Dagur - 07.01.2000, Blaðsíða 10
10 -FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2000
SMÁAUGLÝSINGAR
Vestfirðingar______________________
Þorrablót Vestfirðingafélagsins verður
haldið 22. janúar að Fosshótel KEA. Matur,
skemmtun og dans.
Sjáumst sem flest.
Stjórnin.
íbúð óskast______________________
Oska eftir að taka á leigu 2ja-3ja her-
bergja íbúð sem fyrst. Reglusemi og skil-
vísum greiðslum heitið.
Upplýsingar i símum 466-2347 á kvöldin
og 868-4700.
Takið eftir_____________________
Frá Sjónarhæð. Unglingafundir á föstu-
dagskvöldum kl. 8:30.
Á mánudögum kl. 18 verða fundir fyrir
drengi og stúlkur. Vonumst til að sjá vini
okkar frá Ástjörn. Verið öll velkomin.
Frumsýning á íslandi
Halti Billi frá Miðey
eftir Martin McDonagh
Leikstjóri Hallmar Sigurðsson
Næstu sýningar
Föstudaginn 7. janúar ki. 20.30
Miðvikudaginn 12. janúar kl. 20.30
Föstudaginn 14. janúar kl.20.30
Miðasala í síma 462 1129
Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma
ANNA MARGRÉT JÓHANNESDÓTTIR
frá Gilsá,
í Eyjafjarðarsveit,
lést miðvikudaginn ð.janúar á Dvalarheimilinu Hlíð.
Jaröarförin auglýst síðar.
Björn Garöarsson, Ágústa Sverrisdóttir,
barnabörn og fjölskyldur
nyjfl bio
RÁÐHÚSTORGI
lXll°°u"l
O I G I T A L
Thx
SÍMI 461 4666
kl. 16:50,18:50,21 og 23:30 ,
Synd
Synd
Sýnd kl.
kl. 18:40
kl. 21
16:50 m'ísl.tali
Sýndkl. 23:15
■ LÍF OG LIST
Hemingway og Saga
„Eg er með þijár gjörólíkar bækur á náttborðinu
þessa stundin þó ekki hafi gefist mikill tími til
lestrar síðustu vikumar," segir Haukur Ingi-
bergsson, formaður 2000-nefndarinnar svo-
nefndu. Lengst er ég kominn með Satt við fyrstu sýn sem rituð er af
syni Ernest Hemingway upp úr handriti sem hann lét eftir sig er
hann féll frá. Sagan er „afiísk“ í anda og áhugaverðastar eru lýsing-
ar á veiðum á villtum dýrum og sú sálfræði og siðir sem þær byggj-
ast á. Þó þetta sé tæplega dæmigerður Hemingway, kemur stfll karls-
ins fram af og til. Eg er ekki kominn eins langt í bókinni um móður
Teresu sem nefnist Leiðin einfalda. I bókinni er leitast við að gera
grein fyrir lífsspeki hennar, visku og kærleik sem er rauði þráðurinn
í hennar boðskap. Við fyrstu kynni er bókin aðeins sundurlaus og
nokkuð um tilvitnanir en boðskapurinn kemur vel fram. Þriðja bók-
in er Saga, tímarit Sögufélagsins og er hún mest að vöxtum, 350
blaðsíður. Það er mikil gróska í íslenskri sagnfræði um þessar mund-
ir, margir ungir sagnfræðingar að stíga sín fyrstu skref og þeir eldri
eins og til dæmis Guðjón Friðriksson blómstra sem aldrei fyrr. I þessu
riti eru fróðlegar sagnfræðilegar ritgerðir um menn og málefni og Ijall-
að um nýútkomnar bækur. Þetta er eitt af þessum ritum sem gott er
að hafa við hendina og lesa eina og eina ritgerð þegar færi gefst.“
Edith Piaf og Tina Tnrner
„Þessar vikurnar eru það einkum nokkrir disk-
ar með Edith Piaf sem komast á spilarann hjá
mér. Hún er meistaralega góð söngkona og
túlkandi, var einkum fræg fyrir framkomu í kabarettum og tón-
listarhúsum. Hún fæddist á götum úti í París 1915 og Iést 1963
og líf hennar einkenndist af sveiflum þótt ef til vill sé fulldjúpt í
árina tekið að segja að einkalíf hennar hafi verið ein samfelld
saga hörmunga og veikinda eins og segir á einu umslaginu.
Stundum minnir Piaf á aðra stórstjönru, Tinu Turner þótt þær
séu nánast eins ólíkar og hægt er að hugsa sér í útliti og söng.
