Dagur - 08.01.2000, Blaðsíða 2
2 —LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2000
Bragi Guðbrandsson forstjóri Barnaverndarstofu: Dómsmálaráðherra og allsherj-
arnefnd þingsins ættu að skoða lagaákvæðið og velta fyrir sér breytingum.
Myndin er úr Barnahúsinu.
FRÉTTIR
Enn óvist um framtíð
Bamahúss. Samviniia
Bamavemdarstofu og
dómstólaráðs um
málþing.
„Það eina sem við vitum um er
að það rignir yfir okkur stuðn-
ingsályktunum," segir Bragi
Guðbrandsson forstjóri Barna-
verndarstofu spurður frétta af
málefnum Barnahúss. Hann
Barnaverndarstofu biða eftir
formlegu svari við erindi sem
sent var dómstólaráði fyrir um
tveimur mánuðum, þar sem
þeim tilmælum var beint til
dómstólaráðs að það setti leið-
beinandi reglur fyrir dómara þar
sem í væri fólgið að skýrslutaka
af börnum yngri en fjórtán ára
færi fram í Barnahúsi en á móti
myndi það lána sfna sérfræðinga
hvert á land sem er til að taka
skýrslur af börnum á aldrinum
fjórtán til átján ára.
Bragi viðurkennir þó að með
tilkynningu dómsmálaráðs á
dögunum hafi því crindi ef til
vill verið neitað f raun, en
þó ekki með afdráttarlausum
hætti að hans mati. „Það er bent
á það f fréttatilkynningu dóm-
stólaráðs að það geti ekki sett
bindandi reglur fyrir dómara og
við gerum okkur grein fyrir því,
en ég held hinsvegar að það
mæli ekkert gegn því að dóm-
stólaráðið beini slíkum tilmæl-
um til dómara."
Ekki logandi strið
Bragi leggur áherslu á að ekki sé
í gangi „logandi stríð“ milli
Barnaverndarstofu og dómstóla-
ráðs. „Eg legg mjög mikla áher-
slu á að við reynum að finna við-
unandi niðurstöðu í málið," seg-
ir Bragi en segir að vissulega sé
til staðar efnislegur ágreiningur.
Hins vegar segir hann að spurn-
ing sé hvort ekki þurfi hreinlega
að taka til baka breytingu sem
gerð var á lögum síðastliðið vor,
þar sem dómurum var gert að
annast skýrslutöku af börnum
sem sætt hafa kynferðislegu of-
beldi. „Það er dálítið athyglisvert
að Dómarafélag Islands lagðist
mjög gegn þessari lagabreytingu
þegar hún var gerð, ásamt ríkis-
saksóknara og lögreglustjóranum
í Reykjavík, svo dæmi sé tekið,“
segir Bragi og bendir á að því
hljóti að vera efni til þess af
hálfu dómsmálaráðherra og alls-
herjarnefndar þingsins að velta
málinu fyrir sér og skoða umrætt
Iagaákvæði.
Dómstólaráð og Barnavernd-
arstofa vinna nú að því í samein-
ingu að undirbúa málþing þar
sem meðal annars verða fengnir
erlendir sérfræðingar til að fjalla
um skýrslutöku af börnum. - HI
Risamjrí
Borgarbíó
„Við töldum rétt að tryggja það
að á Akureyri yrðu áfram tvö
bíó,“ segir Einar Valdimarsson
framkvæmdastjóri Háskólabíós,
en Háskólabíó hefur tekið hönd-
um saman við Skífuna, Laugar-
ásbíó og Stjörnubíó um rekstur
Borgarbíós á Akureyri.
Ætlunin er að setja upp THX-
kerfi í Borgarbíói en að öðru
leyti verður rekstur þess að
mestu óbreyttur að sinni. Þó
hafa þegar verið teknar upp 5, 7,
9 og 11 sýningar. Einhverjar
hugmyndir eru um breytingar
en Einar segir ekki tímabært að
upplýsa þær að sinni. Hann seg-
ir hugsanlegt að þegar fram líði
stundir muni bíóinu verða lokað
í einhvern stuttan tíma en síðan
opnað aftur með pompi og
prakt.
Jóhann Norðfjörð fram-
kvæmdastjóri Borgarbíós segir
stöðu Borgarbíós styrkjast mikið
við þessa breytingu. „Við erum
með fleiri myndir og frá fleirum
en nokkru sinni fyrr. Þessir jarl-
ar ætla að auka vegsemd Borgar-
bíós,“ segir Jóhann, en hann
verður áfram framkvæmdastjóri
Borgarbíós. - Hí
Kringlaii of litíl!
Ekki er nægjanlegt pláss í Kringlunni og hefur nú verið óskað eftir leyfi til að inn-
rétta fataverslanir I lagerhúsnæði.
Lager fataverslana í
íymtm skemmtistaða
í kjaUara Krmglunn-
ar. Betri nýting á
verslunarplássi.
