Dagur - 20.10.1999, Blaðsíða 12
.................................................. Iiimnnmmmmi mn 111 hti mimmmnninii
12- MIDVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1999
Simi 462 3600 * Hótabraut 12 • www.nett.is/borgarbio
Midvilcud. Icl. 21
Siðasta synincj
RÁÐHÚSTORGI
SlMI 461 4666 TFlX
ÍPRÓTTIR
Suðumesja-
risamir dróg-
ust sautau
Um helgina var dregið um |rað
hvaða lið leika saman í 1. um-
ferð bikarkeppni KKI (Renault-
bikarnum), í körfuknattleik
karla. Athyglisveröasti leikurinn
í drættinum er án efa leikur
Suðurnesjarisanna, Keflavíkur
og Njarðvíkur, en það eru einu
úrvalsdeildarliðin sem mætast í
1. umferðinni. Leikirnir fara
fram helgina 30.-31. október.
Leikir 1. umferðar:
Breiðablik - Hamar
Dalvík - Selfoss
Stjarnan - UMFG
Keflavík - UMFN
Fjölnir - Haukar
Árm./Þróttur - Tindast.
ÍS - KR
Stafholtst. - KR B
Þór Ak. - KFÍ
Þór Þorl. - Skallagr.
HK - Snæfell
ÍV - ÍR
GK. Grindav. - Smári
Valur - ÍA______________
Úrslit leikja
í gærkvöld
Fótbolti
Meistaradeild Evrópu
A-riðill
Dinamo Kiev - B. Leverk. 4-2
Maribor - Lazio 0-4
B-riðill
Fiorentina - AIK Solna 3-0
Arsenal - Barcelona 2-4
C-riðill
Feyenoord - Boavista 1-1
Bor. Dortm. - Rosenborg 0-3
D-riðill
Marseille - Man. Utd 1-0
St. Graz - Croatia Zagreb 1 -0
Leikir í kvöld
Handbolti
Úrvalsdeild kvenna
Kl. 20.00 ÍR - Fram
Kl. 20.00 KA - Stjarnan
KI. 20.00 Valur - Grótta KR
Kl. 20.00 UMFA - Haukar
Kl. 20.00 ÍBV - FH
Úrvalsdeild karla
Kl. 20.00 HK - Fylkir
Ferguson leitar áfram
Fréttir berast nú af því að Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester
United, sé á höttunum eftir Edilson, hinum 20 ára gamla brasilíska
framherja hjá Corinthians í Brasilíu. Þessi frábæri knattspyrnumað-
ur, sem mun vera falur fyrir átta milljónir punda, lét hafa eftir sér á
dögunum að hann hefði vonast til að geta haldið þessu leyndu. „Eg
viðurkenni að þessar þreifingar eru í gangi, en á ekki von á að neitt
gerist fyrr en eftir yfirstandandi keppnistímabil. Eg vildi svo sannar-
Iega fá tækifæri til að leika fyrir United og er tilbúinn til að yfirgefa
Brasilíu og reyna eitthvað nýtt,“ sagði Edilson.
Áhangendur United fá tækifæri til að sjá Edilson leika með liði
sínu, Corinthians, í heimsmeistarakeppni félagsliða sem fram fer í
Brasilíu í janúar nk., en þar er brasilíska liðið á meðal þátttakenda
eins og United. Þar að auki mun Ferguson nú einnig vera á höttun-
um eftir spánska unglingalandsliðsmiðverðinum Unai, sem leikur
með spænska liðinu Merida. Unai er mjög vænlegur kostur fyrir
Ferguson, þar sem hann mætti taka þátt í meistaradeildinni seinna í
vetur og þrátt fyrir að vera eftirsóttur af nokkrum stórliðum Evrópu
er hann ekki verðlagður nema á þrjár milljónir punda.
Glímuvertíðin að hefjast
Islenska glímuvertíðin hefst um næstu helgi með 1. Landsglímunni
sem fram fer á laugardaginn, fyrsta vetrardag, að Laugum f Suður-
Þingeyjarsýslu. Landsglíman er þriggja móta röð þar sem krýndur er
sigurvegari eftir hvert mót og síðan Landsglímumeistari í saman-
lögðu eftir síðustu Landsglímuna, sem fer fram í febrúar nk.
Næsta mót er svo I. Sveitaglíma unglinga sem fram fer í Grundar-
firði þann 13. nóvember og eins og við sjáum á mótaskránni hér að
neðan rekur svo hvert mótið annað þar til keppnistímabilinu lýkur
með sjálfri Islandsglímunni þann 6. maí í vor, þar sem keppt verður
um Grettisbeltið og sæmdarheitið Glímukóngur Islands.
Mótaskrá Glímusambands íslands 1999-2000
Dags: Mót: Mótsstaður:
23. okt. - 12:00 1. Landsglíma Laugar, S.-Þing.
13. nóv. - 10:00 1. Sveitaglíma Islands, unglingafl. Grundarfjörður
20. nóv. - 13:00 2. Landsglíma Laugarvatn
15. jan. -10:00 2. Sveitaglíma Islands, unglingafl. Laugar, Dalasýslu
30. jan. - 13:30 Þorramót GLI Hagaskóli, Rvík
12. feb. - 13:00 Bikarglíma Islands Laugar, S.-Þing.
