Dagur - 10.11.1999, Side 13
T^mT
M ÍÐVIKÚD AGVRí 0. NÓ VEMÉ’ÉR 199 9 - 1S
GOLF
Vantar allt samræmi í
dómgæslima hjá okkur
Fyrir áttundu umferð-
iua í úrvalsdeild karla
í handknattleik, sem
hefst í kvöld, eru ís-
lands- og hikarmeist-
arar Aftureldingar í
efsta sæti deildarinn-
ar með 13 stig, einu
stigi meira en Fram,
sem er í öðru sætinu.
Nýliðar Fylkis og Vík-
ings eru í botnsætun-
um, Fylkir með ekkert
stig og Víkingar með
þrjú.
Áttunda umferð úrvalsdeildar
karla f handknattleik hefst í
kvöld með Ieik Aftureldingar og
HK að Varmá í Mosfellsbæ. Aft-
urelding er nú á toppi deildar-
innar með 13 stig, einu stigi
meira en Framarar, sem eru í
öðru sætinu með 12 stig, en HK
í 7. sætinu með 7 stig. Á botni
deildarinnar sitja nýliðar Fylkis
með ekkert stig og Víkingar eru í
næstneðsta sætinu með 3. stig á
eftir ÍBV, sem er í þriðja neðsta
sætinu með 5 stig. Bilið þar á
milli upp í þriðja sætið, þar sem
ÍR-ingar sitja með 9 stig, er því
ótrúlega stutt og því Ijóst að ekki
þarf mikið til að staðan breytist í
hverri umferð.
Reynsluleysiö heíiir háð
okkur
Víkingar sem unnu sér sæti í
deildinni í fyrra leika á sunnu-
daginn gegn Frömurum í Víkinni
og ætla sér þar ekkert annað en
sigur að sögn Þorbergs Aðal-
steinssonar, þjálfara.
- En hvað segir Þorbergur um
stöðuna hjá st'num mönnum?
„Ég vissi að þetta yrði erfitt hjá
okkur á fyrsta ári í deildinni, svo
að staðan kemur mér kannski
ekki beint á óvart. Það er mikill
munur á fyrstu og annarri deild
og það liggur fyrir að strákarnir
þurfa sinn tíma til að ná áttum.
Við erum með ungt lið og höfum
fengið til okkar fimm nýja leik-
menn, þannig að við þurfum
okkar tíma. Þetta verður betra og
betra með hverjum leik og með
auknu sjálfstrausti á þetta eftir
að smella saman. En auðvitað er
ég hundsvekktur yfir því að hafa
ekki halað inn fleiri stig, þar sem
þau hafa í raun verið í boði ef frá
eru taldir fyrstu tveir leikirnir
gegn KA og Aftureldingu. Strák-
arnir hafa sýnt að það býr miklu
meira í liðinu og ég tel að við eig-
um þó nokkuð inni. Það sem
helst hefur orðið okkur að falli er
reynsluleysið, sem sést á því
hvernig leikirnir hafa þróast hjá
okkur. Við vorum til dæmis með
gjörunninn leik á móti IR, þar
sem við hreinlega hentum sigrin-
um frá okkur og töpuðum með
tveimur mörkum. Við byrjuðum
illa á móti Val, en sóttum stíft á
allan leikinn og töpum honum
líka með tveimur mörkum og
reynar gerðist það sama á móti
HK. í Eyjum, þar sem við gerð-
um jafntefli, hefðum við átt að
ná báðum stigunum miðað við
gang mála. Við höfum oft verið
að leika mjög vel og skynsamlega,
en þess á milli fallið niður á
lægsta plan. Það segir okkur að
það vantar stöðugleika og reynslu
í liðið þannig að þetta verður allt
of sveiflukennt. Það þarf líka oft
mjög lítið til í jöfnum og spenn-
andi leikjum og þá er það einmitt
reynslan sem vegur mest. Okkur
hefur aðeins í einum leik tekist
að halda út í heilar 60 mínútur
og það var í sigurleiknum gegn
Haukunum í Hafnarfirði. Þar
tókst okkar að spila nokkuð villu-
lausan Ieik, sem sýnir að strák-
arnir geta þetta. Ég er þess vegna
bjartsýnn á framhaldið og viss
um að við eigum eftir að reyta
inn stig.“
Eigum eftir að reyta inn stig
- Attu von á að hörð botnbarátta
bíði ykkar?
