Dagur - 07.01.2000, Side 8
8 - FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2000
Thypir
FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2000 - 9
FRÉTTASKÝRING
Hriktir í stoðum kvótákerfísins
GUÐMUNDUR RÚNAK
HEIÐARSSON
OG
SIGURDÓR SIGURDÓRS-
SON
SKRIFA
Kvótadómurinn kallar
á lunfaugsmikla um-
ræðu um forsendur
kvótakerfísins. Dagur
ræðir hér við hags-
munaaðila og fulltma í
sjávanitvegsnefnd Al-
þingis.
Enn og aftur hriktir í stoðum kvóta-
kerfisins og óvíst um framtíð þess.
Héraðsdómur Vestfjarða hefur
komist að þeirri niðurstöðu að önn-
ur málsgrein 7. greinar Iaga um
stjóm fiskveiða sé í andstöðu við
jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar í
máli ákæruvaldsins gegn skipstjóra
og útgerð Vatnseyrinnar BA frá Pat-
reksfirði. Akærðu voru því sýknaðir
af ákæru um veiðar án þess að hafa
kvóta. Sem kunnugt er þá hélt
Vatneyrin BA til veiða í febrúar í
fyrra án þess að hafa nokkurn kvóta
og fékk um 34 tonn af þorski.
Akæruvaldið taldi þetta vera brot á
kvótalögum og krafðist þess að
ákærðu yrðu dæmdir til að greiða
verðmæti aflans í sekt, eða 4 milj-
ónir króna og aflinn yrði gerður
upptækur. Nær fullvíst er talið að
þessum dómi verði áfrýjað til
Hæstaréttar, enda mikil verðmæti í
húfi hjá þeim sem fjárfest hafa í
kvóta svo ekld sé minnst á stjórn og
nýtingu nytjastofna sjávar og áhrif-
in á efnahagslífið.
Kemur á óvart
Einn af þeim sem hefur verið mjög
gagnrýninn á kvótakerfið er Grétar
Mar Jónsson forseti Farmanna- og
fiskimannasambands lslands.
Hann segir að dómur Héraðsdóms
hafi komið sér á óvart, enda telur
hann að dómsvaldið hafi í gegnum
tíðina verið hliðhollt stjórnvöldum.
Hann telur að í framhaldinu þurfa
stjórnvöld að breyta verulega um
stefnu vegna þess að lögin standast
ekki stjórnarskrána. Að öllu
óbreyttu sé kvótakerfið hrunið.
Hann segir að það sé ekki gott að
spá um næstu skref, enda sé bolt-
inn hjá stjórnvöldum og spurning
Grétar Mar Jónsson forseti Far-
manna- og fiskimannasambands
íslands: „Dómurinn kom é óvart."
hvemig málið muni þróast. Hann
segir að stjórnvöld standi frammi
fyrir því að vera búin að setja lög og
reglur sem standast ekki stjórnar-
skrá að mati héraðsdóms. Grétar
telur að ef málinu verður áfrýjað til
Hæstaréttar og dómurinn mundi
komast að annarri niðurstöðu, þá
sé líklegt að því verði skotið til
mannréttindadómstóla. Sjálfúr tel-
ur hann að kvótakerfið sé óréttlátt
og einn mesti ríkisstyrkur sem ein
þjóð hefur látið ákveðinn hóp þjóð-
félagsþegna njóta á kostnað ann-
arra.
Hliðstætt mál féll í Hæstarátti
Arthur Bogason formaður Lands-
sambands smábátaeigenda segir að
það sé algjörlega Iffsnauðsynlegt
fyrir sjávarútveginn að Hæstiréttur
fjalli sem fyrst um 7. grein fisk-
veiðilaganna, enda sé það aðal-
hryggstykkið í þcim lögum. A með-
an séu menn í biðstöðu með alla
hluti. Hann segir að ef þessi dómur
héraðsdóms stendur óbreyttur sé
kvótakerfið meira og minna brotið
og laskað. Afleiðingin af því yrði
meiriháttar fyrir efnahag þjóðar-
innar. Arthur bendir hinsvegar á að
það sé stutt síðan Hæstiréttur fjall-
aði um alveg hliðstætt mál. Það var
í máli ríkisins gegn Garðari Björg-
vinssyni trillusjómanni sem taldi
sig geta veitt án kvóta með tilliti til
atvinnufrelsis og jafnræðis. Þar
dæmdi Hæstiréttur alveg þveröfugt
við það sem héraðsdómur komst að
í máli Vatneyrinnar. Af þeim sökum
kom þessi niðurstaða héraðsdóms á
óvart. Það hvarlar því að mörgum
að það sé eins og að spila í skaf-
miðahappdrætti að leggja mál lyrir
dómstóla. Hinsvegar kemur það
ekki óvart að dómurinn hafi litið
svo á að 7. grein kvótalaganna sé
jafn mikið á skjön við stjórnar-
skránna og 5. greinin var f svo-
nefndu Valdimars-máli.