27. feb. - 13:30 3. Landsglíma, lokamót Hagaskóli, Rvík
11. mars - 10:00 Grunnskólamót GLI Dalshús 2, Rvík
12. mars - 10:00 Meistaramót Islands Dalshús 2, Rvík
25. mars - 10:00 Sveitaglíma íslands, allir flokkar Hvolsvöllur
9. apr. - 13:30 Landsflokkaglíma, 17 ára og eldri Hagaskóli, Rvfk
6. maí - 13:00 Islandsglíman Dalshús 2, Rvfk
Sameiginleg norræn álykt-
un gegn kynpáttafordómiun
íþrótta- og ólympíusamband ís-
lands hefur nýlega sent frá sér
sameiginlega ályktun allra íþrótta-
og ólympíusambanda á Norður-
löndum, um íþróttir gegn kyn-
þáttafordómum, sem samþykkt var
á fundi Samstarfsnefndar sam-
bandanna í síðasta mánuði.
í ályktuninni kemur fram að
samstarfsnefndin vill í auknum
mæli beijast gegn kynþáttahatri á
Norðurlöndunum með því að
leggja meiri áherslu á blöndun inn-
flytjenda í íþróttahreyfíngunni og
koma þannig í veg fyrir að fyrirfram
ákveðnar skoðanir hindri það að
fólk með ólíkan menningarlegan
bakgrunn geti starfað saman.
Alyktun samstarfsnefhdarinnar:
íþróttir á móti kynþáttfordóm-
um - með blöndun.
íþróttalegar hefðir á Norður-
löndunum eru mjög svipaðar. Þær
byggja á iýðræðislegum sjónarmið-
um ásamt reglum um frjálsræði.
Þessi atriði eru grundvöllur nor-
ræns íþróttastarfs og er skilyrði fyr-
ir blöndun nýrra ríkisborgara á
Norðurlöndunum. Þær áherslur
sem ríkja innan norrænna íþrótta
bjóða upp á bestu möguleika til
sameiginlegra áhugamála þar sem
allir hafa jafna möguleika og rétt-
indi.
Reynslan sýnir að margir inn-
flytjendur þekkja ekki til þeirra
möguleika sem íþróttahreyfingin
býður uppá, og hvaða réttindi og
skyldur fylgja því að vera þátttak-
andi í íþróttastarfí. Þess vegna er
það mikilvægt að íþróttahreyfíngin
miðli þeim upplýsingum til þeirra.
Með stuðningi frá Norræna
Ráðinu hefur Finnska íþróttasam-
bandið haft frumkvæði að því að
koma á fót umræðum um það
hvemig hægt sé að stöðva og ekki
síst fyrirbyggja kynþáttahatur inn-
an íþróttanna. Finnska íþróttasam-
bandið bauð til fundar í Helsing-
fors í desember 1998 þar sem
mættir voru fulltrúar allra íþrótta-
sambanda á Norðurlöndunum.
Samstarfsnefnd Iþróttasam-
banda Norðurlanda vill í auknu
mæli beijast gegn kynþáttahatri á
Norðurlöndunum með því að
leggja meiri áherslu á blöndun inn-
flytjenda í íþróttahreyfingunni og
þannig koma í veg fyrir að fyrirfram
ákveðnar skoðanir hindri það að
fólk með ólíkan menningarlegan
bakgrunn geti starfað saman.
Lykillinn að blöndun liggur í
þeirri einlægni og gleði sem því
fylgir að taka þátt í líkamlegri þjálf-
un ásamt þeirri félagslegri samvcru
sem því fylgir og er einn af horn-
steinum íþróttahreyfingarinnar.
Hin breiða íþróttahreyfíng skal
með raunhæfri starfsemi vera virk-
ur hvati til blöndunar sem tryggir
jafnframt að kynþáttahatur er ekki
fyrir hendi innan íþróttanna.
Börn og unglingar eru von fram-
tíðarinnar og með réttum áhersl-
um sem beinast að nýrri kynslóð
getur íþróttahreyfíngin stuðlað að
því að skapa samfélag þar sem rúm
er fyrir alla óháð kynþætti, þjóð-
erni eða trúarskoðunum. íþrótta-
hreyfingin hefur öll þau bestu skil-
yrði til að blöndun geti átt sér stað,
því allir sem koma við sögu reyna
að Ieysa vandamálin í stað þess að
skapa ný. Hér getur fólk hist við
sömu skilyrði óháð færni og metn-
aði. Sameiginlegt markmið er að
norræn íþróttahreyfing skuli vera
til, fyrir alla.
Þess vegna vill Samstarfsnefnd
íþróttasambanda Norðurlanda
vinna að því að:
- íþróttimar á Norðurlöndunum
virki sem tæld þannig að markmið-
in að skilja, virða og samþykkja
tjöldann verði uppfyllt.
- auka þekkingu um norrænt
íþróttastarf með auknu upplýs-
ingaflæði auk þess að miðla þeirri
reynslu sem til er á milli Norður-
landanna.
- vinna að gagnkvæmri viður-
kenningu fyrir siðum bæði meiri-
og minnihluta og nota til þess þver-
menningarlegt upplýsingaflæði.
- norrænni samvinnu gegn kyn-'
þáttahatri verður haldið áfram með
því að skiptast á upplýsingum og
reynslu.