„Eins og ég sagði þá er ég viss
um að við eigum eftir að reyta
Þorbergur segist sáttur við gul og
rauð spjöld, sé samræmi í
dómgæslunni.
inn stig. Stefnan er auðvitað að
halda sér í deildinni og ég hef trú
á að það takist. Það er enn mikið
eftir og við eigum enn eftir fjóra
leiki í fyrri umferðinni gegn
Fram, Stjörnunni, FH og Fylki,
þannig að það er ennþá nóg af
stigum í pottinum. Það er mikill
hugur í félagsmönnum og starfið
í kringum meistaraflolddnn er
alltaf að styrkjast. Við leggjum
þvf alla áherslu á að halda liðinu
í deildinni og að ná upp þeim
styrk sem til þarf. Við erum
komnir með góðan kjarna ungra
leikmanna til að byggja á, en höf-
um þó verið óheppnir með
meiðsl. Framtíðin er björt hjá fé-
laginu og fullt af ungum og efni-
legum leikmönnum í yngri flokk-
unum. Það er því gífurlega mikil-
vægt fýrir okkur að halda liðinu
uppi og það ætlum við okkur að
gera.“
Allir gera sín mistök
- Nú fékkst þú að líta rauða
spjaldið í leiknum gegn Val í 6.
umferðinni. Hvað finnst þér um
dómgæsluna í vetur?
„Nánast undartekningarlaust
finnst mér við hafa farið illa út úr
dómgæslunni í vetur. Mér finnst
einhvern veginn að dómarar beri
allt of mikla virðingu fyrir þeim
liðum sem hafa meiri reynslu í
deildinni og að það bitni á þeim
sem eru að reyna að sanna sig.
Annað sem ég er mjög ósáttur
með, er að það virðist vanta allt
samræmi í dómgæsluna hjá okk-
ur, leikinn út í gegn. I raun er
mér alveg sama hvernig menn
túlka reglurnar, ef það er eitt-
hvað samræmi í hlutunum. Auð-
vitað er það misjafnt eftir dóm-
arapörum, hvernig menn túlka
þær, en það er alveg óþolandi
þegar dómarar eru að skipta um
áherslur í miðjum leik. Við þjálf-
ararnir þurfum auðvitað að und-
irbúa liðið jafnt gagnvart leik-
reglunum eins og andstæðingun-
um og þess vegna verður að vera
samræmi í hlutunum. Það er
ekki hægt að banna eitt í fyrri
hálfleik og Ieyfa það svo í þeim
seinni. Allir gera sín mistök, bæði
þjálfarar og leikmenn og af
hverju ekki líka dómararnir. Það
er ekki það sem ég er að gagn-
rýna, heldur heildarmyndina á
dómgæslunni. Mér finnst að
dómararnir þurfi að skoða sín
mál og skapa sér einhverja línu.
Pörin verða líka að samhæfa og
undirbúa sig betur íy'rir leikina.
Við eigum góða dómara og þess
vegna er hægt að gera betur með
bættum vinnubrögðum. Svo
framarlega sem samræmi er í
dómgæslunni, þá er ég sáttur
þrátt fyrir gul og rauð spjöld.“
Þetta er þræljafot
- Hvað viltu segja um stöðuna í
deildinni?
„Mér líst bara vel á stöðuna í
deildinni og augljóst að allt getur
gerst. Þetta er þræljafnt og mikl-
ar svcillur á milli leikja hjá liðun-
um. IR-ingar töpuðu til dæmis
með níu mörkum úti í Eyjum og
vinna svo KA með þremur mörk-
um í næsta leik. Þar á undan
höfðu þeir svo gert jafntefli við
Aftureldingu. Það er því mikið
um óvænt úrslit og ég á von á að
það haldi áfram að verða. Það er
samt ekkert að marka stöðuna
fýrr en eftir fyrri umferðina og þá
sjá menn betur hvernig landið
liggur.“
- Er eitthvað sem hefur komið
þér á óvart í deildinni?
„Ætli það sé ekki helst góð
staða Framara. Þeir hafa l’ó
styrkt sitt lið gríðarlega þannig að
það ætti kannski ekki að koma
svo mikið á óvart. Einnig kemur
slæm byrjun Stjörnunnar nokkuð
á óvart og einnig staða Eyja-
manna. Þeir eru ennþá langt frá
sínu besta og hljóta að fara vinna
leiki á heimavelli, eins og þeir
eru vanir. Annars er mjög erfitt
að spá í spilin ennþá þar sem
sveiflurnar eru þetta rniklar.11
Ætlum okkur að vinna Fram
- Hverju viltu spá um úrslit næstu
umferðar?
