Dagur - 07.01.2000, Qupperneq 5
„Gagnlegur fundiir“
með N or dmöimum
Hetgi Bjarnason, yfirmaður umhverfisdeiidar Landsvirkjunar, lengst tii hægri á myndinni, sýnir hér fuiitrúum Norsk Hydro,
þeim Bernt Malme og Peter Johann Schei, virkjanasvædið á Eyjabökkum á korti. mynd: teitur.
Fiilltrúar Norsk
Hydro hitta í dag fuU-
trúa Orkustofnimar
og umhverfisráðu-
neytisins.
Eins og Dagur greindi frá í gær
komu tveir fulltrúar Norsk
Hydro til landsins og áttu fund
með skýrsluhöfundum Lands-
virkjunar. Þetta voru þeir Bernt
Mamle, umhverfissérfræðingur
Hydro Aluminium í erlendum
verkefnum, og Peter Johann
Schei, ráðgjafi á vegum norska
álrisans. Þeir gáfu ekki færi á sér
í viðtal er Dagur leitaði eftir því.
Sögðust fyrst og fremst vera hér
í „vinnuferð".
Norðmennirnir komu ekki
bara til að hitta fulltrúa Lands-
virkjunar. Þeir áttu einnig fund í
gær með forráðamönnum Nátt-
úrufræðistofnunar islands og
Náttúruverndar ríkisins, sem
voru umsagnaraðilar Landsvirkj-
unar í skýrslugerðinni. I dag eiga
Norðmennirnir m.a. fundi með
fulltrúum umhverfisráðuneytis-
ins og Orkustofnunar. Eftir
þessa Islandsferð skila þeir
skýrslu til sinna yfirmanna hjá
Norsk Hydro og Hydro Alumini-
um.
Umræða uin víöan völl
Helgi Bjarnason, yfirmaður um-
hverfisdeildar Landsvirkjunar,
sagði í samtali við Dag að fund-
urinn í gær hefði verið afar gagn-
legur. „Þeir fóru efnislega yfir
skýrsluna okkar og ræddu al-
mennt um þessi mál. Umræðan
fór um víðan völl og ekki staldr-
að við eitt atriði öðru frernur,"
sagði Helgi, sem vikli aðspurður
ekki kannast við að annað hljóð
væri komið í norska strokkinn.
Að sögn Helga hafa bæði
Bernt og Peter Johann koniið
áður til Islands í svipuðum er-
indagjörðum og þekkja því bæri-
lega til íslenskra aðstæðna. Ann-
ar þeirra hefur t.d. aðstoðað við
matsskýrslu á umhverfisáhrifum
vegna álversins á Reyðarfirði.
- RJB
Siv skýtur og fær skot á móti.
Skotið á Siv
Náttúruverndarsamtök Islands
hafa sent frá sér ályktun þar sem
þau ítreka sína fyrri yfirlýsingu
vegna vegarlagningu yfir Vatna-
heiði á Snæfellsnesi. Siv Lrið-
leifsdóttir hefur sagt samtökin
hafa vísvitandi farið með rang-
færslur í þessu máli, en á það er
ekki fallist.
I ályktun Náttúruverndarsam-
takana segir að með því að heim-
ila lagningu vegar yfir Vatnaheiði
úrskurði umhverfisráðherra
gegn áliti Náttúruverndar ríkis-
ins sem telji norðurhluta heiðar-
innar hafi mikið verndargildi,
jafnvel á heimsvísu. Þá hafi ráð-
herra úrskurðað gegn mati
Skipulagsstjóra ríkisins, sem telji
að samgöngur íbúa á norðan-
verðu Snæfellsnesi breytist ekki
til svo mikils batnaðar með nýj-
um Vatnaheiðarvegi að hinni
sérstöku landslagsheild þar sé
fórnandi í þeim skiptum.
Ennfremur segir að enn einu
sinni hafi umhverfisráðherra að
engu haft álit þeirrar ríkisstofn-
unar sem eigi að veita faglegt álit
í náttúruverndarmálum. Þess í
stað gangi hann erinda sam-
gönguráðherra sem hafi lýst því
yfir að aðgerðir náttúruverndar-
sinna myndu ekki tefja þessar
fyrirhuguðu framkvæmdir. - SBS.
Ætla að stefna
Kára
Fyrirtækið Genealogia Islandor-
um ehf. og Þorsteinn Jónsson
ættfræðingur hyggjast stefna ls-
lenskri erfðagreiningu og Friðrik
Skúlasyni vegna brota á höfund-
arrétti. Stefna verður birt á allra
næstu dögum og nema bótakröf-
ur hundruðum milljóna króna.
