Dagur - 21.10.1999, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUH'2 l'. O K T Ó B'E R '19 99' 13 c
The Guimers í keimslu-
stund hjá Barcelona
Evrópumeistarar Manchester
Utd. töpuðu 1-0 fyrir Marseille í
Meistaradeild Evrópu á mánu-
dag með marki William Gallas
eftir snilldarsendingu inn fyrir
vörn Man. Utd. Mark Bosnich,
sem lék í marki Man. Utd., átti
enga möguleika gegn Gallas.
Þetta var fyrsta tap Man. Utd. í
Evrópukeppni í 18 Ieikjum en
síðast tapaði liðið fyrir ítölsku
snillingunum Juventus árið
1997, 1-0. MarseiIIe er með 9
stig en Manchester Utd. með 7
stig.
Ekkert lið lék eins vel á mánu-
daginn í Meistaradeildinni og
Barcelona, sem rúllaði Arsenal
upp 4-2, og átti fallbyssuliðið
„The Gunners" ekkert svar við
leik þeirra þó leikið væri í sjálfu
Mekka enskrar knattspyrnu,
Wemhley. Barcelona er komið í
16 liða úrslitin með 10 stig, en
Fiorentina og Arsenal eru með 5
stig. Rivaldo skoraði fyrsta mark
Barcelona á 15. mínútu úr víta-
spyrnu, sem dæmd var á fyrirlið-
ann Tony Adams. Þetta var alls
engin vítaspyrna því enn er leyft
í knattspyrnu að hrinda öxl í öxl.
Það kom hins vegar í ljós í leikn-
um að Tony Adams er að eldast
og hann átti sök á tveimur mörk-
um Barcelona, þar sem hann var
einfaldlega ekki eins snöggur og
baneitraðir framherjar
Barcelona, sem komust í 4-1
áður en Hollendingurinn Over-
mars minnkaði muninn í 4-2.
Fyrra mark Arsenal skoraði Iandi
Overmars, Bergkamp, í lok fyrri
hálfleiks og minnkaði muninn í
2-1.
Það voru kannski leikmenn
norska liðsins Rosenborg sem
komu mest á óvart með því að
vinna öruggan sigur á Borussia
Dortmund 3-0 og taka forystuna
í C-riðli. Sörensen gerði tvö
marka Rosenborgar en Winsnes
eitt. Önnur úslit urðu þau að
ítalska liðið Lazio vann Maribor
Treatanic frá Slóveníu 4-0 og er
Lazio-liðið komið í 16-liða úrslit
Arsenalfyrirliðinn Tony Adams fagnaði ekki eftir leikinn gegn Barcelona, en á hann var dæmt víti í leiknum og tvö
marka Barcelona komu eftir mistök hans í vörninni.
og Bayern Leverkusen vann
Dynamo Kiev 4-2 í sama riðli.
Fiorentina vann sænska liðið
AIK 3-0 og Feyenoord náði að-
eins jafntefli gegn Boavista, 1-1.
Austurríska liðið Sturm Graz van
Croatia Zagreb 1-0.
í gærkvöld fóru fram 9 leikir í
Meistaradeild Evrópu en þar lék
Chelsea gegn tyrkneska liðinu
Galatasaray og var mikill viðbún-
aður lögreglu fyrir þann leik, þar
sem Tyrkir töldu sig eiga harma
að hefna vegna þeirrar móttöku
er þeir fengu er þeir léku gegn
Chelsea á Bretlandi. Aðrir at-
hyglisverðir leikir eru m.a.
Hertha Berlin gegn Milan en
með Herthu Berlin leikur Eyjólf-
ur Sverrisson Iandsliðsfyrirliði
sem kunnugt er. Norska liðið
Molde fékk gríska liðið Olympi-
akos í heimsókn. — GG
-...........
Evanilson, leikmaður Borussia Dortmund og Bent Skammelsrud, leik-
maður Rosenborgar berjast um boltann í leik liðanna í Meistarakeppninni.
Stoke-sanmiiig-
ar undirritadir
íReykjavík?
Samningar um kaup íslenskra
fjárfesta verða undirritaðir í
Reykjavík um næstu helgi sam-
kvæmt heimildum frá Stoke. Til-
boð fslensku íjárfestanna hljóðar
upp á 6 milljónir punda, eða
tæplega 700 milljónir króna. Um
400 milljónir króna fara til
kaupa á meirihluta í félaginu, en
300 milljónir króna til kaupa á
nyjum leikmönnum og til þess
að greiða niður skuldir félagsins.
Talið er víst að Gary Megson
verði áfram þjálfarí liðsins, en
Guðjón Þórðarson, fráfarandi
landsliðsþjálfari Islands, verði
eins konar yfirmaður knatt-
spymumála hjá félaginu. Búist
er við að nýir meirihlutaeigendur
í Stoke muni tilkynna um fram-
tíðaráform sín strax í næstu viku.