Ótrúlegt
Hjá forystumönnum sjávarútvegs-
fyrirtækja finnst mörgum niður-
staða Héraðsdóms Vestfjarða vera
alveg ótrúleg. Svo er einnig skoðun
Brynjólfs Bjarnasonar forstjóra
Granda í Rcykjavík og m.a. vegna
þess að engir mcðdómendur hafi
verið með í dómnum. Hann segist
þó treysta því að faglega sé staðið
að uppkvaðningu svona dóma. Þá
sé það einnig ótrúlegt að mati
Brynjólfe að 10 ára gömul Iög skuli
brjóta í bága við stjórnarskrána og
því kemur þessi dómur á óvart. Af
þeim sökum sé brýnt að fá úr þessu
skorið og eyða allri óvissu, enda sé
það mikið óöryggi að búa við slíkt í
rekstri sjávarútvegsfyrirtækja. Hins-
vegar séu menn ekki farnir að búa
undir neinar breytingar á starfsum-
hverfinu, enda breytir dómurinn
ekki réttarstöðu manna vegna þess
að honum verður líklega áfrýjað til
Arthur Bogason formaður Landssam-
bands smábátaeigenda. „Hliðstætt
mál tapaðist fyrir stuttu I Hæstarétti."
Hæstaréttar eins og sjávarútvegs-
ráðherra hefur sagt. Þá séu menn
ekkert farnir að titra í sjávarútvegi
út af dómnum, enda séu þar æfðir
menn við stjórnvölinn. Hann telur
að það eigi síðan eftir að koma í ljós
hvort dómurinn muni hafa áhrif á
gengi hlutabréfa í sjávarútvegi.
Sjálfur býst hann ekki við því svona
fljótt á litið.
Ávísiui á verri lífskjör
Helgi Laxdal formaður Vélstjórafé-
lags Islands segir að dómurinn hafi
komið sér á óvart. I framhaldinu sé
ekkert því til fyrirstöðu að menn
haldi til veiða án þess að eiga kvóta.
Sérstaklega þeir sem trúa því að
Hæstiréttur staðfesti dóminn. Ef
það gerist séu það ein stærstu tíð-
indin í sögu landsins á síðari tím-
um. Afleiðingin af því yrði sú að
hver sem er gæti sótt sjóinn eins og
honum sýndist og gengi hlutabréfa
í sjávarútvegsfyrirtækjum muni
hrynja. í slíkri stöðu gætu stjórn-
völd aðeins sett hámark á afla fisk-
tegunda, þ.e. takmarka heildarveið-
ina. Hann bendir á að samkvæmt
dómi Hæstaréttar í Valdimarsmál-
inu sé ekki hægt að meina mönn-
um um veiðileyfi séu þeir með skip
sem uppfyllir kröfur Siglingastofn-
unar. Niðurstaða héraðsdóms þýðir
að það sé ekki hægt að úthluta
veiðirétti á einstök skip. Hann seg-
ir að ef þessi dómur gengur eftir í
Hæstarétti, þá sé það ávísun á stór-
kostlega lífskjaraskerðingu, enda
verður þá ekki hægt að reka sjávar-
útveginn með hagnaði og þeirri
hagkvæmni sem sé samfara núgild-
andi kerfi.
Dómnum fagnað
Sævar Gunnarsson formaður Sjó-
mannasambands íslands segist
fagna niðurstöðu dómsins sem slíks
en bendir á að þarna sé um héraðs-
dóm að ræða en ekki Hæstarétt.
Hinsvegar hefði dómurinn ekki
komið sér á óvart. Það sé vegna
þeirrar skoðunar hans og Iögmanna
sem hann ræddi við á sínum tíma
að stjórnvöld hefðu ekki tekið á
þessu máli í framhaldi af niður-
stöðu Hæstaréttar í svonefndu
Valdimarsmáli. Sá dómur hefði tek-
ið á stjórnarskrárbundnu atvinnu-
frelsi manna en ekki síður á kvóta-
úthlutun en veiðileyfi. Sævar telur
hinsvegar engin rök fyrir því í fram-
haldinu að menn fari á sjóinn
kvótalausir, enda viðbúið að dómn-
um verði áfrýjað til Hæstaréttar.
