Dagur - 07.01.2000, Page 13
T>Mptr
FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2000 - 13
ÍÞRÓTTIR
Stórsigur KR-inga
Tveir leiMr fóru fram í
úrvalsdeild kveima í
körfuknattleik í fyrra-
kvöld, þar sem topplið-
in Keflavík og KR imnu
bæði örugga sigra.
Islands- og bikarmeistarar KR-inga
í körfuknattleik kvenna unnu 87
stiga stórsigur, á Grindvíkingum,
þegar liðin mættust í úrvalsdeild-
inni í fyrrakvöld. Leikurinn sem
fram fór í íþróttahúsi KR í Frosta-
skjóli, endaði 108-21, eftir að stað-
an var 51-11 í hálfleik. Leikurinn
var fyrir margra hluta sakir merki-
legur, því til dæmis var þetta
langstærsti sigur í deildinni f vetur
og gæti hugsanlega verið met í
efstu deild kvenna. KR-stelpurnar
jöfnuðu þarna stigametið í deild-
inni í vetur, en áður höfðu Keflvík-
ingar skorað jafnmörg stig í 108-
55 sigri gegn Tindastóli í lok nóv-
ember. Þar að auki þarf að leita
alla Ieið aftur til 7. október 1995
til að finna jafn lítið skor eins liðs
j einum deildarleik, en þá skoraði
IA tveimur stigum minna í 94-19
tapleik gegn Grindavík.
KR-ingar byrjuðu leikinn með
látum og beittu pressuvörn, sem
Grindvíkingar réðu engan veginn
við. Enda höfðu KR-stelpurnar
raðað niður 19 stigum áður en
boltinn rataði í fyrsta skipti niður í
KR-körfuna.
Hjá KR áttu þær Linda Stefáns-
dóttir og Hanna Kjartansdóttir
bestan leik, en Linda náði 9 stoln-
um boltum og átti 5 stoðsendingar.
Stig KR:
Sigrún Skarphéðinsdóttir 17
Hanna Kjartansdóttir 16
Linda Stefánsdóttir 14
Hildur Sigurðardóttir 14
Gréta Grétarsdóttir 14
Guðbjörg Norðfjörð 12
Emilie Ramberg 12
Guðrún Sigurðardóttir 7
Kristín Jónsdóttir 2
Stig Grindvíkinga:
Ólöf Pálsdóttir 5
Úr leik KR og Grindavíkur í fyrrakvöld.
.$V • I 5^ * g V K
W wJá ff B-
^ Wl tjjk 33 t: n
IJrslit og leikir
Jovana Stefánsdóttir 5
Sandra Guðlaugsdóttir 5
Sigríður Ólafsdóttir 2
Erna Magnúsdóttir 2
Bryndís Gunnlaugsdóttir 2
Fjórtán stiga sigur
Keflvíkinga
I Keflavík fór fram leikur heima-
manna gegn IS og endaði viður-
eign þeirra með 14 stiga sigri Kefl-
víkinga 73-59. Heimaliðið hafði
forystuna allan leikinn ef frá er tal-
in upphafsmínútan og var staðan
43-26 í hálfleik. Heimaliðið skor-
aði grimmt úr vítaskotum í fyrri
hálfleiknum og rataði þá 21 af 25
vítaskotum í körfuna.
Hjá Keflvíkingum bar mest á
þeim Birnu Valgarðsdóttur og
Öldu Leifsdóttur, en Birna tók alls
II fráköst á meðan Alda átti 6
stoðsendingar og varði 5 skot.
Anna María Sveinsdóttir átti líka
góðan leik og tók alls 13 fráköst.
Hjá stúdínum voru þær Krist-
jana Magnúsdóttir og Hafdís
Helgadóttir bestar og stigahæstar.
Kristjana náði 7 fráköstum og átti
5 stoðsendingar, en Hafdís náði 11
fráköstum og varði 6 skot.
