuns.
L
i!l!p
fjQ riR
fitfi