Dagur - 07.01.2000, Side 12
12*- FÖSTUDAdú'tf y. JA Nú'ÁR Tóoö^"
ERLENDARFRÉTTIR
Frelsuðu faugamir
héldu til PaMstans
Indverjar handtóku í
gær fjóra menn í
tengslum við flug-
ránið.
Indversk stjórnvöld sögðust í
gær hafa handtekið fjóra menn
í tengslum við flugránið fyrir
áramót. Tveir þeirra eru
pakistanar, einn nepalskur og
einn indverskur. Ekki er þó um
sjálfa flugræningjana að ræða,
heldur menn sem Indverjar
segja hafa veitt flugræningjun-
um aðstoð.
Jafnframt ítrekuðu Indverjar
ásakanir sínar á hendur Pakist-
an um að hafa staðið að baki
flugráninu. Segjast Indverjar
hafa fengið margar staðfest-
ingar á þessum ásökunum.
Fangarnir þrír, sem flugræn-
ingjunum tókst að fá lausa úr
indversku fangelsi í skiptum
fyrir gíslana í flugvélinni,
héldu hins til Pakistans eftir að
þeir brunuðu með ræningjun-
um fimm í bifreið frá flugvell-
inum í Kandahar á gamlárs-
dag.
Meðal þeirra var trúarleið-
toginn Maulana Masud Azhar,
sem verið hefur í fangelsi á
Indlandi frá því 1994, en hann
hélt blaðamannafund í borg-
inni Karachi í Pakistan í gær.
Þar sagði hann flugræningj-
ana fimm hafa kvatt sig og fé-
laga sína tvo í Afganistan á veg-
inum frá borginni Kandahar í
Slaguriim
liafÍTiTi
Tveir frambjóðendur þykja sig-
urstranglegastir í Króatíu. Atta
manns hafa látið skrá sig til for-
setaframboðs í Króatíu, en
frestur til þess rann út á mið-
nætti í gær. Kosningarnar fara
fram þann 24. janúar næstkom-
andi, sem er mánudagur. Sig-
urstranglegastir þykja þó tveir
frambjóðendanna, þeir Drazen
Budisa og Mate Granic.
Budisa er frambjóðandi sam-
steypuflokkanna sex sem sigr-
uðu með miklum yfirburðum í
þingkosningunum á mánudag-
inn var, en Granic er leiðtogi
gamla stjórnarflokksins, HDZ,
sem hefur stjórnað landinu frá
því 1991.
Skoðanakannanir hafa flestar
bent til þess að Granic sé vin-
sælastur meðal kjósenda, en
vera kann að kosningaúrslitin
frá því á mánudaginn hafi sett
strik í þann reikning. Flokkarnir
sex, fylkja sér í einingu á bak við
Budisa og miðað við vinsældir
þeirra má búast við að þeir geti
haft veruleg áhrif á kjósendur í
forsetakosningunum.
Budisa er gamall andófsmað-
ur sem mátd dúsa fjögur ár í
fangelsi fyrir að vera forsprakki
stúdentahreyfingar á áttunda
áratugnum, sem krafðist aukins
sjálfræðis Króatíu innan gömlu
Júgóslavíu.
Aðrir frambjóðendur eru tveir
harðlínu hægrimenn, þeir
Tomislav Mercep og Ante
Djapic, ásamt Zvonimir
Separovic, fyrrverandi dóms-
málaráðherra, Stipe Mesic, fyrr-
verandi fulltrúa Króata í gömlu
Júgóslavíu, viðskiptamanninum
Ante Ledo og félagsfræðingnum
Slaven Letica.
HEIMURINN
Romano Prodi.
Prodi vill Gaddafi í heimsókn
EVRÓPUSAMBANDIÐ - Romano Prodi, forseti
framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, vill rjúfa
einangrun Líbíu á alþjóðavettvangi með því að bjóða
Moamar Gaddafi, forseta Líbíu, í opinbera heim-
sókn til höfuðstöðva Evrópusambandsins í Brussel.
Prodi hefur beðið Ieiðtoga aðildarnkja sambandsins
um að samþykkja slíkt heimboð. Bandarísk stjóm-
völd hafa verið í forystu um að einangra Gaddafí og
hafa ítrekað sakað hann um að styðja alþjóðlega
hryðjuverkastarfsemi.
24 lestir á móti rauðu ljósi
NOREGUR - Dagblaðið Bergens Tidende í Noregi skýrði frá því í
gær að á síðasta ári hafi það gerst a.m.k. 24 sinnum að járnbrautar-
lest hafi verið ekið á móti rauðu ljósi og legið nærri við slysi. Þessi 24
skipti eru þó eingöngu þau þegar atvikið hefur verið skráð, en talið er
að ekki hafí öll slík atvik verið skráð og því hafi þetta komið mun oft-
ar fyrir í raun. Talið er að lestarslysið, sem var við =sta-brautarstöð-
ina í Heiðmörk í Noregi á þriðjudag hafi orðið vegna þess að önnur
lestanna nam ekki staðar á rauðu ljósi. Lestirnar voru á nærri 90 km
hraða þegar áreksturinn varð og er nú talið að um 20 manns hafi týnt
þar lífinu.
