Dagur - 20.10.1999, Síða 6
6 -MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1999
rÐ^ftr
ÞJÓÐMÁL
Utgáfufélag.
Útgáfustjóri.
Ritstjóri.
A ðstoðarritstjóri.
Framkvæmdastjóri.
Skrifstofur.
DAGSPRENT
EYJÓLFUR SVEINSSON
ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
BIRGIR GUÐMUNDSSON
MARTEINN JÓNASSON
STRANDGÖTU 31, AKUREYRI,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
Símar: 460 6ioo og soo 7080
Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is
Áskriftargjald m. vsk.: i.ooo KR. Á MÁNUÐI
Lausasöiuverð: 150 KR. og 200 kr. helgarblað
Grænt númer: 800 7080
Netfong auglýsingadeildar: greta@dagur.is - gunnarg@dagur.is
Sfmar auglýsingadeildar: (reykjavíK)563-1615 Ámundi Ámundason
(AKUREYRI)460-6191 Gunnar Gunnarsson
460-6192 Gréta Björnsdóttir
Símbréf auglýsingadeildar: 460 6161
Sfmbréf ritstjórnar: 460 6171CAKUREYRI) 551 6270 creykjav(k)
Þingið gegn þjóðinni?
í fyrsta lagi
Ný skoðanakönnun Gallups sýnir ótvírætt að lítil breyting hef-
ur orðið á afstöðu landsmanna til kröfunnar um lögformlegt
umhverfismat vegna Fljótsdalsvirkjunar. Um 73 prósent telja
það skipta „öllu“ eða „miklu“ máli að virkjun í Fljótsdal verði
ekki undanþegin lögformlegu mati á umhverfisáhrifum. Sam-
bærileg niðurstaða í síðustu könnun var 79 prósent. Harðn-
andi áróðursstríð hefur því ekki breytt miklu. Þó ber könnun-
in með sér að minnstur munur er á afstöðu Austfirðinga - en
þar skiptast íbúarnir nánast til helminga.
1 öðru lagi
Niðurstaða könnunarinnar er svo afgerandi að hægt er að tala
um þjóðarvilja í þessu máli. Það er ljóslega vilji mikils meiri-
hluta Iandsmanna að Fljótsdalsvirkjun fari í lögformlegt um-
hverfismat þannig að almenningur hafi formlegan farveg til að
hafa áhrif á niðurstöðuna. Sú spurning hlýtur að leita á ráða-
menn hvort skynsamlegt sé að virða að vettugi þennan vilja
fólksins. Ef ráðherrum tekst ekki að breyta afstöðu tugþús-
unda Islendinga í málinu, þá er Ijóst að með því að láta Alþingi
samþykkja ítrekun á leyfi Landsvirkjunar til að hefja fram-
kvæmdir við Fljótsdalsvirkjun, væri þingið vísvitandi að ganga
gegn vilja meirililuta kjósenda.
í þriöjalagi
Allt frá því krafan um lögformlegt umhverfismat vegna Fljóts-
dalsvirkjunar var fyrst sett fram hafa ráðamenn hafnað henni
með þeirri röksemd að ekki væri nægur tími til að láta slíkt
mat fara fram. Augljóst er þó að ef þessi krafa hefði verið sam-
þykkt árið 1997 eða 1998 væri því ferli, sem felst í matinu, nú
þegar lokið og niðurstaða fengin. Ef fyrir liggja jafn ítarlegar
rannsóknir og Landsvirkjun vill vera láta, væri vafalaust enn
hægt að Ijúka lögformlegu umhverfismati áður en fram-
kvæmdir eiga að hefjast. Það er því enn á valdi ríkisstjórnar-
innar að fara að vilja mikils meirihluta þjóðarinnar. En til þess
þarf meira en sáttavilja í orði - það þarf að sýna hann í verki.
Elías Snæland Jónsson
Ávextir góðæris
Garri er maður góðærisins.
Honum líður aldrei betur en
einmitt þegar ávextir góðæris-
ins eru fullþroska og tilboðin
hrannast upp um að ganga út
á akurinn og tína að eigin vild
epli, appelsínur, mangó, ban-
ana, vínber og aðrar gjafir jarð-
ar sem þar eru í boði. Satt að
segja minnir þetta dáfítið á
biblíusögurnar, þegar þau
skötuhjúin í Eden gengu um
nakin og gátu fengið allt það
sem hugur þeirra
girntist. Eða þá á
æskudaga Garra
þegar enginn kvóti
var kominn og allir
sem vildu gátu hrint
bátskektu á flot og
gerst útgerðarmenn.
Þá áttu allir fiskinn í
sjónum og spurningin snerist
einfaldlega um að ná í hann.
Það var tími ótakmarkaðrar
sóknar í lífsgæði og auðlindir.