Hann segist bíða niðurstöðu hans
og þá ekki síður viðbragða stjórn-
valda. Þá segist hann ekki vera í
neinum vafa um að það hafi hrikt f
sjávarútveginum eftir dóminn.
Hann segist einnig vera þeirrar
skoðunar að á meðan frjáls verslun
sé leyfð bæði með varanlegar veiði-
heimildir og kvóta, þá verður eilífð-
Brynjólfur Bjamason forstjóri
Granda:
„Ótrúleg niðurstaða."
****** £5*’
Margir telja að grundvöllur núvernadi fiskveiðistjórnunarkerfis sé brostinn fari svo að Hæstiréttur staðfesti dóm undirréttar.
hbas—i\u 'Æmmt
liijw M |rl J'jT % ,T
W rl y:|jSfc w/1! \™ ’
ar stríð um kerfið. Því muni ekki
linna fyrir en stjórnvöld sýna þann
manndóm að afriema framsalið í
því formi sem það sé.
Mjög skýr dómur
Dómur Héraðsdóms Vestfjarða í
kvótamáli útgerðarmanns Vatneyr-
arinnar og Háhyrnings, Svavars R.
Guðnasonar, kemur stjórnmála-
mönnum greinilega i opna skjöldu,
jafn vel þótt búast hefði mátt við
þessari niðurstöðu vegna dóms
Hæstaréttar í máli Valdimars Jó-
hannssonar í fyrra.
Kristinn H. Gunnarsson, varafor-
maður sjávarútvegsnefndar, segir
að dómurinn hafi frekar komið sér
á óvart. Til hins sé þó til þess að líta
að í kvótadómi Hæstarcttar frá því í
descmber 1998 hafi vegurinn verið
varðaður. Þessi dómur sé að mikl-
um hluta byggður á Hæstaréttar-
dómnum og þess vegna segist
Kristinn eiga von á því að Hæsti-
réttur muni staðfesta þennan dóm
Helgi Laxdal formaður Vélstjórafé-
lags íslands: „Ávísun á stórkostlega
skerðingu lífskjara."
Héraðsdóms Vestfjarða. Hann geti
varla annað.
„Dómurinn er mjög skýr. Hann
fellir úr gildi úthlutun á aflahlut-
deild, þannig að verði hann stað-
festur mega allir bátar veiða eins og
þeir vilja og geta. Dómurinn gefur
ástæður fyrir niðurstöðunni. Ann-
ars vegar að úthlutanir veiðiheim-
ilda séu ótímabundnar og við það
gerir hann athugasemd og gefur í
skyn að eðlilegt væri að þær væru
tímabundnar. Hins vcgar gerir
dómurinn athugasemdir við að þeir
sem í upphafi áunnu sér veiðirétt
eftir viðmiðunarárum skuli halda
honum. Hann gerir kröfu til að síð-
ari tíma útgerðarmenn eigi aðgang
að veiðiheimildum. Það sé brot á
atvinnufrelsi og jafnræðisreglu að
hafa fyrirkomulagið eins og það er.
Þetta sýnist mér dómurinn vera að
segja og Hann er nokkuð skýr,“
sagði Kristinn.
Hann segir að dómurinn vilji
breyta fyrirkomulagi fiskveiði-
Sævar Gunnarsson formaður
Sjómannasambands íslands:
„Fagnar niðurstöðu dómsins."
stjórnunarinnar og tekur fram að
menn megi gefa sér tíma til þess
þannig að hann gefi aðlögunartíma
að nýju fyrirkomulagi.
„Þess vegna þarf ekki að skapast
neitt óvissuástand ef Hæstiréttur
staðfestir dóminn," segir Kristinn
H. Gunnarssonm.
MiMltíðindi
Steingrímur J. Sigfússon, formaður
VG, var staddur norður í landi þeg-
ar við náðum tali af honum. Hann
sagðist ekl<i hafa lesið sjálfan dóm-
inn, aðeins það sem komið hefði
fram í fjölmiðlum.
„Það cr dagljóst að ef þessi dóm-
ur stæði í Hæstarétti og engu yrði
breytt, þá væru það engin smá tíð-
indi. Ef menn dæma framkvæmd-
ina og jafnvel sjálfan grundvöll
kvótakerfisins ólöglegan vegna þess
að það samrýmist ekki atvinnufrels-
is ákvæðum stjórnarskrárinnar, þá
liggur í augum uppi að menn verða
hugsa dæmið upp á nýtt. Það sem
Kristinn H. Gunnarsson:
„Dómurinn er mjög skýr"
ég sagði í umræðum um kvótadóm
Hæstaréttar í fyrra var að hann vís-
aði til þess að dómstólar kynnu að
setja skilyrði og setja fram kröfur
um breytingar á framkvæmd kvóta-
kcrfisins. En ég átti síður von á því
að dómstólar dæmdu sjálfan
grundvöll fiskveiðistjórnunarinnar
ólöglegan," sagði Steingrímur.