Eignarhaldsfélag Kringlunnar
hefur nýlega fengið leyfi bygging-
arfulltrúa til að koma fyrir lager
lyrir fataverslanir í því húsnæði
sem áður var notað fyrir
skemmtistað í kjallara suðurhúss
Kringlunnar. Þarna er um að
ræða 800 fermetra húsnæði sem
skemmtistaðurinn Amma Lú og
fleiri slíkir voru til skamms tíma.
Það er fyrirtækið NTC sem rekur
margar verslanir í Kringlunni og
meðal annars þekkt fyrir verslun-
ina Sautján sem nýtir megnið af
þessu húsnæði undir fatalager.
Betri nýting
Einar Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Kringlunnar, vill
þó ekki meina að þessi ráðstöfun
sé til marks um það að Kringlan
sé þegar orðin of lítil. Sem kunn-
ugt er þá stækkaði Kringlan um
fleiri þúsund fermetra í haust
sem leið þegar ný viðbygging var
tekin í notkun. Hann segir að
þetta sé hinsvegar hluti af þeim
breytingum sem orðið hafa á
Kringlunni í framhaldi af stækk-
uninni. Þá sé þetta einnig liður í
því að verslanirnar geti nýtt sem
best það rými sem þær hafa fyrir
sjálfa verslunina f stað þess að
hluti þess sé notaður undir lager.
Þessi nýting á kjallaranum þýðir
Iíka að ekki sé gert ráð fyrir að
nota það húsnæði undir
skemmtistaði sem á sínum tíma
voru reknir þar með misjöfnum
árangri. - GRH
Rækja á Flænimgjagmiim
Árni M. Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra gaf í gær út reglugerð
um rækjuveiðar íslenskra fiski-
skipa á Flæmingjagrunni á árinu,
það er veiðar á samningssvæði
Norðvestur-Atlantshafs fiskveiði-
stófnunarinnar, NAFO.
Þeim fiskiskipum sem hafa
aflamark á Flæmingjagrunni á
árinu 2000 og uppfvlla önnur
skilyrði til að fá veiðileyfi þar, er
heimilt að veiða samtals 9.300
lestir af rækju á hafsvæðinu. Hér
t'r iim bráðabirgðaákvörðun áð
ræða og mun ákvörðun um
Árni M. Mathiesen.
heildarmagn verða endurskoðuð
síðar á árinu, þegar endanlegar^
upplýsingar um rækjuveiðar allra
samningsþjóðanna að NAFO á
Flæmingjagrunni á árinu 1999
hafa borist ráðuneytinu. Þessi
bráðabirgðaákvörðun nú er mið-
uð við leyfilegan heildarrækju-
afla íslenskra fiskiskipa á Flæm-
ingjagrunni á síðasta ári, sem var
einnig 9.300 lestir. - HI
62% óttast verðbólguskrið
Samkvæmt spurningaleik Dags á
fréttavef Vísis.is þá voru 62% þeirra
sem þátt er óttuðust verðbólguskrið í
kjölfar verðhækkúnar á mjólk og
mjólkurafurðum. Þeir sem éngar
áhyggjur höfðu eru þvf 38% þeirra sem
svöruðu spurningunni.
Ný spurning Dags hefur verið sett á
vefinn og hljóðar hún svo: „Telurðu að Vatneyrardómurinn verði
staðfestur í Hæstarétti?"
Slóðin er sem fyrr www.visir.is
Aflamark skarkola hækkar
Sjávarútvegsráðherra, Árni M. Mathiesen, hefur ákveðið að hækka
aflamark á skarkola úr 3.000 tonnum í 4.000 tonn á yfirstandandi
fiskveiðitímabili. í kjölfar úttektar Hafrannsóknastofnunar síðastliðið
vor, þar sem mögulegt var í fyrsta sinni að beita aldursaflagreiningu,
kom í ljós að stofninn hefur minnkað verulega. Til þess að stuðla að
hraðri uppbyggingu stofnsins var ákveðið að lækka kvótann úr 7.000
tonnum í 3.000 tonn. Þessi mikli niðurskurður hefur gert veiðiskipum
erfitt fyrir þar sem meðafli af skarkola er meiri en þessu nemur. - GG
Memmtgarverðlaiiii Visa
Menningarverðíaun
Visa Island voru af-
hent í vikunni, alls að
upphæð tvær milljóna
I<róna. Hér eru verð-
launahafarnir saman-
komnir. Frá vinstri
eru það Karl Sigur-
björnsson biskup, en
Þjóðkirkjan var verð-
launuð fyrir framlag
til þjóðmenningar og
almenningsheilla, Frá afhendingu verðlaunanna. mynd: þúk
Helgi Björnsson, jarð-
eðlis- og jöklafræð-
ingur, lýrir Iramlag til vísinda, Guðjón Friðriksson, rithöfundur og
sagnfræðingur, fyrir framlag tii ritlistar, Garðar Cortes, fyrir framlag
til sönglistar, og loks koma leikararnir úr Fjórum hjörtum, þeirÁrni
Trýggvason, Bessi Bjafna"sön, Gurinár 'EýjóJFsson ogmffílc Háralds-
son, sem verðlaunaðir voru fyrir framlög sín til leiklistarinnar.
wisir^is