Málið snýst um ólögmæt afnot
íslenskrar erfðagreiningar og
Friðriks Skúlasonar á ættfræði-
gögnum sem Þorsteinn Jónsson
og Genealogia Islandorum ehf.
segjast eiga höfundarrétt að. Eru
þetta niðja-, stétta- og ábúenda-
töl og ættfræðibækur, á annað
hundrað talsins, sem Þorsteinn
Kári Stefánsson. Friðrik Skúlason.
Jónsson og fræðimenn á hans
vegum hafa á undanförnum
árum unnið upp úr frumgögn-
um.
„Islensk erfðagreining ehf. hef-
ur með aðstoð Friðriks Skúlason-
ar og starfsmanna hans slegið
lögverndaðar upplýsingar sem
þar er að finna inn í tölvu í
ábataskyni, m.a. til rannsókna á
arfgengi sjúkdóma,“ segir í frétt
frá Þorsteinn Jónsson og Genea-
logia Islandorum ehf. Segir þar
ennfremur að engin tilraun hafi
verið gerð til þess að bæta þess-
um aðilum það tjón sem þeir
verði óhjákvæmilega fyrir. Því
hafa þeir falið hæstaréttarlög-
mönnunum Ragnari Aðalsteins-
syni og Ólafi Garðarssyni að
undirbúa stefnu á hendur IE og
Friðrik Skúlasyni.
Björn Bjarnason menntamálaráðherra ekur afstað, með forstjóra B&L sér viðhlið.
mynd: teitur.
Bílagjöf
Fræðslumiðstöð bílgreina hefur
fengið að gjöf 6 glænýjar bifreið-
ar að Hyundai-gerð. Afhending
bifreiðanna fór fram í gær f
húsakynnum Bifreiða- og land-
búnaðarvéla, gefanda bílanna og
umboðs Hyundai á Islandi.
Menntamálaráðherra var við-
staddur og ók hann einum bíl-
anna til Fræðslumiðstöðvarinn-
ar, sem staðsett er í Borgarholts-
skóla.
Bílarnir verða notaðir við
kennslu hjá Fræðslumiðstöðinni
en um 150 nemendur stunda
iðnnám í bílgreinum hjá Borgar-
holtsskóla.
Eimskip fyrir Norðuxál
Norðurál og Eimskip hafa samið
um að Eimskip flytji lyrir Norðurál
næstu þrjú árin. Eru þetta aðal-
lega flutningar á áli frá Grundar-
tanga til Rotterdam og innflutn-
ingur á rafskautum til Þýskalands
sem er flutt í gegnum Rotterdam.
Auk þess mun Eimskip flytja allar almennar rekstrarvörur til Norður-
áls, m.a. vegna stækkunar álversins sem hefst á þessu ári. Eimskip
mun hinsvegar ekki flytja súrál fyrir Norðurál. Aætlað er að þessir
flutningar nemi 140 þús. tonnum á ári. - SBS.
Flugleiðahótel á Akureyri?
Flugleioahótel hafa sent bæjarráði Akureyrar erindi þar sem sótt er
um lóð undir hótelstarfsemi í miðbæ Akureyrar. A bæjarráðsfundi á
Akureyri í gær var bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu. Hug-
myndir Flugleiðahótela eru um að reisa hótel í miðbænum, jafnvel í
tengslum við aðra starfsemi, svo sem menningarhúss sem fyrirhugað
er að reisa á miðbæjarsvæðinu. Hugmyndin er að hótelið gæti orðið
á bilinu 50-100 herbergja og vonast Flugleiðahótel eftir að það gæti
risið fyrir vorið 2001. - BG.
EIMSKIP
Þrír sækja um bæjarlögmann
Þrír sækja um starf bæjarlögmanns á Akureyri, en umsóknirnar voru
kynntar á fundi bæjarráðs í gær. Þeir sem sækja um eru lögmennirn-
ir Eyþór Þorbergsson og Sigurður Eirfksson á Akureyri og Hákon
Stefánsson í Reykjavfk. - SBS.
Banaslys á Vesturlandsvegi
Banaslys varð á Vesturlandsvegi við Korpúlfsstaði um ld. 18.30 í gær-
kvöldi. BíII, sem var á leið til Reykjavíkur, ók á ljósastaur og lést öku-
maðurinn samstundis, að því er talið er. Mjög slæmt skyggni var á
þessum slóðum þegar slysið varð, hvasst og skafrenningur, sem og
víða annarsstaðar. A Reykjavíkursvæðinu og víðar átti veður að versna
í nótt og á morgun. - SBS.