Mauutjón Rússa í Téténíu eykst
RÚSSLAND - íslamskir skæruliðar í Grosní, höfuðborg Téténíu,
veita rússneska hernum æ harðari mótspyrnu og hefur mannfall í
röðum Rússa aukist verulega síðustu daga. Ekki síst hafa verið blóð-
ugir bardagar um aðalbrautarstöðina í suðurhluta Grosní. Yfirmenn
rússneska herinn hafa jafnframt í fyrsta sinn viðurkennt mikið mann-
fall í eigin röðum, án þess þó að nefna tölur þar um. Boris Jeltsín
tjáði sig hins vegar um stríðið í gær, þar sem hann var staddur í heim-
sókn í Jcrúsalem, og sagðist sannfærður um að því myndi ljúka inn-
an tveggja mánaða.
íslö sk skæraliðasamtök hætta
ALSIR ;blöð í Alsír hafa skýrt frá því að samtök íslamskra bók-
stafstri inna, AIS, sem hafa stundað hryðjuverk þar í landi, verði
lögð m iðsmenn samtakanna fá sakaruppgjöf og ganga til liðs
við stj( I í baráttunni gegn öðrum kryðjuverkasamtökum, GIA,
sem t;> . bera ábyrgð á bróðurpartinum af þeim fjöldamorðum
og voð; rkum sem framin hafa verið í Alsír á síðustu árum.
Trúarleiðtoginn Maulana Masud Azhar ekur á brott eftir blaðamanna-
fund í Pakistan í gær, umkringdur stuðningsmönnum.
Afganistan til landamæra
Pakistans. Þar stigu ræningj-
arnir úr bílnum og fóru yfir í
aðra bifreið. Þremenningarnir
hefðu hins vegar aldrei séð
framan í ræningjana, því þeir
hefðu hulið andlit sitt.
Azhar sagði flugræningjana
hafa tárast og faðmað sig að
sér. „Við erum frá Indlandi,"
segir hann þá hafa sagt, „við
berum virðingu fyrir þér og dá-
umst að þér, en við getum ekki
tekið af okkur grímurnar."
Hinir tveir mennirnir, sem
látnir voru lausir í skiptum fyr-
ir gísla flugræningjanna, eru
Mustak Akmed Zargar, sem er
indverskur Kasmírbúi og leið-
togi múslimskra skæruliða-
samtaka, og Akmed Umar
Saíd, sem er breskur ríkisborg-
ari en fæddur í Pakistan.
Ekki var vitað í gær hvar þeir
tveir væru niður komnir, en
Zargar var sagður vera á leið til
indverska yfirráðasvæðisins í
Kasmír þar sem hann ætlar
væntanlega að halda áfram
baráttunni gegn indverska
hernum ásamt skæruliðasam-
tökum sínum, sem nefnast
Ul-Umar Mujahedín.
Um leið og flugræningjarnir
skildu við þremenningana létu
þeir lausan talibana, sem þeir
höfðu tekið sem gísl til að
tryggja að þeir fengju að fara
óáreittir frá flugvellinum í
Kandahar.
ÍÞRÓTTIR
Ðagur
Ferguson svarar gagurýni
Brasilískur blaðamaður hefur haldið því fram
að Alex Ferguson, framkvæmdastjóri
Manchester United hafi engan sérstakan
áhuga á heimsmeistarakeppni félagsliða sem
nú fer fram í Brasilíu og noti hana aðeins sér
og sínum til hvíldar frá álaginu heimafyrir.
Þessi orðrómur komst á kreik í kjölfar yfirlýs-
inga Martins Edwards, stjórnarformanns fé-
lagsins, um að betra hefði verið fyrir liðið að
sitja heima og taka frekar þátt í ensku bikar-
keppninni.
Axel Ferguson hefur nú svarað þessum
ásökunum blaðamannsins og segir að hann
fari með rangt mál. „Ég veit ekld hvaðan hann
hefur þetta. Ég sagði fyrir nokkrum vikum að
þegar við ákváðum að taka þátt í keppni, þá erum við með til að sigra,
sama hver keppnin er. Við höfum haft töluvert mikið fyrir undirbúningi
og þátttöku í þessari keppni og höfum þurft að fórna ýmsu í staðinn,“
sagði Ferguson.
Alex Ferguson.