Hann segist telja að menn deili
ekki um það að með einhverjum
hætti verði að reyna að stýra sókn í
fiskistofnana, en spurningin sé
greinilega um sjálfa framkvæmd-
ina. Þá vakni sú spurning hvort
sóknarstýring sé eina færa leiðin í
málinu til þess að ákvæði stjórnar-
skrárinnar um atvinnufrelsi sé upp-
fyllt. Eða aflamarkskerfi sem fram-
kvæmt yrði með allt öðrum hætti
en gcrt er nú í kvótakerfinu.
„En hvernig sem litið er á þenn-
an dóm er hann stór tíðindi svo ég
tali nú ekki um ef hann verður
staðfestur af Hæstarétti," sagði
Steingrímur J. Sigfússon.
Steingrímur J. Sigfússon:
„Þetta eru mikil tíðindi!"
Heföu átí aö hlusta
Jóhann Arsælsson alþingismaður á
sæti í sjávarútvegsnefnd Alþingis.
Hann segir að þessi dómur HV sé
greinilega byggður á dómi Hæsta-
réttar frá í fyrra. Rökstuðningurinn
sé sá sami.
„Mönnum hefði ef til vill verið
nær að hlusta á Hæstarétt í fyrra og
nota sér tímann til að mynda aðlög-
un að þessu sem nú blasir við. Eg
vona að menn taki Ioks mark á
þessu þegar þeir fá aðvörun öðru
sinni,“ segir Jóhann.
Ef Hæstiréttur staðfestir dóminn
segir Jóhann að tvær leiðir séu fær-
ar í stöðunni og segist þá ganga út
frá því að allir vilji hafa sljórn á
fiskveiðunúm. Onnur er sú að taka
upp sóknarstýringu, sem margir
hafi raunar lagt til, en verið bann-
sungin af kvótamönnum. Hin leið-
in sé að breyta kvótakerfinu ekki
neitt en setja allan kvótann á leigu-
markað sem allir landsmenn hafi
jafnan aðgang að. Það væri einfalt
Jóhann Ásælsson:
„Vona að menn taki mark
á aðvöruninni".
kerfi og hægt að gera það með
ýmsu móti til að tryggja að allir
landsmenn hefðu sama rétt til að
bjóða í kvótann.
„Það er engin spurning að slíkt
fyrirkomulag myndi standast jafn-
ræðisregluna, sem svo mjög hefur
verið vísað til. Kvótakerfið gæti þá
verið áfram í gildi ef menn vilja
það. Ef farið yrði yfir í sóknarstýr-
ingu yrði að gera breytingar á lög-
unum um stjórn fiskveiða. Þær
yrðu þó minni en margan grunar,"
segir Jóhann.
Hann var spurður hvernig málið
snéri að bönkunum, sem hafa fýrst
og fremst veð í kvóta útgerðarfyrir-
tækjanna, því án kvóta eru skipin
verðlaus. Jóhann segir að þar sem
bankarnir hefðu aðeins litið til
kvótans en ekki þess hvað fýrirtæk-
in hafa verið að gefa af sér, gætu
þeir lent í erfiðleikum verði dómur-
inn staðfestur. En vel rekin fýrir-
tæki ættu að vera vel samkeppnis-
hæf þótt þau yrðu að keppa við
önnur fýrirtæki í landinu um leigu
á kvóta. Það væri bara spurning um
samkeppnishæfni á þeim markaði.
„Það yrði ekki neinn dauðadóm-
ur fýrir fýrirtæki þótt þau þurfi að
keppa um að leigja sér aflaheimild-
ir. Það er út í bláinn að halda því
fram að um efnahagslegt hrun
verði að ræða ef Hæstiréttur stað-
festir dóminn. Það er bara rugl.