En það er þó einhver sameiginlegur, óútskýranlegur tónn sem er
sameiginlegur hjá báðum. „
CNN stóð öllirni framar
M&esSsé, „Undanfarnar vikur hef ég ekki gefið mér tíma
fyrir eina einustu bíómynd. Ef tími hefur gef-
ist til þá hef ég horft á sjónvarp og þá einkum
CNN til að fylgjast með umfjöllun og fréttum um 2000 vand-
ann. Hvað varðaði umfjöllun um það efni stóð umfjöllun CNN
skrefi framar öllum öðrum stöðvum bæði núna um áramótin og
áður. Arið 1984 dvaldi ég nokkra daga í Atlanta. Þá var farið í
heimsókn í litla sjónvarpsstöð sem nýlega var tekin til starfa og
hún ætlaði að sjónvarpa fréttum allan sólarhringinn sögðu gest-
gjafar mínir og það gætti vantrúar í röddinni um að nokkur
rekstrargrundvöllur væri fyrir slíkri stöð. Þetta var CNN, sem
núna er sennilega orðinn áhrifamesti fjölmiðill heimsins. Svona
getur mjór verið mikils vísir.“
■ fra degi
7. dagur ársins, 359 dagar eftir.
Sólris kl. 11.12, sólarlag kl. 15.56.
Þau fæddust 7. janúar
• 1844 fæddist heilög Bernadette frá
Lourdes, malaradóttir sem sá sýnir og
var fyrir vikið gerð að dýrlingi kaþólsku
kirkjunnar.
• 1845 fæddist Lúðvík III., síðasti kon-
ungur Bæjaralands (1913-18).
• 1851 fæddist írski málvísindamaður-
inn George Abraham Grierson.
• 1899 fæddist franska tónskáldið
Francis Poulenc.
• 1906 fæddist gríski skipakóngurinn
Aristoteles Sokrates Onassis.
• 1912 fæddist Jón Kristófer Sigurðsson
kadett í hernum.
• 1942 fæddist sovéski kraftlyftinga-
maðurinn Vasilí Ivanovitsj Aleksejev.
• 1964 fæddist bandaríski leikarinn
Nicholas Cage.
TIL DAGS
Þetta gerdist 7. janúar
• 1610 tók Galíleó Galilei eftir því að
íjögur tungl snerust um Júpíter.
• 1714 fékk Englendingurinn Henry
Mill einkaleyfi á ritvélinni.
• 1927 var í fyrsta sinn komið á síma-
sambandi yfír Atlantshafið, milli
London og New York.
• 1928 var kvikmyndin Circus eftir
Charles Chaplin frumsýnd.
• 1955 tók Muddy Waters upp lagið
„I'm Your Hootchie-Cootchie Man“.
• 1979 var frystihús Isbjarnarins í
Örfirisey í Reykjavík tekið í notkun,
sem nú er rekið af Granda hf.
• 1990 var skakki turninn í Písa lokaður
ferðamönnum vegna þess að hann
þótti vera farinn að hallast of mikið.
Vísa dagsius
Heimur er nú horfinn mér,
í himnaríki víst ég er;
eitthvað fyrir augun her
sem ekki glöggt ég þekki.
Ur Drykkjuvísum eftir Jón Thoroddsen
Afmælisbam dagsius
Bandaríski kvikmyndaleiluirinn Nicolas
Cage fæddist á Long Beach í Kaliforníu
þann 7.janúarárið 1964. Hann erbróð-
ursonur kvikmyndaleikstjórans Francis
Ford Coppola. Nicolas litli var skýrður
Nicolas Kim Coppola og gegndi því
nafni þar til hann komst að því að
Coppolanafnið væri honum fj'ötur um
fót. Hann byrjaði að leika til þess að
komast undan stríðni í æsku. Hann lék
fyrst í bíómynd árið 1982 en hefur síð-
an leikið í kvikmyndum eins og Cotton
Club, Birdy, Wild at heart og 8 milli-
metrar.
Ekkert er svo fáránlegt að einhver heim-
spekingur hafi ekki sagt það.
Cicero
Heilabrot
Hvað er það sem fer í skólann á hverjum
einasta degi en lærir þó aldrei neitt?
Lausn á síðustu heilabrotum: Spurn-
ingin er: „Hverju myndirðu svara ef ég
spyrði þig hvort vegurinn til hægri liggi að
vatnsbólinu?" Gefum okkur að hægri veg-
urinn liggi í raun að vatnsbólinu, þá væri
svar öldungsins já ef hann hefði ákveðið að
segja sannleikann. En ef hann hefði ákveð-
ið að ljúga, þá væri svar hans líka já, því
annars væri hann að segja satt um að hann
hefði svarað neitandi. Sama gildir ef vegur-
inn til vinstri liggur í raun að vatnsbólinu,
nema þá væri svar öldungsins nei hvort sem
hann hefði ákveðið að segja satt eða ljúga.
Veffang dagsins
Flestum fánum heims eru gerð góð skil á
www.flags.net