Dagur - 08.01.2000, Side 4
4 - LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2000
FRÉTTIR
Utburöarmal í Reykjavík eru nú í brennidepli.
Útbiirðardómiir
fyrir Hæstarétt
I athugun er að áfrýja ein-
um dómi af mörgum.
Tveimur útburðum Félags-
bústaða frestað fram yfir
helgi. Einstæðar mæður og
örykjar með börn.
Tveimur útburðum úr íbúðum Félags-
bústaða var frestað í vikunni og fram til
n.k. mánudags. Þetta var ákveðið eftir
að Ogmundur Jónasson, formaður
BSRB og þingmaður Vinstri hreyfingar-
innar, og Jón frá Pálmholti, formaður
Leigjendasamtakanna, höfðu gengið í
málið og rætt það við fulltrúa sýslu-
manns. Þá er verið að kanna þann
möguleika að áfrýja einum af mörgum
útburðardómum Héraðsdóms Reykja-
víkur til Hæstaréttar.
Prófmál
Formaður Leigjendasamtakanna segir
að hugsanleg áfrýjun til Hæstaréttar sé
gerð á grundvelli lögfræðilegrar greinar-
gerðar sem Lúðvík E. Kaaber héraðs-
dómslögmaður vann fyrir samtökin þeg-
ar Félagsbústaðir voru stofnaðir. Þar
kemur fram að borgin hafi ekki heimild
til að framselja skyldur sínar gagnvart
leigjendum sínum með stofnun lyrir-
tækisins. Ef af þessu verður, þá verður
einn útburðardómur tekinn fyrir og
hann rekinn sem prófmál fyrir Hæsta-
rétti. Þá munu menn reyna að halda
uppi vörnum í þeim útburðarmálum
sem eiga eftir að koma fyrir héraðsdóm
vegna kröfu Félagsbústaða.
Einstæðar mæðux með böm
Utburðarfrestunin í vikunni náði til
tveggja einstæðra mæðra með tvö og
þrjú börn. Þessar tvær fjölskyldur séu til
viðbótar þeim 50 sem stendur til að
bera út úr íbúðum Félagsbústaða í lok
næstu viku, eða 15. janúar n.k. að öllu
óbreyttu vegna vangoldinnar húsaleigu.
Formaður Leigjendasamtakanna segir
að mikið af því fólki séu öryrkjar með
börn á framfærslu. Onnur þessara ein-
stæðu mæðra sé 75% öryrki sem varð
gjaldþrota við að bjarga móður sinni eft-
ir að faðir hennar Iést. I þeim hremm-
ingum hefði hún ekki getað greitt húsa-
Ieigu í um það bil ár. Hún sé hinsvegar
búin að vinna sig út úr gjaldþrotinu og
er að sækja um Ián til að greiða húsa-
Ieiguskuldina við Félagsbústaði. Hann
segir að þrátt fyrir það sé ekkert sem
bendir til þess að útburði hennar verði
frestað á meðan að hún sé að reyna
hvað hún getur til að greiða sínar skuld-
ir. Þá sé nær ekkert að hafa upp úr því
að leita til félagsráðgjafa Félagsþjónust-
unnar vegna þessara tveggja fjölskyldna
og fleiri vegna erfiðleika þeirra.
Jón frá Pálmholti segist einnig hafa
leitað til umboðsmanns barna og for-
stjóra Barnaverndarstofu vegna málsins.
Hann hefði síðan vísað þeim til fram-
kvæmdastjóra barnaverndarnefndar
sem hefði reynt að liðsinna þeim. I við-
ræðum þeirra Ögmundar og Jóns við
fulltrúa sýslumanns hefði hann lofað að
skrifa Félagsþjónustunni bréf þar sem
þess sé krafist að búið verði að leysa mál
þessara tveggja fjölskyldna fyrir n.k.
mánudag. — GRH
Jakob Bjömsson fyrrnm bæjar-
stjóri á Akureyri liefur nú verið
ráðinnframkvæmdastjóri Orku-
sjóðs og er sjóðurimi samhliða
fluttur til Akureyrar. Pottverjum
þykir þetta allt hið besta mál,
enda Jakob vel inni í orkumálum
sem stjómarmaður í Landsvirkj-
un. Það sem mönnum þykir liins
vegar tíðindum sæta er aö það skuli verða eitt af
íyrstu verkum Valgerðar Sverrisdóttur iðnaðar-
ráðherra að setja Jakob í þetta nýja starf, en sem
kmmugt er fór Jakob fram gegn Valgerði í próf-
kjöri framsóknarmanna á Norðurlandi eystra
íyrir síðustu kosningar. Segja framsóknarmeim í
kjördæminu þetta til marks um að próíkjörs-
átökum sé lokið, en pottverjar úr öðram flokk-
um benda á að nýja starfið og flutningurhui til
Akureyrar hafi verið kokkaður upp í tíð Firnis...
Jakob
Björnsson.
í pottinum ræða menn mikið um foringjaslag-
inn í Samíylkingunni, en sem
kunnugt er em þeir Guðmundur
Ámi og Össur Skarphéðinsson
taldir líklegir til að berjast um
fomstuna. í pottínum var fullyrt
að Össur stæði betur að vígi,
ekki síst eftir að Guðmundur
Ámi greiddi atkvæði með bygg-
inu Fljótsdalsvirkjunar á þingi.