Stig Keflavtkur:
Birna Valgarðsdóttir 18
Alda Leifsdóttir 14
Erla Þorsteinsdóttir 13
Anna M. Sveinsdóttir 10
Kristín Þórarinsdóttir 8
Kristín Blöndal 4
Birna Guðmundsdóttir 3
Eva Stefánsdóttir 2
María Karlsdóttir 1
Stig ÍS:
Kristjana Magnúsdóttir 21
Hafdís Helgadóttir 19
Þórunn Bjarnadóttir 6
Stella Kristjánsdóttir 5
Jófríður Halldórsdóttir 4
Júlía Jörgensen 4
Staðan:
Keflavík 11 10 1 838:573 20
KR 10 9 1 739:419 18
ÍS 11 8 3 668:539 16
KFÍ 10 3 7 566:738 6
Tindastóll 10 2 8 559:756 4
Grindavík 14 1 13 622:967 2
Anelka á spjöld sögunnar
Nicolas Anelka, Ieikmaður Real
Madrid, skráði nafn sitt á spjöld
sögunnar þegar hann skoraði fyrs-
ta markið í fyrsta Ieik fyrstu heims-
meistarakeppni félagsliða, sem
hófst í Brasilíu í lyrrakvöld. Real
Madrid mætti Saudí-Arabíska lið-
inu A1 Nassr í fyrsta leik keppninn-
ar í A-riðli og vann þar 3-1 sigur í
leik sem minnti meira á léttan æf-
ingaleik.
Leikmcnn Real þurftu lítið að
hafa fyrir hlutunum gegn þessu lítt
þekkta liði frá Saudí Arabíu, enda
engin stemmning á hálftómum
Morumbi leikvanginum í Sao
Paulo. Anelka opnaði markareikn-
ing keppninnar á 21. mínútu leiks-
ins og skoraði þar með sitt fyrsta
mark fyrir Real, síðan hann kom til
Iiðsins frá Arsenal í haust. Markið
var hálfgert heppnismark, þar sem
Anelka rak tánna f boltann, eftir að
hafa lent í samstuði við Hadi
Sharify, varmarmann A1 Nassr og
þaðan Iak boltinn í netið.
Þegar leið að lokum fyrri hálf-
leiks náði Fahad A1 Husseini
óvænt að jafna leikinn fyrir A1
Nassr, þegar dæmd var vítaspyrna
á varnarmann Real. Við það færð-
ist aðeins líf í leikmenn spánska
liðsins, sem tókst þó ekki að bæta
við mörkum fyrir leikhlé.
I upphafi seinni hálfleiks tókst
svo spánska Iandsliðsmanninum
Raul, að hæta við öðru marki Real,
þegar hann fiskaði boltann eftir
slæm mistök markvarðar arabíska
liðsins og staðan því orðin 2-1 fyr-
ir Spánverjana. Þriðja og síðasta
mark Real kom svo á 69. mínútu
leiksins, þegar Brasilíumaðurinn
Savio, skoraði úr vítaspyrnu eftir
að hrotið hafði verið á Anelka inn-
an vítateigs.
Gjafaniark
Seinni leikurinn í A-riðli var Ieik-
inn á sama Ieikvelli strax að leik
Real og AI Nassr loknum og fyllt-
ust áhorfendasvæðin þá af dyggum
stuðningsmönnum brasilísku
meistaranna Corinthians, sem
Iéku gcgn Afríkumeisturum Raja
Casablanca frá Marokkó.
Sá leikur þótti heldur líflegri, en
var þó ekki alveg laus við leiðindi
frekar en sá fyrri, því seinna mark
Corinthians í 2-0 sigri gegn Raja,
var auðsjáanlega aldrei skorað, þó
dómarinn hafi dæmt mark.
Eftir markalausan fyrri hálfleik
tókst Luizao, framherja brasilíska
liðsins, loksins að ná forystu á 50.
mínútu leiksins eftir sendingu frá
Marcelinho Carioca. Vörn Mar-
rokkómanna virtist ekki eiga í
neinum vandræðum, en fyrir al-
gjöran klaufaskap barst boltinn til
Luizao sem skoraði af stuttu færi.
Aðurnefnt gjafamark kom svo á
66. rnínútu leiksins, þegar varnar-
maðurinn Fabio Luciano átti
dúndurskot í þverslánna og niður.
