Dagur - 02.11.1999, Síða 2

Dagur - 02.11.1999, Síða 2
H U U H I O I) \S > ■ »1 1» I B'iHiUHI 2 - ÞRIÐJVDAGUR 2. NÓVEMBER 1999 . FRÉTTIR Krístníhátídar- kirkja á áætlim Ný Ljósavatnskirkja verð- ur vígð í byrjim ágúst- mánaðar árið 2000. Bygg- mgákostnaður er áætlað- ur 49 milljónir króna. Bygging kirkju að Ljósavatni í Ljósa- vatnshreppi gengur samkvæmt áætlun, en ráðist var í byggingu hennar tii þess að minnast 1000 ára afmælis kristni- töku á Islandi, sem einmitt gerðist þar í nágrenninu er Þorgeir Ljósvetninga- goði þeytti goðum sínum í Skjálfanda- fljót við Goðafoss, eins og kunnugt er. Unnið er að því að loka kirkjunni og er verið að undirbúa Iagningu koparþaks á kirkjuna fyrir veturinn. Arni Jónsson á Fremstafelli í Kinn, á sæti í sóknar- nefndinni. Hann segir að vigsla kirkj- unnar sé áformuð fyrsta sunnudag í ágúst árið 2000, sem er 7. ágúst, af biskupi Islands, Karli Sigurbjörnssyni. Prófastdæmunum á Islandi hefur verið úthlutað tímum til þess að undirbúa kristnitökuhátíð, og Þingeyjarprófast- dæmi er ætlaður tími fyrstu helgina í ágústmánuði. „Við ætlum okkur að vera búin að koma henni í vígsluhæft ástand fyrir þann dag. Löngun okkar lýtur að því að ganga sem allra mest frá henni en byggingarkostnaður nemur samkvæmt áætlun 49 milljónum króna. Það voru áhöld um það um tíma hvort okkur tækist að fjármagna bygginguna, en ég er mjög bartsýnn nú. Við áttum ofur- Iitla sjóði sem byrjað var að öngla í fyr- ir 40 árum síðan, en þeir verða ekki gildir í 100 manna sókn. Að stæstum hluta er byggingin fjármögnuð af Jöfn- unarsjóði sókna og af ríkisfé, enda jafnframt minningarkirkja sem og sóknarkirkja. Frjáls framlög eru ótrú- lega fyrirferðarmikil, ekki sfst eftir að fólk sá að okkur var alvara með að reisa kirkjuna. Velvilji velunnara héraðsins er mikill, skiptir einhverjum milljónum þegar upp er staðið. Urtölumenn eru orðnir fáir en þeim finnst sumum fá- ránlegt að reisa hús úti í sveit Drottni til dýrðar. Mér finnst allt í lagi að hið opinbera komi að einhverjum Ijárfest- ingum í dreifbýlinu sem skilja eftir sig verðmæti og atvinnu meðan á bygg- ingu stendur," segir Arni Jónsson á Fremstafelli. Gömlu kirkjunni að Ljósavatni verð- ur fundinn staður í sýslunni, en ljóst er að svo fámennur söfnuður rekur aldrei tvær kirkjur. Hún er á húsfriðunarskrá, reist 1893. — GG FR É T TA VIÐTALIÐ í pottinum var verið aö ræða aö Framsóknarflokk- urinn hefur boðaö mið- 1 i stjórnarfund um næstu helgi þar scm eitt aðal um- ræðuefnið er flokksmál. Talið er víst að á þessum fundi mxrni verða nokkur naflaskoðun, ekki síst eftir athyglisverðar yfirlýsmgar Stein- gríms Hermannssonar í Degi mn lielgma, en Steingrímur er, cins og Steingrímur allir fyrrverandi þingmcnn flokks- Hermannsson. ins, sjálfkrafa i miöstjóm. Þá er talið að óróinn í flokknum i Reykjavíkmuni chmig koma tii mnræðu á fundm- mn, með formlegum eða óformlegum hætti, en scm kumiugt cr laust mðnnum þar saman á dögunum í kjölfar vantrauststiliögu frá Óskari Bergssyni á for- mann FR... Um fátt er mcira rætt í heita pott- inum á Akmeyri en nýtt stórt og mikið ljósaskhti sem skyndilega er komið á gafl Iistasafnsins í Iista- gilinu. Skiltið lýsh upp gilið eins og viti efth að rökkva tekm og eru mcmi þegar famir að kalla skiltið „Menningarvitann". Það hefur á hinn bóginn vakið nokkra furðu að Listasafnið standi nú í slíkum framkvæmdum, þar sem ekkert útboð var auglýst og nýlega þurfti að Iáta safmð fá aukafján'eitingu gagngert tU að þaö gæti haldið úti starfscmi út árið... Þá hefur það vakið athygli að eng- hm bæjarfulltrúa á Akmeyri hefur gcrt athugasemdir við þessar ham- kvæindh Qakob Bjömsson sat að vísu hjá við afgreiðslu málsins í bæjanáði), sérstaklega sakna pott- veijar athugasemda frá Oddi Helga Halldórssyni, sem af mörgum er talinn samviska þess hluta bæjar- búa sem ekki eru fastagesth í Listagilinu cða til- heyra