Tjaldvag
I dag búum \
ninii
við við svipað
ástand, því allir geta nú veitt
sér allt og enginn þarf að láta
sig vanta neitt. Þannig rakst
Garri inn í tjaldvagnabúð á
dögunum og sölumaðurinn
þar - afskaplega elskulegur
maður - sá náttúrulega í hendi
sér að tjaldvagn var einmitt
það sem Garra vanhagaði um.
Ef ekki hefði verið fyrir tóm
Ieiðindi í eiginkonu Garra
hefði þessi fötlun, sem tjald-
vagnaskortur er, verið yfirunn-
in í einu vetfangi. Maðurinn
bauð Garra að taka vagninn
strax en ekki þurfti að byija að
borga fyrr en eftir hálft annað
ár. Til viðbótar þessu ætlaði
hann að útvega geymslupláss
fyrir hann yfir veturinn.
Fyrir veskislausan mann var
þetta tími ótakmarkaðrar
sóknar í lífsgæðin - að ganga
svo bara út með þennan fína
tjaldvagn!
Bílliim
Eins var það þegar Garri og frú
rákust inn í bílaumboðið. Þar
var nú ekki nánasarhátturinn
að teíja fyrir hjólum viðskipta-
lífsins. Garri var kominn hálf-
ur út úr húsinu á
nýjum jeppa þegar
eiginkonan upphóf
sín venjubundnu
Ieiðindi um að bíll-
inn væri of dýr!
Rétt eins og það
skipti einhverju
máli?! Það þurfti
hvort sem er ekkert að borga
fyrr en eftir dúk og disk!
Henni tókst nú samt að snúa
jeppakaupunum upp í kaup á
heldur tilkomulitlum fólksbíl.
Enda lætur Garri sig nú hafa
það að ganga í vinnuna, og ber
því við að um heilsubót sé að
ræða. Hjónabandið Iafir að
vísu enn, þrátt fyrir að eigin-
konan sé að skemma góðærið
fyrir Garra. Að því leyti sver
hún sig í ætt kynsystra sinna
þeirra Evu og Fiskveiðistjórnu
- hún er alltaf að skemma sæl-
una fyrir alvöru karlmennum!
Garra er það þó huggun harmi
gegn að sjá að kynbræður hans
margir láta ekki fara svona
með sig og bergja óhræddir á
brunni góðærisins. Það er
alltaf viss svölun og von í því
fólgin að vita, að enn eru til
karlmenn á Islandi. GARRI
ODDUR
ÓLAFSSON
skrifar
Svolítið er það undarlegt að
halda fram að alltumlykjandi
Evrópusamband sé ekki á dag-
skrá stjórnmálaflokka. Davíð for-
sætisráðherra endurtekur sí og æ
þegar málefni sameinaðar Evr-
ópu ber á góma, að að nánari
samruni sé ekki á dagskrá. Samt
er þátttaka Islands í Evrópska
efnahagssamningnum á dagskrá
á hverjum einasta degi, helga
sem virka. Og sá samningur og
samruni breytist ört í framþróun
ríkja um vestanverða Evrópu.
Núna horfa málin þannig við
að íhaldsöflin ffaman og aftan á
flokkaflórunni (það má alveg
eins nota þessa viðmiðun eins og
úreltu hugtökin hægri og vinstri)
hafna öllum viðræðum um vænt-
anlega inngöngu í Evrópusam-
bandið, en þeir flokkar sem eru
að reyna að hasla sér völl á miðj-
unni telja tímabært að fara að
sækja um aðild fyrir Islands
hönd til að athuga hvað í boði er
mörlandanum til handa.
Það þarf ekki mikla spádóms-
Dagskrármál utan
dagskrár
gáfu til að sjá, að Evrópska efna-
hagssvæðið og forveri þess EFTA
eru á leið út úr Evrópumynstr-
inu.
Fastur á lfnnnnl
Þá er komin upp sú
staða að Vinstri-grænir
eru orðnir bálskotnir í
EES og segja að það
muni passa okkur vel
um aldur og eilífð. En
þegar sömu aðilar voru
enn í allaballafélaginu
voru samtökin aðeins
tæki heimsauðvaldsins
til að klófesta íslenskar
auðlindir. Hitt íhaldið
hefur aftur á móti
verið til í tuskið að
ganga í EES, en ekki feti lengra
inn í Evrópusamrunann. Er Dav-
íð fastur á línu Margrétar
Tatcher í málefnum Evrópu.
Kratar hafa alltaf verið upp-
næmir fyrir að sækja um aðild að
Evrópusambandinu, enda líta
þeir á það sem einn allsherjar
krataflokk. Framsóknarmenn
voru með hundshaus þegar
gengið var í EES og gengu það
Iengst í atkvæðagreiðslu um mál-
ið, að sitja hjá þótt foringi þeirra
berðist hart fyrir því að
atkvæði væru greidd á
móti.