Stoke vann á þriðjudagskvöld
Cardiff 2-1 á útivelli og er í 3.
sæti 2. deildarinnar. — GG
Haustmót
badminton-
trimmara og
einliðaleiksmót
Haustmót trimmara f hadmint-
on verður haldið í TBR-húsun-
um laugardaginn 30. október.
Hefst keppnin kl. 11.00 með
keppni í einliðaleik en um kl.
13.30 má áætla að keppni í tví-
liðaleik hefjist, og þar á eftir
keppni í tvenndarleik. Þeir sem
tapa fyrsta leik fara í aukaflokk.
Þátttökutilkynningar þurfa að
berast TBR fyrir kl. 12.00 mið-
vikudginn 27. október nk. Þátt-
tökurétt hafa allir þeir band-
mintontrimmarar 18 ára ogeldri
sem ekki eru í meistara- eða A-
flokki. Þó eru þær takmarkanir
settar að þeir sem einhvern tíma
hafa keppt reglulega í meistara-
flokki hafa ekki þátttökurétt.
Einliðaleiksmót TBR í bad-
minton verður haldið í TBR-
húsunum laugardaginn 6. nóv.
nk. og hefst keppni kl. 10.00.
Keppt verður í meistaraflokki,
A-flokki og B-flokki karla og
kvenna. Þeir sem tapa fyrsta Ieik
fara í aukaflokk. — GG
TTnglingalandsleiTdr gegn
Spánverjum og Norður-ínun
hmttspymu
Btíið erað skoða milli 60
og 70 leikmenn á heilu árí
alls staðarað aflandinu og
sía útþann hóp sem nú
fer til Norður-írlands, m.a.
á Olympíuleikum æskunn-
ar og á Norúurlandamóti í
Englandi.
íslenska landsliðið í knattspyrnu
U16 tekur þátt í Evrópumóti
drengja undir 16 ára dagana 24.
til 28. október nk. í riðli með ís-
lendingum eru Evrópumeistarar
Spánverja og Norður-lrar. Leikið
verður gegn Norður-írum mánu-
daginn 25. október og gegn
Spánverjum miðvikudaginn 27.
október. Þjálfari Iiðsins, Magnús
Gylfason, segir nánast útilokað
að segja til um það í þessum ald-
ursflokki hvaða möguleika ís-
Ienska liðið eigi. Liðið hefur
einu sinni spilað við Evrópu-
meistara Spánverja á þessu ári,
úti f Danmörku á Olympíuleik-
um æskunnar, og þeir eru mjög
erfiðir andstæðingar. Leikurinn
endaði 3-0 fyrir Spánverja.
„Við spiluðum svo við Portú-
gala og unnum þá 1-0 og þeir
unnu svo Spánverja 5-0 svo af
því má sjá að við ýmsu má búast.
Efsta liðið í riðlinum heldur
áfram í úrslitakeppnina, sem
haldin verður í apríl eða maí-
mánuði á næsta ári,“ segir
Magnús Gylfason, þjálfari.
- Ertu með það besta lið sem
hæst er að fara með út?
„Já, já“.
- Það vekur samt athygli að
leikmennimir eru allirfrá suð-
vesturhorni landsins, þ.e. frá
Keflavík til Akraness og allt
þar á milli. Eru engir leik-
menn af landsbyggðinni nógu
góðir?
„Það er búið að skoða milli 60
og 70 leikmenn á heilu ári alls
staðar að af landinu og sía út
þann hóp sem nú fer til Norður-
Irlands, m.a. á Olympíuleikum
æskunnar og á Norðurlandamóti
í Englandi. Það hafa verið leik-
menn í liðinu á þessum aðlögun-
artíma t.d. frá Siglufirði og
Ólafsvík. Svo hafa menn verið að
meiðast eins og gengur og gerist.
Eg tel því tvímælalaust að ég sé
með besta hópinn, en þeir eru
Páll Gísli Jónsson og Garðar
Gunnlaugsson frá Akranesi,
Baldur Kristjánsson, Birgir Har-
aldsson og Sigmundur Kristjáns-
son úr Þrótti Reykjavík, Viktor B.
Arnarson úr Víkingi, Þór Ólafs-
son, Jón Skaftason og Tryggvi
Bjarnason úr KR, Ólafur Ingi
Skúlason og Elmar Asbjörnsson
úr Fylki, Davíð Þór Viðarsson,
Hannes Sigurðsson og Svavar
Sigurðsson úr FH, Jónas Guðni
Sævarsson úr Keflavík og Eyþór
Atli Einarsson frá Grindavík. Við
vorum með svo marga leikmenn
í síðasta liði af Iandsbyggðinni að
það voru margir hissa í Reykjavík
hvað það væru margir í Iiðinu
utan af landi. Þessi umræða hef-
ur hins vegar engin áhrif á mig.“
- Er þetta þokkalega efnileg-
ur árgangur?
„Þetta eru góðir strákar en það
er minna um afgerandi sentera á
alþjóðavísu en oft áður. Nú eru
hinir hlutirnir sterkari, þ.e. miðj-
an og vörnin. Engir þessara
stráka hafa verið að leika erlend-
is, en hver veit hvað mun ger-
ast. — GG