„Ef við tökum fýrst Ieik Aftur-
eldingar og HK í kvöld, þá er ég
viss um að Afturelding vinnur
þann leik nokkuð örugglega. KA
ætti svo að vera öruggt með sigur
gegn Fylki fyrir norðan á föstu-
daginn og ég tippa á sigur ÍBV
gegn Val í Eyjum. Á laugardaginn
ættu IR-ingar að taka Haukana á
heimavelli í Breiðholtinu og ég
hallast svo frekar að sigri Stjörn-
unnar á FH-ingum í Kaplakrika.
Við ætlum svo auðvitað að vinna
Fram í Víkinni á sunnudaginn,
annað kemur ekki til greina."
Úrslit leikja Víkings í vetur:
Víkingur - KA 17-27
Víkingur-UMFA 24-29
ÍBV - Víkingur 28-28
Víkingur-IR 24-26
Haukar - Víkingur 24-25
Víkingur - Valur 28-30
HK - Víkingur 25-22
8. umferð hefst í kvöld:
Kl. 20.00 UMFA - HK
Föstud. 12. nóv.
KI. 20.00 KA - Fylkir
Kl. 20.00 ÍBV - Valur
Laugard. 13. nóv.
Kl. 16.30 ÍR - Haukar
Sunnud. 14. nóv.
Kl. 20.00 FH - Stjarnan
Kl. 20.00 Víkingur - Fram
Hermann í liði
vxkiumar
Hermann Hreiðarsson fær mik-
ið hrós í norskum og enskum
blöðum fyrir ÍTammistöðu sína
eftir að hann gekk í raðir
Wimbledon. Hann er, ásamt
þremur félögum sínum, Kenny
Cunningham, John Hartson og
Marcus Gayle, í liði vikunnar
eftir leiki helgarinnar. Nú velta
knattspyrnuspekingarnir því fyr-
ir sér hvort Drillo-vörnin eigi allt
í einu framtíð fyrir sér í
Englandi. Þegar Norðmaðurinn
kom til Wimbledon áttu þessir
sömu spekingar ekki til orð yfir
heimskuna í eigendum liðsins
að flytja þennan úrelta og brjál-
aða prófessor til landsins. Drillo
segist bara stilla liði sínu upp í
samræmi við þann mannskap
sem hann hefur. Markmiðið er
að ná í stig fýrir liðið.
Smicer frá í mánuð
Loksins þegar fór að létta til á
Anfield Road, eftir að flestir
Ieikmanna Liverpool eru komnir
á skrið eftir mikla meiðslahrinu,
verður Tékkinn Vladimir Smicer
að taka sér mánaðar frí vegna
meiðsla. Smicher haltraði af
velli á laugardaginn, í sigur-
leiknum gegn Derby, eftir að
hafa tognað. Reyndar hefur
Tékkinn verið meiddur síðan
hann kom til Liverpool í sumar
og því var aðeins tfmaspursmál
hvenær hann þyrfti að taka sér
frí.
Olsen Olsen bestur
Þar kom að því að Norðmaður-
inn, Egil „Drillo" Olsen, þjálfari
Wimbledon, ávann sér virðing-
arvott ensku pressunnar. Dag-
hlaðið Daily Mail kaus „DriIIo"
þjáifara umferðarinnar eftir að
Wimbledon svæfði Leeds og
skoraði sfðan tvö mörk gegn
engu. Reyndar hældu breskir
fjölmiðlar Olsen og Wimhledon
fyrir frammistöðu sína á sunnu-
daginn og þjálfarinn svaraði
með því að viðurkenna að þetta
hafi verið besti leikur liðsins í
haust. „Leikmennirnir eru lhrn-
ir að skilja til hvers er ætlast af
þeim og ef þeir gera það getum
við unnið hvaða lið sem er í úr-
valsdeildinni," sagði Egil Olsen.
Roy Keaue skammar
Umted
Flest bendir nú til þess að Roy
Keane yfirgefi Manchester
United í vor. Hann kemur að
lokuðum dyrum á skrifstofum
stórliðsins þegar hann setur
fram launakröfur sínar, sem eru
rúmlega tvöfalt hærri en launin
sem hann hefur í dag. Keane er
mjög óánægður með framkomu
forráðamanna United og segir
að launastefna þeirra eigi eftir
að eyðileggja fyrir liðinu í fram-
tíðinni. Það verði ekki sam-
keppnisfært í kapphlaupinu um
bestu knattspyrnumennina, ef
þeir tími ekki að borga þeim
sanngjörn Iaun. Núverandi Iaun
írans eru rúmlega fjórar milljón-
ir á viku. Hann krefst tæplega
níu milljóna fyrir þjónustu sína í
framtíðinni. Það eru laun sem
bæði Real Madrid og Lazio eru
tilhúin að borga honum. I
Englandi er litið á launakröfur
hans sem Irafár. - GÞÖ