Mörg fýrirtæki eru og hafa verið að
leigja sér aflaheimildir. Eg hef verið
talsmaður þess að fýrirtækjunum í
sjávarútvegi yrði gert kleift að að-
lagast breytingunni þegar þetta
kerfí yrði Iagt af. Það er spurning
nú hvað rnenn geta tekið langan
tíma í þá aðlögun. Vegna þess hvað
stjórnvöld hafa lengið barið höfð-
inu við steininn í þessu ntáli er
spurning hvað sá aðlögunartími
getur orðið langur. Ef menn bregð-
ast ekki við nú þegar verður hér allt
í öngþveiti ef Hæstiréttur staðfestir
dóminn. Þá verða engar reglur í
gangi og allir geta veitt eins og þeim
sýnist. Menn setja ekki slíkar regl-
ur sem þarf á einum degi. Þess
vegna verður að bregðast við nú
þegar,“ segir Jóhann Arsælsson.
Engin augljós leiö fær
„Þótt hægt sé að taka undir það
sem fram kemur í dómnum að lög-
gjafinn hafi haft nægan tíma til að
finna aðra leið en kvótakerfið til að
stjórna veiðunum svo eðlileg nýlið-
un geti átt sér stað í greininni, er
það staðreynd að kvótakerfið hefur
skilað gríðarlega miklum árangri
fyrir íslenskt efnahagslíf sem ekki
er um deilt í rauninni," segir Krist-
ján Pálsson þingmaður af Suður-
nesjum.
Hann segir að margir hafi talið
að ekki væri ástæða til að festa kerf-
ið of rnikið þannig að engu mætti
hnika til í því án þcss að allt færi í
Kristján Pálsson:
„Kvótakerfið hefur skilað
miklum árangri".
uppnám.
„Þess vegna hef ég lengi varað við
því að leyfa veðsetningu á afla-
heimildum og talið að það gæti orð-
ið til þess að við fengjum þetta allt
í bakið og menn sætu uppi með
stór vandamál," segir Kristján.
Hann segir að ef og það sé stórt
orð í þessu tilfelli, að Hæstiréttur
staðfesti dóm héraðsdóms í málinu
séu ekki margar leiðir færar út úr
vandanum. Sóknarstýring hafi ver-
ið reynd og reyndist ónothæf.
Blandað kerfi kvóta og sóknarstýr-
ingar reyndist líka ónothæft.
„Því er augljóst mál að ef kvóta-
kerfið heldur ekki, skapast mikill
vandi við að finna nýtt kerfi. Ef til
vill er leiga á kvótanum eina leiðin
sem eftir er að reyna í þessu sam-
bandi en samt myndi það skapa
vandamál. Hvað með veðsetningu
aflaheimilda? Ég átta mig ekki á því
hvernig það yrði leyst. Það var
reyndar hent á það sem hættuspil
þegar síðast var verið að ræða
kvótamálin á Alþingi. Það er því
nokkuð ljóst að engin augljós leið
er til að leysa þann vanda sem
skapast myndi ef Hæstiréttur stað-
festir dóminn," segir Kristján Páls-
son.
Ótíast þrýsting á dómara
Guðjón A. Kristjánsson, þingmaður
Frjálslyndaflokksins, er að vonum
ánægður mcð dóminn, enda er
hann eins og prentaður út úr sam-
þykktum Frjálslyndaflokksins. Sem
dæmi um það má nefna ályktun
flokksins frá auka landsþinginu í
nóvember sl. þar sem segir m.a.
„Frjálslyndiflokkurinn telur höfuð
nauðsyn að leggja af núverandi
fiskveiðistjórnunarkerfi..." og síðan
„Hann hefur einn flokka mótað
skýra stefnu sem gæti tekið við þeg-
ar núverandi framkvæmd kvóta-
brasks kerfisins verður dæmd ólög-
mæt...“
„Ég á frekar von á því að Hæsti-
réttur muni staðfesta þennan dóm.
Ég skal vera alveg hreinskilin með
það að ég bjóst varla við því að einn
dómari í héraðsdómi, hvar sem
hann væri á landinu, hefði kjark til
að útfæra dóm með þessum hætti í
jafn viða miklu máli. Jafrivel þótt
hann sé jafn vel rökstuddur og raun
ber vitni enda byggður á dómi
Hæstaréttar og vitnað til stjórnar-
skrárinnar en ekki fiskveiðistjórn-
unarlaganna. Það bendir allt til
þess að fiskveiðistjórnunarlögin í
heild sinni standist ekki stjórnar-
skrána. En það sem maður kannski
óttast mest er að nú f’ari þeir sem
hafa vcrið að eignast auðlindina á
undanförnum árum út í það að
beita dómara einhverskonar þrýst-
ingi í gegnum sín sambönd, pólitísk
sem önnur,“ segir Guðjón Arnar
Kristjánsson.
Guðjón A. Kristjánsson:
Á von á staðfestingu
i Hæstarétti.
,( V f (í