memúngareh'tunni. Oddm Helgi mun hins vegar vera í erfiðri aðstöðu því það var íyrirtæki hans sem smíðaöi skiltiö og setti það upp. Því eru þeir margir sem kjósa að kalla skiltið „Oddvitann" í staðinn fyrh „meimingarvitaim"... Umrætt skilti í Listagiiinu. Kristín Blöndal stjómarformaðurLeikslwla Reykjavíkur Leikskólar segja upp dvalar- samningum. Tilaðkoma í veg fyrír lögsóknforeldra. Erfitt ástand á 12 af 72 leikskól- um. Foreldrum brugðið. Leik- skólastefnan ekki hrunin. Ófaglærðirfá 70-80 þúsund á mánuði. Verður að hækka Isnmm umtalsvert - Af hverju eru leikskólar borgarinnar famir að segja upp dvalarsamningum? „Við höfum gert dvalarsamninga við for- eldra leikskólabarna um hversu Iengi barnið dvelur dag hvern á lcikskólanum. I þessum starfsmannavandamálum í 12 af 72 leik- skólum höfum við þurft að hiðja foreldra að sækja börnin fyrr, eða halda þeim heima í einhvefya daga. Þessvegna erum við að segja upp þessum samningum og biðja fólk að skrifa undir nýja samninga. Þeir samningar eru nákvæmlega eins nema að því leyti að þar er fyrirvari sem kveður á um það að ef við höfum ekki mannskap til að standa við þessa samninga, þá gilda þeir ekki. Þetta ákvæði er sett í samningana til að verja okk- ur gegn því að hægt sé að lögsækja okkur." - Af hveiju ættu foreldrar að lögsækja ykkur að óbreyttu? „Af því að við erum með undirritaða dval- arsamninga. Ef við brjótum þessa gagn- kvæmu samninga og stöndum ekki við okk- ar hlut, þá getur fólk lögsótt okkur. I flest- um tilfellum er þetta þó þannig að þetta er gert í góðri samvinnu við foreldra sem skilja vel aðstæður okkar. Við erum hinsvegar búin að kanna þetta hjá okkar lögfræðingi og í framhaldi af þvf er þetta gert.“ - Veistu hvað þetla snertir mörg böm? „Þetta er á 12 leikskólum sem hefur þurft að grípa til þessa ráðs. Eg er ekki alveg með það á hreinu hvað þctta snertir mörg börn, þannig að að ég ekki svarað því.“ - Hver liafa verið viðbrögð foreldra? „Það er greinilegt að fólki er brugðið og misskilur þetta. Það heldur að verið sé að stytta tímana varanlega hjá barninu eða eitt- hvað sh'kt. Það er alls ekki. Heldur aðcins á meðan þetta ástand stendur yfir. Hinsvegar höfum við óneitanlega orðið vör við óá- nægju hjá foreldrum." - Hvað heldurðu að þetta ástand verði lengi? „Eg get ekki svarað því. Við erum alltaf að leita leiða til að fá starfsfólk og maður von- ar að það beri einhvern árangur og þetta ástand verði sem styst. Okkur vantar um 70 manns, en á lcikskólum borgarinnar starfa um 1700 manns í 1300 stöðugildum.“ - Eru þessir 12 leiltskólar vítt og breitt utn borgina eða i ákveðnum hverfum? „Þetta er vítt og breitt um borgina. Reynd- ar hefur horið svolítið á því að þetta ástand hefur verið erfiðast í nýju hverfunum í Graf- arvogi. Þetta ástand er einnig nýtt hjá mörg- um leikskólastjórum, sem hafa alla tfð verið með mjög stöðugt starfsfólk en eru að lenda í |iessu núna.“ - Er ekki leiksliólastefna horgarinnar að hrynja þegar svona er komið? „Nei, ég vona að svo sé ekki og lít raunar ekki svo á. Við sáum auðvitað ekki fyrir þetta atvinnuástand, auk þess sem það er ekki eingöngu bundið við leikskólana held- ur í öllum geirum atvinnulífsins. Sem dæmi get ég nefnt að sjúkrahúsin eru með l’ullt af deildum lokuðum vegna starfsmannaskorts. Þetta ástand á leikskólum kernur illa niður á foreldrum og líka á atvinnurekendum vegna Jiess að í sumum tilfellum kemur þetta í veg fyrir að fólk geti sótt vinnu.“ - Hver eru þessi launakjör sem fælir fólkfrá leikskólum? „Þetta eru rosalega lág Iaun sem ófag- lærðu fólki, sem ekki er með reynslu, stend- ur til boða. Þetta er eitthvað um 70-80 þús- und krónur á mánuði fyrir skatta." - Verður borgin þá ekki að hækka laun- in? „Það verður að hækka þessi Iaun umtals- vert jíegar kjarasamningar verða lausir. Það blasir við.“ - GRH

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.