>
Kanu sklpað að koma til Spánar
Nígríumanninum Nwankwo Kanu, leikmanni
Arsenal, hefur verið skipað að mæta í æfinga-
búðir nígeríska landsliðsins á Spáni strax á
föstudaginn, vegna undirbúnings liðsins fyrir
þátttöku í Afríkubikarnum og sleppa þar af-
leiðandi leik Arsenal gegn Leicester í enska
bikarnum á sunnudaginn. Arsene Wenger
hafði vonast eftir undanþágu fyrir Kanu, eins
og Leeds félck fyrir Lucas Radebe, sem þýddi
að hann þyrfti ekki að mæta til Spánar fyrr en
eftir sunnudaginn. Forráðamenn nígeríska
landsliðsins hafa enn ekki verið fáanlegir til
að gefa leikmanninum undanþáfu, ekki frek-
ar enCelestine Babayaro hjá Chelsea, sem er í sömu vandræðum.
Að sögn Tijjani Yusuf, ritara nígeríska knattspyrnusambandsins, kem-
ur ekld til mála að veita neinar undanþágur fyrir leikmennina. „Þeir
verða því að vera mættir til Spánar á föstudaginn (í dag),“ sagði Yusuf. Að
sögn Peter Hill-Wood, stjórnarformanns Arsenal verður allt gert til að
leysa málið.
„Þó það líti eldd vel út núna, þá munum við reyna til þrautar. Við get-
um samt ekki tekið neina áhættu og Kanu spilar ekki nema hann fái til
þess leyfi nígeríska knattspyrnusambandsins. Þeir hafa hótað að kæra
okkur ef Kanu spilar og þá eigum við á hættu að vera dæmdir úr bikarn-
um. Þá áhættu tökum við ekki,“ sagði Hill-Wood.
Arsene Wenger var þó á öðru máli ef marka má fréttir í enskum fjöl-
miðlum í gærkvöld. „Eg mun láta Kanu spila þó þeir hafi ekkert gefið eft-
ir í málinu og þrátt fyrir allar hótanirnar," sagði Wenger, sem á í miklum
vandræðum fyrir bikarleikinn, þar sem þeir Dennis Bergkamp og Marc
Overmars eru báðir meiddir.
„Eg ætla mér ekki að ræða málið neitt frekar við Nígerfumennina og
finnst ég alls ekki þurfa þess. Kanu mun fara beint í æfingabúðirnar á
Spáni eftirleikinn á sunnudaginn og þá eru fjórtán dagar þar til keppnin
um Afríkubikarinn hefst. Að mínu mati ætti það að duga þeim," sagði
Wenger. Kanu sagði sjálfur í viðtali við nígeríska útvarpsstöð í gær að
hann muní koma til móts við fandsliðið strax hann fái Ieyfi frá Arsenal.
„Nígería er mitt föðurland og ég er alltaf tilbúinn þegar ég er kallaður,“
sagði Kanu. Samkvæmt reglum FIFA telst leikur Arsenal gegn Leicester
félaginu tapaður ef Kanu leikur með, auk þess sem félagið fengi háar
fjársektir. Þar munar líklega einum degi samkvæmt reglunum, þar sem
Afríkukeppnin hefst 22. janúar.
Totti til Chelsea
Italski landsliðsmaðurinn Francesco Totti hjá
Roma, hefur sterldega verið orðaður við enska
úrvalsdeildarliðið Chelsea. Þar á bæ sjá menn
hann sem tilvalinn arftaka Gianfranco Zxifa,
sem á 33ja aldursári og hefur lýst vilja sínum
um að hverfa aftur til heimalandsins, til að
ljúka ferlinum.
Totti, sem er verðlagður á 15 milljónir
punda, hefur oftar en einu sinni lýst því yfir
að hann sé tilbúinn til að breyta til og þá að-
allega til að vinna titla, sem hann hefur hing-
að til ekki unnið með Roma, undir stjóm
Fabio Capello, þjálfara.
Heiðar Helguson til Watford
Norska úrvalsdeildarliðið LiIIeström sam-
þykkti í gærkvöldi tilboð enska úrvalsdeildar-
liðsins Watford í íslenska landsliðsmanninn
Heiðar Helguson. Tilboðið hljóðaði upp á
tæpar 180 milljónir íslenskra króna, en fyrir
tveimur árum keypti norska liðin hann fyrir
450 þúsund krónur frá Þrótti í Reylcjavík.
Hann hefur því heldur betur ávaxtað sig í
Noregi og grátlegt fyrir íslenska knattspyrnu
að sjá svo stórar fjárfúlgur renna beint í vasa
norskra liða. Heiðar stóð sig frábærlega vel
með Lilleström á síðasta leiktímabili og var
markahæsti leikmaður liðsins í úrvalsdeild- ,, ,
inni með 16 mörk. Heiðar Helguson.