Boltinn kom auðsjáanlega niður
utan marklínu, eins og greinilega
sást í endursýningu brasilíska sjón-
varpsins, en öllum á óvart dæmdi
dómarinn, Stefano Braschi, mark.
Fyrir markið höfðu leikmenn
Raja, átt góða innkomu í Ieikinn
og sýndu þá oft mjög góðan og yf-
irvegaðan leik.
Eftir fyrstu leikina í keppninni
er nokkuð Ijóst, að hún stendur
engan veginn undir nafni, sem
heimsmeistarakeppni félagsliða.
Af þeim liðunt sem léku í fyrra-
kvöíd er Raja Casablanca til dæm-
is eina liðið, sem er núverandi
nieislari sinnar þjóðar, sem segir
sína sögu.
Johan Cruyffog Pele.
Pele
bestur
Það kom fáum á óvart að knatt-
spyrnusnillingurinn Pele skyldi
kjörinn knattspyrnumaður ald-
arinnar af alþjóðasamtökunum
IFFHS, Alþjóðasamtökum um
knattspyrnuspeki og tölfræði, á
árlegri stórhátið samtakanna
sem haldin var í Rothenburg í
Þýskalandi fyrr í vikunni. í öðru
sæti varð Hollendingurinn Jo-
han Cruyff og Franz „Keisari"
Beckenbauer í því þriðja.
Af markvörðum aldarinnar,
sem voru kjörnir sér, varð Rúss-
inn Lev Yashin hlutskarpastur á
undan þeim Gordon Banks,
Englandi og Dino Zoff, Ítalíu,
sem urðu í öðru og þriðja sæti.
Fimmtíu bestu:
1. Pelé, Brasilíu
2. Johan Cruyff, Hollandi
3. Franz Beckenbauer, Þýskal.
4. Aifredo di Stefano, Spania
5. Diego Maradona, Argentina
6. Ferenc Puskas, Ungverjal.
7. Michel Platini, Frakklandi
8. Garrincha, Brasilíu
9. Eusebio, Portúgal
10. Bobby Charlton, Englandi
11. Stanley Matthews, Englandi
12. Marco van Basten, Hoílandi
13. Gerd Múller, Þýskalandi
14. Zico, Brasilíu
1 5. Lothar Matth%cus, Þýskal.
16. George Best, N.-írlandi
17. Juan A. Schiaffino, Urúgvæ
18. Ruud Gullit, HoIIandi
19. Gianni Rivera, Italíu
20. Valdir P. Didi, Brasilíu
21. Giuseppe Meazza, Italíu
22. Matthias Sindelar, Austurríki
23. Fritz Walter, Þýskalandi
24. Bobby Moore, Englandi
25. José M. Moreno, Argentínu
26. Hugo Sanchez, Mexíkó
27. George Weah, Líberíu
28. Roger Milla, Kamerún
29. José L. Andrade, Urúgvæ
30. Eracisco Gento, Spáni
31. Just Fontaine, Frankklandi
32. Ladislao Kubala, Spáni
33. Franco Baresi, Italíu
34. Josef Bican, Tékkóslóvakíu
35. Karl-H. Rummenige, Þýskal.
36. Enrique O. Sivori, Argentínu
37. Elias R. Fugueroa, Chile
38. Kevin Keegan, Englandi
39. Sandor Kocsis, Ungveijalandi
40. Héctor Scarone, Urúgvæ
41. Josef Masopust, Tékkóslóv.
42. Giacchinto Facchetti, Italíu
43. Alessandro Mazzola, Italíu
44. Raymond Kopa, Frakklandi
45. Uwe Seeler, Þýskalandi
46. Gunnar Nordahl, Svíþjóð
47. Thomas S. Zizinho, Brasilíu
48. Tesfilo Cubillas, Perú
49. Arsenio P. Erico, Paragvæ
50. Denis Law, Skotlandi
Leikmenn heimsálfaima:
Evrópa: Johan Cruyff, Hollandi
Suður-Amertka: Pelé, Brazilíu
Afríka: George Weah, Líberíu
Asj'a: Bum-Kun Cha, S-Kóreu
Mið- og Norður-Ameríka: Hugo
Sánchez, Mexíkó
Eyjaálfa: Wynton Rufer, Nýja
Sjálandi