Stuðningsmenn virkjimar í Samfylkingunni séu
að vísu margir úti á landi, en á Stór- Reykjavík-
ursvæðinu séu þeir fáir og það ríði baggamunin-
um...
Össur Skarp-
héðinsson.
Pottverjar vom í gær líka að rifja upp hugmynd-
ir Margrétar Frímannsdóttur og fletíi um að gott
gætí verið að fá utanað komandi formaim, þ.e.
einhvem sem ekki hefði verið í forastusveit
gömlu flokkanna. Þegar þeir flettu Mogganum
kom í ljós að einn slíkur kandídat - sem ekki hef-
ur verið í umræðunni lengi - minnti á sig með
aðsendri grein. Það var Egill Skúli Ingibergs-
son!!L.
FRÉTTAVIÐTALIÐ
Sigrún
JakoDsdóttir
starfsmaðurlijá Rekstri og ráðgjöf
Norðitrlandi
Hafiti er úttekt á hótelum
og gististöðum til stjömugjaf-
ar. Mikilvægtfyrir stefnumót-
unfyrirtækjanna. Hlutlægt
mat. Ekki til alþjóðlegur stað-
aHiUiJl'iuir. ióv;y ,6i
Markaðuriiui kallar
a stjomugjof
- / hverju felst þessi úttekt á hótelum og
gististöðum sem þú vinnur að?
„Þetta felst í því að taka út alla gististaði
sem óska eftir því. Við fylgjum staðfærðri
útgáfu af staðli sem dönsku hótelsamtökin
eiga. Við notum hann og athugum 110 at-
riði við hverja úttekt. Hótelin fá síðan ein-
kunn eftir því, sem er stjörnur frá einni upp
í fimm. Það er ekki til neitt alþjóðlegt kerfi
í sambandi við þetta, það er hvert land með
sitt kerfi.“
- Öfugt við það sem margir halda ef til
vill?
„Já, það er málið. Fimm stjörnu hótel í
Balí í Indónesíu er allt annað en fimm
stjörnu hótel á Islandi. Þetta er eitthvað
sem fólk á eftir að finna eða athuga. Dan-
irnir hafa notað sitt kerfi í þrjú ár og vænt-
anlega verður það orðið að skandinavísku
kerfi í framtíðinni með okkar hjálp og svo
eru Grænlendingar að taka þetta upp líka.“
- Þtí athugar 110 atriði, hvað er það sem
• þúshoðar?ii i... ,:iniíurnöb ,l|fl -
„Það er allt frá snögum á baöherbergi og
uppúr, en það er ekki lagt mat á þjónustu,
andrúmsloft eða neitt slíkt. Þetta er fyrst og
fremst hlutlægt mat. Við athugum stað-
reyndir og aðbúnað gestsins en ekki þjón-
ustuna.“
- Er það hvergi gert við svoiui stöðlun?
„Jú, skoska kerfið er þannig og það hafa
Færeyingar tekið upp. Það er vandmeðfarið
en við sjáum fyrir okkur að slíkt mat gæti
komið f framhaldi af þessu. Danirnir eru
núna að tengja þjónustustigið við menntun
starfsfóiks og gera þá kröfur um að ákveðin
menntun starfsfólks í ýmsum störfum sé
fyrir hendi."
- Hvert er síðan framhaldið hjá þér? Þií
ert með allt landið er það eklii?
„Jú, við veröum á fullu næstu vikur og
mánuði, heimsækjum til dæmis nokkur fyr-
irtæki í Reykjavík í næstu viku og sfðan tek-
ur eitt við af öðru. Fólk er mjög áhugasamt
um aðvera með. Þetta tekur gildi þann 1.
septemben; ogí'-þfbrer hótblum leyfilegtjyaði
nota þetta í sínu kynningarefni. Þetta er
hins vegar ekki lögbundið og hótelum og
gististöðum í sjálfsvald sett hvort þau eru
með eða ekki. Þetta verður þannig að núna
fara allflest stærstu hótelin í þetta og svo
fylgja hinir með. Það tekur kannski eitt eða
tvö ár að koma þessu yfir en þetta er eitt-
hvað sem markaðurinn inun síðan kalla á,
ferðaskrifstofur og fleiri.“
- Þetta er þá væntanlega eitthvað sem
liótel og gististaðir ættu að geta nýtt sér í
markaðssetningu, til dæmis þeir sem fá
margar stjörnur?
„Já, ég myndi segja það. En það getur ver-
ið betra að vera með gott þriggja stjörnu
hótel heldur en lélegt fjögurra stjörnu hótel.
Þetta'hjálpar hótelunum í þeirra stefnumót-
un, um það hvernig þau vilja vera."
- Sérðu fyrir þér að innanfárra ára verði
þetta kerfi komið í notkun hjá nánast öll-
um hótelum og gististöðum hér á landi?
„Já, ég geri það,“ - IIi
i -íijö-iucp.Ó/ .mad íríúóöJR'iu
un
i