Þetta var nú þá og er
nú bæði Evrópusam-
bandið og íslenska
pólitíkin búin að taka
stakkaskiptum svo um
munar.
Framsókn brosir
Ekki má á milli sjá hvor
íhaldsflokkurinn er
betra afturhald þegar
kemur að Evrópumál-
um. Alþýðubandalagð er á hrað-
ferð yfir í róttækan íhaldsflokk
græningja. Aðrir allaballar hafa
ákveðið að gerast kratar og
stendur nú fyrir dyrum stofnun
slíkrar breiðfylkingar, sem vafa-
lítið mun stefna að inngöngu í
Evrópusambandið. Og nú upp á
síðkastið eru framsóknarmenn
farnir að brosa sætt til Samfylk-
ingarinnar og farnir að kallsa
hvort ekki sé tímabært að koma
sér inn í Evrópusambandið á
meðan þess er enn kostur.
Þarna getur því myndast breið
miðjusamstaða um að skella sér
inn í Evópusamrunann, taka upp
sameiginlega gjaldmiðilinn og
beijast við aðrar þjóðir um valda-
stólana í Brussel.
Gamli góði fjórflokkurinn er
við völd sem fyrr og nokkrar
nafnabreytingar skipta engu máli
um hvernig kaupin gerast á póli-
tísku eyrinni. Það munar heldur
engu til eða frá hvort mál, sem
brennur á öllum þjóðarbúskapn-
um er á dagskrá eða ekki. Þótt
sjálfstæðismenn ræði það ekki í
Valhöll, er þeim ekld varnað
máls annars staðar. Og ekki
heyrist betur en að Halldór Ás-
grímsson haldi málinu á dag-
skránni af fullri einurð, þótt svo
eigi að heita að málfrelsi ríki ekki
í Stjórnarráðinu.
Er Davíð fastur á Hnu
Margrétar Tatcher í
málefnum Evrópu.
ErJjarvitinsla lausnar-
orð landsbyggðarínnar?
Jósef A. Friðriksson
sveitarstjóri á StöövarfiidL
„Fjarvinnsla
skiptir sífellt
meira máli fyr-
ir landsbyggð-
ina. Hún skap-
ar nayðsynlega
fjölbreytni í
störfum og gef-
ur krökkum sem fara til náms
líka von um að störf víðar en í
frystihúsinu séu til staðar í
heimabyggð þegar námi lýkur. Á
Stöðvarfirði var nýlega opnuð
fjarvinnslustöð sem veitir þrett-
án manns vinnu og er hún lyfti-
stöng fyrir byggðarlagið þó við
eigum enn eftir að sjá margfeld-
isáhrif. Fjarvinnsla er góð stoð
byggðar á smærri stöðum, þó við
þurfum frumvinnsluna líka.“
Björg Ágústsdóttir
svdtarstjóri í GmndarfiröL
„Eg held að
fjarvinnsla geti
verið hluti af
þeim lausnum
sem þarf. Hún
eykur fjöl-
breytni f at-
vinnulífinu,
fólk getur valið um til dæmis
störf í frystihúsi eða við upplýs-
ingaiðnaðinn - og ég held að val
í atvinnumálum sé stórt sálrænt
atriði og íbúum mikilvægt. Mik-
ilvægt er jafnframt að starfsemi í
upplýsingaiðnaði fari fram víða
út um landið. En fleira þarf að
koma til í eflingu Iandsbyggðar-
innar, svo sem almenn jöfnun á
lífsskilyrðum fólks þar og á höf-
uðborgarsvæðinu."
Haukur Ágústsson
fjaritennslustjóri VMA.
„Fjarvinnsla er
ekki endanleg
lausn lands-
byggðarinnar,
en getur verið
það að umtals-
verðu leyti.
Þekkt er til
dæmis frá
Bandaríkjunum að margir flytji
úr þéttbýlinu á sér þekkilegri
staði og stundi þar sína vinnu í
gegnum tölvur. Ég trúi því að
þróunin sé eindregið í þessa átt.
Helsta vandamálið í þessum efn-
um eru há tengigjöld Landssím-
ans og á því máli þarf að finna
lausn."
Einar Már Sigurðsson
þingntaðurSamfylkingar.
„Eitt af mörg-
um lausnar-
orðum lands-
byggðarinnar
er fjarvinnsla.
En hún er ekki
patent-lausn.
Fjarvinnsla
skapar ýmis
sóknarfæri og bætist í þann
milda íjölda tillagna sem fyrir
liggur um aðgerðir á landsbyggð-
inni og nú einsog oft áður reynir
frekar á framkvæmdir en hug-
myndaauðgi - og að skilyrði til
framkvæmda verði sköpuð. Á
þessu sviði væri táknrænt ef op-
inberar stofnanir sýndu frum-
kvæði og flyttu hluta starfsemi
sinnar út á land með fjar-
vinnslu."